Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1999, Side 38
46
MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1999
Fréttir
DV
Heimir, lengst t.v., ásamt starfsmönnum Darra að störfum í fyrirtækinu.
DV-mynd gk
NICORETTE
innsogslyf
Þegar þú vilt hœtta að reykja
Febrúartilboð á „STARTPAKKA”
hjá eftirtöldum aðilum:
Apótek Austurbæjar
Árbæjar Apótek
Borgar Apótek
Breiðholts Apótek
Fjarðarkaups Apótek
Grafarvogs Apótek
Háaleitis Apótek
Holts Apótek
Hraunbergs Apótek
Ingólfs Apótek
Laugavegs Apótek
Nesapótek, Seltj.
Vesturbæjar Apótek
Háteigsvegi 1
Hraunbæ 102 b
Álftamýri 1
Mjódd
Hólshrauni 1 b
Hverafold 1-5
Háaleitisbraut 68
Glæsibæ
Hraunbergi 4
Kringlunni 8-12
Laugavegi 16
Eiðistorgi 17
Melhaga 20-22
Darri ehf. á Grenivík:
Reglulegur útflutningur
á harðfiski til Noregs
DV, Akureyri:
„Miðað við hvemig reksturinn
hefur gengið er ýmislegt sem bend-
ir til þess að við gætum tvöfaldað
framleiðsluna. Það má segja að við
höfum ekki haft undan og við höf-
um aldrei átt neinn fisk á lager,“
segir Heimir Ásgeirsson, annar eig-
andi harðfiskvinnslunnar Darra
ehf. á Grenivík. Fyrirtækið hefur
starfað í rúmlega tvö ár og selur
framleiðslu sína undir nafninu
Eyjabiti. Það er þannig til komið að
Sænes á Grenivík, sem er í eigu
Grýtubakkahrepps, keypti fyrir-
tækið Eyjavík í Vestmannaeyjum
sem framleiddi Eyjabita og Darri
leigði síðan hús og vélar af Sænesi
skömmu fyrir árslok 1996.
Eyjabitinn hafði unnið sér sess á
markaðnum og því var ákveðið að
framleiða undir því nafni áfram.
Það er óhætt að segja að vel hafl
gengið því Heimir segir að á síðasta
ári hafi framleiðsluaukningin verið
um 40% miðað við árið 1997. „Við
hugsuðum þetta sem rekstur sem
bæri 3-4 störf en miðað við full af-
köst í dag starfa hér 4-6 og fleiri af
og til. Við erum að vinna úr um 150
tonnum af fiski á ári en það skilar
okkur um 12-15 tonnum af harð-
fiski,“ segir Heimir.
Heimir segir að fyrir tilviljun
hafi norskur athafnamaður, sem
býr í Tromsö, komist í samband við
þá Darra-menn og hann hafl síðan
keypt reglulega af þeim harðfisk
sem hann sérpakki síðan og selji
m.a. á hótel og veitingahús undir
nafninu Torrfisk Hyse. Þessi aðili
hefur keypt reglulega 300-400 kg á
mánuði og hugsanlegt sé að þessi
viðskipti geti jafnvel tvöfaldast á
næstunni en Norðmaðurinn er
væntanlegur til viðræðna um það á
næstunni.
Þá segir Heimir að fyrirtækið
hafl mjög sterka markaðsstöðu inn-
anlands. Darri selji m.a. verulegt
magn á höfuðborgarsvæðinu þrátt
fyrir að litlu hafi verið kostað til
markaðssetningar og hann segir
innanlandssöluna hafa aukist um
60% síðan starfsemin hófst. Eina
vandamálið segir Heimir að sé hrá-
efnisöflunin en verð á hráefninu,
sem hefur að langmestu leyti verið
ýsa, hefur hækkað mjög mikið, um
40% á síðustu 8 mánuðum. „Við
höfum skiljanlega orðið að hækka
afurðir okkar í samræmi við þetta
en samt höfum við ekki undan.“
Ferillinn í harðfiskvinnslunni er
ekki flókinn en samt vandasamur.
