Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 28
FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999
Pólitískt skömmt-
unarkerfi
„Mér sýnist það vera að
koma fram sem við spáðum
þegar þetta var knúið í gegn,
að verið sé að
koma upp póli-
tísku skömmtun-
arkerfi þar sem
fólk þarf að vera
með betlistaf við
dyr bæjar-
stjóma til að fá
íbúð.‘
Jóhanna Sigurðardóttir al-
þingismaður um nýja fé-
lagslega íbúðalánakerfið, í
Degi.
Þjóðfélagsmein, ekki
unglingavandamál
„Við getum sagt með full-
um rétti að hér sé ekki um
unglingavandamál að ræða.
Hér er um þjóðfélagsmein að
ræða, en það erum við sjálf
sem með sofandahætti okkar
höfúm búið það til.“
Marjatta Isberg kennari, í
DV.
Sameign þjóðarinnar
„Rætt er um landið sem
sameign þjóðarinnar. Þessi
gjaldtaka skapar
vont fordæmi. Ég
spyr mig hve oft
ég muni þurfa að
taka upp veskið
á hringferð um
landið til þess
eins að skoða
eigin náttúruperlur."
Magnús Oddsson ferða-
málastjóri um hugmyndir
að gjaldtöku við Geysi, i
DV.
Brothætt paradís
„Ég tel að Island ráði yfir
miklum samkeppnismögu-
leikum. Ég veit hins vegar
vel, að þessi þjóð er miklu
brothættari paradís en landið
og sagan gefa tUefni tU að
ætla.“
Jim Rogers, viðskiptajöfur
og ævintýramaður, í Morg-
unblaðinu.
Brosað í bankanum
„Ég hef alveg verið ótrú-
lega rólegur yfir því þó hér
hafi skóflast upp
milljóna skuldir.
Ég er rólegur
i jafnvel þó ég hafi
ekki komið
neinu frá mér í
eitt ár, bara
myndað og
myndað en brosað í
bankanum.“
Örn Ingi Gíslason, myndlist-
armaður, í Degi.
Hévunibií siíf-
aðv6rí„
Bómmfff
Harpa Birgisdóttir hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta íslands:
Fyrir náttúruna
Harpa Birgisdóttir er 24 ára og hef-
ur lokið þremur og hálfu ári af fimm
í umhverfisverkfræði við Danmarks
Tekniske Universitet. í vikunni hlaut
hún Nýsköpunarverðlaun forseta ís-
lands fyrir verkefnið Fokgimi og
bindieiginleiki foksands.
„Þetta er starfsvettvangur sem
aukin þörf er fyr- -----------------
ir,“ segir Harpa Maðlir
um umhverfisverk- __________________
fræðina. Áður en
hún hélt til Danmerkur stundaði hún
nám á náttúrufræðibraut Flensborg-
arskólans í Hafnarfirði. „Umhverfis-
verkfræði er mjög breitt svið. Áður
en ég byrjaði í náminu fannst mér
heillandi að hafa möguleika á að
vinna líka úti í náttúrunni en ekki
bara skrifstofuvinnu." Þess má geta
að aðaláhugamál Hörpu er útivera og
íþróttir og hún reynir að vera eins
mikið úti í náttúrunni og hún getur.
Harpa vann hjá Línuhönnun i
fyrrasumar þar sem hún vann verk-
efnið sem hún fékk verðlaunin fyrir.
Verkefnið vann hún í samvinnu við
Landgræðslu ríkisins.
Tilgangur verkefnisins var að
prófa einfaldar aðferðir til þess að
bæta árangur við sáningu melfræs á
sandfokssvæði. „Sandurinn er svo
þurr og bindieiginleikar hans litlir
að þegar sáð er fýkur hann burt og
oft fræin og áburðurinn með. Árang-
ur sáningar er því oft ekki eins góð-
ur og maður hefði viljað. Verkefnið
gekk út á að prófa einfaldar aðferð-
ir til að auka
rakastig Harpa Birgisdóttir.
sandsins en í DV-mynd Pjetur
hann var
blandað efni sem heitir bentonite.
Því var hægt að binda sandinn betur
þannig að hann fauk ekki í burtu á
meðan fræin voru að spíra.“ Augljóst
er að betri árangri við sáningu er
hægt ná með þessari nýju aðferð.
„Þetta er hlutur sem ég haföi ekk-
ert lært um úti,“ segir Harpa um
----------------- verkefnið. „Ég
dassins kynnist náttúr-
” lega ekki um-
hverfismálum á
Islandi í Dan-
mörku. í
náminu hef
ég hins veg-
ar reynt að
komast í
kynni við
íslensk um-
hverfis-
vandamál og
tengja þau náminu. Eg gat nýtt mér
þekkinguna úr umhverfisverkfræð-
inni óbeint til að vinna þetta verk-
efni.“
Harpa segir að umhverfismál verði
sífellt meira áberandi á íslandi. „í
gær var til dæmis haldinn stofnfund-
ur fyrstu umhverfisverndarsamtak-
anna á íslandi. Ég get líka nefnt að
umhverfisráðuneytið í Danmörku er
mun eldra en það íslenska. Við höf-
um mikið getað komist hjá umhverf-
isvandamálum þar sem við búum á
svo stóru landsvæði miðað við Dani
en í Danmörku býr margt fólk á litlu
svæði.“
Harpa heldur til Danmerkur um
helgina þar sem danskur sambýlis-
maður hennar bíður. Hann stund-
ar líka nám í verk-
reynt
Alan James er heimsflakk-
ari sem sest hefur að á ís-
landi.
