Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Side 9
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999
9
Stuttar fréttir
Utlönd
Mannfall í Indónesíu
Að minnsta kosti 40 manns
hafa týnt lífl i átökum trúar-
hópa á eyjunni Ambon, sem er
rúma tvö þúsund kílómetra
austur af höfúðborginni
Jakarta.
Níðst á Bush
George Bush yngri, ríkisstjóri
i Texas og hugsanlegur forseta-
frambjóðandi Repúblikana-
flokksins í Bandaríkjunum,
varð fyrir fóst-
um skotum
tveggja sam-
tlokksmanna,
þeirra Steves
Forbes og
Lamars Alex-
anders, sem
báðir sækjast
eftir tibiefningu flokksins, í
gær. Forbes og Alexander hædd-
ust báðir að sviknum kosninga-
loforðum Bush eldri á forseta-
stóli.
Thulemál tekið upp
Hinn 1. mars næstkomandi
verður mál um áttatiu veiði-
manna frá Thule á Grænlandi
gegn danska ríkinu tekið upp að
nýju fyrir rétti í Kaupmanna-
höfn. Veiðimennimir krefjast
skaðabóta fyrir nauðungarflutn-
inga frá heimkynnum sínum á
sjötta áratugnum.
Verðfall á bréfum
Verð á bandarískum hluta-
bréfamarkaði lækkaði í gær
vegna áhyggna manna af efha-
hagskreppunni í Brasilíu.
Vilja vera í Angóla
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna hvatti einróma til þess í
gær að stofnunin hefði friðar-
gæsluliða áfram í Angóla. Kofi
Annan, aðalframkvæmdastjóri
SÞ, hefin- aftm- á móti mælt með
að þeir verði kallaðir heim.
Skýstrokkar í Arkansas
Fjórir létust og tugir slösuð-
ust þegar öflugir skýstrokkar
fóru yfir Arkansas, heimaríki
Clintons Bandaríkjaforseta, í
gærkvöld.
Vilja taka upp dollara
Argentínski seðlabankinn
leggur til að Bandaríkjadollar
verði tekinn upp sem gjaldmið-
ill í landinu svo koma megi í
veg fyrir ófremdarástand eins
og er í Brasilíu.
Enn drepið í Freetown
Uppreisnarmenn í Sierra Leo-
ne á flótta undan gæslusveitum
Vestur-Afríkuríkja halda áfram
að drepa óbreytta borgara í höf-
uðborginni Freetown.
Ráðherra lasinn
Aud-Inge Aure, dómsmálaráð-
herra Noregs, hefur verið lögð
inn á sjúkrahús vegna truflana
á blóðflæði til heilans.
Ekki bannað að pissa
Ríkisþingið í Norður-Dakóta
lagði ekki í að samþykkja lög
sem bönnuðu lötum ferðamönn-
um að pissa í vegkantinn.
Þung taska Albright
Madeileine Albright, utanrík-
isráðherra Bandarikjanna, held-
ur til Rúss-
lands á sunnu-
dag með
óvenjuþunga
skjalatösku.
Ráðherrann
verður með
bunka af skjöl-
um um af-
vopnunarmál, NATO, Kosovo,
írak, að ógleymdum uppskrifta-
bæklingum að bættum efnahag
Rússlands.
Kókaín tekið úti á sjó
Bandarískir löggæslumenn
hafa lagt hald á rúm fjögur þús-
und kíló af kókaíni um borð í
skipi úti á. Mexíkóflóa. Eitrið er
metið á um 13 milljarða króna á
götunni.
Salinas dæmdur
í 50 ára fangelsi
Raul Salinas de Gortari, bróðir
Carlos Salinas, fyrrverandi forseta
Mexíkós, var í gær dæmdur í 50 ára
fangelsi fyrir að hafa fyrirskipað
morð á einum leiðtoga Byltingar-
flokksins.
Dómarinn, Ricardo Ojeda
Borges, sagði að Salinas de Gortari
hefði ekki viðurkennt að hafa skipu-
lagt morðið. Ekki hefðu heldur
fúndist beinar sannanir sem hefðu
bundið hann við glæpinn. Hins veg-
ar hefður líkumar verið nægilega
sterkar til að fella hann.
Jose Francisco Ruiz Massieu, sem
var næstæðstur í Byltingarflokkn-
um, var myrtur árið 1994. Saksókn-
arar fúllyrtu að Raul Salinas de
Gortari hefði talið að Ruiz Massieu
ógnaði pólítísku valdi Salinasfjöl-
skyldunnar. Salinasbræðurnir voru
sjálfír í Byltingarflokknum. Hinn
dæmdi hefur alltaf haldið fram sak-
leysi sínu og sagt réttarhöldin vera
blóðhefnd gegn sér og bróður sín-
um. Carlos Salinas fór úr landi
strax eftir að bróðir hans var hand-
tekinn og býr nú í útlegð á írlandi.
Raul Salinas var handtekinn 1995,
skömmu eftir að Carlos Salinas lét
af forsetaembættinu.
Litið er á dóminn sem mikinn
sigur fyrir Emesto Zedillo, forseta
Mexíkós, sem þótti taka áhættu með
því að heimila handtöku Rauls Scd-
inas. Hann hraut þar með óskrifaða
reglu sem verndað hefur fyrrver-
andi forseta og ljölskyldur þeirra
gegn rannsóknum.
