Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998
13
Fréttir
Mikill áhugi Qölmiðla á komu Keikós til Eyja:
Vekur heimsathygli
„Kanadamennimir sem eru að
koma til landsins til að setja niður
akkerisfestingamar á kví Keikós i
Vestmannaeyjum em búnir að vera
i viðtölum í dagblöðum og á út-
varps- og sjónvarpsstöðvum bæði í
Kanada og Bandaríkjunum," segir
Hallur Hallsson, talsmaður Free
Willy/Keiko-samtakanna. „Flutn-
ingur Keikós til íslands vekur at-
hygli úti um allcm heim eins og for-
sætisráðherra Svíþjóðar sagði í
Hallur Hallsson, talsmaður Free
Willy-samtakanna.
segir Hallur Hallsson, talsmaður Free Willy-samtakanna
sjónvarpinu. Fyrir
nokkmm vikum fjölluðu
200 bandarískar sjón-
varpsstöðvar um að
Keikó væri á leið til ís-
lands og núna er starfs-
fólk bandarískrar sjón-
varpsstöðvar úti í Vest-
mannaeyjum og blaða-
menn frá stærsta dag-
blaði í Oregon. Og það
em stöðugar fyrirspurnir
og hringingar bæði hing-
að og eins í Newport í Or-
egon frá bandarískum
fjölmiðlum og reyndar frá
fjölmiölum úti um allan
heim; ekki síst Evrópu."
Keikó varð heimsfræg-
ur eftir að hafa „leikið“ í
kvikmyndinni Free Willy.
Fleiri dýr hafa komið
fram í myndum og Hallur
er spurður hvað það er
sem geri hann sérstakan.
„Þeir sem komast í
námunda við Keikó finna
þessa töfra. Þegar maður
horflst í augu við Keikó
er það ekki síður hann
sem er að velta manni
fyrir sér heldur en ég
velti honum fyrir mér.
Hann er mjög skynugur
og athugull og hann hefur
Áformaður flutningur Keikós til Eyja vekur athygli fjölmiðla um allan heim.
sína skapgerð. Hann er
dyntóttur og fer sínu
fram. Háhyrningar eru
kallaðir úlfar hafsins.
Þeir þurfa að bjarga sér,
þeir gera sér grein fyrir
orsök og afleiðingu enda
eru þetta magnaðar
skepnur."
Hallur segir að veröld-
in sé heilluð af hvölum.
„Og ég tel að það sem
heillaði fólk um alla ver-
öld - ekki síst börn - var
þegar Keikó í myndinni
Free Willy stökk yfir
brimgarðinn og varð
frjáls. Frelsið hefur alltaf
heillað mannkynið." Eftir
að hafa verið í kvínni í
Vestmannaeyjum í ein-
hvern tíma fær Keikó
tækifæri til að fá frelsið
aftur. „En það verður gert
að vandlega athuguðu
máli. Þegar maður var
með dúfnakofann í gamla
daga sleppti maður dúf-
unum, þær flugu um á
daginn en komu aftur í
kofann á kvöldin í skjólið
og matinn." Dyrnar að
kvínni munu standa opn-
ar ef Keikó hefur sama
háttinn á. -SJ
Skálar sameinast Hraöfrystistöö Þórshafnar:
Ekki deilt um eignarhlut Tanga
DV, Akureyri:
„Sameiningarferlið er í gangi
en því er ekki lokið,“ segir Jó-
hann A. Jónsson, framkvæmda-
stjóri Hraðfrystistöðvar Þórs-
hafnar, um sameiningu Skála
hf. við Hraðfrystistöð Þórshafh-
ar, en Skálar voru sameignar-
fyrirtæki Þórshafnarbúa og
Vopnfirðinga.
Skálar voru stofnaðir árið
1993 að frumkvæði Jóhann A.
Jónssonar, framkvæmdastjóra
Hraöfrystistöðvar Þórshafnar,
og Friðriks Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra Tanga á
Vopnafirði. Skálar keypti m.a.
nótaskipið Júpiter og síðar ann-
að nótaskip, Neptúnus. Þegar á
leið fór að ganga á ýmsu í sam-
starfinu, upp komu deilumál og
ásakanir um óheilindi, einkum
af hálfu Friðriks í garð Jóhanns.
Jóhann A. Jónsson segir sameiningarmálinu lokiö hvaö varöar tölur. Hér má sjá loönuskipiö Júpiter.
