Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1998, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1998, Blaðsíða 40
V I K I N ( LCTTCt AiSivimta tnorgun JFRETTASKOTIÐ m SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú Sbendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1998 Gosmökkurinn: Vindáttin er að * breytast Samkvæmt upplýsingum Veður- stofu íslands í morgun virðist gos- ið í Grimsvötnum hafa verið með svipuðu móti í nótt og undanfama sólarhringa. Hins vegar taldi jarð- eðlisfræðingur sem var einna fyrstur til að skoða mæla þegar mætt var til vinnu að gosið gæti nú verið heldur minna miðað við gosóróann. „Það er kviðótt og getur dottið niður,“ sagði Árni Sigurðsson veð- urfræðingur sem DV ræddi við. Vindátt átti að breytast verulega rétt fyrir hádegi - í hvassa austan- og norðaustanátt sem þýðir að aska frá Grimsvatnagosinu mun berast yfir Suðurland og jafnvel í átt að höfuðborgarsvæðinu. Þetta mun skýrast þegar líða tekur á daginn. „Ég reikna með að 7-8 vindstig verði með ströndinni en aðeins hægari inn til landsins," sagði Árni. Hann sagði að gosmökkinn heföi borið til norðausturs í morg- un. -Ótt Víöa hálka á götum: ~ Bílvelta á Álftanesvegi Bifreið valt út af veginum á Alfta- nesvegi við Engidal í nótt. Ökumaö- ur bifreiðarinnar er grunaður um ölvun við akstur. Mikil hálka var á götum í nótt og voru þrír bílar flutt- ir brott með krana eftir að ökumenn bifreiðanna höfðu misst stjórn á þeim þannig að tjón hlaust af. Tveir voru fluttir á slysadeild þegar bif- reið lenti á ljósastaur á Reykjanes- braut rétt við Elliðaár. Þá lenti bif- reið á grindverki á gatnamótum Sæ- brautar og Laugarnesvegar og skemmdist töluvert og varð óöku- - > fær. Á Snorrabraut hafði svo bifreið lent á vegstólpa og kastast þaðan yfir á ljósastaur. -hb Bílaþjófur gómaður Lögreglan á Selfossi handtók mann í nótt grunaðan um ölvun við akstur og að vera á stolinni bifreið. Beðið er eftir því að geta yfirheyrt manninn en hann gisti fanga- geymslur lögreglunnar. Maðurinn er grunaður um að hafa brotist inn í bifreiðina á bílasölu í Reykjavík og ekiö henni til Selfoss. Ekki er vit- að hvað manninum stóð til með ^ferðinni. Málið er óupplýst sem stendur og er til rannsóknar hjá lög- reglunni á Selfossi. -hb Tækjabfll slökkviliðsins var kvaddur á Reykjanesbraut eftir harðan árekstur á ellefta tímanum í gærkvöld og þurfti að klippa ökumenn úr bifreiðum sínum. Þá komu alls fimm sjúkrabílar á slysstað. DV-mynd HH Reykjanesbraut lokuð: Tveir alvar- lega slasaöir eftir árekstur Fimm slösuðust þegar tveir bíl- ar skullu saman á Reykjanes- braur rétt sunnan við Kúagerði á ellefta tímanum í gærkvöld. Ann- ar bíllinn hafði reynt að fara fram úr hinum með áðurgreindum af- leiðingum. Kalla þurfti á tækjabíl slökkviliðsins til að klippa fólk út úr bílunum. I fyrstu voru hinir slösuðu fluttir á sjúkrahús í Keflavík en þegar þangað var komið reyndust meiðsl þeirra al- varlegri en talið var í fyrstu og voru þeir þá tluttir til Reykjavík- ur. Alls slösuðust flmm í árekstr- inum en tveir liggja nú á gjör- gæsludeild Sjúkrahúss Reykjavík- ur alvarlega slasaðir en eru ekki taldir í lífshættu. Þá voru tveir lagðir inn á barnadeild. Loka þurfti Reykjanesbrautinni fyrir