Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1998, Blaðsíða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998
Hefur þú
séð það betra?
Efni m.a.:
Bráðavaktin
Fljúgandi diskar
Tveir í bala
Brandur sterki
Kennari, leikari,
organisti
Úrvalskrossgáta
Sviðsljós
Leonardo DiCaprio
sett ströng skilyrði
Hjartaknúsarinn Leonardo
DiCaprio og fyrirsætan Kristin
Zang eru orðin par á ný. En Krist-
in hefur sett Leonardo ströng skil-
yrði. í þetta sinn sættir hún sig
ekki við framhjáhald.
Skötuhjúin höfðu verið í löngu
sambandi áður en Leonardo
DiCaprio varð súperstjarna eftir
leik sinn í stórmyndinni Titanic.
En fyrir tveimur árum sagði Krist-
in honum upp.
„Þú þarft að vera frjáls og
þroskast," sagði Kristin eftir að
hafa komist að framhjáhaldi Leon-
ardos með kúbverskri fyrirsætu.
Nú virðist sem Kristin telji að
tími sé kominn til sameiningar á
ný. Undanfama þrjá mánuði hafa
turtildúfurnar hist reglulega.
Samkvæmt frásögn vinkonu
Kristinar í blaðinu Daily News
kemur Leonardo oft í heimsókn til
sinnar fyrrverandi á kvöldin og
les ljóð fyrir hana. Vinkonan
greinir einnig frá því að Kristin
Leonardo er sagður koma heim til Kristinar Zang, gamallar kærustu, og lesa
Ijóð fyrir hana á kvöldin. Þau eru orðin par á ný en hún setti honum ströng
skiiyrði. Símamynd Reuter
hafi sagt Leonardo að þau gætu
orðið par á ný hætti hann sínu
villta líferni.
Að sögn vinkonunnar varð
Kristin öskureið þegar hún kom í
afmælisveislu Leonardos á nætur-
klúbbi í Los Angeles í nóvember
síðastliðnum. „Hún sneri við í
dyrunum. Þetta var eins og í
kvennabúri. Leonardo og vinir
hans voru umkringdir kvenfólki.
Kristin þolir ekki slíkt.“
Margir eru þeirrar skoðunar að
það verði erfitt fyrir Kristinu að
temja Leonardo. Hann hefur verið
tiður gestur á vinsælustu nætur-
klúbbunum í New York og Los
Angeles síðastliðið ár. Sögur hafa
verið sagðar af veislum með kon-
um sem fletta sig klæðum og
vændiskonum.
En ef Kristin Zang fær að ráða
er þessum kafla í lífi Leonardos
lokið. Hún hefur að minnsta kosti
tjáð vinum sínum að kappinn sé
búinn að hlaupa af sér hornin.
netleilcur á Vísi.is
Vísir.is og Hagkaup bjóða gestum Vísis.is
skemmtilegan jólabóka- og geisladiskaleik
Þátttakendur fara inn á slóðina vísir.is og skoða netverslun Hagkaups@Vísis.is
og svara laufléttum spurningum. Aðalvinningurinn verður svo dreginn út á
Þorláksmessu en hann er matarkarfa frá Hagkaupi að verðmæti 15.000 kr.
Úrslit verða kynnt á Þorláksmessu á Vísi.is og vinningar sendir heim með
fyrirtækjaþjónustu póstsins.
Ómissandi jólaplata sem
l*~*t H
inniheldur m.a. jólasmellinn
Handa þér eftir Einar
Báröarson. Athafnaskáldiö
Einar samdi einnig Farin og
Sílikon með Skítamóral.
HAGKAUP @ U í S i r. í S
www.visir.is
Leikarinn Val Kilmer og söngvarinn David Crosby stilltu sér upp í síðustu
viku fyrir Ijósmyndara í Los Angeles á frumsýningu myndarinnar Egypski
prinsinn. Kilmer lánar Móses rödd sfna í kvikmyndinni.
Símamynd Reuter
Kate Winslet ekki
hleypt inn í Harrods
Kate Winslet og eiginmanni henn-
ar, Jim Threapleton, var ekki hleypt
inn í Harrodsverslunina í London á
dögunum. Ástæðan var klæðaburð-
ur Jims. Lítil göt voru á gallabuxun-
um hans og peysunni. Menn fá ekki
að koma klæddir hverju sem er inn
í þessa fínu verslun. Þeir sem eru í
stuttbuxum, slitnum fótum eða með
. bakpoka fá til dæmis ekki inn-
f göngu.
Jim er sagður hafa hvesst sig og
spurt dyraverðina hvort þeir vissu
ekki hver eiginkona hans væri, að
sögn eins viðskiptavina sem var
vitni að atburðinum. Dyraverðirnir
högguðust ekki. Að sögn viðskipta-
vinarins sneru Kate og Jim frá
vöruhúsinu eftir talsvert þras við
dyraverðina. Þau eru hins vegar
sögð hafa komið aftur eftir stutta
stund og var þá Jim peysulaus.