Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1998, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998
Fréttir
Stuttar fréttir r>v
Háskólaprófessorar í lögum ekki á sama máli um kvótadóminn:
Tímamótadómur - eða
skiptir hann litlu?
Ummæli ráðamanna þjóðarinnar
síðustu fjóra til fimm dagana um
hæstaréttardóminn í máli því sem
Valdimar Jóhannesson höfðaði gegn
íslenska ríkinu eru af ýmsu tagi.
Virtir lögmenn eru ekki á einu máli
um hvað þessi dómur boðar. Álitin
sem gefin hafa verið eru mörg og
furðu ólík, nema hvað allir telja
álitsgjafar að Alþingi þurfi að bretta
upp ermarnar og breyta einhverjum
greinum laga um fiskveiðistjómun.
Lagaprófessorar hafa haft ýmislegt
að segja og eru ekki sama sinnis.
Sigurður Líndal lagaprófessor,
virtur túlkandi laga, lét strax hafa
eftir sér að dómurinn haggaði ekki
hið minnsta atvinnuréttindum í
greininni. Hann varaði menn ein-
dregið við því að draga víðtækar
álykanir af dómnum enda þótt
vissulega skyldu menn hugsa málið
ítarlega. Sigurður kvartaði yflr vill-
andi orðalagi í dómi Hæstaréttar.
Taldi hann að
réttara hefði ver-
ið að dómurinn
talaði um úthlut-
un veiðileyfa en
ekki veiðiheim-
ilda. Fimmta
greinin fjallaði
um veitingu leyfa
til veiða í at-
vinnuskyni og
tilgreint væri
hvaða skip koma til greina. Sjöunda
greinin aftur á móti fjallar um
veiðiheimildir, kvóta. Um þá grein
er hins vegar ekki fjallað í dómi
Hæstaréttar. Því væri ekki hægt að
fullyrða eitt eða neitt um hmn
kvótakerfísins.
En hverjar geta afleiðingar dóms-
ins orðið, að mati Sigurður Líndal?
í fyrsta lagi segir hann hugsan-
lega hægt að orða 5. grein laganna
þannig að hún samrýmist jafnréttis-
Gunnar G. Jónatan
Schram. Þórmundsson.
ákvæðum stjómarskrárinnar en ef-
ast um að sú leið sé fær. Hinn
möguleikann sagði Sigurður vera
að allir gætu fengið úthlutað veiði-
heimildum, jafnvel án þess að eiga
skip. En það þýddi þó að menn yrðu
að verða sér úti um kvóta.
Jónatan Þórmundsson, annar
virtur lagaprófessor, var afar var-
færinn þegar DV ræddi við hann
síðla dags á föstudag. Hann vildi
kynna sér dóminn mun betur en
sagði þó: „Menn velta fyrir sér
hvaða munur er á veiðileyfum og
kvóta og hvort dómurinn hafi tekið
tillit til hinna ýmsu atriða. Sumir
segja kvótakerfið hrunið, aðrir telja
að svo sé ekki. Ég er sannfærður
um að það verði látið reyna á ýmis-
legt i kjölfar dómsins," sagði Jónat-
an. Jafnframt sagði hann að Hæsti-
réttur sýndi þarna mikið hugrekki
og að dómstólar gerðust meira gild-
andi í þjóðfélagsþróuninni.
Gunnar G. Schram lagaprófessor
talar um tímamótadóm. Hann segir
dóminn svo skýran að menn þurfi
ekki að velkjast í vafa um hvað átt
er við. Hann segir það ótvírætt að
fiskveiðikerfið í dag standist ekki
stjómarskrána. Alþingi hljóti nú að
setja lög um nýtt fiskveiðikerfi.
Fiskveiðistjómun verði áfram við
lýði en landsmenn muni nú fá að
sitja við sama borð hvað réttindi til
veiða varðar. -JBP
Sigurður
Líndal.
Tilnefningar til íslensku bókmenntaverðlaunanna:
Þrír nýliðar og stórbækur
Athygli vakti þegar tilnefnt var til
íslensku bókmenntaverðlaunanna í
gær að þrír nýliðar i skáldsagnagerð
vom þar I hópi ásamt tveimur göml-
um stríðshetjum, Thor Vilhjálmssyni
(Morgunþula í strárnn, Mál og menn-
ing) og Guðbergi Bergssyni (Eins og
steinn sem hafið fágar, Forlagið).
Nýju höfundamir sem teknir vom
fram yfir landsliðsmenn á borð við
Þórarin Eldjám, Einar Kárason og
Fríðu Á. Sigurðardóttur og höfunda
verðlaunabóka á öðrum vettvangi,
Sindra Freysson og Bjama Bjamason,
em Huldar Breiðfjörð (Góðir íslend-
ingar, Bjartur), Auður Jónsdóttir
(Stjómlaus lukka, Mál og menning)
og Ámi Sigurjónsson (Lúx, Mál og
menning). Olli þetta val dómnefhdar
nokkrum þys meðal gesta í Listasafhi
íslands en Sigríður Á. Snævarr, for-
maður dómnefndar, sagði að spurt
væri um fimm athyglisveröustu bækur
ársins og nefndin hefði verið sammála
um að þessar bækur væra þar efstar.
