Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 Útlönd Frjálslyndi lýðræöisflokkurinn í Japan kýs sér nýjan leiðtoga: Obuchi vann yfir- burðasigur í morgun Keizo Obuchi, utanrikisráðherra Japauis, vann yfirburðasigur í for- mannskjöri Frjálslynda lýðræðis- flokksins í morgun og næsta víst þykir að hann verði næsti forsætis- ráðherra landsins. Niðurstaða at- kvæðagreiðslunnar var mjög í anda þess sem búist hafði verið við. Hinn 61 árs gamli Obuchi, sem var frambjóðandi flokkseigendafé- lags stjómarflokksins, vann auð- veldan sigur á keppinautum sínum tveimur, Seiroku Kajiyama, gamal- reyndum stjórnmálamanni, og heil- brigðisráðherranum Junichiro Koizumi. Obuchi fékk atkvæði 225 fulltrúa af 441 sem tók þátt í atkvæðagreiðsl- unni. Kosningin var sýnd beint í japönskum sjónvarpsstöðvum. Kaji- yama varð í öðra sæti með 102 at- kvæði og Koizumi rak lestina með 84 atkvæði. Síðustu klukkustundirnar fyrir atkvæðagreiðsluna var mikið talað um að sigur Obuchis kynni að leiða til klofnings innan stjórnarflokks- ins. Leiddar voru að þvi líkur að einhverjir ungu umbótasinnanna í flokknum mundu taka allt sitt haf- urtask og fara. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hefur þrettán þingsæta meirihluta í neðri deild japanska þingsins sem endanlega velur næsta forsætisráð- herra landsins. Það verður i lok Keizo Obuchi, væntanlegur forsæt- isráðherra Japans. mánaðarins en uppreisn í flokknum gæti svipt hann nauðsynlegum þingmeirihluta. Fréttaskýrendur telja að vel- gengni Obuchis í embætti utanríkis- ráðherra kunni að hafa riðið bagga- muninn þar sem allir frambjóðend- umir hafi heitið því að hrinda í framkvæmd efnahagsumbótum. Obuchi var kjörinn á þing 26 ára gamall, yngri en nokkur maður fram að því. Hann hafði þá ekki enn lokið háskólanámi sínu. Hann tók þá móður sína með sér til Tokyo svo hún gæti séð þegar hann tæki sæti á þinginu. Obuchi, sem er sérfræð- ingur í bardagaíþróttum, er frá fjallahéraðinu Gunma. Maður dregur barnabörnin á fleka eftir ánni Wuchang t kínverska bænum Hubei. íbúar á þessum slóðum hafa barist við vatnsflauminn síðustu þrjá daga. Flóð hafa geisað víða í Kína þaö sem af er sumri og er talið að þau hafi orðið að minnsta kosti þúsund manns að fjörtjóni. Símamynd Reuter Skatturinn eltist við Roy Rogers heitinn Þrátt fyrir að Roy Rogers, kon- ungur kúrekanna, hafi yfirgefið þessa jarðvist þann 6. júlí síðastlið- inn þá eru bandarísk skattayfirvöld enn að rukka hann. Þau hafa reynd- ar þurft að snúa sér til dánarbúsins og krefjast nú rúmlega fimmtíu milljóna króna greiðslu en skýring- una segja þeir vera að Rogers og kona hans, Dale Evans, hafi van- talið eigur sínar á skattskýrslu. Málið kom fyrst til kasta dómara í skattamálum aðeins viku áður en Rogers lést vegna hjartabilunar. Samkvæmt dagblaðinu Los Ang- eles Times þá hefur lögmaður Rogers áfrýjað málinu enda segir hann skattinn ekki taka með í reikninginn að þau hjón hafi gefið sex bömum sínum hlut af eignum sínum á árunum 1995 og 1996. Það Roy Rogers ásamt konu sinni, Dale Evans. Rogers iést fyrir skömmu en skattyfirvöld seilast nú í dánarbú hans. var hlutur á landareign í Victorville í Kalifomíu en þar hefur verið í undirbúningi að reisa skemmtigarð í anda villta vestursins fyrir yngstu kynslóðina. Þar í bæ er einnig að finna safn um Roy Rogers. Skattyfirvöld halda því hins veg- ar fram að verðmæti landareignar- innar sé mun meira en Rogers og frú gáfu upp. Skatturinn segir land- ið að minnsta kosti 70 milljóna króna virði en það er helmingi meira en gefið var upp í skattskýrsl- unni. Að sögn Davids Nelsons, lög- manns Rogershjónanna, þá verður deilan um verðmæti landareignar- innar ekki leyst í bráð. Hann segir jafnframt að hætt hafi verið við að reisa kúrekagarðinn, að minnsta kosti í bili. Reuter Þingmenn berj- ast gegn stríðs- glæpadómstól Þingmenn sem eiga sæti í ut- anríkismálaneínd öldungadeildar Bandaríkjaþings fögnuðu I gær þeirri ákvörðun stjórnvalda í Washington að hafna samkomu- lagi um sérstakan stríðsglæpa- dómstól og hvöttu til þess að barist yrði gegn því að önnur ríki staöfestu samkomulagið. Þingmennirnir