Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Síða 5
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999
5
Fréttir
Titringur milli tannlækna og Tryggingastofnunar:
Eru að eyðileggja forvarnirnar
- segir Þórir Schiöth, formaður Tannlæknafélagsins
Kluður logmanna
ráðuneytisins
segir formaður Tannlæknafélags Islands
Lögfræðingar heilbrigðisyfirvalda klúðr-
uðu málinu en ekki tannlæknar telur Þórir
Schiöth, formaður Tannlæknafélagsins.
Hann segir að samningur tannlækna og
Tryggingastofnunar hafi runnið út 31. októ-
ber. Þá hafi lögmenn ekki varað sig á að
búið var að fella út uppsagnarákvæði.
„Þama urðu mistök lögfræðinga í heil-
brigðisráðuneyti. Þeir litu svo á að uppsagn-
arákvæði væru inni í samningnum, ekki
þyrfti að segja honum formlega upp,“ sagði
Þórir Schiöth. Hann segir að í einni af
nokkrum framlengingum samninga undan-
farinna ára, í hittifyrra, hafi uppsagnará-
kvæðið verið fellt niður.
„Það eina sem við gerðum á þessum
fundi, þegar allt fór í bál og brand á fóstu-
daginn, var að ítreka fyrri afstöðu um að
samningurinn hefði runnið út 31. október.
Vegna þess að Tryggingastofnun ákvað að
hætta að greiða reikninga á mánu-
daginn er stofnunin búin að við-
urkenna að við höfum rétt fyrir
okkur, það var búið að fella upp-
sagnarákvæði úr gildi. Það var
ekki tannlæknum að kenna að
reikningar voru ekki greiddir,
það var klúðri lögfræðinganna
að kenna,“ sagði Þórir Schiöth.
Hann stendur fast við það að
tannlæknar berjist gegn því
að Tryggingastofnun rústi
forvamastarf sem hefur leitt
til stórminnkandi tann-
skemmda hjá ungu fólki.
Þórir segir það líka út í
hött þegar reynt sé að telja
fólki trú um að ekki hafi orðið niður-
skurður á opinberu fé til forvarna. -JBP
—~—____ieiagi Is
J?™ »& Wð-
22gto*iiiina"
°*n°U*tvut*Líruss°fi tanni
íPgfesS5*
hmkkmAmu!*!' mh, U
„Mér finnst ófært hjá Tannlækna-
félagi íslands að hafna beiðni um
vikufrest frá langstærsta
viðskiptavini félags-
ins, sem er Trygg-
ingastofnun ríkisins.
Yfirlýsing formanns
samninganefndar
Tannlæknafélags sem
hljóðar einhvern veg-
inn svona: Ég bora, þú
borgar og eigðu þig svo!
Þetta bara gengur ekki,“
segir Guðmundur Lárus-
son tannlæknir, en hann
stendur utan samtaka
tannlækna. Hann telur að
aðeins lítill hluti stéttarinn-
ar standi að aðgerðum gegn
Tryggingastofnun.
-*OL
■*** to %
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem Guðmundur gagnrýnir
starfsbræður. Hann gerði það
einnig í tannlæknadeilu árið
1985. Frá því var sagt í frétt
DV á sínum tíma.
„Tannlæknar verða að fara að átta
sig á því að sjúklingarnir eru algjör
undirstaða undir rekstri hverrar
tannlæknastofu. Því hlýtur þeim að
bera, bæði sín vegna og sjúkling-
anna vegna að sjá til þess að endur-
greiðslur hjá Tryggingastofnun
stöðvist ekki bara vegna þess að þeir
eru í fýlu,“ sagði Guðmundur í gær.
Hann segir það ekki í fyrsta sinn
sem svona gerist, það gerðist líka
1985. „Og þetta gerist þegar réttu týp-
umar, eða réttara sagt vitlausu týp-
urnar, koma í stjórnina. Núna þarf
fólk að fara á milli staða og bera
saman verð, það er enginn ákveðinn
taxti í gangi. Ég var að frétta að ein-
hver tannlæknir væri búinn að
hækka verðið um 35% hjá sér. Þegar
svona árar i Tannlæknafélaginu, þá
set ég upp gamla skiltið mitt frá 1985
þannig að mínir viðskiptavinir viti
að þeirra endurgreiösla hefur ekkert
breyst og verðið ekkert hækkað.
Svona stríð og hurðaskellir flnnst
mér skelfílegt," sagði Guðmundur
Lárusson tannlæknir í Reykjavik.
-JBP
Deila Tannlæknafélags íslands og
Tryggingastofnunar rikisins snýst
ekki um peninga, ekki enn þá alla-
vega, að sögn Þóris Schiöth, for-
manns félagsins. „Það er ekki rétt
að deilan snúist um kaup og kjör
tannlækna. Engar kröfur um launa-
hækkanir hafa verið lagðar fram,“
sagði Þórir. Hann sagði að málið
snerist um reglugerð Trygginga-
stofnunar sem tannlæknar segja að
muni eyðileggja forvamastarf sem
hefur borið ríkulegan ávöxt.
