Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1999, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
________jj§r
Fréttir
íhuga stofnun eignar-
haldsfélags á Vesturlandi
- meö þátttöku allra sveitarfélaga í Qórðungnum
DV, Vesturlandi:
Svo kann að fara að á næstu mán-
uðum verði stofnað eignarhaldsfélag
á Vesturlandi með þátttöku allra
sveitcirfélaga á Vesturlandi, almenn-
um fjárfestum og Byggðastofnun.
Bæjarráð Akraness samþykkti á
fundi fyrir skömmu að óska eftir
umsögn atvinnumálanefndar bæjar-
ins á umræddu máli. Á fund nefnd-
arinnar mætti Ólafur Sveinsson at-
vinnuráðgjafi.
Ólafur gerði grein fyrir aðdrag-
anda að stofnun eignarhaldsfélaga á
landsbyggðinni, en á fjárlögum er
gert ráð fyrir fjárframlögum til
Byggðastofnunnar til að standa að
stofnun eignarhaldsfélaga. Fyrir
liggur vilji af hálfu Byggðastofnun-
ar til að standa að stofnun félags á
Vesturlandi með þátttöku sveitarfé-
laga og almennra íjárfesta.
Gert er ráð fyrir hlutaíjárframlagi
að upphæð 100 milljónir, sem skiptist
þannig að sveitarfélög leggi fram 40
milljónir, Byggðastofnun 40 milljónir
og almennir fjárfestar 20 milljónir.
Byggðastofnun hefur sett það sem
skilyrði að framlög almennra fjár-
festa verði ekki minna hlutfall en
sem nemur 20% af heildarhlutafé
eignarhaldsfélagsins. Framlag
Akraness til slíks félags yrði um
14,7 milljónir króna ef öll sveitarfé-^
lög á Vesturlandi yrðu aðilar að
stofnun félagsins.
Samþykkt var að taka erindið til
afgreiðslu á næsta fundi atvinumála-
nefndar Akraneskaupstaðar. DVÓ
Frá handsali á sölu Snæfellsbæjar á skrifstofuhúsnæði bæjarins íólafsvík til dómsmálaráðuneytisins undir aðstöðu
sýslumanns oglögreglu á staðnum. DV-mynd Jón Eggertsson
Hólmaborg SU-11 tekin í gegn
DVi Eskifirði:
Átta tilboð frá Noregi, Danmörku,
Spáni og Póllandi bárust í vélaskipt-
in og fleiri endurbætur á stærsta
loðnuskipi landsmanna, Hólmaborg
SU-11 frá Eskifirði. Sem kunnugt er
hefur Hraðfrystihús Eskifjarðar hf.
ákveðið að kaupa nýja Wertsila
7.500 hestafla aðalvél í stað tveggja
1.600 hestafla Nohab Polar aðalvéla
sem fyrir eru í skipinu.
Að sögn Þorsteins Kristjánssonar
skipstjóra er ráðist í þessar breyt-
ingar til að gera skipinu mögulegt
að stunda kolmunnaveiðar með við-
unandi árangri en hingað til hefur
skort upp á nægjanlegt vélarafl ís-
lenskra skipa til þessa veiðiskapar.
Þorsteinn kvað stjómendur fyrir-
tækisins hafa tekið því tilboði sem
þeir álitu hagkvæmast og er það frá
danska fyrirtækinu Örskov Staal-
skipsværft a/s í Frederikshavn.
Áætlaður verktími er um þrír mán-
uðir og mun stefnt að því að verk-
framkvæmdir hefjist á tímabilinu
15. mars til 15. apríl.
Auk endurnýjunar á aðalvél
skipsins verður í leiðinni skipt um
skrúfu, skrúfuhring, stýri,
flottrollsvindur og tveimur göngum
komið fyrir á millidekki. Þá verður
kælirými skipsins aukið um 100%
frá því sem nú er og getur skipið því
komið með að landi um 2000 tonn af
hráefni.
Síðar á árinu verður skipt um að-
alvél í aflaskipinu Jóni Kjartans-
syni SU-111 og sett í hann 6.700 hest-
afla aðalvél af gerðinni Wertsila í
stað 2.880 hestafla Alpha Diesel að-
alvélar sem fyrir er.
Að þessum framkvæmdum lokn-
um ættu því skip Alla ríka að geta
náð vænum glefsum úr kolmunna-
stofninum með tilheyrandi verð-
mætasköpum og jákvæðum hliðará-
hrifum þjóðarbúinu til framdráttar.
Já, það er mikilvægt þjóðinni að
eiga duglega athafnamenn sem hafa
vit, þor og framsýni. -Regína
Frá Akranesi,
DV-mynd Daníel
Myndband um Akranes
DV, Akranesi:
Akraneskaupstaður hefur látið
gera 10 mínútna kynningarmynd-
band um bæinn og sá Myndbær um
gerð þess. Nauðsynlega hefur vant-
að efni á myndbandi sem lýsir
Akranesbæ, atvinnu- og mannlífi og
búsetu.
