Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1998, Síða 7
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1998
7
Fréttir
Efnahagsástandið í Noregi:
Öttast samdrátt og
atvinnuleysi í vetur
- segir ísleifur Guðjónsson smiður
DV, Ósló:
„Framtíðin hér er ekki eins björt
og hún var, spennan á byggingar-
markaðnum er minni og samdráttar-
ins er þegar farið að gæta í Ósló og
hér í nágrenninu,” segir ísleifur Guð-
jónsson, trésmiður í Drammen í Nor-
egi, í samtali við DV.
Dekkri horfur eru nú í byggingar-
vinnu i Noregi en verið hefur síðustu
ár. Sérfróðir menn spá því að um
20% manna i greininni verði sagt
upp í vetur og gætir samdráttarins
mest í Ósló en því er spáð að sam-
dráttarins gæti um allan austanverð-
an Noreg á næsta ári.
„Það er enn nóg að gera hjá okkur
í Drammen en við vitum að nú fara
smiðir frá Ósló að sækja hingað og
þá byija undirboðin og það dregur
fyrst úr yfírvinnunni,” segir ísleifur.
Undanfarin ár hefur Noregur verið
gósenland fyrir iðnaðarmenn frá ná-
grannalöndunum. Fjölmargir íslend-
ingar hafa nýtt sér þetta og þó í mest-
um mæli Svíar sem hafa búið við at-
vinnuleysi í mörg ár.
Ástæðan fyrir að saman dregur í
greininni nú er einkum að stórum og
mannfrekum verkefnum er að ljúka.
Það eru bygging nýju flugstöðvarinn-
ar við Gardermoen og nýs ríkis-
sjúkrahúss í Ósló. Önnur stærri verk
koma ekki í stað þessa. Þá er offram-
boð af skrifstofuhúsnæði og minna
að gera á því sviði líka.
Einnig hefur það sitt að segja að
vextir hafa hækkað mikið undanfar-
ið og nú eru boðaðar skattahækkan-
ir. Allt þetta dregur úr eftirspurn eft-
ir húsnæði. Sænskir iðnaðarmenn
eru þegar byrjaðir að pakka saman
og eru á heimleið en ekki hefur frést
af íslendingum í sömu sporum.
„Helsta vonin er að vextirnir
lækki aftur og þá verður eftirspurn
eftir íbúðum meiri. Það gæti fengið
hjólin til að snúast á ný,” sagði ísleif-
ur. -GK
Sumarið norðan heiða hefur oft verið betra en nú. Fallegir haustdagar bæta
þó úr iíkt og þessi á Ólafsfirði á dögunum. DV-mynd HJ
Greitt úr vegasjóði til Spalar?
Ekkert á móti því
- segir Gísli Gíslason, stjórnarformaðnr Spalar
DV, Akranesi:
Nýyerið gaf einn af stjómarmönn-
um FÍB út þá yfirlýsingu að á þingi
FÍB í haust yrði tekin fyrir tillaga
þess efnis að hætt yrði gjaldtöku í
Hvalfjarðargöngum en þess í stað
yrði innheimt sérstakt gjald úr ríkis-
sjóði á hvern bil.
„í sjátfu sér hef ég ekkert á móti
því að greitt verði úr vegasjóði til
Hvalfjarðarganga ef ákvörðun verður
um það tekin. Verkefni Spalar næstu
árin verður að greiöa þau lán sem
Gullberg VE:
Vísitölufjölskylda
Keikós í hafið
„Þetta voru kálfur og ung kýr sem
við greiddum úr netinu og hentum
aftur í hafið. Það kom upp sú hug-
mynd að setja sjó í forlestina og fara
með dýrin heim til Eyja í faðm
Keikós. Síðan þótti okkur einsýnt að
kýrin væri svo ung aö það myndi
skaða orðstír Keikós færi hún í búrið
til hans. Hann gæti jafnvel fengið á
sig bamaníðingsstimpil," segir Pálmi
Magnússon, yfirstýrimaður á síldar-
bátnum Gullbergi frá Vestmannaeyj-
um. Hann vísar þarna til þess að tveir
háhymingar af ættbálki Keikós
flæktu sig í nótina nýlega. Áhöfhin
átti ekki annars úrkosti en að taka
skepnurnar inn fyrir og greiða þær
þar úr nótinni. Sveitungar Keikós
slepptu síðan dýrunum og segir Pálmi
að svo hafi virst sem þau hafi sloppið
óskööuð frá hremmingunum. -rt
voru tekin vegna stofnkostnaðar.
Vegasjóður er hins vegar bara hluti
af ríkissjóði og þess vegna ber að
minnast þess að áður en farið var af
stað með Hvalfjarðargöng töldu ansi
margir að ekki kæmi til greina að
ríkissjóður greiddi fyrir þetta verk.
Hagsmunir okkar á Akranesi eins
og annarra era að göngin verði sem
fyrst greidd upp eða veggjaldið lækki
og ef FÍB tekst að útvega fjármagn til
greiðslu ganganna á annan hátt en
um hefur verið samið þá er það gott
mál,“ sagði Gísli Gíslason, bæjar-
stjóri á Akranesi og formaður Spalar,
við DV -DVÓ
Bílskúrshurðaopnari
Sesam 200.
\|t,RSi4
BYGGINGAVORUTILBOÐ MANAÐARINS
Október
Verkfærakistur,
ZAG magnum 18”, 21” og 24’
afsláttur
á verð pr. Im.
Sólbekkir og borðplötur, allar geröir.
Borðplötur, breidd 62,5 cm.
Sólbekkir, breidd 30 cm.
7.900
Kuldagalli, Wenaas loðfóðraður,
fjórar stæröir.
BYKO innimálning, 4 Itr.
Allir litir og stofn 2.
Einnig er 20% afsláttur
af stofnum.
Salerni, Gustavsberg.
S og P stútur.
Mottur, á parket
60x110, 116x172 og 165x234 cm,
Virkir dagar Laugard. Sunnud.
Breiddin - Verslun
Sími: 515 4001
Breiddin - Timbursala
Slmi: 515 4100 (Lokaö 12-13)
Breiddin - Hólf &Gólf
Simi: 515 4030
Hringbraut
Sími: 562 9400
Hafnarfjöröur
Sími: 555 4411
Suöurnes
Simi: 421 7000
Akureyri
Simi: 461 2780
10-16
10-13
10-16
10-16
10-14
Glæsilegt úrval af Herholz huröum
Afgreiöslutími í BYKO
HÓIf & GÓIf