TOnefhdar fræðibækur komu siður
á óvart. Dómnefnd bóka almenns eðl-
is ákvað að risaverkin sem einkenna
bókaútgáfu ársins myndu standa
lengi og tilnefndu í samræmi við það
íslenska byggingararfleifð I eftir Hörð
Ágústsson (Húsafriðunamefnd ríkis-
Thor Vilhjálmsson, einn hinna tilnefndu, heilsar ástúðlega formanni fagurbók-
menntanefndar, Sigríði Snævarr, í Listasafni íslands í gær. DV-mynd Pjetur
ins), íslenska fugla eftir Ævar Peter-
sen og Jón Baldur Hlíðberg (Vaka-
Helgafell), Matarást eftir Nönnu
Rögnvaldardóttur (Iðunn), Sögu
Reykjavíkur 1940-1990 eftir Eggert
Þór Bernharðsson (Iðunn) og Sjávar-
nytjar við Island eftir Karl Gunnars-
son, Gunnar Jónsson og Ólaf Karvel
Pálmason (Mál og menning).
Alls vom 42 bækur lagðar fram í
flokki fagurbókmennta en 30 í flokki
bóka almenns eðlis. Formaður Félags
bókaútgefenda, Sigurður Svavarsson,
og báðn dómnefhdarformenn lögðu
áherslu á það í ræðum sínum að þó
að íslensk bókaútgáfa væri ótrúlega
mikil væri hún ekki sjálfgefin og við
yrðum að standa um hana traustan
vörð. Vemm ekki óánægð með jóla-
bókahasarinn, sagði Sigurður, íjölg-
um heldur tækifærum til að gefa
hvert öðra bækur.
Ákveðið var að bæta ekki við sér-
stökum bamabókaverðlaunum enda
hafi Reykjavíkurborg um áratuga-
skeið verðlaunað bamabækur. Sú
beiðni hefúr verið send til Reykjavík-
urborgar að hækka upphæðina sem
verðlaunabók hennar hlýtur þannig
að hún verði sambærileg við ís-
lensku bókmenntaverðlaunin.
-SA
Bóksölulisti DV:
Þorvaldur enn í fyrsta sæti
Jólabókaflóðið verður æ meira
áberandi eftir því sem styttist til
jóla. Það er áhugavert að sjá
hvernig bækumar skipta um sæti.
í sumum tilfellum eru sætin ná-
lægt hvert öðm en í öðrum tilfell-
um er um að ræða stór stökk á
milli vikna.
Hér birtist bóksölulisti DV í
annað skipti fyrir þessi jól. í síð-
ustu viku var Þorvaldur Guð-
mundsson í fyrsta sæti, Áhyggjur
Berts vora í öðru sæti, Steingrím-
ur Hermannsson var í þriðja sæti,
Nóttin lifnar var í fjórða sæti og
Aldrei að vita var í fmmta sæti.
Þær bókaverslanir sem tóku
þátt í leiknum að þessu sinni eru
Penninn/Eymundsson, Mál og
menning, Laugavegi, Bókabúðin
Hlöðum á Egilsstöðum og Bóka-
búð Brynjars á Sauðárkróki.
Listi
fDV
yfir söiuhæstu bækur
1. Þorvaldur Guömundsson - Gylfi Gröndal.
2. Steingrímur Hermannsson - Dagur B. Eggertsson.
3. Áhyggjur Berts - A. Jacobsson og S. Olsson.
4. Talnapúklnn - Bergljót Arnalds.
5. Séröu þaö sem ég sé - Þórarin Eldjárn.
6. Aldrei aö vita - Guörún Helgadóttir.
7. Noröurljós - Einar Kárason.
8. Málfríöur og tölvuskrímsllö - Sigrún Eldjárn.
9. Tár úr steini - Sveinbjörn I. Baldvinsson.
10. Brotasaga - Björn Th. Björnsson.
Heldur
sínu sæti
Það er ljóst
að ævisögur
njóta mikilla
vinsælda fyrir
þessi jól. í efsta
sæti er ævi-
saga Þorvaldar
Guðmundsson-
ar í Síld og
fiski sem er rit-
uð af Gylfa
Gröndal. Ævi-
saga Stein-
gríms Her-
mannssonar,
fyrrverandi
forsætisráð-
herra, eftir Dag
B. Eggertsson
er í öðm sæti.
Börnin era ekki höfð út undan fyr-
ir þessi jól enda eiga mörg þeirra eft-
ir að finna bækur í jólapakkanum.
