Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Qupperneq 19
T>V FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 19 kvikmyndir Fávitum boðið í kvöldverð Nú fer að síga á seinni hluta Kvikmynda- hátíðar í Reykjavík. Aðsókn hefur verið mjög góð og verða nokkrar kvikmyndanna sýndar áfram eftir að hátíðinni lýkur, meðal annars Velvet Goldmine og The Spanish Prisoner. Ein mynd er frumsýnd í kvöld, Le diner de cons í Regnboganum. Um er að ræða nýja franska gamanmynd sem notið hefur mikilla vinsælda í Frakklandi. Segir frá nokkrum ná- ungum sem alltaf snæða saman á miðviku- dagskvöldum. Sú kvöð fylgir þessum félags- skap að hver og einn þeirra verður að hafa I kvöld verð- ur franska kvikmyndin Le diner de cons frum- sýnd á Kvik- myndahátíð í Reykjavík. einn fávita með sér i kvöldverðinn og felst síðan skemmtunin i að heyra hugmyndir og áhugamál fávitanna og finnst gestgjöfunum þetta hin besta skemmtun. í lokin er svo val- inn Fáviti kvöldsins. -HK Karakter Feðraveldið skorað á hólm ★★★ Jacob Willem Katadreuffe (Fedja Van Huet) er tekinn til yfirheyrslu í upphafi myndarinnar en lögreglan grunar hann um morðið á hinum hataða kaupsýslumanni Dreverhaven (Jan Decleir). Jacob tekur að rekja ævi sína fyrir lögreglunni og um leið okkur áhorfendum. Slík frásagnarinnrömm- un er vandmeðfarin en gengur ágæt- lega upp að þessu sinni. Frásögn Jacobs hefst með ástj arfundum Dreverhavens og' Jobu Katadreuffe (Betty Schuur-I man) sem leiða til getnaðar hans sjálfs Þrátt fyrir ítrekuð bónorð Dreverhavens hafnar móðirin honum með öllu. Og ekki var það létt verk KvÍkíílVíldð fyrir Jobu að ala ein upp son # sinn snemma á öldinni og kom fi n M | það niður á samskiptum 811 §» i «'*■ mæðginanna. Er fram líða stundir talast þau minna og minna við og Jacob leitar á mið iilræmds fóður síns. Sá virðist hafna honum með öllu og gerir það soninn staðráðinn í að etja kappi við hann. Þrátt fyrir að fjölmargar aðrar persónur komi við sögu og margar hverjar áhuga- verðar snýst sagan um þessar þrjár persón- ur. Þær kastast öfganna á milli og virðast stundum fylltar kaldlyndu hatri og eldheitri ást á sömu stundu og gjörðir þeirra slæmar og góðar í senn. Það er ekki síst vegna þessa sem myndin hefur nokkra sérstöðu meðal epískra mynda þar sem skilin á milli góðs og ills eru jafnan ljós. Svarblár bjarmi litar myndina alla og gefur hennar einkar heil- steypt og heillandi útlit. Tökur eru einnig oft skemmtilega útfærð- ar, einkum á vinnustað Jacobs. Þá vinnur Karakter úr fjölmörgum öðr- um þemum samhliða örlagasögu íjölskyld- unnar sem aldrei varð. Þau beinast ekki síst að þeirri sögulegu samfélags- ólgu sem einkenndi tíma at- burðarásar myndarinnar. Barátta öreiganna við hand- hafa fjármagns og hvers kon- ar valds er í brennidepli og segja má að Jacob verði nokkurs konar tákn nýrra tíma þótt uppgangur hans sé dýru verði keyptur. Sú saga er vissulega allrar at- hygli verð. Leikstjóri: Mike van Diem. Kvikmyndataka: Rogier Stoffers. Aðalhlutverk: Fedja Van Huet, Jan Decleir, Betty Schuurman, Victor Löw og Tamar van den Dop. Hollensk, 1997. The Tango Lesson Potter í tangó ★** Sally Potter vakti verðskuldaða athygli með Orlando, athyglisverðri og eftirminni- legri mynd um ungan mann sem eldist ekki og breytir um kyn. Hún var full af at- hyglisverðum pæl- ingum og lagði einnig áherslu á sjónræna þáttinn í fáguðum, draum- kenndum