Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1998, Blaðsíða 28
* *
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1998
4É6
Hálfar kýr
Það eru hálfar kýr út um all-
an heim. Umsjónarmenn heima-
síðunnar http://www.hal
facow.com/ hafa tekið myndir
af þeim undanfarin 10 ár.
Forvitnileg bréf
Þær eru margar furðulegar,
bréfaskriftirnar. Á heimasíð-
unni http://www.usps.gov
/letters/ eru birt mörg for-
vitnileg bréf, m.a. til jóla-
sveinsins og forseta Banda-
ríkjanna.
Tímarit fyrir stelpur
Á Netinu eru gefin út mörg
tímarit. Þar á meðal er net-
tímaritið http://www.geek
girl.com.au/ sem er aðallega
fyrir kvenfólk.
Jerry Seinfeld er einn
þeirra sem falla undir skil-
greininguna Islandsvinur.
Upplýsingar og nýjustu fréttir
Um hann er að finna á
http://www.celebsite.com/
people/jerryseinfeld/
^Stephen Hawking
Hinn heimsþekkti eölis-
fræðingur, Stephen Hawking,
hefur eigin heimasíðu sem
finnst á slóðinni http://
www.damtp.cam.ac.uk/
user/hawking/ home.html
Strákareglur
Karlmenn þurfa að lifa eftir
settum reglum eins og allir
vita. Heimasíðan http://
www.guyrules.com/ skráir
þessar reglur og heldur þeim
til haga.
i Arnar, Guðni og
-félagar
Knattspymuliðið Bolton hef-
ur hvorki meira né minna en
fjóra íslendinga innan sinna
raða. Hægt er að fylgjast með
gengi þeirra á heimasíðunni
http://www.boltonwfc.co.uk/
Besti slagsmálaleikur í heimi:
i
- eru meðal þeirra sem slást íTekken 3
Um þessar mundir gleðst fjöldi
Playstation-eigenda því loksins er
Tekken 3 kominn á markaðinn.
Fyrri tvær útgáfur þessa leiks
fóru sigurför um heiminn og án
nokkurs vafa mun þriðja útgáfan
gera það sama. Hún byggist á
sömu grunnhugmynd en hefur í
raun bætt við sig þriðju víddinni.
Áður voru bardagarnir í Tekken
hér um bil einungis þannig að
persónurnar sneru beint á móti
hvor annarri en nú geta þær
hreyft sig að nokkru leyti til hlið-
anna einnig.
Fyrir þá sem ekki þekkja er
Tekken bardagaleikur þar sem
hægt er að stjórna nokkrum fjölda
slagsmálahunda sem hver hefur
sín sérkenni. í Tekken 3 eru per-
sónurnar rúmlega 20 í allt og í
þeim hópi eru ýmis ólikindatól.
Hér eru m.a. á ferðinni 16 ára
skólastúlka, flugskrímsli utan úr
geimnum, vélmenni, skógarbjörn
og aldraður prófessor auk „venju-
legra“ slagsmálahunda af báðum
kynjum á besta aldri.
Kollhnísar og
heljarstökk
Það sem gerir Tekken einstak-
an í hópi slagsmálaleikja er hve
flóknar og nákvæmar hreyfingar
persónanna eru. Hér er ekki bara
verið að sparka og kýla, heldur
eru teknir alls kyns kollhnísar,
heljarstökk og bellibrögð af ýmsu
tagi. Hver persóna hefur fjöldann
allan af sérstökum hreyfmgum og
bardagaaðferðum sem gerir það
að verkum að mjög langan tíma
tekur að læra inn á styrk og veik-
leika hverrar persónu svo vel sé.
Þar með er ekki sagt að leikur-
inn sé aðeins fyrir innvígða því
það tekur byrjendur ekki svo ýkja
langan tíma að ná grunnatriðun-
um. Það sem gerir leikinn hins
vegar jafngóðan og raun ber vitni
er að möguleikarnir á að fikra sig
áfram og ná sífellt meiri leikni í
stjórnun persónanna eru geysi-
lega miklir. Leikru'inn býður upp
á sérstaka æfingaaðstöðu þar sem
leikendum eru kennd nokkur
helstu brögð hverrar persónu. En
þar eru þó ekki öll brögð kennd
og því þurfa leikendur einnig að
reyna að finna dulin brögð sjálfir.
Það er reyndar eitt aðaleinkenna
Tekken- leikjanna hve mikið er af
alls kyns leyndum eiginleikum
sem spilarar verða sjálfir að upp-
götva með fikti.
Lemdu vini þína
Þó svo ýmsir möguleikar séu í
Tekken 3 á að spila einn á móti
tölvunni er leikurinn lang-
skemmtilegastur þegar tveir spil-
arar keppa hvor á móti öðrum.
Hvað þetta varðar kemst enginn
leikur með tærnar þar sem
Tekken 3 hefur hælana. Það er i
slíkum bardögum sem það kemur
í ljós hvort viðveran í æfingaher-
berginu hefur skilað árangri. Fjöl-
breytileiki persónanna auk þeirr-
ar mismunandi árásar- og varnar-
tækni sem þær búa yfir eru í raun
nægileg til þess að engir tveir bar-
dagar verði eins. Við þetta bætist
svo þekking spilarans á persón-
unni sem hann stjórnar og per-
sónunni sem hann berst við og út-
koman verður leikur sem hægt er
að spila myrkranna á milli.
