Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999
Fréttir
Umdeildur hlutur íslenskrar erfðagreiningar í Gagnalind:
Viðvörun landlæknis
- engin lög banna að sami aðili hafi aðgang að gagnagrunni og sjúkraskrám
Landlæknisembættið:
Bæklingur um gagna-
grunn á hvert heimili
- um 100 manns hafa hafnað þátttöku
Landlæknisembættið vinnur
nú að leiðbeiningabæklingi um
miðlægan gagnagrunn á heil-
brigðissviði. Áformað er að senda
bæklinginn inn á hvert heimili í
landinu. Leiðbeiningar eru þar
um það hvernig fólk geti hafnað
því að sjúkraupplýsingar um það
fari í grunninn. Þá er útskýrt það
ferli sem sjúkraupplýsingar fara
í gegnum og hvemig þær verða
dulkóðaðar áður en þær fara í
gagnagrunninn.
Sigurður Guðmundsson land-
læknir segir að tilkynningar hafi
borist embættinu frá um 100 aðil-
um þess efnis að þeir vilji ekki að
upplýsingar um þá fari í gagna-
granninn.
-rt
DV í Glasgow! Tveir piltar frá Akureyri skelltu sér til Glasgow þar sem þeir
komust yfir DV. Héðinn Ólafsson tók þessa mynd af félaga sínum, Jóni
Sverri Fririkssyni, þar sem hann gluggar í blaðið í miðborginni.
aukast og þetta truflar þá frekar
samskipti milli rnanna," segir Sig-
urður.
Hann segir erfitt að fyrirbyggja
að meirihluti Gagnalindar komist í
meirihlutaeigu einhverra aðila. Fé-
lagið sé á frjálsum markaði þar
sem hlutabréf gangi kaupum og
sölum.
„Ég hcifði samband við hluthafa
í Gagnalind og varaði þá við þvi að
komi til þess að meirihluti félags-
ins fari í eigu einkaleyflshafans
kunni öll samskipti við lækna að
vera í uppnámi. Þetta yrðu mjög
óeðlileg hagsmunatengsl. Ég vænti
þess að menn hugsi málið út frá
því. Það er hins vegar augljóst að
opinberir aðilar verða að stíga var-
lega til jarðar og þeir geta ekki ráð-
ið flutningi fjármagns á frjálsum
markaði. Það sem rétt er að gera er
að benda fullorðnu fólki á hætturn-
ar af því,“ segir Sigurður. -rt
Eignaraðild íslenskrar erfða-
greiningar að 20 prósenta hlut í
Gagnalind, sem setur upp sjúkra-
skráaforritið Sögu, veldur ólgu
meðal lækna. Eins og DV greindi
frá í gær telur Tómas Zoéga, yfir-
læknir á geðdeild Landspítalans,
að eignaraðild ÍE að Gagnalind
geti sett allt samstarf um gagna-
grunn í uppnám og til greina komi
frá hendi lækna að hætta skrán-
ingu í sjúkraskráakerfið Sögu. Lög
um um miðlægan gagnagrunn á
heilbrigðissviði kveða ekki á um
það hvort sami aðili megi eiga það
fyrirtæki sem setur upp sjúkra-
skrár og það sem fær einkaleyfi á
gagnagrunninum. Þetta er gagn-
rýnt af læknum sem telja
sjúkraupplýsingar vera galopnar
þeim sem eru í slíkri aðstöðu. Á
það er bent að upplýsingar um
sjúklinga í sjúkraskráakerfinu
Sögu eru ekki dulkóðaðar. Dulkóð-
un fer fyrst fram hjá landlækni og
síðan fara upplýsingarnar áfram í
gagnagrunninn. Þannig mun sá
sem ræður fyrirtækjum beggja
vegna dulkóðunar hafa ótakmark-
aða yflrsýn yfir sjúkrasögur ein-
staklinga. Bent er á að Gagnalind
muni ekki aðeins setja upp kerfið
heldur væntanlega einnig þjónusta
það í framtiðinni. Mögulegt er þó
að ráðuneytið taki sér vald til að
ítök Kára
Wjk
Sigurður Guðmundsson landlæknir
varaði hiuthafa Gagnalindar við því
að meirihluti falli í hendur sama að-
ila og fer með einkaleyfi á gagna-
grunninum umdeilda. DV-mynd
ákveða hver þjónusti kerfið og loki
þannig á aðila sem eru tengdir
einkaleyfishafanum.
Áhyggjur landlæknis
Sigurður Guðmundsson land-
læknir staðfesti við DV að læknar
hafi rætt þessi mál við sig og lýst
áhyggjum vegna þessa máls. Hann
segist taka undir þau sjónarmið.
„Ég hef vissulega áhyggjur af
því að Gagnalind geti komist í eigu
sama aðila og fari með einkaleyfi á
gagnagrunninum. Slíkt gengur
ekki upp og getur sett samstarf við
lækna um gagnagrunn í uppnám.
Tortryggni manna á framkvæmd
þessa miðlæga gagnagrunns mun
Landlæknir
Qvj\Kóhun
Frumskráning
erfðagreining
gagnagrunnur
Gagnalind hf.
Eigendur Gagnalindar hf.
íslensk erfðagreining hf. 20 ‘
Landssíminn hf. 20 ‘
Þróunarfélag íslands hf. 15 i
Skýrr (Opin kerfi eiga 51 %) 15 5
I flpknar <ítarf«fnlk 30 c.
Gamli vatnsgeymirinn á Höfn:
Endurbætur kostuðu 3 milHónir
DV, Höfn:
Lokið er viðgerðum og endurbót-
um á gamla vatnsgeyminum á Fisk-
hól á Höfn. Ákveðið hafði verið að
rífa geyminn en það gátu bæjarbúar
ekki sætt sig við og var bæjarstjóra
færður undirskriftalisti þar sem
fjöldi bæjarbúa mótmælti þessari
ákvörðun. Geymirinn fékk að standa
áfram og skipaður var starfshópur til
að sjá um lagfæringu á honum.
