Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 Spurningin Ertu hlynnt/ur eða andvíg/ur ríkisstjórninni? Sigríöur Þórarinsdóttir húsmóð- ir: Ég veit það ekki. Kjartan Tómasson: Ég er ekki hlynntur henni. Ásta Sóley Sturludóttir kassadama: Hvorugt. Guðrún Helga Högnadóttir kassadama: Ég er andvíg. Hörður Jóhannesson fiskverka- maður: Ég er andvígur ríkisstjórn- inni. Elsa Kristjánsdóttir, vinnur á myndbandaleigu: Ég er hlutlaus. Lesendur Nóg að borða á Litla-Hrauni Kristján Stefánsson framkvstj. skrifar: Þann 15. jan. sl. birtist grein í DV þar sem fjallað var um fangelsið Litla-Hraun undir fyrirsögninni „Matur skiptimynt í fangelsinu“. „Því er harðlega mótmælt að fangar á Litla-Hrauni búi við þröng- an kost í mataræði með núverandi fyrirkomulagi er verið hefur óbreytt í meira en 3 ár. Tryggt er að fangar hafi aðgang að matvælum allan tímann sem þeir dvelja á fangadeildum, að undanskildum þeim sem þeir eru lokaðir inni á klefum sínum, frá kl. 22 að kvöldi til kl. 8 að morgni. í sameign alira almennra deilda er eldhúsaðstaða. í kæliskáp eru fjölbreytt matvæli auk t.d. brauðs og morgunverðarkorns sem fangar geta nýtt sér eftir þörfum. Fangar sjá sjálfir um að útbúa sér morgun- verð og fá síðan yfirleitt heita mál- tíð í hádegi úr mötuneyti fangelsis- ins. - Síðdegis fá fangar heita súpu og geta þá bætt við af þeim matvæl- um sem áður eru nefnd. Vist er að á mörgum heimilum á íslandi væri ekki kvartað yfir þeirri fjölbreytni og magni matvæla sem föngum er látið i té daglega. Fullyrt er að fangar greiði 63% hærri símagjöld en almenningur. - Fyrir hverjar 500 kr. sem fangar greiða í síma- kostnað fá þeir 120 skref sem gerir 4,17 kr. hvert skref. Þetta er mjög nálægt því sem almenningur greiðir. Útreikningar okkar sýna að al- mennur borgari sem notar 1000 skref á þriggja mánaða tímabili greiðir u.þ.b. kr. 4,12 fyrir hvert skref. Mismun- urinn skýrist af kostnaði við síma- þjónustuna á staðn- um. Því er haldið fram að álagning í versl- un, sem rekin er af mötuneyti fangelsis- ins í verktöku, sé óhófleg eða 200%. - Þessi staðhæfing er röng. Allt verð- lag er miðað við að verð sé ekki hærra en almennt gerist í stórversl- Litla Hraun. - „Víst er að á mörgum heimilum á ís- landi væri ekki kvartað yfir þeirri fjölbreytni og magni matvæla sem föngum er látið í té daglega." unum á svæðinu. sanna það.“ Verðkannanir Bókhaldsleg sundurliðun hjá Landssímanum Gústav Arnar skrifar: Vegna fréttar í DV 17. janúar 1999 óskar Póst- og fjarskiptastofhun eft- ir að upplýsa að í endumýjuðu rekstrarleyfi Landssíma íslands hf. eru ákvæði um bókhaldslega sund- urliðun kostnaðar eftir þjónustu- greinum, og sér í lagi fyrir leigulín- ur og samtengingu. í drögum að leyfinu var Landssímanum veittur frestur til 1. október 1998 að full- nægja síðast talda ákvæðinu, en með bréfi dags. 14.7. 1998 óskaði Landssíminn eftir framlengingu til 1. janúar 1999, og var hún veitt. Ekki er um að ræða að afhenda skuli Póst- og fjarskiptastofnun bók- hald Landssíma íslands í heild held- ur skal stofnunin hafa aðgang að því. Hins vegar bar Landssímanum samkvæmt leyfisbréfinu að birta eigi síðar en 1. janúar 1999 skilmála og gjaldskrá fyrir samtengingu sem ekki hefur enn verið gert og hefur Íslandssími ítrekað gert fyrirspurn- ir til Póst- og fjarskiptastofnunar um hvenær af því verði. Sömuleiðis bíður Póst- og fjar- skiptastofnun eftir upplýsingum um leigulínur sem beðið var um skrif- lega 27. nóvember 1998. Ef fyrir- spurnum er ekki svarað getur stofn- unin beitt dagsektum, en gerir það ekki fyrr en að liðnum formlegum fresti sem veittur er til svara, og hefur ekki komið til slíkra aðgerða enn af háifu stofnunarinnar. Árna Þór til árangurs Árni Þór Sigurðsson á blaðamannafundi í Iðnó í janúar sl. Guðrún Ágústsdóttir, forseti borgarstjómar, skrifar: Ég mæli með Árna Þór Sigurðssyni sem leiðtoga lista okkar í Reykjavík. Ástæðumar eru margar. - Árni er heilsteyptur félagi og hann hefur sýnt það með verkum sínum að hann á auðvelt með að starfa með fólki og hann hefur líka sýnt það einkar vel að hann á auðvelt með að leiða saman ólík sjónarmið. En í þriðja lagi hefur hann sýnt að hann nær árangri í sam- starfi. Dæmi um allt þetta: Árni Þór Sig- urðsson var samstarfsmaður Stein- gríms J. Sigfússonar í samgönguráðu- neytinu og leiddi þar til lykta marg- vísleg verkefni sem vöktu athygli, ekki síst fyrir þá sök að þau voru óvenjuvel af hendi leyst og vegna þess að þar fór ungur maður fyrir liðs- sveitinni. í öðru lagi gegndi Ámi