Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 7 sandkorn Fréttir Davíð í stuði Sjálfstæðismenn sem hafa verið viðloðandi Vöku, félag lýðræðis- sinnaðra stúdenta í Háskólanum, héldu nýlega hátíð mikla í Perlunni. Boðið var upp á mat og drykk auk- inheldur skemmti- atriði af ýmsu tagi. Ungliðunum ber saman um að topp- urinn á hátíðinni hafi verið ræða Davíðs Oddsson- ar forsætisráð- herra. Davíð mun hafa farið á kostum og sagt brandara af þvi tagi að þeim við- kvæmustu í hópi ungliðanna var brugðið og einhverjir munu hafa hóstað út úr sér mat ef marka má tíðindamenn á vettvangi. Davið varð meðal annars tíðrætt um óléttu Steingríms J. Sigfússonar sem ffam kom í jafnréttisauglýsing- um á síðasta ári. Þetta væri bara spuming um það hver hefði „komið aftan að Skallagrími“ sagði Davíð... Kirkjujarða leitað Kraftaverkamaðurinn Kári Stefánsson , forstjóri og aðaleig- andi íslenskrar erfðagreiningar, vann stórsigur þeg- ar hann kom gagna- grunnsfrumvarp- inu í gegnum Al- þingi með handafli. Nú er óróleiki meðal lækna vegna þess að Kári seilist til áhrifa í Gagnalind hf. sem stokkar saman upplýsingar um sjúklinga og sendir til landlæknis. Gámngar í hópi lækna segja að nú sé Kári búinn að ná undir sig öllu lífsmarki í landinu og vænum hluta þeirra látnu. Hann sé því á útopnuðu að sölsa undir sig gamlar kirkjujcU'ðir sem hafl að geyma spennandi mannabein frá liðnum öldum ... Brúðkaupi frestað Kaþólska signingin milli Stein- grims St. Th. Sigurðssonar list- málara og metsöluhöfundar Lausn- arsteins og danskr- ar blaðakonu á Ekstrablaðinu fer fram á Vestfjörð- um í sumar en varð ekki um ára- mótin svo sem ætlað var. „Ég bað hennar, og hún sagði já,“ sagði Steingrímur á dögun- um. Listmálarinn hefur farið þrisvar sinnum til Kaupmanna- hafhar frá því um jól á fúnd vænt- anlegrar brúðar og er því orðinn nokkuð títtfleygur íslendingur. Ekki er vitað hvað tefúr brúðkaup- ið en ofarlega er í umræðunni að brúðurin er af umræddum þjóð- flokki gömlu nýlendukúgaranna... Dálæti Dálæti Vestmannaeyinga á þing- manni sínum, Áma Johnsen, er takmarkalitið. Á baksíðu Eyjablaðs- ins Frétta sem út kom 14. janúar segir í yflrfyrirsögn: Ámi duglegur á þingi. Fréttin fjall- ar um það hversu duglegur hann hefúr verið að undanfomu við að draga björg í bú fyrir Vest- mannaeyjar. Ekki er minnst á fjarvistir Áma úr þingsölum en þingmaðurinn er kunnur af því að fá aðra tO að greiða fyrir sig atkvæði. Gárnng- amir segja að þessi taumlausa aðdá- un Eyjamanna á Áma eigi ekkert skylt við lofgjörðina um Kini Jong fl í Norður-Kóreu. Munurinn sé sá að í Kóreu era menn píndir til að dásama leiðtogann en í Eyjum gera þeir það af fúsum vilja... Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkom @ff. is Kjartan Jóhannsson, framkvæmdastjóri EFTA, á fundi í Ósló: Skammar Norðmenn fýrir Evrópuhræðslu DV; Ósló: „Neitunarvaldið er eins og kjarnavopn; það er til en á ekki að nota,” sagði Kjartan Jóhannsson, framkvæmdastjóri EFTA, í skýrum skilaboðum til Norðmanna um að halda sig við gerða samninga við Evrópusambandið. Kjartan var á morgunverðarfundi í Ósló í gær en nú um áramótin tóku Norðmenn við formennsku í EFTA. Rikisstjóm norsku miðflokk- anna hefur mikinn hug á að sleppa undan ýmsum ákvæðum samnings- ins um Evrópska efnahagssvæðið milli Evrópusambandsins og EFTA- landanna íslands, Noregs og Liechtenstein. Norðmenn hafa gert því skóna að nota megi neitunarvaldið sem gert er ráð