senum. Hún fylgir þeirri mynd eftir með þessari afar per- sónulegu mynd, þar sem hún fjallar um ást sína á tangódansinum. Hún leikur í raun sjálfa sig, eins og reyndar flestir helstu leikararnir. Hún fær áhuga á tangó eftir að hún villist inn á tangósýningu hjá hinum argent- ínska Pablo, sem lætur tilleiðast að taka hana í tíma, þar sem hann er að vonast eft- ir kvikmyndahlutverki. Fljótlega breytist áhuginn í ástríðu og hún ferðast til heima- lands tangósins, Argentínu, þar sem hún lærir hjá tveimur tangómeisturum. Hún snýr síðan aftur þegar áhugi vaknar í Hollywood fyrir. handriti eftir hana. Samband hennar og Pablo þróast í ástar- samband, en það kemur að þvi að hún sættir sig ekki við það passífa hlutverk sem henni er ætlað, bæði í dansinum og í sambandinu. í myndinni er Sally Potter ekki síst að fást við þessi kynjahlutverk sem tangóinn túlkar, þar sem maðurinn er hinn sterki stjórnandi, en konan á að vera veik og eftir- gefanleg og fylgja manninum í einu og öllu. K v i k m y n d a GAGNRÝNI Hún snýr síðan blaðinu við með því að upp- fylla ósk Pablo um kvikmyndahlutverk og leikstýra honum í mynd um tangó. Pablo neyðist þá til að lúta stjórn hennar. í staðinn fyrir að hún fylgi honum, fylgir hann henni. Barátta kynjanna, valdabarátta í tangó, kvikmynda- gerð og lífinu sjálfu, en einnig til- finningar og ástríð- ur, eru viðfangsefni þessarar myndar, sem eins og Or- lando býður upp á athyglisverðar pæl- ingar í bland við sjónræna fágun. Myndin er tekin í svart-hvítu, utan ímyndaðra atriða úr kvikmynd Sally Potter, sem eru í lit. Gallinn er að myndin er of hæggeng, og stöðug tangóatriði verða leiðigjörn, sama hversu glæsileg þau eru. Kosturinn við hæg- gengar myndir er að þá gefst áhorfandanum timi til að hugleiða það sem myndin hefúr fram að færa, en ef of langt er gengið fer áhorfandinn fremur að bíða eftir að myndinni ljúki. Þessi mynd fellur a.m.k. hálfa leið ofan í þá gryfju. Hún er bæði flott og athyglisverð, en aðrir en tangó-aðdáendur verða að sýna nokkra þolinmæði. Leikstjórn og handrit: Sally Potter. Kvik- myndataka: Robby Muller. Klipping: Herve Schneid. Tónlist: Sally Potter. Leikarar: Sally Potter, Pablo Veron, Carolina Lotti og Gustavo Naveira. Pétur Jónasson Föstudaíur 22. janúar Regnboginn Kl. 4:45 The General (enskttal) Kl. 5 The Dinner Game (isl. texti) Kl. 7 The Dinner Game (ísl. texti) Kl. 7 Funny Games (enskurtexti) Kl. 9 The Dinner Game (ísl. texti) Kl. 9 Salaam Cinema (enskur texti) Kl. 11 The Dinner Game (ísl. texti) Kl. 11 Idioterne (enskur texti) Bíóborgin Kl. 4:40 Eve's Bayou (enskttal) Kl. 4.50 Butcher Boy (enskttal) Kl. 9 Eve's Bayou (enskt tal) Kl. 6:55 Butcher Boy (enskt tal) Kl. 11:10 Butcher Boy (enskt tal) Háskólabíó K1. 5 Welcome to the Dollhouse (ísl. texti) *KI. 5 Festen (ísl. texti) Kl. 5 Men with Guns (enskurtexti) Kl. 5 Four Days in September (danskur texti) Kl. 5 Spanish Prisoner (ísl. texti) Kl. 7 Festen (ísl. texti) Kl. 7 Welcome to the Dollhouse (ísl. texti) Kl. 7 Spanish Prisoner (ísl. texti) Kl. 9 Festen (ísl. texti) Kl. 9 Spanish Prisoner (ísl. texti) Kl. 11 Festen (isl. texti) Kl. 11 Men witli Guns (enskur texti) Kl. 11 Four Days in September (danskur texti) Kl. 11 Spanish Prisoner (ísl. texti) Laugarásbíó Kl. 9 Velvet Goldmine (ísl. texti) Stjörnubio Kl. 7 The Ugly (enskttal)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.