sögðust aldrei mundu veita alþjóölegum dóm- stóli lögsögu yfir bandarískum þegnum. Þá væru önnur ákvæði samkomulagsins þess eðlis að óvíst væri hvort Bandaríkin gætu haldið áfram þátttöku í frið- argæslu. Samkomulagið um dómstólinn var undirritað í Róm í síðustu viku og skrifúðu fulltrúar flestra bandamanna Bandaríkjanna undir það. Sextíu þjóðir þuifa að staðfesta samkomulagið áður en það tekur gildi. Það gæti tekið fimm ár. Dregið úr losun geislavirkra efna í hafið Evrópuþjóðir samþykktu í gær að draga svo mjög úr losun geisla- virkra efna í hafið að hún verði nánast engin árið 2020. Þá var samþykkt að henda ekki úr sér gengnum olíuborpöllum í hafið. Umhverfisveradarsinnar fögn- uðu mjög ákvörðun umhverfis- ráðherra fimmtán þjóða Evrópu- sambandsins og sögðu hana sögu- lega. Olíufélög og kjarnorkuver þurfa hins vegar að horfa á eftir milljónum dollara til að hreinsa upp eftir sig. „Þaö verður erfitt að ná þessu markmiði en við teljum þó aö stjómendum kjamorkufyrir- tækja muni takast það,“ sagði Michael Meacher, umhverfisráð- herra Bretlands, um niðurskurð á mengun frá kjamorkuendur- vinnslustöðvum á borð við Seilafield. Mengun þeirrar stöðvar hefur farið mjög fyrir brjóstið á Norðurlandaþjóðunum. Bannað að gera grín að Löppum Eftirlitsnefnd með réttindum neytenda í Finnlandi hefur for- dæmt grínaktuga ísskápaauglýs- ingu á þeirri forsendu að hún sýni Samana, frumbyggja Finn- lands, sem bölvaðar fyllibyttur. Ekki nóg með að Saminn í aug- lýsingunni sé fuliur, heldur er hann líka skítugur, fiflalegur og tannlaus. Það gengur víst ekki. Stuttar fréttir i>v Borgarstjóri í grjótið Gholamhossein Karbaschi, borgarstjóri i Teheran, höfúðborg írans, var dæmdur í fimm ára fangelsi í gær fyrir fjármálamis- ferli. Þá var honum bannað að gegna opinberu embætti í tuttugu ár og gert að þola 60 vandarhögg. Ekki tii Makedóníu Javier Solana, aðalfram- kvæmdastjóri NATO, sagði í gær að bandalagið hefði engin áform um að nota land í Makedóníu í tengslum við hugsanlega hernaðarihlut- un í Kosovohér- aði í Serbíu. Solana sagði þetta við fréttamenn eftir viðræður við forseta Makedóníu. Hættulegt í Kosovo Sendimaður Bandaríkjastjórrn- ar á Balkanskaga, Robert Gel- bard, sagði í gær að átökin í Kosovo væru komin á hættulegra stig en áður en lausnina væri þó ekki að finna á vígvellinum. Áhyggjur ESB Evrópusambandiö ætlar að senda fulltrúa sína til Belgrad og Pristina á næstunni til aö lýsa áhyggjum sambandsins á þróun mála í Kosovo. Lík látin rotna Yfirvöld á Papúu Nýju-Gíneu hafa látið loka flóðasvæðinu við norðurströnd landsins og verða lík fórnarlambanna sem enn eru þar látin rotna. Tók daginn snemma A1 Gore, varaforseti Bandaríkj- anna, tók daginn snemma í Moskvu í morg- un og hélt til viðræðna viö Sergei Kiríj- enkó, hinn unga forsætisráð- herra Rúss- lands. Frétta- skýrendum þyk- ir það til marks um að mennimir hafi mikið að ræða. Lögga baröi svipukonu Kanadíska svipukonan sem ákærð hefúr verið fyrh- vændi sagði fyrir rétti í gær að löggan hefði barið hana í fyrstu innrás sinni í kynlífsmiðstöð hennar fyr- ir fjórum árum. íranir prófa eldflaugar íranir hafa undanfarið prófað nýjar meðaldrægar eldflaugar sem hannaðar eru í Kóreu. Bandaríkjamenn gagnrýna til- burði írana til hemaðaruppbygg- ingar harðlega. Yfirheyrður í gær Larry Cockell, yfirlífvörður Clintons forseta, kom fyrir rann- sóknarkviðdóm Kenneths Starrs í gær. Vitna- leiðslan fór fram fyrir luktum dyrum en heim- ildir herma að Cockell hafi ver- ið yfirheyrður í um klukkustund. Ekki var taliö að Cockell hafi þm-ft að svara erf- iðum spurningum varðandi einkalíf forsetans en hann kann aö verða kallaður fyrir á ný. Hafna milligöngu Bandaríkjamenn hafa hafnað beiðni ísraelsmanna um frekari milligöngu í friðarviðræðum þeirra og Palestínumanna. Uppræting barnakláms Hollenski dómsmálaráðherr- ann, Winnie Sorgdrager, hefur sætt nokkurri gagnrýni vegna bamaklámsmálsins og ráðuneyti hennar þykir hafa sýnt sinnuleysi í málinu. Sorgdrager hefur nú lýst því yfir að uppræting barnakláms í Hollandi verði for- gangsmál ráðuneytisins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.