Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1999, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1999, Page 20
24 MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1999 Raunvísindin greiða úr um- ferðarhnútum Vegfarendur sem eru orðnir langþreyttir á endalausum um- ferðarhnútum á mesta anna- tíma mega eiga von á hjálp áð- ur en langt líður. Ekki þó frá lögreglunni, heldur vísinda- mönnum og stærðfræðingum sem eru í óða önn að reikna út og rannsaka betra umferð- arflæði á þjóðvegunum. Þýsku vísindamennimir Dirk Helbing og Martin Trieber við eðlisfræðistofnun háskólans í Stuttgart sögðu nýlega í grein í tímaritinu Sci- , ence að vænta mætti betri tíma á þjóðvegunum þar sem rannsóknir að undanfornu hefðu leitt til aukins skilnings á umferðarflæði. Vísindamennimir beittu greiningaraðferðum eðlisfræð- innar og hreyfifræði vökva við rannsóknir sínar á umferð- inni. Aprílbörn stærri en vetrarbörn Konur sem vilja eignast til- * vonandi körfuboltasnillinga ættu að gæta vel að því hvenær bömin koma undir. Ný dönsk rannsókn hefur leitt í ljós að fæðingarmánuðurinn skiptir máli þegar líkamslengd barnsins er annars vegar. Lengstu bömin fæðast í apr- íl en þau stystu í desember. Hér að sjáifsögðu átt við með- allengd. Danska blaðið Politi- ken skýrði frá þessu fyrir jólin og hafði eftir prófessor Mads Melbye við faraldsfræðirann- sóknarstöð danska blóðbank- ans að þá skipti engu máli , kyn bamsins og fæðingar- þyngd og heldur ekki lengd , meðgöngunnar. Böm sem fæddust í apríl vom að meðal- tali 2,2 millimetrum lengri en böm sem fæddust í desember. Hæðarmunurinn varð með tímanum sex millimetrar. Niðurstöðurnar eru byggðar á rannsókn á meira en milljón bömum sem fæddust miUi 1973 og 1994. Baráttuna gegn ofurbakteríum •verður að herða Baráttan við lyfjaónæmar ofurbakteríur vinnst ekki að- eins með nýjum lyfjum og bóluefnum. JafnmikUvægt er að sannfæra almenning um að hætta að biðja endalaust um , sýklalyf og fá lækna tU að * hætta að skrifa út lyfseðla fyr- I ir þeim þegar þeir vita, eða hafa minnsta gnm um, að lyf- | in muni ekki gera neitt gagn. J Að öðram kosti munu koma ! fram á sjónarsviðið sífeUt * Ueiri bakteríur sem þekkt lyf » vinna ekki á. Afleiðingin verð- i ur sú að fleira fólk mun deyja J af völdum sýkinga en áður. | Nefna má að 70 prósent bakt- j ería sem valda sýkingum inni á sjúkrahúsum era ónæm fyr- ir að minnsta kosti einu sýkla- lyfi. 1/J£íJjJ Jj JJiJ 'Í:2íJjÍJJJ Af ilminum skulið þár þekkja þær: Lyktarhormónin gera kon- urnar enn meira aðlaðandi Hverjum þykir sinn fugl fagur. Eða þannig. Útlitið eitt og sér og öðra óháð er þó ekki hið eina sem kemur við sögu þegar karlpeningur- inn leggur mat sitt á konuna og dæmir um hvort hún er aðlaðandi, eður ei, og þá í hve miklum mæli. Þar skiptir efnafræði konunnar einnig miklu máli. Vísindamenn frá háskólanum í Vínarborg skýrðu nýlega frá því á ráðstefnu breska sálfræðingafélags- ins að svokölluð ferómón, lyktar- hormón sem líkaminn gefur frá sér, hefðu áhrif á hvemig karlar dæmdu fegurð kvenna. Ferómón þessi eru boðefni sem einstaklingur gefur frá sér, oft í tengslum við kynhegðun, og hafa áhrif á einstaklinga sömu tegundar. „Ferómón breyta því hvernig karlar vinna úr upplýsingum í heila sínum,“ segir Vínarprófessorinn og líffræðingurinn Karl Grammer. Vísindamenn vita að ferómón gegna hlutverki í félagslegu og kyn- ferðislegu atferli dýra en rannsókn- ir á hvernig þau virka í mannfólk- inu era enn á framstigi. Grammer og Astrid Juette, sem einnig er líffræðingur, könnuðu áhrif ferómóna þegar þau fengu 44 karla til að anda að sér tilbúnum leggangaferómónum án þess að vita hvað þeir voru að láta ofan í sig. Karlamir áttu síðan að gefa mynd- um af konum og upptökum af rödd- um þeirra einkun eftir því hversu aðlaðandi þær voru. Visindamennimir bára síðan sam- an einkunnagjöf karla þessara við einkunnagjöf sextán kynbræðra þeirra sem ekki höfðu andað að sér konuefhunum. Skemmst er frá því að ssegja að ferómónin höfðu áhrif á einkunna- gjöfina. Konumar vora meira aðlað- andi í augum karlanna sem önduðu Vísindamenn í sædýrasöfnum bretta upp ermarnar: Fræðsluherferð til að bjarga sæhestunum frá útrýmingu Sæhestum í heimshöfunum hefur fækkað um helming á síðustu árum og sjávarlífEræðingar ætla að leggja sitt af mörkum til að