Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Page 11
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 11 DV Hollusta úr sveitinni: Afurðir án eiturefna Vönduð matvæli eru ein leiðin til betra lífs. Lifræn ræktun og eldi er nú hafin hjá allmörgum bændum á ís- landi, líklega 35-40. Árangurinn hefur verið með ágætum þau fáu ár sem til- raunin hefur staðið. Raunar fá færri en vilja lífrænar vörur sem koma á markað, sumar hverjar fást aðeins vissa tíma árs. Gunnar Gunnarsson hjá Vottunarstofunni Túni í Vík í Mýrdal segir það ljóst að bændur hafi sýnt að lífræn ræktun og eldi séu ekki aðeins möguleg á isiandi, heldur afar vænlegir kostir. Því trúðu fáir í upp- hafi að hægt væri að leggja af notkun á tilbúnum áburði og uppfylla ýmsar aðrar kröfur sem gerðar eru til líf- rænnar ræktunar. Neytendur eiga kost á ýmsum líf- rænt ræktuðum vörum í kjörbúðinni, þótt þær séu vissulega ekki áberandi í hillum og séu þar ekki nema stuttan tíma á hverju ári, flestar hverjar. Þessar vörur eru AB-mjólk, ófitu- sprengd nýmjólk, gulrætur, kartöflur og ýmsar aðrar tegundir grænmetis, hluta úr árinu. Lífrænt ræktað lamba- kjöt er aðeins hægt að fá hluta ársins enda er framleiðsla þess ekki mikil. Þá eru garðblóm og trjágræðlingar ræktaðir með lífrænum aðferðum. Neysla á lífrænt ræktuðum matvör- um er ekki kredda af neinu tagi. Það er dagsljóst áð í lífrænt ræktuðu grænmeti og kjöti eru engin þau eitur- efni sem fylgja vöru sem framleidd er með hjálp ýmissa efna sem hraða vaxtarferli gróðurs eða kjöts. Fólk finnur mun á vörunni, hún er allt öðruvísi, bæði í sér og á bragðið. Líf- rænt ræktuð vara er hins vegar dýr- ari en hin hefðbundna og ef til vill nokkur munaður að hafa slíka vöru á borðum. En neytendur hafa valið, þeir hafa tekið vörunum svo vel að bænd- ur hafa engan veginn annað eftir- spurn. Gerðar hafa verið athuganir á inni- haldi næringarefna. Samanburðurinn kemur reyndar ekki á óvart. Hann staðfestir að lífrænar afurðir hafa stóran vinning fram yfir hinar hefð- bundnu vörur. Vottunarstofan Tún er fyrirtæki skipað ýmsum sérfræðingum sem koma að öllum sviðum lífrænnar ræktunar, gróður- og beitarsérfræð- ingar, sérfræðingar í búfjárrækt, verkfræðingar, umhverfisfræðingar og líffræðingar. Stofan verður að fylgj- ast með öllu ferli afurðanna, frá því bóndinn ræktar túnið, og byggir upp frjósemi jarðvegarins, sem er undir- staða ræktunarinnar - þar til að af- urðin fer frá bónda til vinnslustöðvar, annaðhvort sem sláturafurð eða mjólkurvara. Votta þarf allan ferilinn, vinnsluna, pökkunina og dreifinguna. Án vottunar frá Túni verða vörur ekki seldar sem lífrænar á markaði hér. Viðurkenningarmerki fyrirtækis- ins er að finna á umbúðunum. -JBP Lífrænt ræktaðar gulrætur úr sveitinni, óvenju bústnar og sællegar að sjá. Réttur Gunn- laugur Slæm myndabrengl urðu í dálkinum Leið til betra lífs í gær þar sem rætt var við Gunn- laug Jónasson, formann Lands- sambands hjólreiðamanna, um ágæti þess að hjóla í stað þess að láta bílinn hafa fyrir hlutun- um. Mynd birtist af nafha hans, Gunnlaugi Briem leturfræð- ingi, sem okkur er reyndar tjáð að kunni heilmikið fyrir sér á reiöhjóli. Blaðið biðst afsökun- ar á mistökunum og birtir hér hina réttu mynd af Gunnlaugi Jónassyni. Gunnlaugur Jónasson á fleygi- ferð um Ingólfsstrætið á leið tii vinnustofu sinnar. Hann hjólaði jafnvel í 30 stiga frosti meðan hann bjó í Noregi. Kúnstin er að klæða sig nógu vel, og þá verður engum kalt á hjólinu. DV-mynd E.