Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1998, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998
27
DV
Kvikmyndir
f ( 3 P P 1 í Bandaríkjunum 3
- aösókn dagana 4. - 6. desember. Tekjur í mllljónum dollara og heildartekjur Tekjur Helldartekjur
1(1) A Bug's Life 17.174 68.678
2 (-) Psycho 10.031 10.031
3(3) Enemy of the State 9.686 62.872
4(2) The Rigrats Movie 7.632 67.452
5(4) Waterboy 6.511 130.768
6(8) Meet Joe Black 2.417 39.220
7(5) Babe: Pig in the City 2.375 11.421
8(9) Elizabeth 1.954 9.780
9(7) 1 Still Know What.. Last Su. 1.732 35.960
10 (8) Home Fries 1.725 7.884
11 (11) Very Bad Thing 1.518 7.093
12 (10) The Ringmaster 1.380 7.002
13 (7) The Siege 1.037 37.829
14 (18) Life is Beautiful 0.720 6.207
15 (13) l’ll Be Home For Christmas 0.680 10.285
16 (16) American History X 0.532 4.909
17 (15) Celebrity 0.530 4.115
18 (14) Pleasantville 0.501 37.437
19 (20) Everest 0.445 53.472
20 (19) There's Something About Mary 0.386 172.920 i/TFa
Háskólabíó - Fjárhættuspilarinn
Ritari Dostojevskíjs
★★★ Fjárhættuspilarinn (The
Gambler) er byggð á ævi skáldjöfurs-
ins Dostojevskíjs og eins og nafnið
bendir til kemur skáldsaga hans Fjár-
hættuspilarinn mikið við sögu. Ung-
verski leikstjórinn Károly Mak hefur
kosið að láta ritarann Önnu (varð síð-
ar eiginkona skáldsins) leiða myndina.
Hún kemur með bestu meðmæli til
Dostojevskís, sem tekur hranalega á
móti henni enda er hann í slæmri
klípu. Dostovjevskij hafði skrifað und-
ir nauðungarsamning við útgefanda
sinn, selt honum útgáfurétt að þeim
bókum sem hann haföi þegar skrifað
og í samningnum er
að ef hann skili ekki
nýju ritverki fyrir
vissan tima mun út-
gefandinn eignast all-
an rétt á þeim bókum
sem hann á eftir að skrifa. Nú eru 28
dagar til stefnu og ekkert gengur hjá
skáldinu. Anna tekst á við þetta
vandamál af skynsemi, veit sem er að
ef hann kemur ekki skáldsögunni frá
sér á réttum tíma þá fær hún ekkert
borgað. Myndin skiptist síðan i lýs-
ingu á sambandi þeirra, hvernig það
þróast í gegnum þær persónur sem
eru í skáldsögunni. Inn á milli er síð-
an íléttuð skáldsagan í mun bjartari
litum en raunveruleikinn er.
Károly Mak er einn reyndasti og
virtasti leikstjóri Ungverja og á að baki
langan feril en hefur aldrei náð al-
mennilegri frægð út fyrir heimalandið.
Hans helsta afrek var þegar hann fékk
Michael Gambon leikur Dostojevskíj.
verðlaun gagnrýnenda á kvikmyndhá-
tíðinni í Cannes 1971 fyrir Szerelem.
Fjárhættuspilarinn hefur flott yfir-
bragð, góðar skiptingar á milli raun-
veruleikans og skáldskaparins en er
gæddur þeim foma fjanda austántjalds-
kvikmyndagerðar að
vera þung í vöfum.
Mak bætir ekki úr með
„slow motion" tökum
(stuttar sem betur fer)
i tima og ótima.
Kostimir era samt fleiri en gallarn-
ir. Efniviðurinn er mjög áhugaverður,
handritið vel skrifað og leikarar hver
öðrum betri. Michael Gambon leikur
Dostojevskíj sem hálfgert rustamenni
sem finnur útrás í að láta allar persón-
ur sem hann skrifar um líða illa, rétt
eins og líðan hans er, og gerir það vel.
Hann fær góðan mótleik frá Johdi May
og er samleikur þeirra einstaklega góð-
ur.
Leikstjóri: Károly Mak. Aðalhlut-
verk: Michael Gambon, Johdi
May, Polly Walker og Dominic
West.
