Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1998, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1998
Fréttir
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins i Reykjanesi:
Stefnir í harðan
slag um efstu sæti
Það stefnir í harðan slag um efstu
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjanesi. Þótt framboðsfrestur til
prófkjörs sé ekki runninn út má
segja að kosningabaráttan hafi haf-
ist formlega í gær þegar þeir átta
frambjóðendur sem þegar hafa gefið
kost á sér sátu fyrir svörum á mál-
efnaþingi SUS.
Þrir frambjóðendur bítast um
fyrsta sætið en það eru þau þing-
mennirnir Árni Mathiesen og Sig-
ríður Anna Þórðardóttir ásamt odd-
vita sjálfstæðismanna í Kópavogi,
Gunnari Birgissyni. Á annað sætið
stefna þeir Kristján Pálsson og Árni
Ragnar Ámason. Aðrir frambjóð-
endur eru Stefán Tómasson, Jón
Gunnarsson og Markús Möller en
tveir hinir síðamefndu hafa ekki
boðið sig fram áður.
„Það má búast við átökum í þessu
Frambjóðendur til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesi sátu fyrir
svörum á málþingi SUS í gær. Þetta eru þau Markús Möller, Sigríður Anna
Þórðardóttir, Gunnar Birgisson, Kristján Pálsson, Árni Mathiesen, Stefán
Tómasson, Jón Gunnarsson og Árni R. Árnason. DV-mynd ÞÖK
Whirlpool þvottavélarnar
* Lágt verð!
• Stór hurð sem opnast 156°.
• „Water lift system" sem
eykur gæði þvottarins.
• Ullarvagga. Vélin „vaggar"
þvottinum líkt og um
handþvott væri að ræða.
• Nýtt silkiprógramm.
•Barnalæsing.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
www.ht.is
Umboðsmenn um land allt
.r Byggingavörudeild KEA Akureyri Mosfell Hcllu
<0 Einar Stefánsson Búðardal Póllinn ísafirði
Elís Guðnason Eskifirði Rafmagnsverkstæði KR Hvolsvelli
* Eyjaradíó Vestmannaeyjum Radíónaust Akureyri
Fossraf Selfossi Rafborg Grindavik
Guðni Hallgrímsson Grundarfirði Rafbær Siglufirði
• Htjómsýn Akranesi Rafmætti Hafnarfirði
Z Kask - vöruhús Höfn Hornafirði Rás Þorlákshöfn
Z Kaupf. Húnvetninga Blönduósi Skipavik Stykkishólmi
5 Kaupf. Borgfirðinga Borgarnesi Skúli Þórsson Hafnarfirði
O Kaupf. Héraðsbúa Egilsstöðum Turnbræður Seyðisfirði
0 Kaupf. Þingeyinga Húsavlk Valberg Ólafsfirði
z Kaupf. V- Húnvetninga Hvammstanga Viðarsbúð Fáskrúðsfirði
z Kaupf. Skagfirðinga Sauðárkróki Samkaup - Njarðvík Reykjanesbæ
0 z Kaupf. Vopnfirðinga Vopnafirði Blómsturvellir Hellissandi
prófkjöri og baráttan hefst óvenju-
snemma að þessu sinni. Mér fmnst
vera gríöarleg stemning fyrir þessu
prófkjöri sem skilar sér vonandi í
góðri þátttöku kjósenda, Við erum
með fimm þingmenn í dag en ef nið-
urstöður skoðanakannana ganga
eftir gæti sjötti maöurinn verið á
leið inn,“ sagði Árni Mathiesen í
gær.
Kristján Pálsson var í fimmta
sæti listans fyrir síðustu kosningar
en stefnir nú ótrauður á annað sæt-
ið. „Ég set markið á annað sætið og
það má búast við mikiili baráttu því
einhvers staðar verða þeir að lenda
sem tapa fyrsta sætinu. Þrátt fyrir
það er ég bjartsýnn og tel að störf
mín á síðasta þingi muni skila mér
að settu marki,“ sagði Kristján Páls-
son.
Sigríður Anna Þórðardóttir sagði
það ekki há sér að vera eina konan
í framboði. „Ég er orðin svo gamal-
reynd í pólitíkinni að það háir mér
ekki. Ég sakna þess að sjá ekki fleiri
konur í framboði en það er ekki öll
nótt úti enn því enn er vika til
stefnu," sagði Sigríður Anna Þórð-
ardóttir.
Fleiri frambjóðendur kunna að
bætast við því framboðsfrestur
rennur ekki út fyrr en 11. október.
Líklegt þykir að frambjóðendum
muni fjölga og hafa nöfn Hreins
Loftssonar, Laufeyjar Jóhannsdótt-
ur, forseta bæjarstjórnar í Kópa-
vogi, Þorgerðar Katrínar Gunnars-
dóttur dagskrárstjóra og Hólmfríðar
Jónsdóttur í Sandgerði oft verið
nefnd í því sambandi. Próíkjör sjálf-
stæðismanna í Reykjanesi fer fram
14. nóvember nk. -aþ
Edda Helgason:
Orsakir erfið-
leika nærtækari
„Vegna fréttar í blaðinu 3. okt.
um erfiðleika í rekstri verðbréfafyr-
irtækisins Handsals hf. skal þess
getið að nú eru nær
þrjú ár frá því ég
sagði starfi mínu
lausu hjá fyrirtæk-
inu. Öll þau ár sem
ég var viðriðin fyrir-
tækið skilaði það
hagnaði enda keypti
Lífeyrissjóður Aust-
urlands hlutabréf
mín í fyrirtækinu á
verulegu yfirverði. Að rekja erfið-
leika fyrirtækisins til minna starfa
- nær þrem árum eftir brottfór
mína, er ótrúleg óskammfeilni og
hreinn tilbúningur. Orsakir erfið-
leikanna hljóta að vera nærtækari,"
segir Edda Helgason, fyrrverandi
ffamkvæmdastjóri Handsals, vegna
fréttar í DV þar sem frá því er
greint að arftaki hennar í starfi,
Þorsteinn Ólafs, hafi sagt upp starfi
sínu og sé á fórum frá Handsali.
