Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1998, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1998, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 Fréttir__________________________________________________________pv Gengi Búnaðarbanka hækkaði áður en sala hófst: Slegist um kennitölurnar Mikil harka hljóp í baráttuna um almennan kauprétt hlutabréfa í Bún- aðarbankanum og má búast við að hún haldi eitthvað áfram í dag og næstu daga. Tilboðsgengi til almenn- ings er 2,15 en Handsal bauö best síð- ari hluta dags í gær, gengið 2,52. Þá kom Fiárvangur með 2,50, Kaupþing Norðurlands með 2,46, SPRON með 2,45 og íslandsbanki 2,28. Tryggvi Tryggvason, framkvæmdastjóri Kaupþings Norðurlands, og Sigur- veig Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi íslandsbanka, sögðu í gær að undir- tektir við tilboðum hefðu verið mjög góðar. Hvorugt vildi nefna hve marg- ir höfðu framselt kauprétt sinn en Sigurveig sagði að þeir skiptu þús- undum hjá íslandsbanka. Þessi barátta um kennitölumar - kauprétt almennings hefur því orð- ið til þess að hækka verðmæti Bún- aðarbankans um nálægt 18% áður en hann er kominn á markað og markaðsvirði hans komið vel yfir 10 milljarða króna. 1 morgun kl. 9.00 hófst skráning kaupenda að hlutafé í Búnaðar- bankanum á genginu 2,15. Alls eru í boði 350 milljónir að nafnvirði. Al- menningi gefst kostur á að skrá sig fyrir 500 þús. kr. hlut hver að nafn- verði. Fari hins vegar heildarum- sóknir umfram 350 milljónirnar skerðist hlutur hvers og eins í réttu hlutfalli við umframfjöldann. íslandsbanki birti um helgina auglýsingu í Morgunblaðinu. f henni býðst bankinn til að kaupa það sem kemur í hlut hvers og eins á gengi yfir upphafsgenginu 2,15. Auglýsingin varð til þess að sam- keppnin um kennitölumar færðist í aukana og tóku flest verðbréfafyrir- tæki og bankar þátt í leiknum. Þá bámst óstaðfestar fregnir af því að verðbréfafyrirtæki og einstciklingar gengju í framhaldsskóla, elliheimili og fleiri stofnanir og byðu fólki að kaupa af því kaupréttinn og greiöa því mismun upphafsgengisins og til- boðsgengis þegar að gjalddaga hlutabréfanna kemur milli jóla og nýjárs. Miðað við undirtektir við tilboð- um banka og verðbréfafyrirtækja í gær telja verðbréfamiölarar ekki ólíklegt að um 30 þúsund manns skrái sig fyrir fullum hlut, 500 þús- und krónum að nafnvirði. Gangi það eftir kemur um 11.667 krónur í hlut hvers, sem kostar 25.084 krónur en fullur hlutur er til skiptanna fyr- ir aðeins 700 manns. Miðað við til- boð íslandsbanka fær hver „kennitaia" í sinn vasa rúmlega 1.516 krónur án þess að hafa þurt að leggja út krónu. Hver sem tekur til- boði Kaupþings Norðurlands fær rúmlega 3.616 krónur og sá sem tek- ur tilboði Fjárvangs fær tæplega 4.083 krónur. Þetta er vitanlega háð því hve margir taka þátt í útboðinu og hlutur hvers verður því minni sem þátttakendur em fleiri, og öf- ugt. -SÁ Umskipti á Vestfjörðum: Kristinn kom- inn í Framsókn - vertu sem lengst hjá okkur, sagði Valgerður Sverrisdóttir „Margvelkominn til okkar og vertu sem lengst hjá okkur,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, þegar hún bauð hann velkominn í þingflokkinn um hádegisbilið í gær. Kristinn er því orðinn þingmaður framsóknarmanna. Hann gekk í Framsóknarflokkinn sl. mánudag og í þingflokkinn í gær eftir að þing- menn flokksins höfðu samþykkt inngöngu hans samhljóða. Kristinn H. Gunnarsson