Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Síða 9
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 9 Richard Rodriguez ætlar aö bæta fyrra heimsmet sitt: Fjörtíu dagar í rússíbana Bandaríkjamaðurinn Richard Rodriguez tilkynnti í gær að hann hygðist bæta enn heimsmet sitt í rússíbanaakstri. Rodriguez hefur dvalið í rússíbana í Blackpool á Englandi í 30 daga og ætlar ekki að hætta fyrr en 41 degi er náð eða sem nemur þúsund klukkustundum. „Ég er hæstánægður og mér líður stórkostlega," sagði Rodriquez í símaviðtali við Reutersfréttastofuna í gær en þá var ljóst að keppinautur hans, Kanadamaðurinn Normand St. Pierre, hefði látið í minni pokann fyrir Rodriguez eftir 670 stundir í rússíbananum. Rodriguez á ellefu daga ferð eftir en hann fær 5 mínútna hvild á klukkustundarfresti. Hann hefur ávallt verið unnandi rússíbana og setti sitt fyrsta heimsemt árið 1977, þá nítján ára gamall. Rodriguez er ánægður með vistina og segist jafnan ná að sofa í fimm stundir yfir nóttina. Rodriguez reynir að láta fara vel um sig í rússíbananum enda er hann heimili hans í rúman mánuð. Hann segist taka það rólega en stundum geti verið gott að spjalla við vini og kunningja í síma. Símamynd Reuter Útlönd Eiturefni í norskum ís- björnum könnuð Norskir vísindamenn hefja í næsta mánuði rannsókn á áhrif- um hættulegra mengunarefna á ónæmiskerfi hvítabjarna á Sval- barða. Ætlunin er að fylgjast með um fimmtíu bjamdýrum. Þau verða bólusett og á þau verða fest sendi- tæki á stærð við armbandsúr. Til- gangur rannsóknarinnar er að skoða áhrif mikils magns meng- unarefna á borð við PCB og skor- dýraeitrið DDT á dýrin. Á Svalbarða og við Barentshaf era nú um fjögur þúsund hvíta- birnir. Bann var lagt við veiði dýranna árið 1973 og því hefur þeim fjölgað mjög á þessu svæði. ísbimir eru hins vegar veiddir ár- lega i Alaska, Kanada, á Græn- landi og i austurhluta Rússlands. Á Svalbarða- og Baretnshafs- svæðinu er mikið um mengunar- efhi sem berast þangað með loft- og hafstraumum. Óttast er að hvítabirnirnir þoli ekki öllu meira af þeim. ÁLFELGUR - HEILSÁRSDEKK - FJARSTÝRÐ SAMLÆSING - GEISLASPILARI vökva/veltistýri • 2 loftpúðar • rafmagn í rúðum og speglum • aflmikil 16 ventla vél • vindkljúfur með hemlaljósi • styrktarbitar í hurðum • samlitaðir stuðarar hæðarstillanleg kippibelti • upphituð framsæti P/r% . t SOMAíj/ °tSKYLDUBtÞÞ ( BALENO EXCLUSIVE 4X4 1.595.000 kr. SUZUKI SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf„ Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Isafjörður: Bilagarður eht.Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrísmýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is NÝR; ENN RÍKULEGAR ÚTBÚINN SUZUKIWAGON BALENO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.