Kostnaður við endurbæturnar,
þrjár milljónir króna, var greiddur
með framlagi frá Hornafjarðarbæ,
styrkjum frá fyrirtækjum og ein-
staklingum og sölu auglýsinga sem
verða á geyminum. Einnig gáfu
margir vinnu sína við viðgerðina.
Arkitektastofan Kim hafði yfirum-
sjón með verkinu.
Vatnsgeymirinn á Fiskhól á sér
merka sögu því fyrsta málið á dag-
skrá hjá fyrstu hreppsnefnd Hafn-
arhrepps, 17. maí 1946, var vatns-
veitumál. Á þeim tíma var notað
brunnvatn á Höfn og einnig var
sótt vatn i tunnur í Bergá, um 6
km leið.
Ákveðið var að reyna boranir en
byggja samhliða upp nýtt vatns-
dreifikerfi ásamt nýju dæluhúsi og
vatnsgeymi sem svo var reistur á
Fiskhól árið 1949. Heildarkostnað-
ur við þessar framkvæmdir reikn-
aður á núverandi verðlagi var um
18 milljónir króna sem hefur verið
mikið fyrir tæplega 400 manna
byggð.
Árið 1991 var vígður nýr vatns-
geymir á Syðri-Klettum, spölkom
norðaustan við Fiskhólinn, og þar
með lauk eiginlegu hlutverki
gamla vatnsgeymisins. Hann er nú
góður minnisvarði þeirra miklu
breytinga í vatnsveitumálum sem
urðu á Höfn með tilkomu hans.
-JI
Stuttar fréttir :dv
Skerða háar greiðslur
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra segir koma til greina að
skerða háar líf-
eyrisgreiðslur
til að jafha betur
kjör lífeyris-
þega. Að mati
eldri borgara
þarf að ná sátt-
um milli kyn-
slóða þar sem
aldraðir hafi lágar tekjur og þunga
greiðslubyrði af fasteignum. Sjón-
varpið greindi frá.
Listaskáli lokaður
Listaskálanum í Hveragerði,
sem Einar Hákonarson á og rek-
ur, hefur verið lokað. Opnað verð-
ur aftur í mars eða apríl. Einar
segir að lokað sé vegna reynsl-
unnar frá því i fyrra. Þá var opið
allt árið en traffikin minnkaði
rosalega eins og hann segir. Dag-
ur greindi frá.
Salan jókst um 22%
Heildarsala Iceland Seafood Ltd.,
dótturfélags íslenskra sjávarafurða
í Bretlandi, jókst um 22% á síðasta
ári en verðmæti sölunnar nam þá
um 5,3 milljörðum króna. Að sögn
Jóns Þórs Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra félagsins, er um að
ræða aukningu á sölu á flestum teg-
undum. Morgunblaðið greindi frá.
Vilja sameiningu
Mikill meirihluti mjólkurfram-
leiðenda á félagssvæði Kaupfélags
Þingeyinga skorar á stjórn KÞ að
hefja fyrir alvöru viðræður um
sameiningu afurðasölufyrirtækja
á Norður- og Austurlandi. Kúa-
bændur á félagssvæði KÞ telja
brýnt að hraða sameiningu
mjólkuriðnaðar á svæðinu og
skapa þannig mótvægi við fram-
leiðendur á Suövesturhorninu.
Sjónvarpiö greindi frá.
Þurfa að borga framlag
Einungis 15 af 124 sveitarfélög-
um landsins ætla að taka þátt í
nýja félagslega
íbúðalánakerf-
inu. Hvað varð-
ar að sveitarfé-
lögin fara ekki
inn í þetta kerfi
segir Jóhanna
Sigurðardóttir
skýrast m.a. af
því að til þess þurfi þau að borga
ffamlag, 5% viðbótarlánsins, í
varasjóð til að mæta útlánatöpum.
Dagur greindi frá.
Flyst til Selfoss
Lánasjóður landbúnaðarins flyst
væntanlega til Selfoss á árinu.
Guðni Ágústsson, formaður stjóm-
ar sjóðsins, segir að undirbúningur
fyrir flutning fari nú í fullan gang.
Auglýst hefur verið eftir fram-
kvæmdastjóra sjóðsins og tekið
fram að til standi að flytja höfuð-
stöðvarnar. Dagur greindi frá.
Hættuástandi aflétt
Ákveðið var á fundi Almanna-
varna á Siglufirði í gær að aflétta
hættuástandi í bænum. íbúar 29
húsa í bænum þurftu að gista hjá
vinum og vandamönnum í fyrr-
inótt vegna þess sem kallast fyrsta
stigs rýming vegna snjóflóðahættu.
Vísir greindi frá.
235 bíða eftir rými
235 aldraðir bíða eftir dvalar-
rými i Reykjavík og 203 aldraðir
bíða eftir að komast í hjúkrunar-
rými. Biðtíminn getur verið allt að
tvö ár. Ástandið er verst á höfuð-
borgarsvæðinu. Morgunblaðið
greindi ffá.
Bara íslensk tónlist
Um næstu mánaðamót mun ís-
lenska fjölmiðlafélagið hefja út-
sendingar á
nýrri útvarps-
stöð, Útvarp ís-
land. Stöðin
mun senda út
allan sólarhring-
inn og verður
eingöngu leikin
islensk tónlist.
Útvarp ísland mun heyrast á öllu
Faxaflóasvæðinu. Jón Axel Ólafs-
son verður útvarpsstjóri. Dagur
greindi frá. -SJ