Hilmar Karlsson
K v i k m y n d a
GAGNRÝNI
Regnboginn - Þjófurinn
Jeltsín er ekki hér
★★★ Þjófurinn er hádramatísk ör-
lagasaga með sterkum pólitískum vísun-
um i sögu rússnesku þjóðarinnar. Hinn
sex ára gamli Sanya dreymir um endur-
komu föður sins sem hann hefur aldrei
séð. Móðir hans, Katya, hefur átt afar
erfítt uppdráttar í Rússlandi eftirstríðs-
áranna. Þau kynnast hinum myndarlega
Tolyan liðsforingja sem
býður þeim skjól undir
sínum armi. Tolyan
þessi er heillandi þrjót-
ur og Sanya litli dregst
að honum og setur
traust sitt á hann en óttast hann um
leið. Smám saman kemur í ljós að
Tolyan er fyrst og fremst tungulipur
þjófur sem ferðast staö úr stað, sjarmer-
ar nágranna sína oghverfur svo á braut.
Sanya leggur fæö á hann fyrir aö vera
svindlari, flagari og þjófur en dregst um
leið að honum því Tolyan er djarfur,
sterkur og heillandi; birtingarmynd fóð-
urins sem Sanya hefur ætíð óskað sér.
Sagan hverflst um þessa togstreitu hans
og það gjald sem mæðginin þurfa að
greiöa fyrir að binda trúss sitt við hinn
fmgralanga hermann.
Leikstjóranum Chukrai er allnokkuð
niðri fyrir um hlutskipti þjóðar sinnar,
sem jafnan virðist reiðubúin að stóla á
sterka landsfeður sem bregðast trausti
hennar. Visanimar í Stalin em nokkuð
augljðsar en það getur varla hafa vakað
fyrir Chukrai að benda okkur aðeins á
að sá gamli skröggur hafi ekki verið
nægilega góður pappír, enda á flestra
vitoröi. Enn frekar viröist þessi allegor-
ía vísa í Rússland nútímans og Jeltsin
forseta, það er eins og Rússlands óham-
ingju verði flest að vopni.
Chukrai sver sig i hina sósíal real-
ísku ætt hvað varðar umgjörð og yfir-
bragð, hann skapar trúveröugar persón-
ur og samlíðan hans með manneskjum
er greinileg. Til allrar
hamingju passar hann
sig einnig á að láta
ekki ádeiluna þvælast
um of fyrir sögunni,
það er auðvelt að taka
framvindunni eins og hún kemur fyrir.
Yfir og allt um kring blasir viö raun-
veruleiki hvunndagsins i Rússlandi
sjötta áratugarins; lííið er vissulega
erfitt en engu að síður brýst lífsgleðin
fram svona af og til. Leikararnir standa
sig fimavel, Mashkov (Tolyan) er töfr-
andi glæsimenni, Rednikova (Katya) svo
falleg og brothætt að mann verkjar og
strákurinn Philipchuk (Sanya) er af-
bragö, stóreygur og svipsterkur.
Það er óhætt að mæla með þessari,
hún leiðir jafnframt hugann að hinni
sterku sagnahefð Rússa, i bókmenntum
að sjálfsögðu en ekki síður í kvikmynd-
um. Það er kominn tími til aö sjá fleiri
myndir frá þessari þjóð sem kann þá list
öðrum fremur að nísta mann svo að
hjartarótum að maður hefur ekki orku í
neitt annað en að biðja um meira.
Leikstjóri: Pavel Chukhrai. Aöalhlut-
verk: Misha Philipchuk, Vladimir
Mashkov, Ekaterina Rednikova.
Ásgrímur Sverrisson
K v i k
m y n d a
GAGNRÝNI
Greið
/e/ð inn á
Internetio
Inn á Netf.
Nýr heimur þjónustu, skemmtunar,
upplýsinga og frétta er rétt handan
við hornið á Internetinu.
Vísir.is og
Landsbanki fslands hf.
bjóöa viöskiptavinum
DV. Dags og Landsbankans
frábært verö á sprækum gæöatölvum frá ACO.
Meö slíka tötvu á boröinu þinu opnast þér
Vísir.is sneisafullur af fréttum, skemmtun og
þjónustu og Einkabanki Landsbankans meö allri
helstu bankaþjónustu. Kýldu á þaö!
TILBOÐ A
TILBOÐ B
oivunum fyigi- rjog^"g mánaðs as<rfft aó :rter-.eip;órsjstu StónriL.. en a5 kynningarásKriftimi
lokinní tekur viö 3 orár-aóa tirrsac tegar n kostar aðeirs 500 Kr
Við erum við símann
frá 9-22 virka daga
og 12-16 laugardaga.
Pöntunarsíminn er
535 1045
eða í Þjónustuveri Landsbankans
í síma 560 6000
www.visir.is
r
Landsbanki Islands
aCO S k í m a