Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Síða 14
14 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarforma&ur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON FramKvæmdastjóri og útgafustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritsflórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgrei&sla, áskrift: ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - A&rar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingan 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasí&a: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Fijálsrar flölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sfmi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Hlutabréf og sparnaður Margrét Thatcher sagöi aö til að almenningur skildi lögmál efnahagslífsins, og þarmeð nauðsyn aðhalds og stöðugleika á vinnumarkaði, væri besta ráðið að fá honum hlutabréf í hendur. Það tryggði hún með aðferðum sínum við einkavæðingu ríkisfyrirtækja. Hér á landi hefur á síðustu árum orðið gagnger breyting á þátttöku almennings á markaði með hluta- bréf. í dag á þriðjungur íslensku þjóðarinnar hlutabréf. Þetta er ákjósanleg þróun. Hún ýtir í senn undir sparnað einstaklinga og styrkir íslensk fyrirtæki. Aukinn spamað almennings í formi kaupa á hlutabréfum má fyrst og fremst rekja til atbeina ríkisvaldsins. ívilnanir í formi skattaafsláttar vegna kaupa upp að tilteknu marki hafa gefið mjög góða ávöxtun. Þetta er lykillinn að almennri hlutabréfaeign. Þessvegna er heimskulegt af hinu opinbera að afnema skattahvatann. Það letur þróun markaðarins og dregur úr dreifðri hlutafjáreign almennings. Um leið veikir það möguleika fyrirtækja til að afla sér fjár. Hvatning til aukinna hlutaíjárkaupa almennings hefur jafnframt mikilvægt uppeldislegt gildi. Fyrir utan að gefa fólki betri skilning á gangvirki flókins efnahagslífs kenna þau kynslóðunum að spara. Hafl íslendingar þörf á einhverju er það að skilja gildi sparnaðar. Á sínum tíma var skattaívilnun stjómvalda ætlað að styrkja viðskiptalífið jafnframt því að örva til sparnaðar. Rökin fyrir afnáminu voru einkum þau að bæði viðskiptalífið og hlutabréfamarkaðurinn væru orðin nægilega öflug til að hvatans sé ekki lengur þörf. Hvorutveggja er rangt. íslensk fyrirtæki eru í sókn og þarafleiðandi í þörf fyrir greiðan aðgang að þeim fjársjóðum sem opnast á hlutabréfamarkaðnum. Sjálfur markaðurinn er sömuleiðis ennþá lítt þroskaður og þarf á virkari þátttöku að halda. Fyrir allra hluta sakir væri því skynsamlegt af ríkis- stjóminni að taka aftur upp fullan skattaafslátt vegna kaupa á hlutabréfum. Það mætti hins vegar breyta honum til að þjóna betur íslenskum fyrirtækjum og gera eigendur hlutafjárins virkari á markaðnum. Þeim tilgangi væri hægt að ná með því að einskorða skattahvatann við bein kaup á hlutabréfum í einstökum fyrirtækjum eða sjóðum sem byggjast á mjög háu hlutfalli hlutabréfa, til dæmis 90 af hundraði, og því mjög lágu hlutfalli annarra bréfa. Ástæðan er sú að flestir smáir hlutafjáreigendur hafa keypt í sjóðum, sem eru byggðir upp á bæði hlutabréfum en jafnframt miklu magni verðbréfa. Verðbréfakaup í gegnum sjóðina hafa því notið skattaívilnunar og ekki gagnast hlutafj ármarkaðnum að fullu. Með því að einskorða skattahvatann við íslensk fyrirtæki eða sjóði sem nær eingöngu versla með hlutabréf í innlendum fyrirtækjum væri því verið að treysta vaxtarþrótt íslenskra fyrirtækja. Mikilvæg