Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Qupperneq 17
16
17
+
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998
íþróttir
Iþróttir
Bland í poka
Tim Floyd veröur næsti þjálfari
NBA-meistaranna Chicago Bulls ef
Phil Jackson skiptir ekki um skoðun.
Forráöamenn Chicago tilkynntu
þetta í gær og þeir halda greinilega
enn í þann möguleika að Jackson
haldi áfram störfum hjá félaginu.
Jerry Reinsdorf framkvæmdastjóri
Chicago, segir aö Jackson hafi ávallt
neitaö þeim möguleika aö halda
áfram með liöið. „Við munum samt
gera eina tilraun enn og kannski
mun Michael Jordan tala hann til fyr-
ir okkur," sagði Reinsdorf í gær.
Michael Jordan hefur margoft lýst
því yfir að hann leggi skóna á hilluna
ef Jackson hætti hjá Chicago. Hann
muni ekki byrja upp á nýtt hjá nýjum
þjálfara, 35 ára gamall.
Opna bandaríska meistaramótið í
tennis, sem hefst í lok ágúst, verður
greinilega fimasterkt. Þar mæta til
leiks 102 af 104 efstu mönnum á
heimslistanum.
Boris Becker er annar þessara
tveggja sem verða fjarverandi en
hann er hættur keppni á stærstu
tennismótunum.
Jamie Redknapp missir af byrjun
ensku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu með Liverpool. Hann þurfti
að gangast undir aðgerð á hné í gær
en hann var skorinn upp á hnénu í
apríl og missti af því að leika með
Englandi á HM í Frakklandi fyrir
vikið.
West Ham viröist vera í miklum
vandamálum fyrir fyrstu umferð
ensku úrvalsdeildarinnar 1 knatt-
spymu sem verður leikin 15. ágúst.
Fimm sóknarmanna liösins verða
fjarverandi þvi Ian Wright, Paul Kit-
son og Trevor Sinclair em meiddir og
þeir Samassi Abou og John Hartson
taka út leikbann. Ennfremur verða
Rio Ferdinand og Marc Keller
sennilega frá vegna meiðsla.
Tottenham Hotspur gengur hræði-
lega í undirbúningi sinum fyrir úr-
valsdeildina. Liðið hefur fengið
þriggja marka skelli gegn Grasshopp-
ers í Sviss og Bröndby í Danmörku
og tapaði síðan 2-4 fyrir Birming-
ham.
Patrik Klui-
vert er á leið
frá AC Milan á
Ítalíu til Man-
chester United,
samkvæmt frétt
í enska blaðinu
Mirror 1 gær.
Þar er sagt að
félögin hafi náð
samkomulagi sín á milli og United
greiði um 800 milljónir króna fyrir
hoilenska sóknarmanninn.
David Unsworth var í gær seldur frá
West Ham til Aston Villa fyrir 360
milljónir króna. Hann lék áður með
Everton og hafði skamma viðdvöl hjá
West Ham, aðallega af fjölskyldu-
ástæðum.
Michele Padovano er farinn frá
Crystal Palace til Peragia á Ítalíu
eftir aðeins átta mánaða dvöl. Palace
keypti hann á 200 milljónir en selur
hann nú á aðeins 120 milljónir.
-VS
Hörö keppni í stangarstökki á meistaramótinu:
„Vonandi stemn-
ing á vellinum
segir Þórey Edda Elísdóttir, Norðurlandameistari unglinga
Þórey Edda Elísdóttir, FH, er nýbakaður Norður-
landameistari unglinga í stangarstökki og kem-
ur ákveðin til leiks á meistaramót íslands í
frjálsum íþróttum um helgina. „Auðvitað
stefnir maður alltaf á bætingu en ég yrði
mjög ánægð ef ég færi yfir 4,20 metra aftur
og 4,30 yrði alveg frábært," sagði hún, bjart-
sýn þrátt fyrir erfiða keppni framundan við
Völu Flosadóttur og Daníelu Köpemick.
„Mér lýst bara mjög vel á þetta. Það er gam-
an að fá þær hingað heim. Það verður rosa-
lega gaman að fá að keppa við Völu héma
heima. Ég vona að það verði stemn-
ing á vellinum," sagði hún.