umferð í um klukkustund vegna árekstrarins. Mikil hálka var á veginum og fékk lögreglan til- kynningu um annan árekstur á svipuðum stað á nánast sama tíma. Þá hafði bíll runnið til á veginum og lent út af. í því tilfelli sakaði engan. -hb Ráðherra frestar enn framkvæmd 5 ára laga um sleppibúnað gúmbáta: Sjómenn eru æfir - afleiðingar geta orðið hörmulegar, segir formaður Sjómannasambandsins Lög sem sett voru fyrir hartnær fimm árum um að um borð í öllum skipum yfir tiltekinni stærð skuli vera sleppibúnaður gúmbáta hafa enn ekki komið til framkvæmda. Ár- lega hefur Halldór Blöndal sam- gönguráðherra frestað framkvæmd laganna á þeim forsendum að ekki sé tiltækur réttur búnaður eða útgerðin sé ekki tilbúin. Nú síðast frestaði ráðherrann gildistökunni með bréfi sem undirritað var þann 10 desember 1998 en ekki kynnt hagsmunaaðilum. Þetta er gert þrátt fyrir að á síðasta ári hafi verið gefið loforð um að ekki yrði frestað oftar að koma málinu í lag. Sleppibúnaðurinn gegnir því hlutverki að skjóta sjálfvirkt út gúmbátum þegar skip sekkur og er búnaðurinn talinn hafa sannað gildi sitt í gegnum tíðina og bjargað mannslífum. Deilur hafa staðið um hann um árabil og er skemmst að minnast þess að Ámi Johnsen alþing- ismaður gaf framleiðanda kjaftshögg í árdaga deilunnar. Sjómenn eru æfir Sævar Gunnars- son. vegna þessa og segja málið vera vítahring og verið sé að tefla um mannslíf. Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fiskimanna- sambands íslands, segir um slæmt skref að ræða hjá ráðherranum að fresta enn framkvæmd laganna. Nær hefði verið að láta lögin taka gildi um Sleppibúnaðurinn umdeildi. áramót og gefa stuttan aðlögunartíma. „Það hefði mátt gefa útgerðum 6 mánuði eða svo til að kippa þessu i liðinn. Ég er frekar ósáttur við þetta. Þessi frestun kom mér mjög á óvart þar sem ég hafði ekki aðrar upplýs- ingar úr Siglingaráði og annars staö- Guðjón A. Krist- jánsson. Veðrið á morgun: Kalt og hvasst fyrir vestan Á morgun verður allhvöss norðaustanátt og snjókoma eða él norðvestanlands, norðankaldi eða stinningskaldi og nokkuð bjart verður suðvestanlands en hæg suðaustlæg átt og rigning eða slydda við austurströndina. Hiti verður víðast á bilinu -1 til 4 stig, kaldast á Vestfjörðum. Veðrið í dag er á bls. 37. ar en að þessu yrði ekki frestað aft- ur,“ segir Guðjón. „Afleiðingar þess að búnaðurinn er ekki til staðar geta orðið hörmulegar komi til þess að verði slys. Við horf- um til þess vonaraugum að slys hendi ekki. Skip hafa farið niður á svo skömmum tíma að sleppibúnaðurinn hefur bjargað mannslifum. Það er grafið undan öryggi sjómanna með þessum frestunum," segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasam- bands Islands, um frestunina. „Það er ekki síður alvarlegt hvem- ig ráðuneytið stendur að þessum frest- unum ár eftir ár. Það er ekki verjandi og ef sleppibúnaðurinn er ekki tilbú- inn frá framleiðendum þá átti að bregðast við því með viðhlítandi hætti. Þessar frestanir hafa orðið til þess að framleiðendur hafa ekki lagt út í að framleiða búnaðinn og reikna með frestun," segir Sævar. Ekki náðist í Halldór Blöndal sam- gönguráðherra vegna þessa máls í morgun. -rt i i i i Í i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.