Jóhann A. Jónsson sagði í
samtali við DV aö sameiningar-
ferli Skála og Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar væri í eðlilegum far-
vegi en sameiningin væri miðuð
við síðustu áramót. Sameining-
in var auglýst í Lögbirtingablað-
inu og nú stendur fyrir dyrum
að halda aðalfúnd Skála og hlut-
hafafund í Hraðfrystistöð Þórs-
hafnar til að ganga endanlega
frá sameiningunni.
Þær raddir hafa heyrst að
deilt sé um hver verði eignar-
hlutur Tanga á Vopnafirði í
Hraðfrystistöð Þórshafnar að
sameiningunni lokinni. Jóhann
A. Jónsson sagði í samtali við
DV að eignarhlutur Tanga yrði
rétt um 5%, en Friðrik Guð-
mundsson, framkvæmdastóri
Tanga, vildi ekki ræða það mál,
en vísaði á Jóhann A. í því sam-
bandi. -gk
Sendibílstjórar og Sjóvá-Almennar:
Deila um bótagreiðslur
Tryggingafélagið Sjóvá-Almenn-
ar sendi fyrir skömmu bréf tU
verkstæða og varahlutasala þar
sem félagið mælist tU þess að
reikningar vegna tjóns á bUum og
öðru sem félagið þarf að bæta séu
stUaðir á tjónþola en ekki félagið
sjálft. Margir sendibUstjórar eru
afar ósáttir við þessa tilhögun enda
segja þeir hana valda því að þeir
þurfi sjálfir að leggja út fyrir virð-
isaukaskatti af viðgerð bUa sinna í
stað þess að tryggingafélagið geri
það.
Samkvæmt lögum geta sendibU-
stjórar fengið virðisaukaskatt af
viðgerðarkostnaði endurgreiddan
og þurfa því ekki að greiða aUan
viðgerðarkostnaðinn. Það getur
hins vegar tekið mánuði að fá end-
urgreiðslu viröisaukaskattsins frá
skattstjóra og allnokkrir sendibU-
stjórar segja þessa tilhögun Sjóvár-
Almennra valda því aö þeir neyðist
sjálfir tU að leggja út hundruð þús-
unda fyrir viðgerðarkostnaði og
bíða þess í mánuði að fá endur-
greiðslu þess fjár frá skattinum. Ef
reikningurinn væri hins vegar stU-
aður á tryggingafélagið myndi það
greiða hann að fuUu, en sendibil-
stjóramir endurgreiða félaginu
þegar endurgreiðslan væri fengin
frá skattstjóra. Telja bUstjóramir
sér vera mikið óhagræði áð þessari
greiðslutilhögun og kvarta einnig
undan því að þeir þurfi að blanda
sínum rekstri inn í það sem þeim
kemur ekki við, þar sem þeir verða
einnig að taka þetta inn í bókhald
sitt.
Guttormur Þórarinsson, hjá
tjónadeild Sjóvár-Almennra, segir
ekki um það að ræða að sendibU-
stjórar neyðist tU að leggja sjálfir
út fyrir viröisaukaskatti. „Við
leggjum út fýrir virðisaukaskatti
en áður en við gerum það gerum
við samkomulag við tjónþola um
að hann endurgreiði okkur virðis-
aukaskattinn þegar hann fær virð-
isaukaskattinn endurgreiddan. Ef
tjónþoli vUl ekki faUast á þetta
samkomulag þá eram við að sjálf-
sögðu ekkert að leggja út peninga
sem óvíst er hvort við fáum
greidda aftur en eigum rétt á. Þar
með verður hann að leggja út fyrir
virðisaukaskattinum sjálfur og ég
geri ráð fyrir að þannig sé málum
háttað hjá þeim sendibUstjórum
sem ósáttir era við þessa tilhögun.
Annars stendur öUum slíkt sam-
komulag tU boða enda eiga við-
skiptavinir okkar ekki að sæta því
að þurfa sitja uppi með um 100 þús-
und króna kostnað sem þeir fá ekki
greiddan fyrr en eftir 2-3 mánuði
kannski."
Samkvæmt bókhaldslögum á að
stUa reikninga á eiganda hluts sem
gert er við þó að vátryggingafélag-
ið komi til með að borga. Að sögn
Guttorms eru Sjóvá-Almennar að-
eins að fara að þessum lögum, svo
og tilmælum ríkisskattstjóra um
að ganga frá málum á þennan hátt.
„Helsta breytingin hjá okkur er sú
að við göngum skipulegar eftir
endurgreiðslu en áður. Ef tU viU
era menn ekki búnir að venjast
þessari breytingu og era ósáttir
þess vegna.“
-kjart
Tímareimar
Viðurkenndir
bílavarahlutir.