Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999
Neytendur
Könnun á þorrabökkum og súrmat í fötum:
Þorrabakkar við flestra hæfi
Væntanlega hafa margir beöið
með óþreyju eftir að smakka á súr-
matnum og öðrum þjóðlegum rétt-
um sem tilheyra þorranum.
Sumir hafa þó væntanlega tekið
forskot á sæluna því alls kyns
þorramatur hefur verið á boðstól-
um í mörgum verslunum alla vik-
una.
Neytendasíðan fór á stúfana og
kannaði innihald, úrval og verð á
tilbúnum þorrabökkum og súrmat
í fötum í átta stöðum á höfuðborg-
arsvæðinu. Þeir eru: Bónus, 10-11,
Fjarðarkaup, Nettó, Hagkaup, Ný-
kaup, Nóatún og Múlakaffi.
Auk tilbúnu bakkana seija sum-
ar verslananna einnig alls kyns
þorramat í lausri vigt úr kjötborð-
um sínum.
Rétt er að taka fram að magn í
bökkunum er nokkuð mismuandi
og því verðið ekki algjörlega sam-
bærilegt á milli tegunda.
Einnig skal tekið fram að ekki
er lagt mat á gæði einstakra
bakka.
10-11
Fyrst lá leiðin í 10-11 þar sem
seldur er tilbúinn þorramatur frá
þremur fyrirtækjum. Fyrst er að
nefna 1 1/2 kg fötur með súrmat
frá Borgarnesi sem kosta 2248
krónur. í fötunum eru svínasulta,
sviðasulta, bringur, lundabaggar,
hrútspungar, blóömör, lifrarpylsa
og mysa.
10-11 selur einnig tvenns konar
þorrabakka frá Borgarnesi sem
kosta 1093 krónur kílóið og 1252
krónur kílóið. í ódýrari bakkanum
eru hrútspungar, bringur, sviða-
sulta og svinasulta en í dýrari
bakkanum er að auki hangikjöt.
Einnig er hægt að fá súrmats-
fötu frá SS sem vegur 1350 grömm
og kostar 1011 krónur eða 749
krónur kílóið. í fötunni eru bring-
ur, lundabaggar, hrútspungar,
blóðmör og lifrarpylsa.
Að lokum selur 10-11 þorra-
bakka frá KEA. Bakkarnir eru
misstórir og kostar sá minni sem
ætlaður er fyrir einn kostar 705
krónur en tveggja manna bakkinn,
þ.e. sá stærri, kostar 1274 krónur.
Innihald bakkanna er svipað. í
þeim er sviðasulta, hrútspungar,
bringukollar, lundabaggar, lamba-
kjöt, hangikjöt, saltkjöt, nýtt kjöt,
magáli, ný sviðasulta og kæstur
hákarl.
Fjarðarkaup
Þar næst lá leiðin í Fjarðarkaup.
Þar eru seldir tvær stærðir af
þorrabökkum frá Kjamafæði. Sá
minni, sem er ætlaður einum, veg-
ur 1/2 kg og kostar 669 krónur en
sá stærri, sem vegur 1 kg og er
Þorrabakkar
Margir hafa beðið lengi eftir að smakka á súrmatnum og öðrum þjóðlegum
réttum sem tengjast þorranum sem byrjar í dag.
Fjarðarkaup Kjarnafæði. 1/2 kg 669 kr.
KEA 4-500 g 705 kr.
10-11/Nóatún Borgarnes, 1 kg 1093 kr.
10-11/Nóatún Borgarnes, 1 kg 1252 kr.
Hagkaup Kjarnafæði, 1 kg 1329 kr.
Fjarðarkaup/Nettó Kjamafæði,l kg 1639 kr.
Múlakaffi Þorratrog 1590 kr.*
Súrmeti í fötum
.
Nýkaup Goðafata, 1200 g 998 kr.
■ í: . -v.
Fjarðarkaup SS-fata, 1350 g 1189 kr.
pMWIIÉ
Hagkaup SS-fata, 1350 g 1189 kr.
Nettó KEA-fata, 2 kg mmmmsmmaamsssmmsmamam 2299 kr.
Hagkaup selur bakkana frá
Kjarnafæði á 899 krónur og 1329
krónur. Auk þess selur Hagkaup
súrmetisfötuna frá SS á 1189 krón-
ur.
