Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 32
J* •* * FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ Ólafur Örn Haraldsson alþingis- maður, t.v., og Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi eftir að úrslit í próf- kjöri Framsóknar í Reykjavík lágu fyrir. Fremst er Haukur, sonur Ólafs Arnar. DV-mynd Pjetur Finnur Ingólfsson: Eg fékk góða kosningu „Ég er mjög ánægður með niður- stöðuna og tel mig hafa fengið mjög góða kosningu. Ég fékk tæp 58% at- kvæða í fyrsta sæti sem þrír menn börðust um. Það verður að teljast gott,“ sagöi Finnur Ingólfsson, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra og vara- formaður Framsóknarflokksins, við DV í morgun. Finnur fékk 996 atkvæði í fyrsta sæti í prófkjöri Framsóknar í Reykjavík, en 1230 atkvæði alls. 1826 tóku þátt í prófkjörinu en 1745 atkvæði voru gild. Alfreð Þorsteins- son borgarfulltrúi, sem lenti í 5. sæti, segir Degi að fylgi Finns hljóti að valda honum vonbrigðum og veki spurningar um forystuhlut- verk hans í Reykjavík. Finnur vildi í morgun ekki tjá sig um þau um- mæli Alfreðs. Ólafur Öm Haraldsson fékk 1016 atkvæði í 1. og 2. sæti prófkjörsins. Jónína Bjartmarz hlaut 1078 at- kvæði í 3. sæti og Vigdis Hauksdótt- ir 1344 atkvæði í það fjórða. Á eftir Alfreð í 5. sæti kom Arnþrúður Karlsdóttir. -hlh Grundarfj örður: Helmingur allaballa til græningja Nýtt félag hefur verið stofnað við hlið Alþýðubandalagsfélags Grundar- fjarðar. Félagið nýja heitir Bæjar- málafélag G-listans og er tilkomið vegna stuðningsmanna græningja sem ekki vilja lengur vera kenndir við Alþýðubandalagið. Jafnframt hef- ur stærstur hluti félagsmanna sagt sig úr gamla félaginu. Ragnar Elbergsson, sveitarstjórnarmaður G-listans, er einn þeirra sem gengið hafa til liðs við Grænt framboð. Hann vill ekkert segja um það hversu margir fylgi hon- um en segist finna meðbyr. Björgvin Lárusson, formaður hins forna félags, segir að minnsta kosti helmingur hafi hætt í félaginu og sjálfur sé hann óráðinn. Kjördæmisráð Græns framboðs var stofnað á Vesturlandi í gærkvöldi. -rt Sceði, úrval og gott verð MERKILEGA MERKIVELIN brother PT-550 ný vél tengjanleg viö tölvu 8 leturgeröir, 8 stæröir, 15 leturútlit úrval strikamerkja 6 til 36 mm borðar prentar f 7 llnur Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport * * é * i * * * Veðrið á morgun: Slydda fyrir sunnan og austan Á morgun verður austan- og suðaustankaldi á landinu. Slydda verður með köflum sunnan- og austanlands en skýjað og úr- komulítið í öðrum landshlutum. Hiti verður nálægt frostmarki. Veörið í dag er á bls. 29. Javier Solana, framkvæmdastjóri NATO, sagði á níunda tímanum i morgun, eftir fund með Davíð Oddssyni forsæt- isráðherra og Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra, að næstu klukkustundir myndu hugsanlega ráða úrslitum í Kosovo-deilunni. Hann sagði að mikið yrði um fundahöld þar sem reynt yrði að finna lausn mála. Þá sagðist Solana vonast til þess að William Walker, yfirmaður eftirlitssveita ÖSE, fengi að starfa óhindrað í Kosovo. Á myndinni er Solana á milli þeirra Halldórs og Davíðs í Stjórnarráðinu. DV-mynd Teitur FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Helgarblað DV: Málverkafals- arar og Draum- ur fangans í helgarblaði DV á morgun er ítar- legt viðtal við Jónas Freydal, huldu- manninn í Kaupmannahöfn, sem stundað hefur viðskipti með íslenskar myndlistarperlur um árabil. Ungur maður lýsir reynslu sinni af sértrúarsöfnuði en honum var bannað að fara í bíó með vinunum og ekki mátti hann tala við afa sinn. íslenskir húðsjúkdómalæknar eru að opna stærstu húðlæknastöð á Norðurlöndum. Þeir hafa gert Fjölni Þorgeirssyni og Mel B. tilboð um að afmá tattoo af rasskinnum þeirra. Ámi Bjömsson læknir skrifar um fréttir erlendra fjölmiðla um gagna- grunninn og yfirkokkurinn á Litla- Hrauni gefur uppskrift að „Draumi fangans". -EIR ÞETTA VAR TÆP- AST fRAMSOKN HJA ALFREÐ! FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 Banaslys í snjóflóði í Laxárdal Stykkishólmur: Ótryggt at- vinnuástand - segir bæjarfulltrúi „Ástæðan kann að vera ótryggt at- vinnuástand og þá sérstaklega í kring- um rækjuna," segir Davíð Sveinsson, bæjarfulltrúi minni- hluta í Stykkis- hólmi, um það að yfir 50 hús em á söluskrá í bænum. Þama er um að ræða um 12,5 pró- Davíð Sveinsson. sent allra fasteigna í bænum. Davíð segir eðlilegt að á sölu séu 20 til 30 hús en þetta sé í hærri kantinum. „Þetta er ekki einn hópur fólks frekar en annar. Einhver óánægja er til staðar en ég held að fólk viti ekki hvað því býðst annars staðar. Einhverjir vilja kom- ast í hærri laun en bjóðast hér,“ segir Sveinn. Nánar á bls. 2 -rt Stórt snjóflóð féll á veginn í Lax- árdal, milli bæjanna Kasthvamms og Rauðhóla í Suður-Þingeyjar- sýslu, í gærkvöld og lést maður sem varð undir flóðinu. Talið er að flóðið hafl fallið einhvem tímann milli kl. 6 og 8 í gærkvöld en ekki er vitað nánar um hvenær það féll þar sem engar ferðir voru um veg- inn fyrr en kl. 8 um kvöldið. Það var ungur maður, sem átti leið um Laxárdal, sem varð þá var við flóð- ið. Leitaði hann á næsta bæ þegar hann sá að einhver hafði orðið undir því og var þar kallað eftir að- stoð. Björgunarsveitin í Aðaldal var kölluð út og var hún komin á svæðið skömmu síðar. Maðurinn var látinn þegar hún kom á stað- inn. Ekki er vitað nákvæmlega hversu öflugt snjóflóðið var en talið er að það hafi verið um 150-200 metra breitt og að sögn þeirra sem á svæðið komu var snjór mjög mikill. Dráttarvélin barst um himdrað metra niður að ánni neðan við veginn. Maðurinn sem lést er áttatíu ára gamall bóndi í Laxárdal. Talið er hann hafi ver- ið að troða leið að bæ sínum þegar flóðið féfl. Ekki er talið að aðra hafi sakað í flóðinu en vegurinn um Laxárdal er enn lokaður. Sýslu- maður í Þingeyjarsýslu sendi frá sér viðvörun í gær um snjóflóða- hættu. Skv. upplýsingum frá snjó- flóðavakt Veðurstofu íslands í morgun er ekki talin snjóflóða- hætta neins staðar á landinu en Veðurstofan itrekar að fólk fari alltaf með gát. -hb/gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.