Stór og litrík
verk
Á neðri hæð Gerðubergs
er þessa dagana myndlistar-
sýning á verkum eftir Alan
James. Um er að ræða stór
og litrík verk sem flest eru
unnin á síðasta ári, en
einnig eru eldri verk til
sýnis. Verkin bera merki
höfundar sem hefur komið
víða við á lífsleiðinni.
Alan James fæddist í
Lundúnum 1963 og ólst þar
upp.Þegar hann var nítján
ára helltist ævintýraþráin
yfir hann og næstu ellefu ár
ferðaðist hann um Evrópu
og Suðaustur-Asíu þar sem
hann bjó og starfaði um
tíma. Ferðum hans lauk svo
Sýningar
hér á landi 1993 og hann hóf
myndlistarnám við Mynd-
listarskóla Akureyrar.
Hann hélt sína fyrstu einka-
sýningu 1995 og sýndi síðast
í Listaskálanum i Hvera-
gerði. Sýningin stendur til
31. janúar.
Myndgátan
Sveitalimur
EypoR—<—
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Nýtt verk eftir Áskel Másson verð-
ur flutt á tónleikunum í kvöld.
Myrkir músíkdagar:
Ævintýratónleikar
Á tónlistarnátíðinni Myrkir mús-
íkdagar verða tónleikar í Tjarnar-
biói í kvöld sem hafa yfirskriftina
Ævintýratónleikar. Verða flutt sex
verk og eru fjögur þeirra ný. Tón-
leikarnir hefjast á nýju verki fyrir
slagverk eftir Áskel Másson, önnur
ný verk eru Tölva, eftir Ríkharð H.
Friðriksson, Verk fyrir kontra-
bassablokkflautu og tónband eftir
Kjartan Ólafsson og Steinaspil eftir
Elias Davíðsson. Hin tvö verkin eru
4 bagatellur eftir Tapio Tuomela og
Gloriosa eftir Jónas Tómasson.
Flytjendur eru Camilla Söderberg,
Tónleikar
blokkflautur, Guðrún Óskarsdóttir,
sembaU, ÁskeU Másson, slagverk,
Ríkharður H. Friðriksson, tölva og
EUas Davíðsson, steinaspU. Tónleik-
arnir hefjast kl. 20.30.
Annað kvöld verða tónleikar á
Myrkum músíkdögum í Seltjarnar-
neskirkju kl. 20.30. Þar kemur fram
Blásarasveit Reykjavíkur og flytur
Köld sturta eftir Tryggva M. Bald-
vinsson, um er að ræða nýtt verk
sem er tvíflutt, Oretheyja eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson, Konsert fyrir
blásara og slagverk eftir Pál P. Páls-
son og Víkingasvar eftir Jón Leifs.
Verkin samdi hann 1962 og hefur
það aldrei verið flutt áður hér á
landi. Stjómandi er Kjartan Óskars-
son og einleikari Magnea Árnadótt-
ir.
Bridge
Naumur sigur vannst á liði
Tékka (16-14) á móti yngri spUara í
Hollandi á dögunum. Leikurinn við
Tékka var í þriðju umferð mótsins
og fór 32-28 í impum talið. Stærsta
sveiflan tU íslendinga var í þessu
spUi. Tékkarnir komust að því í
sögnum að veikleiki væri í spaða-
litnum og völdu fimm tígla sem
lokasamning á hendur NS. Sigur-
björn Haraldsson og Guðmundur
HaUdórsson voru fljótir að hnekkja
þeim samningi með því að taka tvo
fyrstu á lauflitinn og síðan stungu í
litnum. Frímann Stefánsson og PáU
Þórsson höfnuðu í betri samningi í
opnum sal:
♦ 6
«* 10
♦ KG8742
♦ DG1053
é K8743
«* KG65
♦ D
♦ ÁK9
♦ Á105
«* ÁD74
♦ Á105
♦ 874
♦ DG92
9832
♦ 963
♦ 62
Lokasamningurinn var 3 grönd
sem var mun gæfulegri til vinnings
eftir að austur
hafði sýnt
punktastyrk í
sögnum. ÚtspUið
var spaðadrottn-
ing og aðal-
vandamálið var
hvort 6 slagir
fengjust á tíg-
ullitinn. Legan
var hagstæð í
tíglinum og
hjartakóngurinn lá fyrir sviningu
eins og búast mátti við af sögnum.
Tékkarnir missstigu sig einnig Uli-
lega i vöminni og sagnhafi fékk 12
slagi í þessum samningi, 6 á tigiU, 4
á hjarta og 2 á spaða! íslendingar
græddu því 11 impa á spUinu.
ísak Öm Sigurðsson