Bónus og Nóatún
Nóatún selur mikið af þorramat
í lausri vigt úr kjötborði sínu en
auk þess selur það þorrabakka frá
Borganesi og súrmetisfotuna frá
SS.
Borgarnesbakkarnir kosta 1093
krónur og 1252 krónur. Sá ódýrari
inniheldur hrútspunga, bringu,
svinasultu og sviðasultu en sá dýr-
ari inniheldur auk þessa hangi-
kjöt. Súrmetisfatan frá SS kostar
1189 krónur í Nóatúni.
Bónus selur síðan 1 kg Kjarna-
fæðisbakka á 1147 krónur og 1 kg
Bónusbakka á 679 krónur. í Bónus-
bakkanum er súr sviðasulta, blóð-
mör, lundabaggar, magáll, lifrar-
pylsa og hrútspungar.
Þorrabakkarnir innihalda
ýmsa þjóðlega rétti, s.s.
hrútspunga og magál, sem fáir
leggja sér til munns
dags daglega.
Nettó og Múlakaffi
í Nettó eru seldir 1/2 kg og 1 kg
Kjarnafæðisbakkar á 899 krónur
og 1639 krónur.
Auk þess eru seldar 2 kg fötur
frá KEA á 2299 krónur. í þeim eru
hrútspungar, lambabringur,
lundabaggar og sviðasulta.
Múlakaffi er þekkt fyrir þorra-
mat sinn og margir venja komur
sínar þangað á þorranum. Þar má
fá svokallaða hjónakassa sem eru
fyrir tvo á 1990 krónur og þorra-
trog fyrir fimm manns og fleiri á
1590 krónur á manninn. í hjóna-
kössunum eru súrir hrútspungar,
sviðasulta, lundabaggar, bringu-
kollar, blóðmör, lifrarpylsa, rófu-
stappa, hangikjöt, harðfiskur, síld,
hákarl, rúgbrauð, flatbrauð, smjör
og ítalskt salat. í trogunum er
sami súrmatur en auk þess er ný
sviðasulta, hangikjöt, harðfiskur,
hákarl, tvær tegundir af síldarsa-
lötum, rófustappa, ítalskt salat,
rúgbrauð, flatbrauð og smjör.
Það er því ljós að allir ættu að
geta fundið þjóðlegan mat við sitt
hæfi til að gæða sér á um helgina.
-GLM
Magnús Ingólfsson á
stjornmal.is
sendibfla
ætlaður tveimur, kostar 1639 krón-
ur.
Bakkarnir innihalda hangikjöt,
reykta bringukolla, saltkjöt, mag-
ál, hrossabjúgu, hákarl, harðfisk,
svínasultu, súra sviðasultu, súrar
bringur, súr eistu, súra lunda-
bagga, rúgbrauð, flatbrauð og kart-
öflusalat.
Fjarðarkaup selur einnig 1350 g
fötu með súrmat frá SS, eins og 10-
11, á 1189 krónur.
Nýkaup og Hagkaup
Nýkaup selur stóra og litla
þorrabakka frá Kjarnafæði eins og
Fjarðarkaup og kostar minni
bakkinn 899 krónur og sá stærri
1349 krónur.
Nýkaup selur einnig súrmats-
fötu frá Goða sem vegur um 1200 g
með lundaböggum, bringukollum,
blóðmör, lifrarpylsu, hrútspung-
um og sviðasultu á 998 krónur.
Tómatsalat með jalapenopipar
Þetta gimilega tómatsalat hentar
vel sem léttur hádegisverður eða
sem meðlæti með stærri máltíð.
Uppskrift
2-3 stórir tómatar
150 g pepperoni
lítið knippi af vorlauk
2 msk. saxaður niðursoðinn jala-
penopipar
ögn af grófu salti
2-3 msk. sólblómaolía
svartar ólífur
ný basilíkublöð
Aðferð
Skolið tómata og vorlauk. Skerið
tómata og pepperoni í sneiðar og
vorlaukinn í þunnar ræmur. Raðið
til skiptis pepperoni, grænmeti og
pipar
á djúpt fat eða beint á diska. Strá-
Þetta girnilega tómatsalat hentar vel sem léttur hádegisverður eða sem með-
læti með stærri máltíð.
ið ögn af salti ofan á réttinn og loks svartar ólifur og basilíkublöð
dreypið á hann ögn af olíu. Setjið ofan á. -GLM