Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1999, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1999 menning Sjónvarpið sýndi á nýársdag tvær athyglisverð- ar en ólíkar íslenskar stuttmyndir eftir litt þekkta kvikmyndagerðarmenn. Að baka vand- ræði og Slurpurinn & Co. eiga í rauninni ekkert annað sameiginlegt en að vera stuttar, hvor um sig um kortér að lengd. Að baka vandræði, sem gerð er af Hauki Haukssyni, er fjölskylduvæn gamcmmynd um Begga litla sem dag einn fær að fara með afa sín- um, Lúðvík bakara, í vinnuna. Stráksi er eins og vera ber hrifinn af afa sínum og ætlar sér að verða bakari. Málin taka óvænta stefnu þegar af- inn tekur upp hring og sýnir Begga um leið og hann tilkynnir honum að hann ætli að trúlofa sig. Fyrir slysni verður Beggi þess valdandi að trúlofunarhringurinn lendir í brauðdeigi og upp- hefst nú mikill vandræðagangur hjá honum við að hafa uppi á __________________________ hringnum áður O" ^ en afi hans upp OjOflVdrp götvar að hann __________________________ er ekki á sínum ■ ■/ ■ stað. Hilmar Karlsson Þetta er lítil og --------------------- átakalaus mynd sem gengur allvel upp. Fyrir full- orðna virkar sagan nokkuð fyrirsjáanleg og hún er einföld í allri uppbyggingu. Á móti kemur að það er einfaldleikinn sem gerir hana sjarmer- andi. Hinn ungi Jason Egilsson skilar sínu hlut- verki vel og eðlilega og fær góðan stuðning frá Bessa Bjarnasyni og Guðrúnu Ásmundsdóttur Að baka vandræði. Bessi Bjarnason og Jason Egilsson virða fyrir sér trúlof- unarhringinn. sem hafa alla reynslu sem til þarf. Slurpurinn & Co. hlaut fyrstu verðlaun á stuttmyndahátíð í Toronto í Kanada fyrr á árinu. Um er að ræða listrænt sjónarspil, þar sem kvikmyndavél er stillt upp í miðri sviðs- mynd og látin snúast. Fjallar myndin á kó- mískan hátt um lífið á skrifstofu einni þar sem skrifstofustjórinn nýtir sér yfirmanns- stöðu sína til hins ___ ýtrasta. Það er óhætt að segja að Slurpurinn & Co. komi manni í opna ___ skjöldu. Hún er eitt myndskeið og sýnir okkur það sem helst er hægt að kalla spuna án orða. Hraðinn á kvikmyndavél- --- inni er í fullu samræmi við villtar hreyf- ingar leikaranna sem fara á kostum, sérstaklega þó Ingvar E. Sigurðsson og Halldóra Geirharðs- dóttir, og minnir myndin stundum á nútíma ball- ett. Með Slurpinum & Co hefur leikstjórinn og handritshöfundurinn Katrín Ólafsdóttir strax sett sitt mark á íslenska kvikmyndagerð með áræðinni kvikmynd sem gefur fyrirheit um metn- aðarfull verk í framtíðinni. Að baka vandræði. Leikstjóri og handritshöfundur Haukur Hauks- son. Kvikmyndataka Páll Reynisson. Leikmynd Snorri Freyr Hilmarsson, Tónlist Máni Svavars- son. Slurpurinn & Co. Leikstjóri og handritshöfundur Katrín Ólafsdóttir. Kvikmyndataka Halldór Gunnarsson. Leikmynd Árni Páll Jóhannsson. Tónlist Margrét Örnólfs- dóttir. Lofið hann með lúð- urhljómi „Lofið Guð í helgidómi hans, lof- ið hann í hans voldugu festingu!" sagði Sigurbjörn Einarsson biskup þegar hann vígði Salinn í nýju Tón- listarhúsi Kópavogs á laugardaginn - og hélt áfram að vitna í Davíðs- sálma: „Lofið hann með lúður- hljómi, lofið hann með hörpu og gígju! Lofið hann með bumbum og gleðidansi, lofið hann með streng- leik og hjarðpípum! Lofið hann með hljómandi skálabumbum . . .