Það eru þvi tveggja manna leik-
urinn og nær óendanlegir mögu-
leikar á að bæta bardagatæknina
sem gera Tekken 3 að framúrskar-
andi bardagaleik. Öllu misheppn-
aðri eru tilraunir til þess að þróa
leikinn fyrir einn spilara, sem eru
ekki mjög spennandi. Einnig
verður að segjast að þó svo fram-
Barist gegn ruslpásti:
Keppinautar snúa
bökum saman
Fyrir stuttu komu nokkrir af
helstu keppinautum á amerískum
netmarkaði saman til fundar um
hvemig berjast ætti við sameigin-
legan óvin: rusl- og auglýsingapóst
á Netinu. Þarna vom fulltrúar fyr-
irtækja á borð við America Online,
AT&T WorldNet, Excite og MCI
sem vora að þreifa fyrir sér um
hvort fyrirtækin gætu samið sam-
eiginlegar reglur sem mynd:hefta
óværana. Ekki er heldur vanþörf
á, því raslpóstur er geysilega mik-
ill í bandarískum tölvupósti og
leggst kostnaður af honum að
miklu leyti á umrædd fyrirtæki.
Meðal þess sem rætt var á fund-
inum vora aðferðir til að greina á
milli ruslpósts og lögmætra póst-
sendinga, nýjasta tækni í síun var
tekin til skoðunar og rætt hvemig
hægt sé að ná í skottið á þeim sem
stunda þennan ósið.
Ruslpóstur snertir jafnframt lög
og reglur um einkalíf og málfrelsi
og því var mikið rætt um slík mál.
„Áð standa vörð um einkalíf og ör-
yggi upplýsinga á Netinu er
stærsta viðfangsefni sem frammi
fyrir netverjum stendur um þessar
mundir," segir Marc Rotenberg,
einn þeirra sem fundinn sóttu.
„Nauðsyn þess að leysa raslpósts-
vandamálið mun vissulega hafa
áhrif á öryggi upplýsinga á Netinu.
Við stöndum því frammi fyrir
spumingum eins og þeirri; hversu
langt viljum við í raun ganga í út-
rýmingu raslpósts? Erum við til-
búin til aö gefa eftir öryggi upplýs-
inga um okkur til að losna við aug-
lýsingapésa á rafrænu formi?“
leiðendurnir leggi talsverða vangurinn til þess.
áherslu á að leikurinn hafi sögu-
þráð þá er hann ósköp klénn, eins
og maðurinn sagði, og í raun
óskiljanlegur.
En það er ekki aðalatriðið. Ef
þú átt vini, kærasta eða kærustu,
foreldra, ættingja eða bara ein-
hvern sem þig langar til að
berja í köku þá er
Tekken 3
rétti vett-
-KJA
íoioioioiooioioioiooioijdoioioioioiiioioioioii
h mu iwoumhö
Tölvuísskápur
Tölvur viröast vera
að hefja innreiö
sína í öll heimilis-
tæki um þessar
mundir. Á sýningu
fyrir skömmu kynnti
japanskt fyrirtæki
fsskáp sem er
þeim eiginleikum
gæddur aö halda
bókhald yfir þaö
sem til er í fsskápn-
um auk þess að
geyma uppskriftir
og búa til innkaupa-
lísta fyrir eigand-
ann. ísskápurinn er
í raun kraftmeiri en
flestar heimilistölv-
ur þvf Pentium II ör-
gjörvi hans er geysiöflugur auk þess
sem haröi diskurinn er mjög stór.
Gert er ráö fyrir aö hægt verði aö
tengja ísskápinn viö önnur heimilis-
tæki eins og síma, loftræstingu og
sjónvarp.
Netscape tapar forystunni
Samkvæmt nýrri könnun hefur
Netscape tapaö forystunni í vafrara-
samkeppninni til aðalkeppinautar-
ins, Microsoft. Aöalorsökin fyrir þessu
er aö sögn rannsóknarmanna sú aö
America Online (AOL) fyrirtækið, sem
er einn alstærsti netþjónustuveitandi
í heimi, lætur viöskiptavini sfna óaf-
vitandi nota Microsoft Explorer vafr-
ann. Þeir viöskiptavinir AOL sem ekki
vilja nýta sér Explorer þurfa því sjálf-
ir aö útvega sér Netscape og setja
forritið upp. Könnunin sýndi aö 43,8%
netnotenda kjósa Explorer vafrann
en 41,5% nota Netscape.
Samstaða
gegn 2000-
vanda
Aðalráðgjafi
Bandaríkjafor-
seta hvaö
varðar 2000-
vandann er á
feröalagi um
Austurlönd
um þessar
mundir. Verk-
efni hans er
aö koma á
samstarfi milli
Japan og
Bandaríkjanna
til að draga úr
þeim miklu
vandræöum sem heimurinn mun
standa frammi fyrir þann 1. janúar
áriö 2000. Stefnt er aö því aö koma
á fót sameiginlegum vinnuhóp Banda-
ríkjamanna og Japana þar sem lönd-
in munu kynna hvort fýrir öðru þær
lausnir sem hingað til hafa verið þró-
aöar í þessum efnum.
Tölvur bæta árangur bama
Ný könnun á bandarískum skólabörn-
um sýnir að börn sem fá tölvukennslu
fá hærri stærðfræðieinkunnir en þau
börn sem enga kennslu fá. En jafn-
framt kom fram aö það eru gæði en
ekki magn tölvukennslunnar sem
skipta hvað mestu máli í þessu sam-
bandi. I Bandaríkjunum hafa um
75-80% barnakennara þjálfun í tölvu-
notkun. Stærstur hluti þeirra sem
hafa ekki slíka þjálfun kenna í skól-
um sem eru á láglaunasvæöum og
því er hætta á aö börn fátækra for-
eldra dragist aftur úr börnum þeirra
sem betur stæðari eru.
rsrm
t
I
+'