Slíkt efni þarf að vera til afhend-
ingar fyrir fræðslustofnanir og til
kynningar á bænum. Við opnun
Hvalfjarðarganga þótti tilvalið að
láta gera slíkt myndband. Þó ekki
hafi verið búist við miklum breyt-
ingum á bænum sjálfum í kjölfar
opnunar ganganna þótti rétt að
varðveita á myndbandi hvemig um-
horfs var í bænum á þessum tíma-
mótum. Síðast var gerð mynd um
Akranes árið 1974, á 1100 ára afmæli
íslandsbyggðar.
Þess má geta aðKvikmyndasafn ís-
lands hefur látið Akranesbæ í té
myndbönd (afrit) af öllum hreyfi-
myndum sem tengjast Akranesi og
eru til á safninu. Á næstu mánuðum
verður þetta safn skoðað til að sjá
hvort ástæða er til að gefa það út eða
hluta þess í einhverju formi. -DVÓ
Lögreglan í Ólafsvík:
Flytur í stærra
húsnæði
DV, Snæfellsbæ:
Fimmtudaginn 28. janúar skrif-
uðu Þorsteinn Pálsson, dóms- og
kirkjumálaráðherra, og Kristinn
Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ,
undirsamning um kaup dómsmála-
ráðuneytisins á efri hæð Ólafsbraut-
ar 34 í Ólafsvík. Þar voru áður til
húsa nokkrir starfsmenn bæjarins
auk lögreglunnar. Við kaupin fær
lögreglan alla neðri hæð húseignar-
innar til sinna nota.
„Við tókum þá ákvörðun í desem-
ber að selja dómsmálaráðuneytinu
húsnæðið að Ólafsbraut 34 undir*'
starfsemi lögreglunnar í Snæfellsbæ
sem hefur búið við óviðunandi skil-
yrði,“ sagði Kristinn Jónsson bæjar-
stjóri. „í húsnæðinu var yfirmaður
verklegra framkvæmda, þjónustu-
fulltrúi, hálfur starfsmaður við bók-
hald hafnarinnar og hafnarstjóri.
Allir þessir starfsmenn, að undan-
skildum hafnarstjóra, munu flytja á
bæjarskrifstofumar á Hellissandi.
Hafnarstjórinn flyst í hafnarhúsið í
Ólafsvík. -DVÓ
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf.:
Heildaraflaverð-
mæti 950 milljónir
Árið 1998 var hagstætt útgerð
Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf.
Heildaraflaverðmæti 5 skipa fyrir-
tækisins nam liðlega 950 milljón-
um króna, samanborið við 984
milljónir króna árið áður sem var
hið besta í útgerðarsögu félagsins.
Hólmaborg SU-11
Úthaldsdagar 231
Afli 49.055 tonn
Aflaverðmæti kr. 367.918.561
Hásetahlutur kr. 6.211.534
Jón Kjartansson SU-111
Fyrstu 5 mánuði ársins var skipið
í Póllandi vegna endumýjunar.
Úthaldsdagar 146
Afli 16.096 tonn
Aflaverðmæti kr. 136.743.944
Hásetahlutur kr. 2.417.622
Guðrún Þorkelsdóttir SU-211
Úthaldsdagar 225
Aflaverðmæti kr. 204.566.672
Hásetahlutur kr. 4.037.497
Hólmatindur SU-220
Úthaldsdagar 278
Aflaverðmæti kr. 162.589.508
Hásetahlutm' kr. 4.007.017
Hólmanes SU-1
Úthaldsdagar 290
Aflaverðmæti kr. 78.293.700
Hásetahlutur kr. 3.025.707 -Regína
ELFA
P. LEMMENS
HITABLÁSARAR
Fyrir verslanir - iðnað - lagera
Fyrir heitt vatn.
Afköst 10 -150 kw
Öflugustu blásararnir á
markaðnum, búnir
miðflóttaaflviftum og
ryksíum.
Betri hitadreifing - minni
uppsetningarkostnaður,
lægri rekstrarkostnaður.
Hagstætt verð
UP Einar Farestveit & Co.hf.
Borgarlúni 28 B 562 2901 oí 562 2900
o Vs'enskra bl,'rei<W,
'é&*’
vill vekja athygli á að vegna mistaka í prentun er númer
innlánsstofnunar á gíróseðlum til innheimtu félagsgjalda rangt í
hluta upplags. Það er 070026> í stað 090026>.
Vitað er að þetta á allavega við um póstnúmer
108- 109- 170 og 200.
Okkur þykir þetta leitt og vonum að það valdi félagsmönnum okkar
sem minnstum óþægindum og bendum á að einfaldast er að leiðrétta
með því að árita neðsta hluta seðilsins að nýju við greiðslu.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
V.
/r