Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1999, Síða 27
MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1999
31
DV
Camilla er flutt
inn í höll Karls
Camillia Parker Bowles, ást-
kona Karls Bretaprins, er flutt inn
á heimili hans í St. James höllinni
í London, að því er bresk blöð
greina frá. Blöðin segja að Camilla
geri enga tilraun til að fela sig þeg-
ar konunglegur bílstjóri Karls ek-
ur henni til og frá höllinni i Ford
Mondeo bifreið sem prinsinn hef-
ur tekið á leigu fyrir hana. Bilnum
er lagt við hliðina á brynvarðri
Bentley limósinu prinsins á lóð
hallarinnar.
Haft er eftir vini skötuhjúanna
að þau séu bæði afslöppuð og sam-
skipti þeirra við starfsfólk hallar-
innar séu óþvinguð. „Þau gera
enga tilraun til að fela nokkurn
skapaðan hlut lengur.“
Talsverð breyting hefur orðið á
hegðun Karls og Camillu á
nokkrum mánuðum. Ekki er langt
síðan Camilla dvaldi aðeins tvær
nætur í hverjum mánuði í höllinni
með Karli. Nú eru þau stundum
saman í heila viku og lifa eins og
hjón. Um helgar aka þau hvort í
sínu lagi til Highgrove-setursins
þar sem þau dvelja saman í sveita-
sælunni.
Reyndar voru Karl og Camilla
aðskilin um jólin. Hann dvaldi
með sonum sínum og öðrum í kon-
ungsfjölskyldunni í Sandringham-
Camilla Parker Bowles á leið til fimmtugsafmælisveislu Karls Bretaprins í
nóvember síðastliðnum. Símamynd Reuter.
höllinni en Camilla eyddi jólunum
með börnum sínum. Á dagskránni
hjá Karli er svo skíðafrí í Klosters
í Sviss ásamt prinsunum Vil-
hjálmi og Harry.
Auðvitað söknuðu Karl og
Camilla hvort annars um jólin en
þau eru sögð svo örugg hvort um
annað að þau létu söknuðinn ekki
skyggja á jólagleðina. Bæði skilja
þau fullkomlega að þau geta enn
ekki varið jólum saman.
Camilla er hins vegar sögð svo
örugg um stöðu sína og hlutverk
að hún dvelur oft í St. Jameshöll-
inni þegar Karl er fjarverandi.
„Hún getur notað híbýli hans í
höllinni eins og sitt eigið heimili.
Hún er ekki lengur eins og gestur
þar,“ er haft eftir vini þeirra.
Camilla verður æ meira áber-
andi í lífi Karls. Fyrir nokkru
voru bæði Karl og Camilla og
Harry prins í brúðkaupi vinar
þeirra. Ekki fór á milli mála að
Camilla var stjarnan í fimmtugsaf-
mælisveislu Karls í nóvember síð-
astliðnum. TU veislunnar sem
CamiUa hélt var boðið kóngafólki
víðs vegar úr Evrópu. í veislunni
geislaði Camilla af gleði og ánægju
og gestirnir dáðust að glæsUegum
klæðnaði hennar og útliti.
Sviðsljós
Sendi drottning-
unni reikning-
inn fyrir
jólamatinn
Breska blaðið The People fuU-
yrðir að hertogaynjan af Jórvík,
sem köUuð er Fergie, hafi sent El-
ísabetu Englandsdrottningu
reikning upp á aðra miUjón ís-
lenskra króna fyrir glæsUegt há-
degisverðarboð um jólin. Dætur
Fergie eyddu jólunum með föður
sínum, Andrési prinsi, og öðrum í
konungsfjölskyldunni í Sandring-
ham. Fergie var ekki boðið. Þess
vegna hélt hún jólaveislu fyrir
Jane systur sína, eiginmann
hennar, Reiner Luedecke, og þrjú
börn þeirra. En Fergie lagaði ekki
matinn sjálf. TU verksins fékk
hún átta manns, þar á meðal kokk
og þrjá þjóna. „Þetta hefur verið
hræðilegt ár hjá Fergie og hún
vildi borða og drekka það besta
sem til er og gefa faUegar gjafír,"
er haft eftir vini Fergie.
Hertogaynjan er sögð panta aUt
í gegnum BuckinghamhöU þannig
að það fer á reikning Andrésar.
Reikningana borgar svo drottn-
ingin.
Kínversk fyrirsæta sýnir sköpunarverk hönnuðarins Hus Xiaodans í Peking.
Hugmyndina að þessum kjól fékk hönnuðurinn frá höll Forboðnu
borgarinnar. Símamynd Reuter
Innritun ísímum
553 6645
og 568 5045
alla daga kl. 12-19.
Skírteini afhent íBolholti 6
sunnudaginn 10. jan. kl. 13 -12
Kennsla hefst
mánudaginn ll.jan.
DANSSKOU
Jóns Péturs og Koru
Bolholti 6,105 Reykjavik, sfmi 553 6645/568 5045, fax 568 3545
■