Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1999, Qupperneq 18
18
FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999
íþróttir
Breytingar á úrvals-
r deildarliðunum
Baldur Braga-
son frá Leiftri.
Jóhann G. Möller
frá KS.
Gísli Sveinsson frá
Þór.
Jóhann Sveinn
Sveinsson frá KFS.
Meistarar ÍBV
hafa misst tvo
fastamenn en
fengið einn
mjög sterkan.
Gætu bætt viö
útlendingi.
Steinar Guð-
geirsson í Fram.
Kristinn Lárusson
í Val.
Jens Paeslack til
Þýskalands.
Sinisa Zbiljic til
Júgóslavíu.
Friðrik Friðriks-
son, hættur.
Sigursteinn
Gislason frá ÍA.
Einar Örn Birgis-
son frá Lyn, Osló.
Útlit fyrir
áþekkan hóp
hjá KR en þó
er óvissa með
nokkra leik-
menn sem eru
í tengslum við
erlend lið.
Stefán Gíslason
i Strömsgodset.
Einar Þór Daniels-
son í OFI Krít, alla
vega til vors.
Bjami Þorsteins-
son og Sigurður
Öm Jónsson í við-
ræðum við Watford
og Indriði Sigurðs-
son við Liverpool.
Freyr Bjarna-
son frá Skallagr.
Baldur Aðalsteins-
son frá Völsungi.
Ingi S. Ellertsson
frá Bruna.
Ivar Benediktsson
frá Bruna.
Jón Þór Hauksson
frá Skallagrími.
Unnar Valgeirsson
frá Flora Tallinn.
Lykilmenn eru
farnir frá
Skagamönnum
sem þreifa fyrir
sér með liðs-
auka erlendis
frá. ÍA er
stærsta spurn-
ingarmerkið.
Steinar Adolfs-
son i Kongsvinger.
Dean Martin til
Englands. Sigur-
steinn Gislason í
KR. Slobodan
Milisic í KA. Zoran
Ivsic til Júgóslavíu.
Þórður Þórðarson
í Norrköping.
Zoran Ljubicic
írá Grindavík.
Gunnar Sveinsson
frá Reyni, S.
Hjálmar Jónsson
frá HettL
Jóhann R. Bene-
diktsson frá KVA.
Kristján Brooks
frá ÍR.
Ingvi Þór Hákon-
arson frá Reyni, S.
Keflvíkingar
hafa stækkað
sinn hóp en
styrkleikinn
virðist svipað-
ur og í fyrra.
Marko Tanasic til ^
Guðmundur
Steinarss. í KA.
Hlynur Birgis-
son frá Örebro.
Alexandre og
Sergio frá Brasilíu.
Ingi Hrannar
Heimisson frá Þór.
Max Peltonen frá
Finnlandi. Sámal
Joensen frá GÍ,
Götu. örlygur
Helgason frá Þór.
Enn á ný mikl-
ar breytingar
hjá Ólafsfirð-
ingum sem
aftur fara
ótroðnar slóðir
og sækja menn
til Brasilíu og
Finnlands.
Andri Marteins-
son í FH.
Baldur Bragason í
ÍBV. Hilmar Ingi
Rúnarsson í Þrótt,
R. John Nielsen í
Viborg. Sindri
Bjamason i Val.
Peter Ogaba. Rast-
islav Lazorik og
Steinar Ingimund-
arson fara allir.
Ágúst Gylfason
frá Brann.
Amgrtmur Amarson
frá Völsungi. Friðrik
Þorsteinsson frá Skalla-
grími. Höskuldur Þór-
hallsson frá KA. Ivar
Jónsson frá HK. Ómar
Sigtryggsson frá Stjöm-
unni. Rúnar Ágústsson
frá Fylki. Steinar Guö-
geirsson frá ÍBV. Sævar
Pétursson frá Breiða-
bliki. Valdimar Sig-
urðsson frá Skallagrími.
Framarar eru
stórhuga og
hafa stokkað
upp hjá sér
hópinn. Þeir
ætla að bæta
við sterkum
útlendingi.
Baldur Bjama-
son er hættur.
Ásgeir Halldórsson
í Víking. HaUdór
Bjömsson í Selfoss.
Hallsteinn Amar-
son i FH. Kristófer
Sigurgeirsson í Aris
(aila vega til vors).
