Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Norður-Mjódd í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að deiliskipulagi reits sem markast af Stekkjarbakka, Álfabakka og Reykjanesbraut. Tillagan verður til sýnis í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10:00-16:15 frá 22. janúar til 19. febrúar 1999. Ábendingum og athugasemdum vegna ofangreindrar kynningar skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur, eigi síðar en 5. mars 1999. Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Fréttir i>v . ■ • 115; i'j í'IFB 8 " i "Á - >v. ;■ I ár á að Ijúka byggingu afgreiðslu við sundlaugina á Akureyri. Einnig verður settur upp nýr hreinsibúnaður og lok- ið við búningsaðstöðu kvenna. DV-mynd gk BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Borgaskóli, lóðarmörk, lóðarfyrirkomulag í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að breyttu deiliskipulagi lóðar Borgaskóla hvað varðar mörk og fyrirkomulag. Tillagan verður til sýnis í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10:00-16:15 frá 22. janúar til 19. febrúar 1999. Ábendingum og athugasemdum vegna ofangreindrar kynningar skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur, eigi síðar en 5. mars 1999. Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Bakkastaðir 159-161, stækkun byggingarreita og fjölgun íbúða í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar Bakkastaðir 159-161. Gert er ráð fyrir stækkun byggingarreita og fjölgun íbúða úr 8 í 12. Tillagan verður til sýnis í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10:00-16:15 frá 22. janúar til 19. febrúar 1999. Ábendingum og athugasemdum vegna ofangreindrar kynningar skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur, eigi síðar en 5. mars 1999. Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. \ I / Hefur þú kíkt ^ Sinfóníuvefinn? wwwvisiris NYR HIMMUR Á NI IINU Sundlaug Akureyrar: Framkvæmdir fyrir 80 milljónir króna í ár DV, Akureyri: Framkvæmdanefnd Akureyrarbæj- ar hefur falið „SA-hópnum“, sem er hópur sem vinnur að uppbyggingar- málum sundlaugarinnar á Akureyri, að endurskoða kostnaðaráætlun vegna framkvæmda við sundlaugina í ár og leggja fram hugmyndh’ um breytingar á þann veg að fram- kvæmdakostnaður rúmist innan ramma fjárhagsáætlunar bæjarins. Samkvæmt íjárhagsáætlun bæjar- ins er fjárveiting til framkvæmda við sundlaugina áætluð 80 milljónir króna. Magnús Garðarsson, eftirlits- maður með framkvæmdunum við laugina, lagði hins vegar fram áætlað- an kostnað vegna framkvæmdanna og samkvæmt hans tölum nemur kostn- aðurinn 96,6 milljónum og þennan mun sem er á milli fjárhagsáætlunar og kostnaðaráætlunar upp á 16,6 millj- ónir króna vill framkvæmdanefndin skera niður. Gísli Kr. Lórenzson, forstöðumaður sundlaugarinnar, segir að í ár eigi að ljúka byggingu nýrrar afgreiðslu sem þýðir um leið að aðkoman að lauginni færist og verður nú að sunnanverðu og bílastæði verða sameiginleg með íþróttahöllinni. Þá verður lokið við nýja búningsaðstöðu fyrir konur, sett- ur upp nýr hreinsibúnaður og unnið við „pottasai". Gísli Kr. segir að mikil breyting verði á aðkomu að lauginni í vor, og þá muni t.d. öll aðstaða fyrir fatlaða lagast verulega. í næsta áfanga fram- kvæmdanna við Sundlaug Akureyrar verður m.a. unnið að breytingum á gömlu sundlauginni og við bygging- una sem hýsir búningsklefa karla. Eklki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær ráðist verður í þann áfanga. Framkvæmdir við sundlaugina hafa staðið yfir undanfarin ár og mikið verið framkvæmt. Ný laug hefur ver- ið tekin í notkun, nýir „heitir pottar“ byggðir, settar upp vatnsrennslibraut- ir og mikið unnið við sólbaðsaðstöðu á sundlaugarsvæðinu, svo eitthvað sé nefnt. -gk Björgvin íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 1998 DV, Dalvík: Skíðamaðurinn Björgvin Björg- vinsson var útnefndur íþróttamað- ur Dalvíkurbyggðar 1998. i 2. sæti varð hestaíþróttamaðurinn Stefán Friðgeirsson og í 3. sæti frjálsi- þróttamaðurinn Ómar Freyr Sæv- arsson. Aðrir sem útnefningu hlutu voru Haukur Snorrason - golf, Jó- hannes Bjami Skarphéðinsson - körfuknattleikur, Steinn Símonar- son - knattspyrna og Þorgerður Sveinbjamardóttir - sund. í greinargerð með útnefningu Björgvins segir m.a.: „Björgvin Björgvinsson stundar nám við skíðamenntaskóla i Noregi. Hann er mjög samviskusamur og hefur það sýnt sig að þegar hann hefur komið heim á sumrin þá má oft sjá hann hlaupandi einan um fjöllin í ná- grenninu. Öll hans vinna er nú að skila sér þvi sl. vetur skaust hann á toppinn. Fyrst með 12. sæti á heims- meistaramóti unglinga í flokki 16-19 ára í stórsvigi. Þar vora einnig veitt verðlaun fyrir flokk 16-17 ára og vann Björgvin til þeirra verðlauna og er heimsmeistari í þeim flokki. Skömmu seinna tók hann þátt í unglingameistaramóti Noregs í flokki 16-19 ára. Þar sýndi hann og sannaði að heimsmeistaratitillinn var engin heppni þvi hann vann stórsvigið í sínum flokki. Á Skíða- móti íslands varð hann Islands- meistari í risasvigi. í ár hefur Björgvin verið valinn til þátttöku á heimsmeistaramóti ung- linga 16-19 ára sem fram fer i Pra- Loup í Frakklandi dagana 3.-12. mars en þar hefur hann titil að verja. Björgvin Björgvinsson skíðamaður, Björgvin er eitt mesta efni íslend- inga og hefur vakið mikla athygli, bæði hér heima og erlendis. Hann hefur einnig lyft undir skíðaáhuga á íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 1998. DV-mynd hiá íslandi því yngri krakkar sjá að það er hægt að verða góður og komast á toppinn." -hiá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.