Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999
11
DV
Fréttir
Prófkjör framsóknarmanna á Noröurlandi eystra:
Jakobi Björnssyni refs-
aö vegna ÚA-málsins
- Valgerður og Daníel ótvíræðir sigurvegarar
DV, Akureyri:
Innan við fjórðungur þeirra sem
greiddu atkvæði í prófkjöri Fram-
sóknarflokksins á Norðurlandi eystra
kaus Jakob Bjömsson, fyrrum bæjar-
stjóra á Akureyri, í 1. sætið. Þetta er
enn athyglisverðara fyrir þær sakir
að rétt um helmingur allra þeirra sem
kusu í prófkjörinu greiddi atkvæði á
Akureyri, í heimabæ Jakobs.
Alls greiddu 2.497 atkvæði og hlaut
Jakob ekki nema 615 atkvæði i 1. sæti
þar sem Valgerður Sverrisdóttir, sem
keppti við Jakob um það sæti, hlaut
1.343 atkvæði og yfirburðakosningu. í
2. sætið fékk Jakob einungis 159 at-
kvæði, í 3. sætið 398 og i 4. sætið 672
atkvæði. Alls em þetta 1.844 atkvæði.
Það þýðir að 1.882 af þeim 2.249 sem
greiddu atkvæði höfnuðu Jakobi í 1.
sætið og 653 sem greiddu atkvæði
settu Jakob ekki einu sinni á blað
meðal fjögurra efstu.
Þaö fer ekki hjá því að menn leiti
ástæðu þessarar slöku útkomu bæjar-
stjórans fyrrverandi og kunna ástæð-
umar að vera fleiri en ein. Jakob kom
eins og „spútnik" inn í pólitíkina fyr-
ir norðan, kom nýr inn á lista Fram-
sóknarflokksins í bæjarstjómarkosn-
inguniun 1990 sem bæjarstjóraefhi
flokksins sem vann þá stórglæsilegan
sigur og fékk 5 bæjarfulltrúa kjöma af
11. Framsókn fór í
meirihluta með
einum bæjarfull-
trúa Alþýðuflokks
og Jakob settist í
stól bæjarstjóra.
Kjörtimabilið
gekk tiltölulega
stóráfallalaust fyr-
ir sig.
Refsað fyrir
ÚA-málið?
Eitt mál kom þó
upp á kjörtímabil-
inu sem kann að
hafa ráðið miklu
um framhaldið
fyrir Jakob.
Það var hið svo-
kallaða „ÚA-mál“
sem snerist um
hvort flytja ætti
afurðasölumál Út-
gerðarfélags Ak-
ureyringa frá
Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna til
íslenskra sjávarafúrða. Það var vilji
framsóknarmanna að svo yrði gert og
ÍS flytti um leið höfuðstöðvar sínar til
Akureyrar. Gísli Bragi Hjartarson,
bæjarfúlltrúi krata, var hins vegar á
öndverðri skoðun og frekar en láta
K V- V'" 1 K'' Æ
Daníel Árnason, framkvæmda- stjóri á Akureyri, fékk góða kosn- ingu í annað sætið. Jakob Björns- son, fyrrum bæj- arstjóri, fékk vægast sagt slaka kosningu hjá flokksfélög- um sínum.
Fréttaijós
Gylfi Krístjánsson
DV, Suðurnesjum:
Fjölmennt var á fundi um sameiningarmál í samkomuhúsinu í Garöinum.
DV-mynd Arnheiður
Garður:
Fundur um sameiningarmál
Forsendur þeirrar skýrslu, sem
nú liggur fyrir, voru að í síðustu
sveitarstjómarkosningum var leit-
að eftir áliti hreppsbúa urn hvort
fara ætti í hagkvæmnisathugun
um sameiningu við nágrannasveit-
arfélögin.
Mjög skiptar skoðanir vom með-
al fundarmanna um skýrsluna og
hvemig mætti túlka ýmis atriði
hennar. -AG
A fjölmennum borgarafundi í
samkomuhúsinu í Garðinum
nýlega var kynnt skýrsta VSÓ
ráðgafar um hugsanlega samein-
ingu við nágrannasveitarfélögin,
þ.e. Sandgerði eða Reykjanesbæ.
Það er mat VSÓ að vænlegast væri
fyrir Garðbúa að sameinast
Reykjanesbæ.
brjóta á meiri-
hlutasamstarfinu
og fara í minni-
hluta gaf Fram-
sókn eftir og SH
hélt afurðasölu
ÚA. Vitað var að
mikill ágreiningur
var um þetta mál
meðal framsókn-
armanna og vora
ekki allir ánægðir
með niðurstöðuna
sem Jakob réð öðr-
um fremm' innan
flokksins.
Fyrir bæjar-
stjómarkosning-
amar á síðasta ári
lentu framsóknar-
menn í miklu basli
með að koma sam-
an lista simnn.