Allur fiskur er flakaður og bein-
hreinsaður og síðan settur í lög en
þessi lögur er „hemaðarleyndar-
mál“ fyrirtækisins. Fiskinum er
síðan raðað á grindur og settur í
þurkklefa í 7-10 daga þar sem hann
er hafður við ákveðið hita- og raka-
stig.“Það er ekki sama hvemig
þetta er gert, Það sem skiptir hins
vegar langmestu máli er að vera
vandlátur varðandi hráefnið því
við framleiðum ekki úrvalsvöru ef
hráefnið er ekki fyrsta flokks," seg-
ir Heimir. -gk
Byggðabrúin á Norðurlandi vestra:
Sextíu nemendur
í meistaranámi
DV, Skagafírðr
Svokölluðu fjarkennsluverkefni
var nýlega hleypt af stokkunum á
Norðurlandi vestra með því að
koma upp fjarkennslubúnaði með
tengingu við „byggðabrúna“ á
stærstu þéttbýlisstöðunum. Að sögn
Harðar Ríkharðssonar, hjá Iðnþró-
unarfélagi Norðurlands vestra, stór-
eykur þetta menntunarmöguleika
íbúa á svæðinu. Tæki til að tengjast
byggðabrúnni em nú komin á Siglu-
fjörð, Hvammstanga, Skagaströnd
og þau koma í næstu viku í Fjöl-
brautaskólann á Sauðárkróki. Hing-
að til hefur aðstaðan hjá Byggða-
stofnun verið nýtt.
Langstærsta verkefnið í fjar-
kennslumálum nú er Meistaraskóli
iðnaðarmanna. Þar stunda 60
manns nám: 26 á Sauðárkróki, 10 á
Skagaströnd og Blönduósi, 15 á
Hvammstanga og 9 á Sigluflrði. Þá
stendur til að halda námskeið fyrir
starfsfólk sambýla fyrir fatlaða í
kjördæminu á „byggöabrúnni". Þá
gefst íbúum kjördæmisins kostur á
að nýta sér það kennsluefni sem nú
er í boði í fjarkennslukerfinu á
byggðabrúnni. Til að mynda hafa
tveir aðilar á Blönduósi stundað
nám í vetur í ferðamálafræðum við
landfræðiskor Háskóla íslands.
Fjarkennsluverkefnið er samstarf
DV, Fáskrúösfíröi:
Á fundi hjá slysavarnadeildinni
sex aðila og þar af þriggja skóla á
svæðinu: Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra, Farskóla Norðurlands
vestra, Hólaskóla, Sambands sveitar-
félaga á Norðurlandi vestra, Iðnþró-
unarfélags Norðurlands vestra og
Þróunarsviðs Byggðastofnunar. -ÞÁ
Hafdísi, sem haldinn var nýlega, var
meðal annars rætt um öflugt og mikið
starf ungliðadejldarinnar LOGA. Til-
laga kom fram um að gefa ungliða-
deildinni eitt hundrað þúsund krónur
til frjálsrar ráðstöfunar og var það
samþykkt. Hafdís vill með gjöfinni
þakka unglingunum öflugt félagsstarf.
Grétar Geirsson, formaður björgun-
arsveitarinnar GEISLA, tók við gjöf-
inni úr hendi Aðalheiðar Jónsdóttur á
fundi LOGA, en hann er umsjónar-
maður ungliðadeildarinnar. Félagar
LOGA hafa undanfarið sótt námskeið
i fjarskiptum undir leiðsögn Grétars.
-ÆK
Grétar Geirsson tekur við gjöfinni úr
hendi Aðalheiðar Jónsdóttur.
DV-mynd ÆK
Ný námskeið að hefjast í ungbarnasundi
16. febrúar, bæði byrjendahópar og framhaldshópar.
Athugiö, hámark 10 börn í hóp.
Upplýsingar og skráning hjá Sóleyju, íþrótta- og
ungbarnasundkennar2 í síma 555 1496 eða 898 1496.
Slysavamadeildin Hafdís:
Gaf 100.000 krónur