Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 Marta Nordal og Eggert Porleifs- son í hlutverkum Katrínar og Eddie. Horft frá brúnni í kvöld frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur á Stóra sviði Borgar- leikhússins eitt þekktasta leikrit sem samið hefur verið á þessari öld, Horft frá brúnni eftir Arthur Miller, og er það í nýrri þýðingu Sigurðar Pálssonar. Sögusvið verksins er hafnarhverfi ítalskra innflytjenda í New York. Hafnar- verkamaðurinn Eddie og eigin- kona hans ganga Katrínu, systur- dóttur konunnar í foreldra stað. Þegar fram líða stundir og Katrín verður ástfangin af ungum ítala blossar afbrýðisemin upp í Eddie og það rennur upp fyrir honum að tilfinningar hans í garð Katrínar eru flóknari en hann hafði gert sér grein fyrir. Hann einsetur sér að Leikhús skilja elskendurna að. Með hlutverk ungu elskend- anna fara Marta Nordal og Guð- mundur Ingi Þorvaldsson. í öðr- um hlutverkum eru Ari Matthías- son, Ellert A. Ingimundarson, Egg- ert Þorleifsson, Hanna María Karlsdóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Jóhann G. Jóhannsson, Jón J. Hjartarson, Margrét Ólafsdóttir, Steindór Hjörleifsson og Þórhallur Gunnarsson. Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir. Kaffileikhúsið: Gegn heimilisofbeldi Fræðslu- og kynningarátak Samtaka um kvennaathvarf, Verum vakandi, upprætum heimil- isofbeldi, hefst með kynningar- fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjam- arsal, í dag, kl. 14, og mun Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra opna átakið. Auk Ingibjargar munu taka til máls Helga Tulinius, form. stjórnar Samtaka um kvennaat- hvarf, Vilborg G. Guðnadóttir, fram- kvæmdastj. Kvennaathvarfsins, Ásta Júlía Arnardóttir, kynningar- fulltrúi Kvennaathvarfsins, og Andrés Ragnarsson sálfræðingur. Rask-ráðstefnan 1999 Þrettánda Rask-ráðstefna ís- lenska málfræðifélagsins verður haldin í fundarsal Þjóðarbókhlöð- unnar á morgun, kl. 13.15, og flytja flmm fræðimenn fyrirlestra. Þeir era Jón G. Friðjónsson: Er falls von að fornu tré? Þórhallur Eyþórsson: Enskuslettur í Völundarkviðu? Jón Samkomur Axel Harðarson: 29. vísa Grímnis- mála og sögnin hlóa, Höskuldur Þráinsson: Að hvaða leyti eru aftur- beygð fornöfn ólík gagnverkandi fornöfnum? Margrét Jónsdóttir: Engan var að sjá í kirkjunni en bók- ina var að finna á borðinu. Félag eldri borgara í Reykjavík í Asgarði verður félagsvist í dag, kl. 13, og dansleikur í kvöld, kl. 22. Göngu-Hrólfar fara í létta göngu frá Ásgarði i fyrramálið, kl. 10. Kjördæmisþing Kjördæmisþing reykvískra sjálf- stæðismanna verður haldið í Súlna- salnum á Hótel Sögu á morgun, kl. 13.30. Kl. 14.30 er opinn fundur sem ber yfírskriftina Er unnt að veita góða heilbrigðisþjónustu á annan og ódýrari hátt? Karlrembukvöld I tilefni bóndadagsins, sem er í dag, efnir Kaffileikhúsið til karl- rembukvölds. Þorramatur verður í boði frá kl. 20, en dagskráin hefst kl. 21 með harmoníkuleik Karls Jón- atanssonar og á eftir fylgir hvert skemmtiatriðið á fætur öðru, má þar nefna umfjöllun leynigests um bóndadaginn og þorrann, sannsögu- legar karlrembusögur nokkurra þjóðþekktra aðila, tískusýningu frá Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar, Auði Haralds sem flytur minni karla og hópsöngs. Dúettinn Súkkat mun troða upp milli atriða. Eftir að dagskrá lýkur taka við tón- Skemmtanir leikar Súkkats. Til liðs við þá félaga Hafþór og Gunnar Hólm ganga Birg- ir Bragason bassaleikari, Gunnar Erlingsson trommuleikari og Jens Hansson saxófónleikari en þeir léku með Súkkati á nýju plötunni, Ull. Miðnes á Grand Rokk Búast má við miklu fjöri á Grand Rokk í kvöld þegar hljómsveitin Miðnes mætir til leiks en að sögn kunnra manna fara þarna harðsvírað- ustu gleðipinnar landsins. Tónlist þeirra einkennist af bresku mod-rokki og montrokki. Sólrisuhátíð ísflrðingafélagið í Reykjavík gengst að venju fyrir sinni ár- legu sólrisuhátíð Sólarkaffinu sem að þessu sinni verður haldið í kvöld á Broadway, Hótel ís- landi. Hófið hefst kl. 20.30 að ísfirskum sið með kaffi og rjómapönnukökum, síðan fylgir fjöl- breytt skemmtidag- skrá sem endar með dansleik þar sem gömlu og nýju döns- unum er gert jafn- hátt undir höfði. Súkkat kemur fram milli