Steindór Elisson í
Selfoss. Þorvaldur
Ásgeirsson í Þrótt
R. Þórir Áskelsson
í Dalvík.
Dragan Stojanovic
frá Júgóslaviu.
Ólafur Ingólfs-
son frá Keflavlk.
fGrindvíking-
ar sjá á bak
tveimur burð-
arásum en
ætla að fá tvo
sterka Júgó-
slava í stað-
inn.
Þórarinn Ólaftson
Milan Stefán
Jankovic, hættur.
Einar Páll Tóm-
asson frá Raufoss.
Sindrí Bjarnason
frá Leiftri.
Tómas Ingason frá
Stjömunni.
Kristinn Láms-
son frá ÍBV.
Minni hrær-
ingar hjá
Valsmönnum
en oft áður og
hópurinn lík-
lega sterkari.
Brynjar Sverris-
son i Þrótt, R.
Mark Ward til
Englands.
Richard Burgess
til Englands.
Ólafur Páll
Snorrason í Bolton.
Salih Heimir
Porca í Breiðablik.
Jóhann Ásgeir
Baldurs frá
Völsungi.
Salih Heimir
Porca frá Val.
Grétar Steindórs-
son frá Dalvík.
Blikar eru
með breiðari
hóp en þegar
þeir unnu 1.
deildina í
fyrra.
Ásgeir Halldórs-
son frá Fram.
Jakob Hallgeirs-
son frá Skallagrími.
Danlel Hjaltason
frá Leikni R.
Víkingar eru
með lítið
breytt lið en
eru að athuga
með útlend-
inga.
Marteinn Guð-
geirsson, hættur.
Hörður Theo-
dórsson, hættur.
I>V
DV kannar breytingar á úrvals-
deildarliöunum í knattspyrnu:
Sterkari
deild í ár
Keppnistímabil knattspyrnu-
manna nálgast óðum. Reykjavíkur-
mótið hefst fyrst utanhússmóta
þann 7. mars og deildabikarinn fer
af stað fjórum dögum síðar.
Að vanda hafa orðið talsverðar
breytingar á liðunum frá síðasta
tímabili, mismiklar þó. Hér til
vinstri má sjá hvaða leikmenn hafa
komið og farið frá hverju einstöku
liði í úrvalsdeild karla. Enn eiga ef-
laust einhverjir eftir að skipta um
félag áður en alvaran hefst í vor og
íslandsmótið fer í gang þann 19.
maí.
Mestu breytingamar em hjá
Fram og Leiftri. Framarar hafa far-
ið út í stórtækar breytingar eftir
hlutafélagsstofhunina og lið Ólafs-
firðinga hefur jafnan tekið miklum
breytingum á milli ára.
Fleiri útlendingar munu
bætast við
Úr þessu er þó ekki við því að bú-
ast að innlendir þungavigtarleik-
menn skipti um félag. „Markaður-
inn“ er nánast tæmdur að því leyti
en flest liðanna em þó enn að huga
að því að styrkja sig fyrir sumarið.
Þau em því fyrst og fremst að svip-
ast um erlendis og telja má öruggt
að nokkur hópur útlendinga eigi eft-
ir að bætast við á næstu vikum. DV
hefur heimildir fyrir því að ÍA,
Grindavík, Víkingur og Fram séu
að þreifa fyrir sér erlendis, ÍBV er
að skoða Argentínumann í Flórída
og fleiri eru með þessi mál á byrjun-
arstigi.
Fimm nýir útlendingar era þegar
komnir í stað 11 sem em horfnir á
braut síðan í haust. Leiftursmenn
hafa verið fljótastir til og era komn-
ir með fjóra nýja að utan.
Aðeins fjórir farnir utan
Fyrir síðasta tímabil hurfu 20
leikmenn úr úrvalsdeildinni til er-
lendra félaga og skildu víða eftir sig
stór skörð. Þessi þróun hefur ekki
haldið áfram þó mikill fjöldi leik-
manna hafi reynt fyrir sér erlendis
í vetur. Aðeins fjórir eru famir
utan, auk tveggja sem eru með
samning til vorsins. í staðinn eru
hins vegar komnir fimm íslenskir
leikmenn eftir mislanga dvöl hjá er-
lendum liðum, þar af þrír sem hafa
leikið með A-landsliðinu, Hlynur
Birgisson, Einar Páll Tómasson og
Ágúst Gylfason.
