Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Síða 24
»
VÖRUFLUTNIIUGAR
Bjapna Haraldssonar
AÐAL
FLUTNINGAR
HÉÐINSGÖTU 2
Afgreiðslan í Reykjavík: Aðalflutningar, Héðinsgötu 2
Sími: 581 3030 - Fax: 581 3036
Afgreiðslan á Sauðárkróki: Verslun Har. Júl. Aðalgötu 22
Sími 453 5124 - Farsími: 852 2824
✓ STYÐJUM EINSTAKLINGINN
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998
Aðalgötu 22 - 550 Sauðárkrókur - Sími 453 5124
Pósthólf 89 - Kennitala 140330-2139
4
!
Hjónabandsvandræði Brnce og Demi:
Reyna að bjarga hjónabandinu |
Skilnaður þeiira Demi Moore og
Bruce Willis kom mörgum í opna
skjöldu fyrir nokkrum vikum. Þrátt
fyrir sífelldar sögusagnir um að
hjónaband þeirra hefði lengi verið í
molum þá virtust þau lengst af ekki
láta það hafa áhrif á sig.
Hjónaskilnaður varð samt stað-
reynd fyrir nokkru og Demi sagðist
ekki geta haldið áfram að búa með
Bruce vegna stöðugs framhjáhalds
hans. Upp úr sauð endanlega þegar
hún kom aö Bruce ásamt ástkonu
sinni á heimili þeirra.
Nú virðist þó Demi eitthvað vera
að renna reiöin því fregnir herma
að skötuhjúin hafi ákveðið að draga
sig úr sviðsljósinu um tima og gera
síðustu tilraun til að bjarga tíu ára
gömlu hjónabandi sínu.
Demi og Bruce hafa víst ákveðið
að láta stjörnulifið í Hollywood lönd
og leið og dvelja einvörðungu á
búgarði sínum í Idaho-ríki næstu
vikumar. Þar hafa þau búið síðustu
eUefu árin og þar líður dætrunum
þremur aUtaf best.
Að sögn vina þeirra eru dæturnar
meginástæða þess að þau ætla að
gera tilraun tU aö sættast og blása
lífí á ný í hjónaband sitt. Þær
Rumer, Scout og TaUulah hafa verið
ákaUega daprar undanfarið enda
nýbúnar að missa ömmu sína og
ekki bætti skilnaður foreldranna á
sama tíma í hlut. Svo er bara aö sjá
hvort fyrirmyndarparinu takist að
endurvekja hjónasæluna
I>V
Sviðsljós
George Clooney frábiður sér allt tal um hjónaband:
Kennarar
Kennara vantar að Grenivíkurskóla næsta skólaár til að
kenna ensku og fleiri greinar. Skólinn er fámennur,
nemendur á næsta vetri verða um 50 í 1.-10. bekk.
Aðstaða til kennslu er öll hin besta og gott húsnæði á
lágu verði er til reiðu fyrir kennara.
Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson skólastjóri
í síma 463 3118 eða 463 3131.
Þýska ofurfyrirsætan, Nadja Auerman, klæðist gegnsæjum toppi yfir svörtum stuttbuxum. Dýravinir geta huggað sig
við að pelsinn er úr gerviefnum. Þessi glæsilegu föt eru nýjasta afurö franska tískuhönnuöarins Thierry Muegler en
hann kynnti haustlínu sína í Þarís á dögunum. Símamynd Reuter
Suóurlamlsbraut ÍO. Simi568 6499 Fax568 0539 Heimasióahttp:,
Ungir leikarar
eru hálfvitar
*'4n skærasta stjcirnan í
Hollywood er án efa Matt Damon
sem komst á toppinn eftir
frábæra frammistöðu sína í kvik-
myndinni Good Wili Hunting.
En Damon kallar ekki allt
ömmu sína og er þekktur fyrir að
hafa sterkar skoðanir á hlutunum
og vera alls ófeiminn við að láta
þær í ljós.
Nú hefur gula pressan í Banda-
ríkjunum grafið upp fjögurra ára
gamalt viðtal við leikarann þar
sem hann segir engan vafa leika á
því að amerískir ungleikarar séu
upp til hópa hálfvitar og mikill
fjöldi þeirra sé ekkert annað en
fyrirsætur sem haldi að þær geti
leikiö. Ummæli Damons eru frá
því áður en hann varð frægur og
ekki víst að hann myndi taka svo
sterkt til orða nú.
Reyndar tókst honum að
hneyksla kollega sína í Hollywood
nýlega þegar hann sagöi að ósk-
arsverðlaunin væru bull sem
ekkert mark væri takandi á.
Gibson kemur
vart upp orði
Mel Gibson á við dularfullan
sjúkdóm að stríða þessa dagana sem
veldur því að talfæri hans eru nán-
ast lömuð og hann kemur vart upp
orði. Mel er búinn að fara I fjölda
rannsókna en orsökin er enn óljós.
Leikarinn er víst afar áhyggju-
fullur eins og gefur að skUja en hon-
um hefur verið fyrirskipað að
slappa af þangað til sjúkdómsgrein-
ing liggur fyrir.
^BSPA
Hef aldrei þóst
vera dýrlingur
Hjartaknúsarinn George Clooney
fékk fyrr í vikunni að heyra það
sem hann óttast allra mest en það
var ósk unnustunnar, Celine Balitr-
an, um að þau gangi upp að altar-
inu.
Clooney hefur alltaf sagt að hann
muni aldrei kvænast aftur og þaðan
af síður langi hann til að eignast
böm. Hann á að baki eitt misheppn-
að hjónaband en ástkonumar und-
anfarin ár skipta tugum. Meðal
þeirra em engar smáskvísur og er
skemmst að minnast Kelly Preston,
Cindy Crawford, Elle McPherson,
Naomi Campell, Dedee Pfeiffer og
Courteney Cox.
„Ég veit að ég er frægur kvenna-
bósi og ég hef átt auðvelt með að
slíta samböndum. Sagðist ég ein-
hvem tíma vera dýrling-
ur?“ segir George og er
greinilega ekkert í vafa
um eigið ágæti þegar kem-
ur að þvi að tæla konur.
En Celine er ekki af
baki dottinn og nú hefur
hún sett George stólinn
fyrir dyrnar, annaðhvort
giftist þau eða slíti sam-
bandinu. Til þess að undir-
búa jarðveginn hélt hún
George heljarmikla afmæl-
isveislu á dögunum. Veisl-
unni var þó vart lokið þeg-
ar hún sá í iljarnar á Geor-
ge sem var rokinn á næsta
næturklúbb þar sem hann
skemmti sér i hópi fagurra
fljóða langt ffam eftir
Celine hefur sett Clooney úrslitakosti, annað-
hvort giftist þau eða slíti sambandinu.
morgni.
Þá telja kunnugir að Celine muni
ekki verða par ánægð þegar hún
heyrir lýsingar George á síðustu
mótleikkonu sinni, Jennifer Lopez.
George hefur ekki sparað lýsingar-
orðin um ástaratriöi myndarinnar
Out of Sight. Hann segir Jennifer af-
ar kynþokkafulla og fullyrðir að
mörg ástaratriðanna séu ekta. „Við
bókstafiega rifúm af okkur fótin í
einu atriðinu og gleymdum nánast
að við áttum að vera að leika,“ seg-
ir George, sem virðist ekki óttast að
særa tilfinningar unnustu sinnar.
Hvort Celine tekst að breyta við-
horfum George til hjónabandsins er
óvíst á þessari stundu en kunnugir
segja að ef henni takist það ekki þá
muni engum takast það.