atriða og Auður Haralds flytur minni karla. Hlýnandi veður Yfir sunnanverður Grænlands- hafi er nærri kyrrstæð 989 mb lægð. 1014 mb hæð er yflr Grænlandi. í dag verður austanátt, stinnings- kaldi eða allhvasst og slydda eða snjókoma en síðar rigning sunnan til, gola eða kaldi og skýjað að mestu norðan til og lítið eitt hlýn- andi veður. Suðaustankaldi, skúrir Veðrið í dag eða slydduél og hiti 0 til 4 stig sunn- an og vestan til en skýjað, úrkomu- lítið og vægt frost á Norðurlandi í nótt. Á höfuðborgarsvæðinu verður austankaldi eða stinningskaldi, snjókoma en síðar slydda eða rign- ing og hlýnar í dag. Suðaustangola, skúrir og hiti 1 til 4 stig í kvöld og nótt. Sólarlag í Reykjavík: 16.41 Sólarupprás á morgun: 10.35 Síðdegisflóð í Reykjavík: 21.55 Árdegisflóð á morgun: 10.18 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri léttskýjaö -6 Bergsstaðir heiðskírt -8 Bolungarvík léttskýjaó 0 Egilsstaöir -9 Kirkjubœjarkl. alskýjaö 0 Keflavíkurflv. alskýjað 0 Raufarhöfn alskýjaö -3 Reykjavík skýjaö 0 Stórhöföi alskýjað 3 Bergen skýjaö 5 Helsinki alskýjaó 2 Kaupmhöfn þokumóöa 1 Ósló léttskýjaö -.2 Stokkhólmur 4 Þórshöfn léttskýjaö 1 Þrándheimur léttskýjaö 0 Aigarve hálfskýjaó 6 Amsterdam þoka 2 Barcelona þokumóða 7 Berlín súld 6 Chicago rigning 3 Dublin heiðskírt 0 Halifax alskýjaö -2 Frankfurt skýjað 1 Glasgow léttskýjaö 5 Hamborg alskýjaó 3 Jan Mayen skýjaö -3 London þoka -2 Lúxemborg þokumóða 3 Mallorca léttskýjað 7 Montreal alskýjað -5 Narssarssuaq alskýjað -3 New York þokumóöa 4 Orlando heiöskírt 18 París lágþokublettir 4 Róm þokumóöa 2 Vín þokumóóa -3 Washington þokuruðningur 3 Winnipeg alskýjaö -7 Hálka á þjóðveg- um landsins Fært er um alla helstu þjóðvegi landsins en hálka er mjög víða. Hálkublettir era á Hellisheiði og Þrengslum. Hált er víða í Borgarfirði. Á Vestfjörð- um er víða þungfært, meðal annars um Djúp til ísa- Færð á vegum fiarðar. Þungfært er á Öxnadalsheiði og ófært um Víkurskarð. Víða þungfært á Norðaustur- og Aust- urlandi en starsmenn Vegagerðarinnar era við mokstur á mörgum stöðum. Alexandra Helma Alexandra Helma kom í heiminn 14. janúar á Barn dagsins fæðingardeild Landspítal- ans. Við fæðingu vó hún 2975 g og var 50 sm. Móð- ir hennar er Sandra Heimisdóttir. Spencer fær óvænta hjálp í barátt- unni við skólafélaga sína. Geimstrákurinn Sambíó sýna um þessar mundir Star Kid þar sem segir frá hinum 12 ára Spencer Griffith sem á fullt í fangi með að halda í við félaga sína í skólanum. Ekki bætir það sjálfs- traustið að vera ástfanginn í aðal- stelpunni í skólanum sem lítur ekki við honum. Griffith er mikið einn þar sem hann er alltaf í felum fyrir einum skólafélaga sínum, stórum og sterkum strák sem leggur hann í einelti. Ekki getur hann treyst á fóð- ur sinn sem vinnur alla daga og kvöld. Breytingar verða á tilveru Spencers þegar hann verður vitni að því að geimskip brotlendir. Út úr geimskipinu stíg- ur rúmlega tveggja '////////; Kvikmyndir metra sláni sem er mjög ólíkur jarðarbúum. Forvitni þeirra hvors um annan gerir það að verk- um að þeir tengjast vináttuböndum og Spencer sér að margt sem vinur hans getur gert er honum ómögu- legt og það kemur honum til góða þegar stærri strákar eru að atast í honum. Nýjar myndir í kvikmyndahúsum: Bíóhöllin: Practical Magic Bíóborgin: Enemy of the State Háskólabíó: The Prince of Egypt Háskólabíó: Meet Joe Black Kringlubíó: The Waterboy Laugarásbíó: Rush Hour Regnboginn: Rounders Stjörnubíó: Blóðsugur Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 Lárétt: 1 djörf, 5 beiðni, 8 fljótið, 9 hnoði, 10 fuglar, 12 hreyfing, 13 hættu- legan, 16 hirsluna, 18 gangflötur, 20 kettir, 22 greindu, 23 máttlausa. Lóðrétt: 1 dreifa, 2 vígi, 3 námstíma- bil, 4 vegur, 5 fæddi, 6 stíf, 7 afkvæmi, 10 tré, 11 fjasa, 14 æviskeið, 15 aðeins, 17 að, 19 ásáka, 21 nærri. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 er, 3 aldin, 8 sök, 9 orna, 10 skaft, 12 Nk, 13 ekra, 14 aki, 16 kunn- ur, 18 krá, 20 amen, 21 ið, 22 ama, 23 má. Lóðrétt: 1 ess, 2 rökkur, 3 akarn, 4 lofa, 5 dr, 6 inn, 7 nakinn, 11 tauma, 13 ekki, 15 krem, 17 nam, 19 áa. Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA í ÁSKRIFT í SÍMA 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.