sagði að byggðamál hefðu einkum ráðið þessari ákvörðun sinni, en hann væri fyrst og fremst landsbyggðar- maður. Framsóknarflokkurinn væri sterkur á landsbyggöinni og innan hans vébanda væri fólk sem ynni að hagsmunamálum landsbyggðarinn- ar og hann gengi nú til liðs við. Hann kvaðst vonast til að innganga hans í flokkinn myndi styrkja fé- lagsleg sjónarmið innan hans. Halldór Ásgrímsson, formaður flokksins, bauð Kristin einnig vel- kominn og sagði hann mikinn feng fyrir flokkinn, öflugan talsmann margra málaflokka og góðan þing- mann. Hann sagði mikla uppstokk- un í stjórnmálum fram undan. Ljóst væri að á árum áður hefði Framsóknarflokkurinn misst margt góðs fólks vegna afstöðunn- ar til Atlantshafsbandalagsins, hersetunnar og fleiri slíkra mála. „Nú heyra þau mál sögunni til og þess vegna kominn tími til að stokka spilin upp á nýjan leik,“ sagði Halldór. Hann kvaðst viss Gunnlaugur Sigmundsson afhendir hinum nýja liðsmanni framsóknarmanna, Kristni H. Gunnarssyni, lyklana að húsnæði framsóknarmanna á Vestfjörðum. Valgerður Sverrisdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, og Halldór Ásgrímsson formaður fylgjast kampakát með. DV-mynd ÞÖK um að ákvörðun Kristins yrði ekki hans kjördæmi heldur um landið aðeins til þess að efla flokkinn i allt í framtíðinni. -SÁ Hæstiréttur er óábyrgur Solla í Dublin Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri brá undir sig betri fæt- inum eftir útsvarshækkunina og hélt með kvöldflugi til Dublinar. Vafalaust var ætlunin að slappa af eftir átök við hina ofvirku fótgönguliða sjálfstæðismanna í borgarstjóm og kannski að versla örlítið í leiðinni. Það er háttur ís- lendinga að skvetta rækilega í sig þegar flogið er á milli landa og svo varð einnig í þessu tilviki. Þegar leið á flugið fundu margir ástæðu til að hnýta í Sollu fyrir aö- fór að fjárhag þeirra. Þar sem á flugvöllinn kom ytra þótti farar- stjórum áreitið viö borgarstjórann vera komið úr hófi fram og buðu henni sérstakan bíl á hótelið. Þessu hafnaði borgarstjórinn, beit á jaxl- inn og sagðist myndu láta sig hafa það að fara með almúganum í rút- unni. Hún heföi svo sem gott af því aö heyra rödd alþýðunnar... Kippir í kynið Rafh Jónsson tónlistarmaður hefur fengist við margt síðan hann á sokkabandsárunum lék með hljómsveitinni Grafik á ísafirði og íjallaði um góða rigningu. Hann hefur í seinni tíð haslað sér völl í hljómplötuútgáfu þar sem hann gefur út Botnleðju og fleiri stórsveitir. Nú eru að bresta á kynslóðaskipti því sonur Rafns Ragnar Sólberg er kominn á fullt í tónlistina. Hann er með eigin piötu fyrir jólin og útgefandinn er að sjálfsögðu Rafn. Hið merkilega við framtak stráksins er að hann er að- eins 11 ára og sannar væntanlega það máltæki að snemma beygist krókurinn... Húsavíkurslagur Á Húsavík er nokkur titringur innan Sjálfstæðisflokksins eftir að SofSa Gísladóttir ákvað að gefa kost á sér í 3. sætið hjá flokknum, en uppstillingarnefnd gerir tillögu um röðun á lista flokksins á Norður- landi eystra. Sigur- jón Benediktsson, tannlæknir á Húsavík, vill einnig 3. sætið og ku hafa stuðning sjálfstæðisfélags- ins á staðnum, en Soffia er engu að síður talin eiga góða möguleika á sætinu þar sem Sigurjón hafi ekki mikinn stuðning ef farið er út fyrir bæjarmörk Húsavíkur... Dómur Hæstaréttar í máli Valdi- mars Jóhannessonar gegn ríkinu er enginn venjulegur hæstaréttar- dómur. Hann er