Þór störfum sem formaður stjómar Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna í menntamála- ráðherratíð Svavars Gestssonar. Það er i eina skiptið sem Lánasjóðurinn var sannarlega rekinn í samkomulagi við námsmenn. í þriðja lagi var Ámi Þór fyrsti for- maður kjördæmisráðs Alþýðubanda- lagsfélaganna í Reykjavík þegar flokk- urinn okkar var að brotna sundur í innri átökum. Honum tókst það verk- efni svo vel að hann var í framhald- inu kjörinn til þess að vera borgarfull- trúi fyrir Alþýðubandalagið. Ámi Þór var á síðasta kjörtímabili formaður nefndar sem stýrir dagvist- armálum í Reykjavík. Þá varð bylting í dagvistarmálum og hefur aldrei fyrr né síðar orðið önnur eins breyting í málefnum leikskólanna 1 Reykjavík. Þetta sannaði að Árni er ekki aðeins hugsjónamaður heldur líka maður sem kemur miklu i verk. Nú er Árni Þór aðstoðarmaður borgarstjóra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Það eru líka að mínu mati meðmæli með honum að hann skuli hafa verið valinn til þeirra verka. Til þess að leiða samfylkinguna þarf sterkan forystumann, sanngjarn- an, traustan og heiðarlegan og það er ekki verra að geta kallað nýtt afl til þeirra verka. Ég heiti því á Reykvík- inga, hvar í flokki sem þeir hafa ver- ið, að fylkja sér um Árna Þór Sigurðs- son í prófkjörinu 30. janúar. Hann er okkar maður númer eitt. Svarar seint í 118 Sigmar Guðmundson skrifar: Ég hef setið á mér í nokkra mán- uði með að kvarta undan símaþjón- ustunni í númer 118. - Málið er að vegna vinnunnar verð ég að nota þessa þjónustu sem er vægast sagt sérstaldega léleg vegna þess hve seint er svarað. Allt að því 3 mínút- ur líða þar til einhver svarar (oftast nær) og einnig er svo sem ekkert verið að flýta sér að gefa manni upp það sem um er spurt. Nú er þetta líka fokdýr þjónusta. En hvers vegna er engin samkeppni í þessu eins og öðru. Ætti ég val á að hringja annað myndi ég gera þaö, og eflaust marg- ir aðrir, sem eru við að gefast upp á þessari slæmu þjónustu. Styðjum ungt fólk í prófkjöri Samfylkingar Guðrún Ólafsdóttir sknfar: Það eru góðar fféttir að ungt fólk hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar i lok janúar. Á síðustu árum hefur verið illa gert við menntastofnanir í land- inu og kjör barnafólks eru slæm. Ungt fólk sem er allt í senn að mennta sig, eignast börn og koma sér upp þaki yfir höfuðið er margt í vondri aðstöðu. Jaðaráhrif í skatt- kerfrnu og of þung endurgreiðslu- byrði námslána eru mál sem brenna á ungu fólki Við þurfúm fulltrúa á Alþingi, að rödd nýrrar kynslóðar heyrist. Ég skora á fólk að kjósa í prófkjöri samfylkingar- innar og kjósa menn á borð við Vil- hjálm H. Vilhjálmsson, þrautreynd- an úr stúdentapólitíkinni og myndi reynast öflugur baráttumaður fyrir málstað okkar. Enn ein stöðin best í fréttunum Guðjón hringdi: Ég vil þakka Spaugstofumönnum fyrir að breyta um takt og tón í þátt- um sínum á laugardögum. Þeir í Enn einni stöðinni hafa stórbatnað við að hætta öllum tilraunum til að búa tO leikrit eða staðbundna sviðs- mynd eins og t.d. þessa frá einhverju dreifbýlisþorpinu. Það var hundfúlt. En núna þegar þeir taka einungis fyrir og skopgera fréttir síðustu viku eða kannski eitthvað fyrr eru þeir frábærir. Síðustu tveir laugardagar voru góðir að þessu leyti. Þetta þekkjum við og viljum hafa það svona. Áffam á sömu braut. Viljum við í NATO-herinn? Eysteinn skrifar: Við erum skrýtnir, íslendingar. Engan her, segjum við, og viljum ekki af honum vita. í hinu orðinu segja landsmenn: það á að taka þessa andskota í Serbíu i gegn. Því beitir NATO ekki hernum, t.d. með loft- árásum? Allir sem þekkja til hemað- ar vita að loftárásir á Júgóslavíu eru örþrifaráð og með þeim væri ekki tryggt að ná árangri. Aðeins land- herfylki eru þess umkomin að taka á móti Serbunum. En viljum við ís- lendingar leggja tO mannskap? Ég veit aðeins um tvær islenskar konur sem eru á átakasvæðunum í Júgóslavíu við störf. En kannski breytist viðhorfið þegar Evrópa er að veði. Markaðsmaður ársins Erla Sigurðardóttir hringdi: Búið er að tOnefna enn einn „árs“-manninn. Nú var það banka- maður sem var tilnefndur af íslands hálfu tO verðlaunanna markaös- maður ársins á Norðurlöndum. Aö- spurður um málið kom fram hjá honum að þetta væri nú að veru- legu leyti fólkinu í bankanum að þakka, starfsfókinu öUu. DrengOega mælt. En þvi benti hann ekki „ímarkinu" á þetta áður, svo að bankinn væri þá bara valinn sem markaðsstofnun ársins, en ekki per- sónan?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.