spamaðarhvatning efldi þannig athafnalíf landsins. Markaðurinn er enn í lágflugi. Veltan miðað við virði fyrirtækja á markaðnum er margfalt minni en erlendis. Það er erfitt að losa hluti nema sætta sig við lægra gengi. Óvissan hækkar ávöxtunarkröfuna og rýrir verðgildi bréfanna. Hann þarf því aukinn hreyfanleika. Skattaleg ömm til hlutabréfakaupa er líkleg til að auka hreyfanleikann. Um leið og markaðurinn er orðinn að alvörumarkaði munu erlendir fjárfestar hætta að hundsa hann. Hnitmiðuð skattahvatning mun því í senn efla spamað, treysta hlutabréfamarkaðinn og undirstöð- ur íslenskra fyrirtækja. Össur Skarphéðinsson FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 Japanskir kaupsýslumenn fá sér blund. - Dotta þeir á ver&inum? Trú sem aldrei má bila markaðssálfræöi" þ.e.a.s. trúin á að allt hljóti að vera í lagi gaf sig. Menn eru heldur ekki sammála um hvað sé til ráða. Sumir telja að Alþjóða gjaldeyris- sjóðurinn h£ifi gert rétt með sínum afskiptum, aðrir telja að hann geri illt verra þegar upp er staðið, enda reyni hann fyrst og fremst að bjarga vestrænum fjár- festum frá miklu tapi í stað þess að láta þá sjálfa súpa seyðið af bráðlæti sínu í gróða- leit. Eitt helsta feimnis- „Því má enginn sem með völd og ábyrgð fer Ijá máls á því að fjár- málakerfi Japans eða nálægra ríkja geti hrunið. Hann er skyld• ugur til að finna sér bjartsýnis• smugu..." Kjallarmn Árni Bergmann rithöfundur Voldugasta trú samtímans er sú að hlutabréf og skyldir pappírar hljóti að hækka í verði í bráð og lengd. Hún hefur að sönnu orðið fyrir skakkaföllum: hrun í Indónesíu, kreppa í Japan, veður öilj válynd í Rússlandi. Sumir ganga af trúnni og spá al- gjöru hruni á þessu mikla svæði - hruni sem muni hafa gíf- urlegar keðjuverk- anir um allan heim. Aðrir bera sig vel, halda fast í trúna, herða upp hugann og telja víst að allt reddist. Og allir ausa yflr okkur stór- um skammti af hag- fræðirökum. Ágreiningur Menn greinir á um flest. Fyrst um það hverjum krepp- an í Austur-Asíu er að kenna. Ein kenning sakfellir einkum vanheilagt bandalag stjórnmálamanna og bankamanna í Japan og víðar. Önnur kennir um offlæði af vestrænum pening- um: rétt áður en kreppan braust út kepptust alþjóðlegar banka- stofnanir um að lána milljarði dollara til þessara hagkerfa með alltof góðum kjörum og vestræn tryggingarfélög og lífeyrissjóðir dembu líka geypifé inn á þessa markaði. Enn eru þeir sem benda á að ekkert sérstakt hafi verið að gerast í atvinnulífi þessara þjóða sem gat valdið kreppu: hún hafi ekki síst skollið á vegna þess að það varð skyndileg „breyting á málið er þetta: nú hamast menn við að lýsa hagkerfum Austur- Asiu sem spiilingardíki klíkuskap- arins - en fyrir örfáum mánuðum þóttust flestir vissir um að einmitt í þeim parti heims hefðu menn fundið nýja og örugga leið til auð- æfa og kölluðu hana Asíukrafta- verkið. Bandariskur hagfræðing- ur, Paul Krugman, þykir nú einna helst spámaður - vegna þess að hann var einn af örfáum sem þótt- ist sjá það fyrir að illa gæti farið í kauphöllum Tókíó og Djakarta. Hann segir frá því að þegar hann kom fyrir skemmstu á ráðstefnu stórhöfðingja peningamarkaðar- ins, hafi þar aðeins verið hlustað á þá sem töluðu eins og venjulega um góða tíma og betri - þeir sem uppi höfðu efasemdir og gagnrýni voru hafðir að háði og spotti. Vondar fréttir vildi enginn heyra. Trú sem höfuödyggö. Það er ekki því að undra þótt margir reyni