“ Þetta voru vel valin orð og urðu að áhrínsorðum. Við tóku bæði mannsraddir og hljóðfæri af ýmsu tagi (þó hvorki harpa né gígja) sem sýndu troðfullum sal af hátíðargest- um hvað húsið væri snilldarlega hannað. Ekkert hljóðkerfi þarf til að bera talað orð og tóna ljóst um allan salinn. Hljóðneminn með Sig- urbimi á myndinni er frá ríkisút- vEirpinu sem tók opnunardagskrána upp. Hvert hljóðfæri naut sín í eigin rétti í Salnum en tónar þess fléttuð- ust þó fagurlega saman við tóna annarra hljóðfæra eins og vel mátti heyra í „Tónaleik" Fjölnis Stefáns- sonar sem sérstaklega var saminn fyrir þetta tilefni. Skólakór Kárs- ness kom öllum til að skæla af gleði enda steinhjarta sem ekki kemst við að heyra þann englasöng undir töfrasprota Þórunnar Bjömsdóttur. Jafnskýrt heyrðist í sex trompetum og einum gítar nemenda í Tónlist- arskóla Kópavogs. Guðrún Birgis- dóttir og Martial Nardeau sýndu hvernig flautur hljóma í þessu húsi og Peter Maté og Halldór Haralds- son hvernig píanó hljómar. Því miður lék Jónas Ingimundarson ekki á hljóðfæri að þessu sinni en hélt dúndurgóða ræðu þar sem hann stríddi Reykvíkingum hæfilega fyrir að masa of mikið en gera of lítið. „Svona gemm við,“ sagði hann og vitnaði í vin- sælt jólalag - svona gerum við i Kópavogi þegar okkur vantar konsertsal. Langvarandi lófatak- ið sem hann fékk bæði á undan og eftir var ekki síður fyrir hús- ið sjálft en ræðuna. Svo komu Sigrúnar tvær, báð- ar jafn yndislegar og mikil séní, Eðvaldsdóttir og Hjálmtýsdóttir, önnur með fiðlu, hin með silfur- skæra rödd og hljómaði hvort tveggja jafnvel. Og af því Kópa- vogsbúar hafa húmor endaði Blásarakvintett Reykjavíkur á Les Anemaux: Mississippi five eftir Jim Parker. í þessu húsi heyrist ekkert í loft- ræstikerfmu - sem hljóta að vera hastarleg viðbrigði fyrir íslenskt tónlistarfólk. Hreina loftið streymir hljóðlaust út úr stólfótunum. En manni varð ansi kalt á ökklunum! En hvernig gera Reykvíkingar? Mikill áhugi var að sjálfsögðu á ræðu menntamálaráðherra og menn urðu ekki fyrir vonbrigðum. Hann sagði að málefni „stóra tón- listarhússins" í Reykjavík væru komin inn á borð ríkisstjórnar og nú færi eitthvað að gerast. Sagt er að það verði reist á hafnarsvæðinu og þar verði 1300 manna salur, ríf- lega fjórum sinmnn stærri en Sal- urinn í Kópavogi. Líklega verður ráðstefnusetur í sama húsi en von- andi fær tónlistin að ráða í stóra salnum. Allt er komið á fulla ferð í Kópa- vogi. Klukkan 18 á laugardaginn hófst röð klukkutimalangra tón- leika sem ókeypis var inn á til að sem flestir fengju að heyra hinn hreina tón strax fyrsta daginn. Er skemmst frá því að segja að húsið yfirfylltist í hvert skipti og komust færri að en vildu! Annað kvöld verða Bach-tónleikar, á fimmtu- dagskvöldið verða strengleikar og á föstudag og laugardag verða þrennir tónleikar með stórsöngv- urunum Auði Gunnarsdóttur og Gunnari Guðbjörnssyni sem fljúga sérstaklega heim til að halda fyrstu söngtónleikana í Salnum. Uppselt er á tvenna tónleikana og ákveðið var að halda aukatónleika kl. 14.30 á laugardaginn sem enn má fá miða á. Leggið símanúmerið á minnið: 570 0404. 17 úrsiiiN Laugavegi 35, sími 552 1033 Hverafold 1-3, sími 567 6511 I . .. ■ -rvÁ, ; Ótrúlegt verð á heimilistækium hjá okkur í nokkra daga Þvottavélar • Kæliskápar • Uppþvottavélar • Saumavélar • Frystikistur *Ryksugur Mikil verðlækkun á mörgum gerðum PfíAFF, ÁÍSLANDI 1929*1999 saumavélum og ryksugum. FA F (Heimilistœkjaversliin Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.