Þórey Edda er aðeins 21
árs og hefur keppt einu
sinni áður á meistara-
mótinu en það var í
fyrra. „Þetta verð-
ur mjög erfitt.
Það getur allt
gerst. Þetta get-
ur farið hvemig
sem er,“ sagði
hún um keppnina
í stangarstökki.
Skemmtilegra
keppnisfyrirkomulag
Fyrirkomulaginu á keppni meist-
Þórey Edda
frábært
aramótsins hefur verið breytt þannig að úrslit í
greinunum fara fram milli tvö og fjögur báða
dagana. „Það myndast stemning f kringum
þetta. Það verður meiri áhugi að mæta á
völlinn. Mér líst rosalega vel á þetta mót. í
spjótinu verður rosaleg keppni þar sem
Sigmar og Jón mætast. Jón Arnar keppir
þama og margir strákar í stangarstökki
karla. Það verður skemmtilegra að horfa á
úrslitin," sagði hún að lokum.
Tvö sterk mót fram
undan í Svíþjóö
. Þórey Edda hefur nóg að
\ gera næstu vikur því 3.
\ ágúst keppir hún á móti
í Malmö og síðan á
5 stóru móti 5. ágúst í
Stokkhólmi sem er liður
í Grand Prix mótaröð-
inni. Það er mikill heið-
ur fyrir Þóreyju að vera
boðin þangað. Hún fer svo
beint aftur til Malmö þar
sem hún mun dvelja með
Sidney-hópnum í æfingabúð-
um fram að Evrópumeistara-
móti.
Nánar er fjallað um meistara-
mótið á bls. 18. -ÍBE
Elísdóttir segir að það yrði
að fara yfir 4,30 metra.
Ulster-bikarinn í sundi:
Eydís bælti
metið í Belfast
Eydís Konráðsdótt-
ir bætti i gærkvöld ís-
landsmet sitt í 200
metra skriðsundi.
Hún varð önnur í
greininni í Ulster-bik-
amum í sundi sem nú
stendur yfir i Belfast
og synti á 2:03,67 mín-
útum. Fyrra met
hennar var 2:04,40
mínútur.
Þetta er annað met
Eydís Konráðsdóttir.
íslensku keppendanna á mótinu
sem hófst á þriðjudaginn. Kvenna-
sveitin í 4x100 metra fjórsundi sigr-
aði glæsilega á 4:23,10 mínútum en
fyrra metið var sett á sama móti fyr-
ir níu árum. í sveitinni voru Lára
Hrund Bjargardóttir,
Halldóra Þorgeirs-
dóttir, Eydís Kon-
ráðsdóttir og Elín
Sigurðardóttir.
Lára Hrund Bjargar-
dóttir varð önnur í
200 metra fjórsundi i
gær en var þó tveim-
ur sekúndum frá sínu
besta. Eydís keppti
líka í 50 metra
baksundi og hafnaði í
þriðja sæti.
Alls hafa íslensku keppendurnir
á mótinu fengið tvenn gullverðlaun,
6 silfur og 3 brons. Mótið stendur
yfir í fimm daga og lýkur á morgun.
-VS
Iþróttir eru einnig á bls. 18
Asthildur og
Rósa með
21-árs liðinu
Vanda Sigurgeirsdóttir, lands-
liðsþjálfari kvenna í knatt-
spyrnu, valdi í gær 16 leikmenn
fyrir Norðurlandamót 21-árs
landsliöa sem fram fer í Hollandi
2.-10. ágúst.
Leyfilegt er að nota tvo eldri
leikmenn og Vanda valdi A-
landsliðskonumar Ásthildi
Helgadóttur úr KR og Rósu Júlíu
Steinþórsdóttur úr Val til að
styrkja liöið.
Markverðir eru María Ágústs-
dóttir, Stjömunni, og Þóra B.
Helgadóttir, Breiðabliki.