ÓI Fréttir Nótaskipið Júpiter, annað skip Skála.. Þórshöfn: Hraðfrystistööin eignast meirihluta i Skalum DV, Akureyri: Hraðfrystistöð Þórshafnar hefur keypt hluta Tanga hf. á Vopnafirði og Lárusar Grímssonar skipstjóra i út- gerðarfyrirtækinu Skálum. Um er að ræða 26% hlut og að þessum kaupum loknum á Hraðfrystistöð Þórshafnar 61,7% hlut í Skálum. Andstæð sjónar- mið stærstu hluthafa í Skálum að undanfórnu eru ástæða þessara við- skipta fyrst og fremst. Útgerðarfélagið Skálar var stofnað árið 1993 með kaupum á nótaskipinu Júpiter ÞH-61 og á félagið nú einnig nótaskipið Neptúnus ÞH-3361. Veiði- heimildir Skála eru verulegar og nema um 2.800 þorskígildum. Stærst- ur hluti veiðiheimildanna er í loðnu en félagið á þar um 3,5% af heildarút- hlutun. Nokkur blaðaskrif hafa orðið um samskipti Vopnfirðinga og Þórshafn- arbúa vegna málefna Skála og inn- byrðis viðskipti milii Hraðfrystistöðv- ar Þórshafnar og Skála, og segir í sameiginlegri fréttatilkynningu sem Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri á Vopnafirði skrifar undir að ómakleg umfjöllun hafi verið um Hraðfrysti- stöð Þórshafnar í flölmiðlum. Þar kemur einnig fram að þessi mál hafi verið rædd og að fullu útskýrð á aðal- fundi þann 7. desember sl. Skoðana- munur milli eignaraðila á Vopnafirði og Þórshöfn hafi verið uppi og verði þau atriði sem voru til umfjöllunar í blaðaskrifum að skoðast í því ljósi. Sameiginlega lýsa Jóhann A. Jóns- son, forstjóri Hraðfrystistöðvar Þórs- hafnar, og Þorsteinn Steinsson, sveit- arstjóri á Vopnafirði, því yfir að nei- kvæð umfjöllun hafi skaðað Skála og einstaka hluthafa félagsins og harma þeir að ágreiningsatriði hluthafa skuli hafa orðið opinber. Sérstaklega er tek- ið fram að Hraðfrystistöð Þórshafnar hafi alla tíð verið burðarás í starfsemi Skála og HÞ hafi séð um rekstur fé- lagsins allt frá stofnun þess með þeim hætti að fiárfesting hluthafa hafi reynst arðbær og rekstur þess gengið með ágætum. -gk Lagerútsala mikil verðlækkun 20-90%afsláttur Tm^>M Opiö föstudag frá kl. 12-19 laugardag kl. 10-17, og sunnudag kl. 13-17 Hoffell flnmula 36 l*i%xak<»ilnn ----------TILBOÐ — Takt*ana hcirn 14 16” pizzuveisla aðeins 990 m/4 áleggsteg. JÍ_ Þú kaupir eina pizzu og hvítlauksbrauö og færð aðra pizzu í kaupbæti 15 Hrtwend f|ðt»kyfduvel»fa 2x16” pizzur m/2 áleggsteg. 2I. gos og stór franskar í kaupbæti 2090 fáð’ana heim 16 16"pizzam/2áleggsteg. 2I. gos og mið franskar í kaupbæti 1390 11 16” pizza m/3 áleggsteg. og 12“ hvítlauksbrauð 1590 Tveir staðir Austurveri Amarbakki amíMmrn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.