Ruiz Massieu var skotinn í háls-
inn þar sem hann sat í bíl sínum
fyrir utan hótel í Mexíkóborg.
Morðið var framið sama ár og for-
setaframbjóðandi Byltingarflokks-
Hinn dæmdi, Raul Saiinas. Hann er
bróðir fyrrverandi forseta Mexíkós,
Carlos Salinas. Símamynd Reuter
ins, Luis Donaldo Colosio, var myrt-
ur.
Saksóknarar fullyrtu að Raul Sal-
inas hefði fengið leigumorðingja
fyrir óbeina milligöngu þingmanns
Byltingarflokksins, Manuels Munoz
Rocha. Þingmaðurinn sást síðast
halda til heimilis Salinas og er nú
talinn látinn. Hinn myrti, Ruiz
Massieu, hafði eitt sinn verið giftur
systur Rauls Salinas.
Lögmenn Salinas segja að sak-
sóknarar hafl að mestu byggt mál
sitt á vitnisburði vitorðsmanns sem
sagt er að hafi fengið um 35 millón-
ir islenskra króna fyrir að bera
vitni.
Lögmennimir ætla að áfrýja
dómnum. Raul Salinas er í ramm-
girtu fangelsi utan við Mexíkóborg.
i fangelsinu sitja helstu glæpamenn
landsins.
Jóhannes Páll páfi er væntanlegur í heimsókn til Mexíkós í dag. Landsmenn hafa verið að búa sig undir heimsókn
páfans að undanförnu og í gær var verið að hnýta síðustu lausu endana. Heimsókn páfa til Mexíkós nú er hin fjórða
í röðinni. Búist er við miklurn mannfjölda á messur hans í höfuðborginni.
Sonur Rushdies
vandist lífláts-
hótununum
Sonur breska rithöfundarins
Salmans Rushdies sagði í gær að
móðir hans hefði hlíft honum að
mestu gegn öllum vandræðunum
sem sköpuðust af dauðadómi
írönsku klerkastjórnarinnar yflr
fóður hans.
„Það kom fyrir þegar maður svar-
aði í símann að viðmælandinn segð-
ist vita hvar maður byggi og að
maður yrði drepinn. En þegar á allt
er litið, varð þetta eins konar lifs-
stíll sem maður venst,“ sagði Zcifar
Rushdie í samtali við sjónvarps-
fréttastofu Reuters. Tilefnið var að
Frakkar afhentu Salman Rushdie í
gær æðstu viðurkenningu sína fyrir
bókmenntir. Athöfnin fór fram í
franska sendiráðinu í London.
Verjendur Clint-
ons eru búnir
Verjendur Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta luku málflutningi sín-
um fyrir ríkisrétti í öldungadeild-
inni í gær og sögðu að vísa ætti mál-
inu á hendur forsetanum frá þar
sem það stefndi stjórnarfarskerflnu
í voða. í dag heíjast yfirheyrslur yf-
ir saksóknurum fúlltrúadeildarinn-
ar sem krefjast þess að Clinton
verði vikið úr embætti fyrir emb-
ættisglöp í tengslum við Lewinsky-
málið.
Þekktur sænskur kaupsýslumaður:
Gripinn með sex
kíló af kókaíni
Þekktur sænskur kaupsýslmnaður
á sjötugsaldri var í vikunni handtek-
inn á flugvellinum í Sao Paulo í
Brasiliu með sex kíló af kókaíni límd
við sig. Kaupsýslumaðurinn var á
leið til London.
Lögreglunni á flugvellinum þótti
grunsamlegt hversu dúðaður maður-
inn var. Hann var í frakka og jakka
undir þrátt fyrir að mjög heitt væri í
veðri. Auk þess var hann áberandi
magamikill. I ljós kom að kaupsýslu-
maðurinn var talsvert grennri en
hann ieit út fyrir að vera.
Á níunda áratugnum var kaup-
sýslumaðurinn kóngur í heimabæ
sínum í Svíþjóð, að því er segir í
sænska blaðinu Aftonbladet. Hann
var vinur stjórnmálamanna og
bankastjóra. Hann átti fjölda fast-
eigna í Svíþjóð og erlendis og var
virtur maður. Oft var glatt á hjalla á
herragarði hans. Þegar besti vinur
hans, sem var stjórnmálamaður, átti
afmæli leigði kaupsýslumaðurinn
höll til að halda veisluna í. Kostnað-
urinn var hálf milljón íslenskra
króna.
En í upphafi þessa áratugar urðu
bankamenn tortryggnir og sögðu
upp lánunum. Kaupsýslumaðurinn
varð gjaldþrota. Þegar rannsókn
hófst á meintmn mútum og svindli
hvarf kaupsýslumaðurinn. Hann
fannst í Suður-Ameríku og sat þar i
gæsluvarðhaldi í næstum ár áður en
hann var framseldur til Svíþjóðar. í
Svíþjóð fékk hann langan fangelsis-
dóm. Hann var látinn laus í lok árs-
ins 1997.
Utsalan
stendur sem hæst
Laugavegur 11
s.551 6811
L