atlaga, ef ekki árás á ríkisstjómina og Alþingi. Þarna sitja þessir herramenn á vernduð- um vinnustað og kveða upp dóm um pólitík sem þeim kemur ekkert við. Þeir segja meira segja í dóms- orðum að ríkið verði að finna aðra og betri leið til að úthluta takmörk- uöum aflaheimildum, heldur en verið hafa í lögum. Hvað á svona afskiptasemi að þýða? Hvorki Davið forsætisráðherra né Halldór utanríkisráðherra skilja dóminn, sem segir auðvitað heil- mikið um þennan dóm þegar tveir reyndustu og klárastu stjórnmála- menn samtíðarinnar skilja ekki hvað Hæstiréttur er að fara. Davíð hefur auk þess bent á að Hæstirétt- ur dæmi eitt fyrir hádegi og annað eftir hádegi. Halda menn virkilega að ríkisstjórn- in og ráðherramir geti farið eftir svona ragli? Þá hefur Davíð bent á að það sé í rauninni ekk- ert að marka dómsniðurstööuna, vegna þess að það hafl ekki nema fimm dómendur setið I dómn- um í þessu máli. Ef málið hefði verið talið mikil- vægt hefðu þeir verið sjö, en af því að þeir eru bara fimm þá er ekkert aö marka þessa niður- stöðu og hann getur fyrir sitt leyti, forsætisráð- herrann, ekki tekið þá menn alvarlega sem sitja bara fimm í dómi. Auk þess nota þeir orð og hugtök í dómnum sem stangast á, hvert á annað, og lögfræðingar eru ekki á eitt sáttir um það hvernig beri að skilja dóminn og hvemig á þá ríkisstjómin að skUja þessa vitleysu? Og eru menn með öUum mjaUa sem gegna því sem Valdimar Jóhannesson heldur fram? Það hlýtur að vera eitthvað meira en lítið að í þessum dómstól og þessum dómi sem kippir stoðunum undan efnahagslegu öryggi þjóðarinnar og skapar þrúgandi óvissu um framtíð- ina. Það er skylda stjómvalda að grípa í taumana og bæta úr þeim ax- arsköftnm sem Hæstiréttur hefur orðið ber að. HaUdór Ásgrímsson hefur varpað fram þeirri hugmynd að í stað þess að breyta lögunum komi tU greina að breyta stjómarskránni. Enda er stjómarskráin greinUega þess vald- andi að útgeröarmenn standa aUt í einu uppi slyppir og snauðir og hafa ekki lengur vissu um það að þeir eigi kvótann. Það er auðvitað sýnu alvarlegast í þessu máli öUu að al- menningur geti hugsanlega eignast kvótann! Þá fyrst færi efnahagslífíð og sjávarútvegurinn tU andskotans ef fólk sem er þessu máli algjörlega óviðkomandi, ókunnugt fólk, einhver óskU- greindur almenningur og jafnvel þjóðin öU, fer að gera tilkaU tU kvótans. Svona glundroði gengur ekki og þetta era flfl í Hæstarétti og Valdimar er fífl og aUir þeir sem vUja að þjóðin eigi kvótann era fífl og það verð- ur að koma vitinu fyrir þessa þjóð og stjómkerf- ið og lögin og kvótamálin. Strax. Dagfari Sjónvarpað í sjónvarpi Það gengur oft mikið á hjá íþróttafréttamönnum þar sem þeir lýsa leikjum beint. Þá faUa oft guU- kom i hita leiksins. Þekktastur aUra íþróttafréttamanna er Bjarni Felixsson á Sjón- varpinu og Rás 2. Hann hefur frá því elstu menn muna kætt áheyrendur með skemmtUeg- um lýsingum og er raunar fyrir löngu orðinn þjóðsagnaper- sóna. Hér koma n sem Bjama eru kenndir: „Leiknum verður sjónvarpað í sjónvarpinu ...“ „Einum leik er ekki alveg ólokið ... „ „Hann sprettur úr skónum...“ „ Skotið riður af stað ... Loks féU þessi guUvæga setning í Hafnarfirði þar sem heimaliöin áttust við: „Við erum stödd á leik FH og Hauka í Hafoarfirði og það eru Hafnfirðing- ar sem eru með boltann ...“ Umsjón Reynir Traustason ? ■ ■ Netfang: sandkorn @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.