Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1998, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1998, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 Heima E R & BTBUi . „ _ ,..„ _ JJJ JÍ2]jJ Flestir eiga sér sinn uppáhaldsstað heimafyrir, þar sem þeim þykir.gott að slaka á eftir langan og erfiðan vinnudag. Þannig er viðmælendum Tilverunnar í dag að minnsta kosti farið. Hver og einn hefur sinn hátt á afslöppuninni. Sumir horfa á sjónvarp en aðrir kjósa að stunda hugleiðslu. I Listamaðurinn Kogga kann að slappa af: Gott að gleyma sér í sófanum Ég er farin aö slappa meira af en áður og geri það meðvitað. Hérna áður fyrr hafði ég af- skaplega lítinn tíma til að slappa af. En eftir því sem árin líða geri ég meira af því að eiga rólegar stundir heima við,“ segir leirlistakonan Kolbrún Björgólfsdóttir, betur þekkt sem Kogga. Það er alltaf mikið að gera hjá Koggu og vinnudagurinn oft langur. Hún segist þó vera frek- ar heimakær og veit fátt betra en að leggjast í sófann að loknum vinnu- degi og horfa á sjónvarpið. „Það er ekki til betri leið ef maður vill al- gerlega slökkva á sjálfum sér og láta mata. Það er auðvitað best að horfa á góða bíómynd. Það er ekki bara aðferð til að slaka á heldur einnig til að gleyma sér um stund. Það finnst mér mikilvægt." Hljóðbækur eru nokkuð sem Kogga uppgötvaði í seinni tíð og hún segist tíður gestur á bókasafn- inu í Sólheimum. „Mér hefur alltaf hætt til að verða óróleg við lestur. Hins vegar vill maður lesa góða bækur og þess vegna hef ég vanið mig á að hlusta á hljóðbækur. Mér finnst það bæði eiga vel við þegar ég er heima að hvíla mig og kannski ekki síður á meðan ég er í hand- verkinu. Þannig er ég búin að „lesa“ fjöldann allan af góðum bókum.“ Kogga segist oft fá sér göngutúr með eiginmanninum og þá er gjarna komið við í videóleigunni í hverf- inu. „Þetta er hjónabandssukk hjá okkur en við erum mjög samstiga og finnst gott að slappa af yfir góðri mynd,“ segir Kogga. -aþ Kogga í sófanum þar sem henni líður best. DV-mynd Teitur Bergþóri finnst gott að tæma hugann með fallegri músík. Bergþór Pálsson söngvari stundar hugleiðslu: ímynda mér að líkaminn sé Logi Bergmann Eiðsson fréttamaður á amerískan hægindastól: Spurning um mannréttindi Við keyptum þennan hæg- indastól fyrir nokkrum árum og höfum eiginlega skipst á að sitja í honum. Ég get ekki sagt að mér finnist hann fal- legur en hann er rosalegur þægi- legur. Það er eiginlega spurning um mannréttindi að eiga svona stól,“ segir fréttamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson. Eins og landsmenn þekkja þá er Logi oft á skjánum og hann viður- kennir að vinnudagurinn geti orð- ið ansi langur. Það gefast því ekki mörg tækifæri til að slaka á enda bíða þrjár hressar dætur eftir að leika við pabba sinn. „Ég er óttalega óhefðbundinn þegar kemur að því að slaka á. Ég hef ekki þróað neina sérstaka að- ferð en það getur verið gott að koma sér vel fyrir í stólnum og horfa á eitthvað í sjónvarpinu. Helst léttmeti sem krefst einskis af manni. Þá gerist það líka oft að ég sofna í stólnum." Logi segist raunar vera svo ró- legur að eðlisfari að fáir hlutir nái að stressa hann. „Ætli mér finnist ekki mesta hvíldin bara felast í baðker Það er mjög mikilvægt fyrir perfor- mer að vera í góðu jafnvægi til þess að geta geflð af sér. Ef manni líður illa er erfitt að láta öðrum líða vel,“ segir söngvarinn ástsæli Bergþór Pálsson. Þrátt fyrir þétta dagskrá oft á tíðum segist Bergþór alltaf reyna að finna stund til þess að slappa af og hlaða batt- eríin, ef svo má segja. „Þær eru nú nokkrar aðferðirnar sem ég beiti. Mér finnst gott að tæma hugann með fallegri músík. Þá veiti ég ljósi alheimsins, sem ég kalla, inn í brjóstið og lýsi upp líkamann í hugan- um. Síðan læt ég ljósið berast út til vina og kunningja. Þessa ágætu aðferð lærði ég á námskeiði hjá þeim Sigrúnu Olsen því að vera heima með fjölskyldunni. Ég verð alltaf leiður ef ég næ ekki að heilsa aðeins upp á stelpurnar að loknum vinnu- degi. Svo er náttúrlega alltaf gott að sofa út, þá sjaldan að það gerist," segir Logi Berg- mann Eiðsson. -aþ Logi lætur gjarna vel um sig í boy stólnum sí DV-mynd Pjetur og Þóri Barödal. Önnur góð aðferð er að kreppa alla vöðva líkamans, slaka síðan á og finna muninn," segir Bergþór. Slæmar hugsanir í garð annars fólks eru mjög lýjandi að mati Bergþórs. Hann segist kunna aðferð til þess að hreinsa slæmu hugsanirnar út. „Ég las um þessa aðferð í bók. Hún er í raun mjög einföld, maður þarf bara að koma sér fyrir í sófa eða uppi í rúmi. Síðan ímyndar maður sér að líkaminn sé baðker. Maður tekur tappann úr og hleypir öllu vatni úr. Þegar því er lokið þá setur maður tappann í og fyllir líkamann af hreinu vatni.“ - Og virkar þetta? „Já, svo sannarlega. Það er nauðsynlegt að gefa sér tíma til að bægja slæmum hugsunum frá,“ segir Bergþór og viðurkennir að lokum fyrir blaðamanni að það komi nú líka fyrir að hann hendi sér í sófann og horfi á sjón- varpið þegar hann er þreyttur. -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.