Aðrir leikmenn em Erla
Hendriksdóttir og Sigríður Þor-
láksdóttir úr Breiðabliki, Ingi-
björg Ólafsdóttir og Kristín Ósk
Halldórsdóttir úr ÍA, Edda Garð-
arsdóttir og Guðrún S. Gunnars-
dóttir úr KR, Laufey Ólafsdóttir
og Rakel Logadóttir úr Val, Hild-
ur Sævarsdóttir úr Haukum,
Hrefna Jóhannesdóttir úr ÍBV,
Elfa B. Erlingsdóttir úr Stjöm-
unni og Katrín Jónsdóttir úr
Kolbotn í Noregi. -VS
FH á flugi
vann í Borgarnesi, 0-2
DV, Borgarneai:
0-1 Jón Gunnar Gunnarsson (30.)
0-2 Höröur Magnússon (34.)
FH-ingar unnu sinn þriöja leik í
röð í 1. deildinni í gærkvöld þegar
þeir sigruðu Skallagrím, 0-2. FH
eygir þar með möguleika á að
berjast um úrvalsdeildarsæti.
„Við náðum þægilegri stöðu í
fyrri hálfleik en vomm kannski of
passívir í þeim seinni. Við spiluð-
um þó vamarlega mjög vel og ég
er mjög ánægður með að við
skyldum ekki fá á okkur mark,“
sagði Pétur Ormslev, þjálfari FH.
FH-ingar spiluðu vel, með Davíð
og Hörð sem bestu menn, og sigur
þeirra var sanngjarn. Mörkin tvö
voru keimlík og Jón Gunnar og
Hörður lögðu þau upp hvor fyrir
annan. Skallagrímur var meira
með boltann í seinni hálfleik og
átti 14 skot gegn 4 en samt engin
opin færi. Davíð Ólafsson, FH-ing-
ur, átti skot í stöng úr skyndisókn
í lokin.
Þrátt fyrir tapið var þetta einn
skásti leikur Skallagríms lengi.
Freyr Bjamason frá ÍA var sterk-
ur á miðjunni og kemur jafnvægi
á hlutina þar.
Maður leiksins: Davíð Ólafs-
son, FH. -EP
Þór í þrengingum
- eftir tap í Akureyrarslagnum
DV, Akureyri:
0-1 Jóhann Traustason (36.)
Staða Þórsara við botn 1. deild-
ar er orðin mjög alvarleg eftir
ósigur gegn KA, 1-0, í Akureyrar-
slagnum í gærkvöld. KAkom sér
hins vegar á aðeins lygnari sjó í
deildinni.
Fyrri hálfleikur var ömurlegur
af hálfu Þórs og ekki hægt að sjá á
leik liðsins að það stæði í fallbar-
áttu. KA-menn áttu meira í leikn-
um, skoraðu mark og var alveg
ljóst í hvaö stefndi. Þórsarar sóttu
þó meira i sig veðrið í seinni hálf-
leik og besta tækifæri þeirra kom
á 80. mín. þegar Jóhann Þórhalls-
son skallaði boltann í stöng. Þórs-
arar sóttu eins og þeir gátu en allt
kom fyrir ekki. KA-menn skoruðu
svo í lok leiksins en það var dæmt
af vegna rangstöðu.
„Ég verð að vera ánægður með
úrslitin enda get ég ekki annað.
Við lyftum okkur frá þessum
vandræðum sem við höfum verið í
að undanfömu," sagði Nói Björns-
son, aðstoðarþjálfari KA.
Nú blasir við Þórsurum fall í 2.
deild en ef þeir ætla að forðast það
mættu þeir fara að hala inn stig
enda núna 7 stig í næsta lið en
þeir hafa aðeins fengið 5 stig eftir
10 umferðir.
Maður leiksins: Niklas Lars-
son, KA. -JJ
Ekki alltaf
dans á rósum
Justin Rose, breski táningurinn sem
sló svo eftirminnilega í gegn á opna
breska meistaramótinu í golfi í síðustu
viku, hóf sitt fyrsta mót sem atvinnumað-
ur í gær en hann tekur þátt í opna hol-
lenska meistaramótinu.