að endurvekja og styrkja trúna á hið fagra klifur verðbréfavísitölunnar upp á við. Sem fyrr segir: sú trú hefur orðið fyrir skakkafóllum og skakkafóllin eru óspart notuð til að koma vest- rænum aga yfir þá sem hafa þóst geta verið með einhverja sérvisku í fjármálum eins og t.d. Japanir. En mikið lengra vilja menn helst ekki ganga. Þeir óttast trúleysið meira en flest annað. Sagt hefur verið að ef Bandaríkjamenn trúi því að allt sé í lagi í kauphöllum þá muni það eftir ganga. En ef þeir missi það traust þá komi hrun - hvað sem annars er að gerast í heiminum. Því má eng- inn sem með völd og ábyrgð fer ljá máls á því að fjármálakerfi Japans eða nálægra ríkja geti hrunið. Hann er skyldugur til að finna sér bjartsýnissmugu - ann- ars getur flótti hlaupið í fjárfest- ingarherinn með mikilli ringulreið sem ekki er fyrir fjandann sjálfan að ná tökum á. Og þess vegna er verðbréfatrúin bjartsýna gerð að dyggö og hetjudáð eins og hjá þeim peningafursta sem nýlega sagði: „Þeir sem þora að ýta frá sér vin- sælum spádómum um hrun jap- anska efnahagskerfisins munu á endanum standa uppi sem sigur- vegarar." Þeir sem þora að trúa, þeir munu hljóta lifsins kórónu. Efahyggja er sjálfsögð í heim- speki, kirkjur verða að sætta sig við efahyggju í trúmálum - en á markaðstorgi peninganna er hún stórháskaleg, gott ef ekki banvæn. Árni Bergmann Skoðanir annarra Aldrei aftur þriggja ára samninga „Við höfum verið svikin og það er alveg kristal- tært, eftir þá reynslu sem við höfum nú fengið, aö það verða ekki gerðir þriggja ára kjarasamningar næst. Og ég segi; aldrei framar svona langa kjara- samninga því það er ekki hægt að treysta viðsemj- endum okkar og ríkisvaldinu. í þeim er engin fyrir- staða. Ef við erum ekki tilbúin til að beita afli eins og kennarar og stéttir innan heilbrigðisgeirans gera, þá er ekki hlustað á okkur." Halldór Björnsson í Degi 23. júlí. Niöurstaðan klauf Alþýðubandalagið „Það kom í sjálfu sér ekki á óvart að Alþýðu- bandalagið ákvað aö ganga til samstarfs við aðra vinstri flokka um sameiginlegt framboð. Slík niður- staða hefur legið í loftinu og formaður flokksins heföi ekkert átt eftir nema að segja af sér hefði sú stefnumótun ekki veriö samþykkt um síðustu helgi. Stóru tíðindin af flokksfundi Alþýðubandalagsins eru hins vegar þau hversu mögnuð óánægja fólks er innan flokksins með þessa stefnumótun. Þó svo að forysta Alþýðubandalagsins reyni að gera sem minnst úr ágreiningi innan flokksins - og njóti til slíkra verka góðs liðsinnis hinna nýju meðreiðar- sveina sinna í Alþýðuflokknum - þá blasir einfald- lega við að niöurstaðan klauf Alþýðubandalagið." EKG í 5. tbl. Vesturlands. Frelsið glatast - smám saman „Nýlega bannaði ESB tóbaksauglýsingar og bentu þá ýmsir á að slíkar reglur skertu tjáningarfrelsi manna og ættu því ekki rétt á sér, auk þess sem búast mætti við að fleiri ámóta bönn fylgdu í kjölfarið. Nú hefur komið á daginn að þessar aðvaranir voru ekki ástæðu- lausar, því innan ESB hafa komið upp hugmyndir um að banna eða takmarka auglýsingar á ýmsum öðrum vörum. Verði þessar hugmyndir að veruleika munu auglýsingar á vörum eins og bílum, áfengi, sælgæti, lyfseðlislausum lyfjum og leikfóngum ekki verða heimilaðar nema með hugsanlegum takmörkunum. Þetta sýnir vel hversu hættulegt er að gefa eftir þegar frelsi manna til athafna er annars vegar.“ Úr Vef-Þjóðviljanum 22. júlí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.