Þeir höfnuðu Oddi
Halldórssyni, sitj-
andi bæjarfúll-
trúa, og stift var
róið að því innan
flokksins að koma Sigfríði Þorsteins-
dóttur bæjarfulltrúa úr öraggu sæti.
Útkoman varð eitt allsherjarslys hjá
flokknum sem endurspeglaði óeining-
una. Oddur fór í sérframboð og náði
kjöri í bæjarstjóm. Framsókn tapaði
tveimur bæjarfúlltrúum, bæjarstjóra-
stólnum og lenti í áhrifalausum
minnihluta.
Margir era á því að fyrir þetta hafi
Jakobi nú verið refsað: einungis örfá
flokksystkini hans á Akureyri hafi
stutt hann gegn Valgerði og framtíð
hans innan flokksins sé allt annað en
sterk. En þótt þetta kunni að hafa ver-
ið staðreyndin hlýtur fleira að hafa
komið til sem gerir útkomu Jakobs í
prófkjörinu eins veika og raun ber
vitni.
Kosningabandalag?
Daníel Ámason, framkvæmdastjóri
á Akureyri, og hans stuðningsfólk
vann gríðarlega vel á lokaspretti próf-
kjörsbaráttunnar. Það var á margra
vitorði að eins konar „kosninga-
bandalag" var i gangi á milli stuðn-
ingsmanna hans og Valgerðar sem
ætlaði ekki að setja Jakob ofar en í 3.
sætið, og helst í það fjórða. Niðm-stöð-
umar tala sínu máli. Jakob fékk ekki
nema 774 atkvæði samtals í 1. og 2.
sætið á meðan Daníel fékk tæplega
helmingi meira, eða 1.493 atkvæði, og
Valgerður 1.559 í 1. og 2. sætið. Jakon
sagði undir lok kosningabaráttunnar
að hann hefði heyrt af þessari „blokk“
Prófkjör Framsóknar-
flokksins á Norðurlandi
Eystra
1. sæti I Valgerður 1343
Jakob 615
Daníel 384
Elsa 72
1.-2. sæti Valgeröur 1559
Daníel 1493
Elsa 838
Jakob 774
1.-3. sæti Daníel 1952
Valgeröur 1869
iwwpHgnffi
Jakob 1172
1.-4. sæti Daníel 1952
Valgeröur 1869
Elsa 1701
| Jakob 13.72]
en hann „gæti ekkert sannað" eins og
hann orðaði það.
Jakob segist sjálfur hafa teflt djarft
með því að fara fram gegn Valgerði
sem er sitjandi þingmaður og formað-
ur þingflokks framsóknarmanna: Það
er öragglega hægt að taka undir það
og margir telja að hefði Jakob sýnt
„hógværð" og einungis sóst eftir 2.
sætinu hefði niðurstaða kjördæmis-
þings flokksins sennilega orðið sú að
handraðað hefði verið á listann og
Jakob væri þá þingmannsefni flokks-
ins i dag.
Niðurstaða prófkjörsins styrkir án
efa stöðu Valgerðar Sverrisdóttur
mjög innan flokksins þótt enn eigi eft-
ir að koma í ljós hvemig hún leiðir
lista flokksins í gegnum kosningamar
sjálfar í vor. Úrslitin era einnig stór-
sigur fyrir Daníel Ámason en fyrir
fram hafði verið reiknað með að Elsa
Friðfinnsdóttir myndi hafa hann í
baráttunni um 2. sætið. Daníel er
gamafl sveitarstjómarmaður og sveit-
arsljóri á Þórshöfn, hann skipaði 5.
sætið á lista flokksins í kjördæminu
fyrir alþingiskosningamar 1991 og
var varaþingmaður það kjörtímabil.
Síðan hafa opinber afskipti hans af
pólitík verið lítil. Á sama tima hefúr
Elsa Friðfmnsdóttir verið nokkuð öfl-
ug í flokksstarfinu á Akureyri og þótt
til alls líkleg. Úrslit prófkjörsins era
því vonbrigði fyrir hana eins og Jak-
ob Bjömsson en Valgerður og Daníel
hrósa sigri.
afslátir
af pizzum - taktu með ... eða snæddu á staðnum
Qpið 11-23.30 og til
01.00 um helgar
Engihjalla 8 Sími 554 6967
Gildir einungis í Kópavogi
Leið til betra lífs
Miðvikudaginn 3. febrúar mun aukablað um mat,
líkamsrækt og heilsu fylgja DV.
Meðal efnis verður:
Sundleikfimi, barnaleikfimi, heilsurækt
forstjóranna,leikfimi fyrir verðandi mæður, bætiefni,
uppskriftir, einkaþjálfun, fjölskyldan saman í líkamsrækt
o.fl.
Auglýsendum er bent á að hafa
samband við Selmu Rut Magnúsdóttur,
auglýsingadeild
DV í síma 550 5720
sem allra fyrst, en þó eigi síðar en
fimmtudaginn 28. janúar.
Auglýsendur athugið!
Síöasti skiladagur auglýsinga
er fimmtudaginn 28. janúar.