Ekki var fyrsti dagurinn dans á rósum
því Rose lék á 77 höggum og er 14 höggum
á eftir fyrsta manni, sem er landi hans,
Lee Westwood.
Rose, sem er aöeins 17 ára, sagði að ef-
laust væm þetta eftirköst eftir velgengn-
ina og alla athyglina sem árangur hans
hefði vakið. -VS
Villeneuve
í nýtt liö
Jacques Villeneuve, heims-
meistarinn í formúlu eitt kapp-
akstri, skrifaði í gær undir
samning við nýtt keppnislið,
British American Racing. Hann
keppir fyrir Williams út þetta
tímabil en gengur siðan yfir í
raðir BAR.
„Nú eigum við góða mögu-
leika á að ná því markmiði okk-
ar að komast strax í fremstu
röð,“ sagði Craig Pollock, fram-
kvæmdastjóri BAR, eftir undir-
ritunina. -ÓSG/VS
Katrín Jónsdóttir:
Níu mörk í
sex leikjum
Katrín Jónsdóttir, landsliðs-
kona í knattspymu, hefur átt
góðu gengi að fagna með liði
sínu, Kolbotn, í norsku knatt-
spymunni að undanfórnu.
Katrín hefur skorað níu mörk
í síðustu sex leikjum liðsins í
deild og bikar en Kolbotn er í
þriðja sæti úrvalsdeildarinnar
og er komið í átta liða úrslit bik-
arkeppninnar.
-VS
Veron neitar
ásökunum
Juan Veron, leikmaður Parma
og argentinska landsliðsins í
knattspymu, harðneitar ásökun-
um um að hann hafi verið tek-
inn fyrir neyslu kókaíns og al-
sælu fyrir HM í Frakklandi.
Hann er æfur út í argentínska
blaðamenn og segir þá ofsækja
sig. Allt sé þetta vegna þess að
hann og Diego Maradona séu
miklir vinir en Maradona hefur
sem kunnugt er átt við eitur-
lyfjavandamál að stríða.
-VS
Fær England
HM árið 2002?
Englendingar gera sér góðar vonir
um að fá til sín lokakeppni HM í
knattspyrnu árið 2002. Hún átti að
fara fram í Suður-Kóreu og Japan en
FIFA hefur lýst yfir andstöðu við þá
ósk Suður-Kóreu að halda keppnina í
september.
Kóreubúar telja ófært að halda
hana um hásumarið því þá sé regn-
tíminn I landinu. Margir telja þó að
þetta sé aöeins yfirskin, Kóreubúarn-
ir vilji hætta við að halda keppnina
vegna hins slæma ástands í fjármál-
um landsins. -VS
Atökí
Brasilíu
Brasiliumenn hafa hætt
við að spila vináttulands-
leiki í knattspyrnu í Suður-
Kóreu og Japan i næsta
mánuði. Innanhússátökum
í brasilísku knattspyrnu-
forystunni er kennt um en
allt virðist vera í lamasessi
í þeim herbúðum eftir
hörmulega frammistöðu
brasilíska liðsins í úr-
slitaleik HM í Frakklandi á
dögunum. -VS
Jón Þórir Jónsson stjórnar fagnaðarópum Blika í búningsklefanum eftir góðan sigur á Vikingum í toppslagnum. Jón Þórir, sem áður var marksækinn sóknarmaður, hefur leikið mjög vel í vörn Breiðabliks í sumar.
DV-mynd Teitur
Blikar a beinni braut
- komnir í þægilega stööu á toppi 1. deildar eftir mikilvægan sigur á Víkingum, 2-1
1- 0 Bjarki Pétursson (21.)
2- 0 Bjarki Pétursson (40.)
2-1 Smnarliði Árnason (60.)
Breiðablik vann glæstan sigur, 2-1,
á Víkingum í Kópavoginum í topp-
slag 1. deildar í gær. Blikar era því
efstir og komnir með annan fótinn í
efstu deild að ári.