Bækumar í 3.-6. sæti em skrifaðar
fyrir yngstu kynslóðina. Áhyggjur
Berts eftir A. Jacobsson og S. Olsson
er í 3. sæti, Talnapúkinn eftir Berg-
ljótu Amalds er í 4. sæti,.Sérðu það
sem ég sé eftir Þórarin Eldjám er í 5.
sæti og Aldrei að vita eftir Guðrúnu
Helgadóttur er í 6. sæti.
Norðurljós Einars Kárasonar er í 7.
sæti en um er að ræða skáldsögu sem
gerist á fyrri öldum. Málfríður og
tölvuskrímslið eftir Sigrúnu Eldjám
er í 8. sæti og þar er aftur kominn full-
trúi yngstu kynslóðarinnar. Tár úr
steini eftir Sveinbjöm I. Baldvinsson
er í 9. sæti en bókin er einnig ætluð
yngstu kynslóðinni. Brotasaga eftir
Bjöm Th. Bjömsson er í 10. sæti.
-SJ
Indriði skattstjóri
Indriði H. Þor-
láksson hefur
verið skipaður
ríkisskattstjóri
frá 1. janúar.
Hann er hag-
ffæðingur og
hefúr lengi starf-
að í stjómsýsl-
unni.
Könnunarviðræður
Ráðamenn íslenskra sjávaraf-
urða áttu í gær könnunarviðræður
um samstarf við fúlltrúa fyrirtækis-
ins Norway Seafood. Stjómarmenn
ÍS vildu ekkert tjá sig um málið við
Stöð 2. Talsmaður Norway Seafood
sagði að viðræðumar hefðu átt sér
stað að frumkvæði ÍS.
Slegið af bókunum
Bækurnar sem tilnefndar hafa
verið til íslensku bókmenntaverð-
launanna í ár em nú seldar á bóka-
vef HAGKAUP@visir.is með 25%
afslætti.
Vantar persónuvernd
Þingmenn stjómarandstöðunnar
gagnrýndu harðlega í umræðum
um gagnagrunnsfrumvarpið á þingi
í gær að ekki hefði enn verið lagt
fram boðað frumvarp um persónu-
vemd og verndun persónuupplýs-
inga.
Launahækkun stöðvuð
Fulltrúar sjómanna í stjóm Líf-
eyrissjóðs sjómanna stöðvuðu um
100 þúsund króna launahækkun til
ffamkvæmdastjóra sjóðsins. Hækk-
unin átti að koma til ffamkvæmda
á sama tíma og lífeyrir sjómanna er
skertur. Sjóðinn vantar átta millj-
arða til að geta staðið undir skuld-
bindingum sinum. Dagur sagði frá.
Skelfingog upplausn
Halldor As-
grímsson utan-
ríkisráðherra
segir í ffamhaldi
af dómi Hæsta-
réttar að sóknar-
mark án tak-
markaðs fjölda
fiskiskipa þýði
ástand skelfmgar og upplausnar.
Lögfræðingar á vegum stjómvalda
undirbúa viðbrögð ríkisstjómarinn-
ar við dómnum.
Fékk ekkí pening
Reykhólahreppur hefur fengið
neitun frá félagsmálaráðuneyti við
beiðni um viðbótarframlag í
hreppssjóð. Skessuhom segir að
hreppsnefndin leiti nú leiða til að
draga úr kostnaði og auka tekjur til
að halda rekstrinum í horfmu.
Hundur bjargar kindum
í óveðri sem gekk yfir norðaust-
urhom landsins 19. október sl. leit-
uðu 8 kindur í eigu Sturlu Sig-
tryggssonar, bónda að Keldunesi n í
Kelduhverfi, vars í gömlum fiárhelli
sem er steinsnar frá túnfætinum í
Krossdal. Fyrir hellismunnann
fennti algjörlega og hafa kindumar
hafst þama við í nær 7 vikur án fóð-
urs áður en hundur Sveins Þórar-
inssonar, bónda i Krossdal, fann
þær undir þriggja metra djúpum
skafli.
Ekkert svar
Útgáfufyrh’tækið Mál og menn-
ing hefúr gert athugasemdir við
nýja gjaldskrá Landmælinga ís-
lands og telur hana ekki eiga stoð í
lögum. Landmælingar eigi ekki höf-
undarrétt að grunngögnum að ís-
landskortum sínum. Þau séu upp-
haflega bandarísk. Umhverfisráðu-
neytið hefur engu svarað þessari
gagnrýni. Morgunblaðið sagði frá.
300 leyfisumsóknir
Til Þorsteins
Pálssonar sjávar-
útvegsráðherra
streyma nú um-
sóknir um veiði-
leyfi eftir nýleg-
an dóm Hæsta-
réttar um að
fimmta grein
laga um stjóm fiskveiða standist
ekki stjórnarskrá. Samkvæmt upp-
lýsingum ráðuneytisins höfðu um
300 umsóknir um veiðileyfi borist
siðdegis í gær. -SÁ