Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 13 Fréttir Akureyri: Skipulagsnefnd skoð- ar íþróttavallarmálið DV, Akureyri: Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar hefur falið þremur fulltrúum í nefndinni að ræða við forsvars- menn Rúmfatalagersins og Kaupfé- lags Eyfirðinga, vegna umsóknar fé- laganna um að fá að byggja verslun- armiðstöð á aðalleikvanginum 1 hjarta bæjarins. Bæjarráð vísaði erindinu til skipulagsnefndar, og óskaði jafti- framt eftir ábendingum nefndarinn- ar um lóðir fyrir slíka starfsemi. Forsvarsmenn fyrirtækjanna hafa talað um að byggingin sem reist yrði á íþróttavellinum yrði allt að 10 þúsund fermetrar og þar yrðu jafnframt aðrar verslanir en versl- un Rúmfatalagersins, og KEA sem myndi reka þar lágvöruverðsversl- un. Hugmyndin um byggingu slíks markaðar á íþróttavellinum er mjög mikið rædd meðal bæjarbúa og er talsverður tilfinningahiti í þeirri umræðu. Margir geta ekki hugsað þá hugsun til enda að aðalleikvang- ur bæjarins verði lagður undir verslunarrekstur og segja það marka upphaf endaloka miðbæjar- ins, en aðrir, þar á meðal samtök kaupmanna í bænum, segja það myndu styrkja miðbæinn mjög og íþróttafélögin myndu um leið fá stóraukið fjármagn til uppbygging- ar á félagssvæðum sínum. Skipulagsnefnd tilnefndi Vil- borgu Gunnarsdóttur, Gísla Braga Hjartarson og Hallgrím Indriðason til að ræða við umsækjendur og aðra hagsmunaaðila um málið. DV hefur heimildir fyrir því að nefnd- armenn muni skoða fleiri mögu- leika á staðsetningu slíks markaðar á miðbæjarsvæðinu og eru þrir staðir aðallega nefndir í því sam- bandi. Einn þeirra er uppfyllingin sunnan Strandgötu og austan Gler- árgötu. Annar nærri Umferðarmið- stöð bæjarins við Hafnarstræti, og þriðji möguleikinn sem nefndur hef- ur verið er að byggja austan Skipa- götu þar sem eru bílastæði í dag, og að verslunarmiðstöðin yrði þá byggð yfír bílastæði sem yrðu neð- anjarðar. -gk Afbragðsgóð aflabrögð Vanda þarf til beitingar þegar vei á að veiðast. Feðgar við beitingu á Hólma- vík: Ólafur og Sigurður og faðir þeirra, Friðrik Arthúr Guðmundsson. DV-mynd Guðfinnur DV, Hólmavík: „Það hefur komið svona einn og einn róður sem minna hefur verið en að jafnaði hefur þetta verið mjög gott,“ segir Már Ólafsson, skipstjóri og trillusjómaður á Hólmavík. Hann segir að á síðustu árum hafi afli, einkanlega þorskafli, verið mjög góður í Húnaflóa. Það sem af er þessu ári hefur aflinn verið með al- besta móti og nær hver einasti bát- ur fengið um 300 kg á balann og sumir þar yfir en beitt er síld og smokkfiski. Eins og jafnan þegar vel aflast er fiskurinn yfirleitt vænn en verð á stórfíski á síðustu mánuðum hefur verið með því hæsta sem heyrst hefur um. Nokkur lifur er í stærsta fiskinum en Már segir verðið svo lágt að ekki svari kostnaði að hirða hana. Öðru máli gegni með hrognin. Einn stórþorskurinn sem Már fékk á dögunum var með heilan svartfugl í maganum en lengi hef- ur verið vitað að sá guli er ekki matvönd skepna. Á grásleppuver- tíðinni má oft sjá grásleppuhvelju i maga hans. Engan þarf því að undra að minna sé af rækjunni og hún á tak- markaðra svæði en áður þegar svo mikið er af þorski. í sumar mátti sjá allmikið af smásíld við bryggju á Hólmavík og alveg uppi í land- steinum en stærri síld hefur litið veiðst inni á Steingrímsfirði síð- ustu árin þótt lagt hafi verið fyrir hana. Er það nokkur breyting frá því sem oft hefur verið. -Guðfinnur Gáfu bæjarstjór- anum mynd af Ráðhúsinu DV.Vesturlandi: Þriðji bekkur Grunnskólans í Stykk- ishólmi heimsótti Ráðhúsið fyrir skömmu. Þar tók bæjarstjórinn á móti krökkunum og sýndi þeim húsið. Eftir að hafa prófað nýja stóla bæjarstjómar stilltu þau sér upp í myndatöku með kennara sínum, Oddfríði Traustadótt- ur, og Ólafi Hilmari Sverrisyni bæjar- stjóra. Tilefni heimsóknarinnar var að færa Ólafl Hilmari mynd af ráðhúsinu sem einn nemandinn, Berglind Þrast- ardóttir, hafði teiknað. -DVÓ/ÓJ Nemendur þriðja bekkjar ásamt kennara sínum, Oddfríði Traustadóttur, og Ólafi Hilmari bæjarstjóra. DV-mynd ÓJ BORGARSKIFULAG REYKJAVÍKUR BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Klettagarðar/Laugarnes, hreinsistöð í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að deiliskipulagi við Klettagarða í Laugarnesi. Um er að ræða afmörkun lóðar fyrir skólphreinsistöð og fyrirkomulag hennar. Tillagan verður til sýnis í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10:00-16:15 frá 22. janúar til 19. febrúar 1999. Ábendingum og athugasemdum vegna ofangreindrar kynningar skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur, eigi síðar en 5. mars 1999. Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Sogamýri, ný og breytt lóðamörk í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að breyttu deiliskipulagi í Sogamýri. Gert er ráð fyrir nýjum lóðum, eldri felldar niður eða breytt. Tillagan verður til sýnis í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10:00-16:15 frá 22. janúar til 19. febrúar 1999. Ábendingum og athugasemdum vegna ofangreindrar kynningar skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur, eigi síðar en 5. mars 1999. Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Sóltún, nýbygging í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að breyttu deiliskipulagi að Sóltúni 24. Gerð er tillaga um átta hæða íbúðarhús á lóðinni. Tillagan verður til sýnis í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10:00-16:15 frá 22. janúar til 19. febrúar 1999. Ábendingum og athugasemdum vegna ofangreindrar kynningar skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur, eigi síðar en 5. mars 1999. Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. ^ Viðboðum breytingar ÁHUGAFÓLK um nýja fiskveiðistefnu: Nlnnið LANDSÞINGID 23. - 24. jan. að Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðin). .HJÁISHfNDj LOKKURINN Hlíðasmári 10, 200 Kópavogur. Sími 564-6050. Fax 564-2090. Netfang: frjalslyndiflokkurinn@centrum.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.