Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1999, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999
UPPBOÐ Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, sem hér segir, á eft- irfarandi eign: Engjasel 86, 2ja herb. íbúð á 4. hæð t.v., og bflskýli, merkt nr. 11, þingl. eig. Bima H. Kristinsdóttir, gerðarbeiðandi fbúða- lánasjóður, mánudaginn 22. febrúar 1999 kl. 13.30.
Grýtubakki 26, 80,4 fm 3ja herb. íbúð á 1. hæð m.m. ásamt geymslu í kjallara, merkt 060003, þingl eig. Linda Dís Rós- inkransdóttir, gerðarbeiðandi íbúðalána- sjóður, mánudaginn 22. febrúar 1999 kl. 15.00.
Víkurás 8, íbúð á 1. hæð, merkt 0103,' þingl. eig. Guðjón Emilsson, gerðarbeið- endur Ami Óttarr Skjaldarson, íbúða- lánasjóður og Samvinnulífeyrissjóðurinn, mánudaginn 22. febrúar 1999 kl. 13.30. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir:
Leirubakki 12,50% ehl. í 3ja herb. íbúð á 1. hæð, homíbúð, þingl. eig. Guðmundur Ingimarsson, gerðarbeiðendur Guðjón Ármann Jónsson og Landssími íslands hf., innheimta, mánudaginn 22. febrúar 1999 kl. 16.00.
Blöndubakki 8, 4ra herb. íbúð á 2. hæð t.h., þingl. eig. Hörður Ómar Guðjónsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóðurinn Fram- sýn, mánudaginn 22. febrúar 1999 kl. 15.30.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
UPPBOÐ Framhald uppboös á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Kjarrhólmi 38,4. hæð B, þingl. eig. Jónas Þröstur Guðmundsson, gerðarbeiðandi Byegingarsjóður ríkisins, þriðjudaginn 23. febrúar 1999 kl. 14.45.
Lindasmári 13,01-02, þingl. eig. Sigvaldi Elfar Eggertsson og Guðmunda Signý Þórisdóttir, gerðarbeiðendur Byggingar- sjóður verkamanna og sýslumaðurinn í Kópavogi, þriðjudagixm 23. febrúar 1999 kl. 15.30.
Efstaland v/Smiðjuveg 5, þingl. eig. Birg- ir Georgsson og María Hreinsdóttir, gerð- arbeiðendur Ibúðalánasjóður og Bæjar- sjóður Kópavogs, mánudaginn 22. febrú- ar 1999 kl. 13.15.
Nýbýlavegur 76, 0201, þingl. eig. Tjöm sf., gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og húsbréfadeild Húsnæðisstoín- unar ríkisins, þriðjudagiim 23. febrúar 1999 kl. 14.15.
Funalind 13, 06-02, þingl. kaupsamn- ingshafx Jóhann ísberg, gerðarbeiðandi húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar iókis- ins, mánudaginn 22. febrúar 1999 kl. 14.45.
SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI
Utlönd
Á fangaeyju
í Marmarahafi
Forsætisráðherra Tyrk-
lands, Biilent Ecevit, stað-
festi í gær að kúrdíski
PKK-leiðtoginn Abdullah
Öcalan væri nú á fanga-
eyjunni Imrali í Marm-
arahafi. Sagði tyrkneski
forsætisráðherrann að
fjórir eða fimm sérsveit-
armenn, flugmaður og
læknir hefðu tekið þátt í
aðgerðinni þegar Öcalan
var handtekinn í Naíróbí
í Kenýa á mánudaginn.
Ámyndbandi sem tyrk-
neska öryggislögreglan
sýndi í gær sást Öcalan
leiddur um horð í flugvél
í eigu tyrknesks kaup-
sýslumanns og bundinn
niður í stól. „Ég elska
Tyrkland og tyrknesku
þjóðina og ég vil þjóna
henni. Fái ég tækifæri til
þess vil ég þjóna henni.
Hlífið mér við pynting-
um,“ sagði Öcalan á
myndbandinu. Yfirheyrsl-
ur yfir Öcalan eru þegar
hafhar, að sögn Ecevits.