Blikamir byrjuðu leikinn af mikl-
um krafti gegn óskipulögðum Víking-
um. Þeir sóttu stíft og sýndu oft á tíð-
um skemmtilega knattspyrnu þar
sem boltinn gekk hratt manna á
milli. Víkingar einbeittu sér að því að
verjast vel og sækja svo hratt fram en
sóknir þeirra í fyrri hálfleik vora
marklausar. Eftir eina slíka misstu
þeir boltann og Blikar sóttu hratt
fram. Kjartan Einarsson átti góða
sendingu inn fyrir vöm Víkinga þar
sem Bjarki Pétursson afgreiddi bolt-
ann snyrtilega neðst í vinstra homið
fram hjá Gunnari markmanni.
Víkingar sóttu meira stuttu eftir
markið en náðu ekki að koma sér inn
í leikinn. Það vom því Blikar sem
héldu ótrauðir áfram. Þeir bættu við
öðru marki er Sigurður Grétarsson
sendi glæsilega sendingu á Bjarka
sem komst aftur einn inn fyrir vörn
Víkinga og skoraði af öryggi.
„Ég þakka liðsheildinni sigurinn.
Hún stóð sig frábærlega og vann all-
an leikinn. Hún hélt áfram, á hverju
sem gekk. Við bjuggumst við bar-
áttuleik og fengum baráttuleik. Við
spiluðum vel og þetta var bara glæsi-
legt hjá okkur. Þetta er náttúrlega
ekki nærri því búið ennþá,“ sagði
Bjarki Pétursson sem spilaði afburða-
vel fyrir Breiðablik. Ásamt því að
skora tvö mörk var hann beittur í
sókn Blika og varðist einnig vel.
í síðari hálfleik komu Víkingar
ákveðnir til leiks og voru betri aðil-
inn mestan hlutann. Amari Hrafni
Jóhannssyni var skipt inn á og
hleypti hann miklu lifi í sóknarleik
Víkinga. Það var síðan eftir sendingu
frá Amari að Sumarliði Ámason,
sem var fyrir utan teig, hamraði bolt-
ann í netið. Það sem eftir lifði leiks-
ins reyndu Víkingar allt sem þeir
gátu til að jafna leikinn en tókst ekki
þrátt fyrir ágæta tilburði fyrir fram-
an mark Blika.
„Þetta er firnasterkt lið hjá Blik-
um. Við vorum ekki tilbúnir í byrjun
og okkur var refsað grimmilega fyrir
það með tveimur mörkum. Við feng-
um möguleika á að jafna leikinn en
því miður eins og fyrr í sumar þá hef-
ur okkur ekki tekist að nýta dauða-
færin okkar,“ sagði Þrándur Sigurðs-
son sem spilaði ágætlega ásamt
Hauki Úlfarssyni, Sumarliða Áma-
syni og Gunnari hjá Víkingi. Hjá
Blikum voru Bjarki, Che Bunce, Sig-
urður, Araar Hrafn og Kjartan at-
kvæðamestir.
Maður leiksins: Bjarki Péturs-
son, Breiðabliki. -ÍBE
HK í hremmingum
- tapaði 6-1 gegn Fylki í Árbænum
O-l Villý Þór Ólafsson (19.)
1- 1 Hrafhkell Helgason (23.)
2- 1 Amaldur Schram (41.)
3- 1 Amaldur Schram (43.)
4- 1 Gunnar Þór Pétursson (57.)
5- 1 Finnur Kolbeinsson (65.)
6- 1 Guðjón Guðjónsson (90.)
Fylkismenn unnu stórsigur, 6-1, á
slökum HK-mönnum í Árbænum í gær-
kvöld. Þeir em aftur komnir í toppslag-
inn í 1. deild en HK situr sem fyrr í
slæmum málum á botninum.
Fylkismenn byrjuðu strax á stórsókn
en HK skoraði þó úr laglegri skyndi-
sókn, gegn gangi leiksins. Fylkismenn
vom fljótir að jafna með góðu skalla-
marki og í þeirri stöðu kom skásti
leikkafli HK þar sem það hélt uppi
nokkrum sóknarþunga. En þá kom til
kasta Arnaldar Schram sem lék sinn
fyrsta leik fyrir Fylki. Hann skoraði
tvívegis og þar með vom Fylkismenn í
vænlegri stöðu i leikhléi. Stórsókn
Fylkis hélt áfram í síðari hálfleik og eft-
ir 12 mínútur skoraði Gunnar Þór Pét-
ursson glæsilegasta mark leiksins með
þrumuskoti utan vítateigs. Eftir að
Fylkir komst í 5-1 var HK-manninum
Hafþóri Hafliðasyni vísað af velli.