fyrir í samningum í þessu skyni. Knut Vollebæk utanríkisráð- Eldur í trillu á Rifi DV, Vesturlandi: Síðastliðinn mánudag kom upp eldur í trillunni Bjössa SH sem lá við bryggju í Rifi en kviknað hafði í út frá kabyssu. Eldurinn sást það snemma að hægt var að ráða niö- urlögum hans áður en umtalsverð- ar skemmdir hlutust af. Slökkvi- liðið í Ólafsvík var kallað út og liðu aðeins tíu mínútur þar til brunaverðirnir voru komnir á staðinn. -DVÓ herra sagði á þingi á dögunum að „beitingu neitunarvaldsins bæri að athuga í einstökum málum eftir því sem hentaði þjóðarhagsmunum Norðmanna best.” Það voru þessi orð sem Kjartan vék að og sagði Norðmönnum skýr- um orðum að beiting neitunarvalds- ins þýddi i reynd að einstökum hlut- um samningsins um efnahagssvæði væri sagt upp einhliða. Það væri óviðunandi. Norðmenn era einkum ósáttir við að þurfa að falla frá opinberum stuðningi við atvinnulífið enda hafa þeir siðustu ár t.d. átt í stöðugum deilum við Evrópusambandið vegna ríkisstyrktra undirboða á laxi. Þá nýtur sjávarútvegurinn beinna og óbeinna ríkisstyrkja. Flokkarnir sem standa að núver- andi ríkisstjóm í Noregi eru allir meira eða minna á móti samstarfi við Evrópusambandið, enda voru það þeir sem börðust harðast gegn inngöngu Noregs í Evrópusamband- ið. Nú kveinka stjórnarliðar sér undan að verða að hlíta ákvæðum gerðra samninga um Evrópska efna- hagssvæðið, landamæraeftirlit og Schengensamstarfið og leita allra ráða til að sleppa. -GK í vikunni var haldið promball í íþróttasal Menntaskólans við Sund. Ballið var haldið í samvinnu við samtökin „Kom- ið og dansið" sem eru samtök áhugamanna um samkvæmisdansa. Skemmtunin var algjörlega vímulaus og var aug- lýst sem forvarnarball. Hérna má sjá nokkur ungmenni í léttri sveiflu. DV-mynd Pjetur Borgarfjörður: Samningur um félagsþjónustu DV, Vesturlandi: Sveitarfélögin Borgarfjörður, Skorradalshreppur, Hvítársíðu- hreppur og Borgarbyggð hafa gert með sér samning sem felur í sér að íbúar allra sveitarfélaganna eiga jafnan rétt til þjónustu starfs- manna félagsmáladeildar Borgar- byggðar. íbúar þessara hreppa geta því snúið sér til hennar vegna barnaverndarmála, mál- efna aldraðra og fatlaðra og húsa- leigubóta. -DVÓ Strandamenn dýralæknislausir DV, Hólmavik: Héraðsráð Strandasýslu lýsti nýverið yflr áhyggjum vegna brotthvarfs dýralæknis úr hérað- inu. I bréfi til yflrdýralæknis ber það fram þá ósk að svo fljótt sem kostur er verði bætt úr því ófremdarástandi sem skapaðist um síðustu áramót þegar héraðs- dýralæknir til þriggja síðustu ára hvarf úr héraði og að ráðinn verði dýralæknir í hans stað. Ekki eru Strandamenn neitt fráhverfir því að dýralæknirinn sem fór, Laufey Haraldsdóttir, sinni þessu héraði eitthvað fram- vegis með nýju starfi hafi hún að- stæður og vilja til þess þar sem akstursleið hefur tæplega aukist til mikilla muna frá því hún sat á ísafirði. Laufey er nú í Hjaltadal í Skagafirði. -Guðfinnur PÍ//,.*lliOl‘Íllll ----------TILBOÐ — TakVana htlm 14 16” pizzuveisla aðeins 990 m/4 áleggsteg. 1 Þú kaupir eina pizzu og hvítlauksbrauð og færð aðra pizzu í kaupbæti 15 Helmtend fjðlskylduvelala 2x16” pizzur m/2 áleggsteg. 2I. gos og stór franskar í kaupbæti 2090 Md*an« helm 16 16” pizza m/2 áleggsteg. 2I. gos og mið franskar í kaupbæti 1390 17 16” pizza m/3 áleggsteg. og 12“ hvítlauksbrauð 1590 Tveir staðir Auaturveri HáatéitMtmt m AmarbakM artHUnia

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.