I fréttinni kom fram að fyrirtæk-
ið hefði afskrifað 80 milljónir króna
á síðasta ári. Jafnframt var haft eft-
ir stjórnarformanni Handsals, Jóni
Guðmundssyni, að ekki væri við
fráfarandi framkvæmdastjóra að
sakast vegna erfiðs reksturs og for-
tíðarvandinn væri mikill. -rt
Ölvaður velti bíl
Ölvaður ökumaður slapp giftu-
samlega þegar hann velti bifreið
sinni á Suðurlandsvegi í gær.
Ökumaðurinn var einn i bílnum.
Hann var í bílbelti og slapp ómeidd-
ur. Glæný bifreið hans slapp ekki
eins -vel því hún er talin ónýt eftir
veltuna. Lögregla svipti manninn
ökuréttindum. Þá stöðvaði lögregla
á Selfossi fimm ölvaða ökumenn um
helgina.
Edda Helga-
son.
scmdkorn
Frostavetur
Þeir vom margir sem veittu þvi eft-
irtekt hversu Kristínu Ástgeirsdótt-
ur, utan flokka, brá þegar lesið var
upp hverjir skipuðu einstakar nefnd-
ir Alþingis í vetur. Þegar
þar kom sögu upplesturs-
ins að sýnt var að Krist-
ín og fyrmm skoðana-
systir, Guðný Guð-
björnsdóttir, Kvenna-
lista, áttu samleið í
tveimur nefndum þá
fraus Kristín. Merkja
mátti glöggt á henni að ekki hugnað-
ist henni þessi skipan mála. Aðrir
nefndarmenn umræddra nefnda sjá
ffarn á mikinn frostavetur með þeim
stallsysfrum...
Páll í vanda
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra stendur frammi fyrir erfiðu
máli þessa dagana en það er að taka
afstöðu til þeirrar kröfu Skagfirðinga
að fá að búa í Skagafirði. Örnefna-
nefnd vill ekki að Skag-
firðingar búi í Skaga-
fxrði en mun geta sætt
sig við að þeir búi í
Skagaflarðarbyggð
eða Skagaflarðar-
hreppi. Formaðm- ör-
nefnanefndar, sem
mun vera hálærður
„málspekingur", hefur látið
hafa eftir sér að hann eigi alls ekki
von á að ráðherrann gangi gegn vilja
ömefnanefndar. Skagfirðingar trúa
því hins vegar ekki að nokkrum mán-
uðum fyrir kosningar til Alþingis ætli
ráðherrann að meina þeim að búa í
Skagafirði. Páli er sagður undir feldi
og svo eru V-Húnvetningar að
svekkja hann líka með því að heimta
nafnið Húnaþing fyrir sitt sveitarfé-
lag. A-Húnvetningar, sveitungar Páls,
em óhressir en þar, sem í V-Húna-
vatnssýslu, era einnig kosningar til
Alþingis eftir nokkra mánuði og úti-
lokað fyrir Pál að gera öllum til hæf-
is.
Sjónvarpsstjörnur
Sandkornsritari varð þeirrar gæfu
aðnjótandi á dögunum að beija augum
útsendingu sjónvarps-
stöðvarinnar Aksjón á
Akureyri. Ef til viil
væri réttara að tala
um útsendingu dag-
blaðsins Dags því á
skjánum blasti við
Birgir Guðmunds-
son, aðstoðarritstjóri
þess blaðs. Stórt Dagsmerki var í
bakgranni og á borði Birgis lá Dagur
frá því fyrr um daginn. Birgir las svo
fréttir af mikilli innlifun og vitaaði
ýmist í Dag sem komið hafði út þá fyrr
um daginn, eða í Dag sem kæmi út
næsta dag eða bara Dag sem kæmi út
einhvern tímann. Útkoman varð að
sumra mati hreint stórkostleg og
reyndar hefúr sandkomsritari það íyr-
ir satt að aöstoðarritstjórinn og blaða-
menn Dags, sem komist hafa í frétta-
lesturinn, standi sig svo vel að sjálfur
Stefán Jón Hafstein eigi ekki mögu-
leika þrátt fyrir alla sína reynslu ...
Vegtyllna leitað
Þorsteinn Jóhannesson, yfir-
læknir og fallinn leiðtogi sjáifstæðis-
manna í ísaflarðarbæ,
er nú að líta í kringum
sig eftir nýjum póli
tískum vegtyflum eft-
ir að forsetastól hjá
ísaflarðarbæ sleppti.
Hann mun hafa haft
hug á að komast í
stjórnarsæti hjá
Samtökum sveitarfélaga en þrátt fyr-
ir fulltingi fóstbróður síns, Kristjáns
Þórs Júlíussonar, bæjarstjóra á Ak-
ureyri, tókst það ekki. Nú hefur kvis-
ast út að Þorsteinn vflji fara í slaginn
fyrir alþingiskosningarnar. Þriðja
sætið hjá sjöOum, á eftir Einari K.
Guðfinnssyni og Einari Oddi Krist-
jánssyni, er opið og nú mun yfir-
læknirinn liggja undir feldi og Uiuga
að bjóða þar fram krafta sína ...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkom @ff. is
-RR