snúa þeirri öf- ugþróun við. Ástæöur hnignunar sæhestastofnsins eru meðal annars eyðilegging heimkynna fiska þess- ara og ofveiði, einkum vegna mikill- ar eftirspumar i hefðbundin kín- versk lyf. Fulltrúar frá rúmlega þrjátíu sæ- dýrasöfnum víðs vegar um heiminn hittust í Shedd sædýrasafninu i Chicago í síðasta mánuði til að ráða ráðum sínum. Þeir komu sér saman um að efla fræðslu og rannsóknir á sæhestinum. Sæhesturinn er fjölskylda lítilla fiska með langt höfuð og trýni sem minnir dálítið á hest, eins og nafnið gefur til kynna. Eins og það sé nú ekki nógu furðulegt eitt og sér, þá er það karldýr sæhestsins sem gengur með ungviðið. „Það er ótrúlegt að við skulum vita svona lítið um dýr sem era okk- ur jafn kunn,“ segir Heather Hall, sérfræðingur við dýragarðinn í London um sæhestana. „Við vitum svo lítið um hvar þeir lifa, hvað þeir gera, hvað þeir éta og hvað gerir þá sjúka,“ segir hún. Á hverju ári era veiddir um það bil tuttugu milljón sæhestar en ekki er vitað hversu mörg dýr era til. Veiðimenn segja þó að aflinn fari minnkandi. Vísindamennimir ætla ekki að- eins að fræða almenning um þreng- ingar sæhestanna heldur á einnig að upplýsa fiskimenn í þróunar- löndunum um hvemig þeir geti stuðlað að vemdun dýranna. Sæhestar verða einnig fyrir þung- um búsifjum í þróuðu löndunum. Hundruð þúsunda sæhesta deyja á ári hverju í fiskabúrum einstak- linga vegna þess að erfitt er að halda í þeim lífinu. Þúsundir til við- bótar ganga síðan kaupum og sölum sem minjagripir. „Það er erfitt að verja það að veiða dýr til að gera úr þeim minja- gripi,“ segir Jeff Boehm sem stjóm- ar rannsóknum við Shedd sædýra- safnið í Chicago. að sér ferómómmum en i augum hinna sem ekki urðu þess aðnjótandi. Þá hvarf allur munur á einkunnum kvennanna í hópnum sem andaði að sér konuilminum. „Ferómónin breyttu einkunnagjöf- inni,“ segir Grammer. Myndimar af konunum höfðu ver- ið notaðar í fyrri rannsóknum og dæmdar af öðrum körlum svo vís- indamennimir höfðu ákveðinn feg- urðrstaðal til að byggja á áður en myndimar vora notaðar i ferómóntil- rauninni. Vísindamenn við Norðymbralands- háskóla á Englandi, undir forystu Andrews Scholeys, gerðu aðra rann- sókn á áhrifúm ferómóna á hugará- stand og kynferðislegt aðdráttarafl. Þar kom í ljós að karlar sem höfðu andað að sér kvenferómónum töldu að kvenhetjur úr skáldsögum hefðu meira kynferðislegt aðdráttarafl og að þær væra viðkunnanlegri en ella. Hellir reyndist gullnáma um veðurfarssögu Dropasteinskerti sem fundust í helli einum í Missouri í Banda- ríkjunum hafa gert vísinda- mönnum kleift að sjá hvaða breytingar urðu á loftslagi og gróðri á norður-ameríska megin- landinu miðju á síðustu árþús- undunum fyrir síðustu ísöld, eða frá því fyrir 75 þúsund áram þar til fyrir 25 þúsund árum. Vísindamenn höfðu til þessa ekki haft mikil gögn að styðjast við fyrir þetta tímaskeið. I ljós hefur komið að meöal- hitabreytingum upp á fjórar gráður á selsíus fylgdu gífuregar breytingar á gróðurfari, þar á meðal snögg umskipti frá gresju- gróðri yfir i skóga fyrir 55 þús- und áram þegar hitastig fór lækkandi og ísbreiður tóku að myndast. Frá þessu er sagt í grein í tímaritinu Science eftir jarð- fræðistúdentinn Jeffrey Dorale við Minnesota háskóla og fleiri vísindamenn. „Það hefur ekki verið ljóst hvernig loftslag og gróðurfar breyttist á tímaskeiðinu frá því fyrir 120 þúsund árum, þegar að- stæður vora svipaðar og þær era nú, og þar til fyrir 20 þúsund árum þegar síðasta ísöldin var í hámarki," segir Dorale. Loftslagsbreytingar á megin- landssvæðum era oftast rann- sakaðar með aðstoð frjódufts sem finnst í setlögum i stöðu- vötnum. Gallinn er bara sá að flest vötn í miðjum Bandaríkjun- um eru yngri en 15 þúsund ára gömul. Takmarkað gagn er því af þeim við rannsóknir á fyrri timum, að sögn Dorales. Dropasteinskertin eru dröngl- ar úr kalkspati sem myndast upp fra gólfi kalksteinshella. Þau era lagskipt, ekkert ósvipað árhringjum í trjám. Af þeim sem fundust í Missouri mátti sjá að fyrir 75 þúsund áram var skóg- lendi á þessum slóðum. Fjögur þúsund árum síðar breyttist skógurinn síðan í hitabeltis- gresju. Fyrir 55 þúsund árum kom svo skóglendið aftur. Þetta kemur heim og saman við gögn um loftslagsbreytingar sem fást úr úthöfunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.