Fylkir lék á köflum prýðilega, sér-
staklega í seinni hálfleik, og eiga allir
leikmenn hrós skilið. Gunnar Þór og
Amaldur voru þeirra bestir. Enginn
stóð upp úr í slöku liði HK. Helst skal
þó nefna frammistöðu varamarkvarðar-
ins Hjörvars Hcifliðasonar sem sýndi
ágæt tilþrif eftir að hann kom inn á.
Maður leiksins: Gunnar Þór Pét-
ursson, Fylki. -HI
1. DEILD KARLA
Breiðablik 10 8 0 2 19-9 24
Víkingur 10 6 2 2 15-10 20
Fylkir 10 5 2 3 17-12 17
FH 10 5 1 4 15-12 16
KVA 9 4 2 3 13-9 14
Stjaman 9 3 4 2 8-9 13
Skallagr. 10 3 3 4 15-15 12
KA 10 3 3 4 12-14 12
Þór
HK
10 1 2 7 9-15 5
10 1 1 8 12-30 4
Stjarnan og KVA mætast í Garðabæ
kl. 14 á laugardag.
Hjörtur Hjartarson úr Skallagrími
er markahæstur í 1. deild með 6
mörk.
Höróur Magnússon, FH, Steindór
Elíson, HK, og Atli Kristjánsson,
Breiðabliki, era með 5 mörk hver.
2. DEILD KARLA
Leiknir, R.-Ægir ...............2-1
Óskar Alfreðsson, Haukur Gunnars-
son - Ólafur Ingason.
Reynir, S.-Völsungin-...........5-0
Siguröur Valur Ámason 2, Marteinn
Guðjónsson, Einar Júlíusson, Antony
Stissi.
Víðir 10 10 0 0 29-9 30
Leiknir, R. 11 6 2 3 21-12 20
Dalvík 10
KS 10
Ægir 11
Tindastóll 10
Völsungur 11
Reynir, S. 11
17-13 18
16-15 18
22- 22 15
21-17 14
21-26 11
23- 27 10
Fjölnir
Selfoss
10 2 1 7 12-30 7
10 2 0 8 19-30 6
í kvöld leika Dalvík-Víðir og KS-
Fjölnir kl. 20.
43335» V A M iyi |
Ekkert Koffin - enyinn hvitur sykur! ®
Ekkert Koffin - enyinn hvítur sykur!
MKjTiWMMm.M VOK«.
\ r</ T« ^5 a S. p' r< 7s-
Einstaklingar og félög sem nota Leppin sport orkudrykki og bætiefni
skara alls staðar fram úr. 77/hamingju -þið eruð frábær
Þórey Edda Elísdóttir Norðurlandameistari unglinga í stangarstökki.
Óðinn Þorsteinsson, drengjamet í kringlukasti á Eyrarsundsleikunum.
Martha Ernsdóttirog Sigmar Gunnarsson sigruðu í Akureyrarmaraþoni.
Vala Flosadóttir, í 5. sæti á Friðarleikunum í stangarstökki.
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, íslandsmeistari í 50m skriðsundi.
Guðmundur Stephensen, silfurverðlaunahafi á Evrópumóti unglinga í borðtennis.
ÍBV og Grindavík unnu leiki sína með Leppin í Bikarnum.
ÍR, KR og ÍBV unnu leiki sína með Leppin í Landsímadeildinni. (^]TdYV777\
Ofantaldir eru allir sannarlega notendur Leppin sportvara!
„Úr meðalmennsku á toppinn með orkudrykkfrá Leppin"
Leppin sport vörurnar fást um allt land í íþróttavöruverslunum, Hagkaupum/Nýkaupum og líkamsræktarstöðvum.
t