Einn af lögmönnum
Öcalans, Britta Böhler,
sem var meðal þeirra sem tyrknesk
yfirvöld vísuðu frá Tyrklandi í gær,
kveðst í viðtali við sádiarabíska
dagblaðið Al-Hayat vera viss um að
Öcalan verði pyntaður í fangelsinu.
Böhler segist hafa heimildir fyrir
Tyrkneskir sérsveitarmenn buðu Öcalan velkominn
heim er þeir tóku bindi frá augum hans um borö í vélinni
sem flutti hann til Tyrklands. Símamynd Reuter
því að bandaríska leyniþjónustan,
CIA, hafi átt þátt í handtöku Öcal-
ans. Hún fullyrðir ennfremur að
fyrir dyrum standi handtaka ijög-
urra aðstoðarmanna Öcalans. Að-
stoðarmennimir séu nú í gríska
sendiráðinu í Naíróbí en
verði brátt látnir í hendur
tyrkneskra sérsveita.
Mótmælin gegn handtöku
Öcalans héldu áfram víða
um heim í gær. í Berlín
skutu öryggisverðir við
sendiráð ísraels til bana þrjá
Kúrda og særðu allt að sext-
án þegar mótmælendur
reyndu að hertaka sendiráð-
ið. Kúrdamir voru að mót-
mæla meintri þátttöku
Mossads, ísraelsku leyni-
þjónustunnar, við handtöku
Öcalans.
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, hótaði í gær að
reka Kúrda úr landi hrytu
þeir lög. Um hálf milljón
Kúrda býr í Þýskalandi.
Landið er einnig heimili
tæpra tveggja milljóna
Tyrkja.
í gærkvöld var greint frá
því að tyrneskar hersveitir
hefðu ráðist inn í norður-
hluta íraks í leit að félögum
í kúrdísku samtökunum
PKK. Haft var eftir tals-
manni tyrkneska hersins að
um væri að ræða aðgerð
hryðjuverkamönnum sem
ekki yrði langvarandi. Sjónarvottar
sögðu um 3 til 4 þúsund hermenn á
brynvörðum bílum hafa ekið yfir
landamærin undanfama daga. PKK
hefur aðsetur í fjöllum N-íraks.
gegn
Hættu aö blekkja sjálfan þig!
Rétti dagurinn til aö byrja er í dag.
Þaö eru engar afsakanir teknar gildar.
Fáöu þér stimpilkort í næstu sundlaug, eöa hjá
samstarfsaðilum okkar, mættu tíu sinnum í febrúar og þú
færð bókina Betri línur eftir heilsuræktargúrúinn Covert
Bailey aö gjöf! Þú gætir einnig komist frítt til London eða
unnið einn af tugum glæsilegra vinninga!
Þessi ógurlegi víkingur heitir Njáll Sigmundsson (Nigel Simms). Hann tekur
þátt i Jólablótinu, mikilli víkingahátíð sem hefst t ensku borginni Jórvík í
dag. Þar munu hundruö áhugamanna um víkinga koma saman og berjast.
Bandaríkin auka þrýstinginn:
Beðið eftir Slobodan
Bandarísk stjórnvöld hafa enn
aukið þrýstinginn á að samið verði
um frið í Kosovo með því að senda
fimm tugi herflugvéla til viðbótar
til Evrópu. Vélamar eiga að vera til
taks reynist nauðsynlegt að grípa til
loftárása á stöðvar Serba.
Tólf dagar eru nú síðan samn-
ingaviðræður albanska meirihlut-
ans og Serba, undir forsæti tengsla-
hópsins svokallaða, hófust utan við
París. Hvorki hefur gengið né rekið
á fundunum til þessa. Allir bíða eft-
ir að Slobodan Milosevic
Júgóslavíuforseti taki af skarið.
Milosevic situr heima í Belgrad
þaðan sem hann hefur fylgst með
viöræðunum. Það er samdóma álit
allra að afstaða hans muni ráða úr-
slitum. Helsti skósveinn hans, Mil-
an Milutinovic Serbiuforseti, er
væntanlegur aftur til Frakklands í
dag. Deilendm- hafa frest til hádégis
á laugardag til að ná samkomulagi.