28 leikmenn úr neðri
deildum
Liðin í úrvalsdeildinni hafa í
auknum mæli leitað í neðri deild-
imar eftir leikmönnum. Þau hafa
samtals sótt 28 leikmenn þangað frá
því í haust, þar af 13 úr liðum i 1.
deildinni og öragglega eiga nokkrir
eftir að bætast í þann hóp fyrir vor-
ið.
Þegar á heildina er litið er því
greinilegt á öllu að úrvalsdeildin
verður mun sterkari í ár en í fyrra.
Aðeins Skagamenn virðast vera
með veikara lið en áður en verði
þeir heppnir með útlendinga getur
það snúist við. -VS
Tvær enskar til Eyja
- Haukar og Grindavík leita erlendis
Erlendum leikmönnum í úrvals-
deild kvenna í knattspymu fjölgar
væntanlega í sumar. í fyrra léku
þrjár erlendar stúlkur hér á landi,
allar með ÍBV, en útlit er fyrir að
fleiri félög sæki liðsstyrk út fyrir
landssteinana í ár.
ÍBV hefur samið við Karen Burke
frá Everton í Englandi um að koma
aftur. Hún spilaði aðeins tvo leiki í
fyrrasumar en þurfti þá að fara aft-
ur til Englands af fjölskylduástæð-
um. Að þessu sinni verður mark-
vörður með henni í för, Susan
Smith að nafni, og möguleiki er að
ÍBV fái þriðja leikmanninn af sömu
slóðum.
Nýliðar Grindavíkur stefna að
því að styrkja sinn leikmannahóp
með bandariskum stúlkum og
stefna að því að fá tvær til þrjár
þaðan. Þá munu Haukar vera að
kanna með að fá leikmenn í Lit-
háen. -VS
Tap gegn Columbus
- Esteban fær annan
Eyjamenn töpuðu, 0-2, fyrir
bandaríska knattspymuliðinu Col-
umbus Crew á Flórída í fyrrakvöld.
Áöur höföu þeir unnið Miami
Fusion, 2-0, eins og DVhefur sagt
frá.
í liði Columbus era margir
bandarískir landsliðsmenn, þar á
meðal markvörðurinn Júrgen
Sommer.
reynsluleik með ÍBV
Argentínski sóknarmaðurinn
Rodrigo Esteban lék með ÍBV allan
leikinn. Hann er góður skotmaður
en skortir hraða, að sögn Eyja-
manna. Esteban leikur með þeim
gegn Lyngby frá Danmörku annað
kvöld og eftir það verður tekin
ákvörðun um hvort honum verður
boðinn samningur.
-VS
Skíðagönguátakið:
Um 2400 manns
Alls hafa rúmlega 2400 manns tekið þátt
I átakinu skiðagöngukennslu fyrir al-
menning þennan vetm1. Um helgina var
ráðgert að vera með skíðahelgi í Reykja-
vík en henni hefur verið frestað og verð-
ur hún auglýst siðar.
Mjög góð þátttaka var seinni vikuna á
Austurlandi. í Oddsskarði síðastliðinn
laugardag mættu 160 manns i kennsluna.
Á næstunni verða svo Vestfirðir heimsótt-
ir og vonandi verður unnt að halda uppi
kennslu hér sunnanlands það sem eftir er
af febrúarmánuði og marsmánuðL
Fyrirhugaðri skíðakennslu í Laugardal
hefur verið frestað vegna snjóleysis. Nor-
rænugreinanefnd SKÍ hefur sett sér það
hafa tekið þátt
markmið að vera meira sunnanlands
heldur en verið hefur. Snjórinn er vissu-
lega ákveðiö vandamál en Skíðasam-
bandið vonast til að fá nægan snjó til að
geta boðið aimenningi, skólum og öðrum
hópum kennslu likt og annars staðar á
landinu.
Fólki er bent á að aðstaða til skíða-
gönguiðkana í borgarlandinu er víða
mjög góð. Heiðmörk er mjög fallegt og
skemmtilegt skíðagönguland og aðsókn
þar sérstaklega um helgar er mjög góð.
Einnig eru göngubrautir troðnar daglega
í Bláfjöilum. Svo má ekki gleyma Mikla-
túninu en þar má oft sjá fóik á göngu-
skíðum sér til heilsubótar. -GH