Tannlæknar höföu frumkvæði að
því síðastliðið haust að Trygginga-
stofnun voru kynntar rannsóknar-
niðurstöður prófessors Sigfúsar
Þórs Elíassonar. Prófessorinn gerði
rannsókn sem leiddi í ljós að tíðni
tannskemmda meðal 12 ára skóla-
barna hér á landi hefur lækkað um
70% á einum áratug.
Þórir Schiöth sagði að fram hefði
komið hjá Sigfúsi Þór að þessi góði
árangur hefði náðst með því að
handstýra málum, peningar frá
hinu opinbera hefðu verið nýttir
þannig að þessar góðu breytingar
hafa orðið.
“En núna þegar svo góður árangur
blasir við þá segir Tryggingastoöiun
sem svo að nú þurfl ekki lengur að
Þórir Schiöth, formaöur Tannlækna-
félags íslands - leiki grunur á brot-
um tannlækna á það að fara til lög-
reglunnar.
borga þann póst. Það þykir okkur nú
nokkuð einkennilegt enda þurfum við
forvamir eins og áður. Fæði Islend-
inga hefur ekki breyst svo mjög á
þessum árum. Það þýðir að við erum
enn þá í sömu áhættu gagnvart tann-
skemdum og áður, þótt þessum ár-
angri hafl verið náð. Við sjáum fram
á að þessum árangri verði spillt. Það
var ástæðan fyrir því að við ítrekuð-
um fyrri afstöðu okkar á þessum
samningafundi að samningar væm
þar með úr gildi,“ sagði Þórir.
En það er fleira sem spilar inn í.
Þórir segir að niðurskurðurinn bitni
helst á þeim sem sist skyldi, bam-
mörgum fjölskyldum, öldruðum, vist-
mönnum stofhana, þroskahömluðum
og börnum með alvarlega fæðing-
argalla.
“Reglugerð frá þvi rétt um jólin
1996 skerti endurgreiðsluhlutfall hjá
öldruðum, setti þak við 20 þúsund
krónur á ári hjá þroskaheftum, sem
var reyndar aukið í 30 þúsund í haust.
Um frávik þarf að sækja sérstaklega,"
sagði Þórir. Hann segir ljóst að Trygg-
ingastofnun treysti ekki tannlæknum
en styðjist við órökstuddar fullyrðing-
ar undanfarin tvö ár. Hafi stofnunin
einhver gögn sem sanni sekt tann-
lækna beri henni að leita til Ríkislög-
reglunnar og óska eftir rannsókn.
-JBP
Tannlæknar eiga ekki aö
stjórna almannatryggingum
- segir Reynir Jónsson yfirtryggingatannlæknir
Guðmundur Lárusson er utan Tannlæknafélagsins og stofnaði sitt eigið fé-
lag, Aðaltannlæknafélagið, sem er eins manns félag. Guðmundur gagnrýnir
gerðir starfsbræðra sinna. DV-mynd Hilmar Þór
Guðmundur Lárusson tannlæknir:
Ég bora, þú borgar,
„Núna er þetta orðið Samkeppnis-
stofnunarmál, fólk verður að kanna
vel hvað það er að fara út í. Það þarf
að bera saman verðlag tannlækn-
anna. Okkar þátttaka er fost og það
er ekki víst að hún dugi í þau 50 til
75 prósent sem við eigum að greiða
heldur verði hún kannski 50% af
gjaldskrá ráðherra en svo aðeins
50% af því sem tannlæknirinn setur
upp,“ sagði Reynir Jónsson, yflr-
tannlæknir Tryggingastofnunar rík-
isins, í gær. Reynir segir að vitað sé
að tannlæknar hafi verið að hækka
gjaldskrár sínar áður en samning-
urinn rann út.
Reynir Jónsson
yfirtryggingatannlæknir
- fólk þarf að passa sig.
Reynir hafnar því alfarið að
stofnunin sé að tefla í tvísýnu ár-
angri sem náðst hefur í forvörnum.
í rauninni skilji enginn við hvað
tannlæknar eigi I því efni.
„Það er ekki hlutverk Tann-
læknafélagsins að stjórna almanna-
tryggingum, það gerir ráðherra,“
sagði Reynir í gær.
Reynir segir að samningar hafi
ekki náðst við nýja stjóm Tann-
læknafélagsins - komið hafi verið
að lokapunktinum þegar gerð var
hallarbylting í félaginu síðastliðið
haust. Samningar hafl ekki tekist
við nýju stjórnina. Því hafl ráð-
herra geflð út gjaldskrá svo hægt
verði að greiða reikninga áfram.
Um framhaldið sagði Reynir allt
óljóst. -JBP