Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1999, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1999, Blaðsíða 31
39 I ]DV LAUGARDAGUR 27. MARS 1999 %rðir Helsinki, höfuðborgin sem kom inn úr kuldanum: Tveggja heima borg Gengið á gamalli þjóðleið Ferðafélag íslands og Umhverfis- og útivistarfélag Hafnarfiarðar hafa staðið sameiginlega að kynningu á náttúru og sögu nágrennis Hafnar- fjarðar og á þessu ári verður lögð sér- stök áhersla á leiðina frá Hafnarfirði í Selvog; Selvogsgötu. Leiðin verður gengin í þremur áfóngum og verður fyrsti áfangi farinn á morgun, sunnu- daginn 28. mars. Selvogsgata er ein af þekktari þjóð- leiðum á Suðvesturlandi og var um aldir mikilvæg verslunarleið, sam- göngu- og verleið. Alls verður efnt til átján ferða í svokallaðri þjóðleiða- syrpu Ferðafélagsins á þessu ári. DV, Helsinki:___________________ Önnur hver skrúfa er dottin úr álkarminum umhverfis hurðina. Inni eru stólarnir haltir og næloná- klæðið á sófanum er rautt og slitið og brennt. Borðin eru spónlögð með tekki og rækilega merkt af glóð úr ótal sígarettum. Á veggjum eru ská- sett flúorljós, sem sennilega eiga að gefa staðnum heimsborgarabrag, og úr tékkneskum hi-fi glymskratta hljómar 20 ára gömul sovésk dægur- tónlist. Við vitum að við erum á réttum stað vegna þess að í glugganum er lítill miði límdur á rúðuna: Moskva. Og inni á barnum er óinnrömmuð mynd af Lenín og önnur innrömm- uð af eiganda staðarins, sýnilega drukknum. Það er kvikmyndaleik- stjórinn Aki Kaurismaki og það eina sem ekki passar hér er að þjón- ustan er vingjanleg. Eigandinn á að sögn að hafa gefið starfsfólki sínu skýr fyrirmæli um að sýna gestum fullkomna fyrirlitningu. Hann ætl- aði að endurskapa anda Sovétríkj- anna á litlum veitingastað í mið- borg Helsinki. Hallærisrómantík Finnar kunna að meta svona húmor. Moskva er ekki eini staður- inn í Helsinki sem gerir út á róman- tík um sovéskan hallærisstíl. Á Zetor, rétt við aðalgötu borgarinnar, geta gestimir snætt mat sinn af vél- arhlífum Zetor-dráttarvéla og á meðan er leikin tónlist úr smiðju The Leningrad cowboys og kórs Rauða hersins. Þetta þykir alveg drepfyndið og stíllinn stingur í stúf við glæsileika hönnunar og hátísku sem annars einkennir höfuðborg Finnlands. Finnum stóð í meira en 70 ár ógn af Sovétríkjunum og nú eftir fall stórveldisins hæðast þeir að smekk- leysi nágranna sinna. í þessu felst líka sjálfsháð. Finnum er vel ljóst að í mörg ár lögðu þeir til leiktjöld- in í allar kvikmyndir sem fjölluðu um Sovétríkin. Hollywood-leikstjór- ar fengu ekki að vinna í Sovétríkj- unum og þess vegna var Helsinki notuð sem bæði Moskva og Len- ingrad, nú Pétursborg. Helsinki er borg tveggja heima. Engel og Alvar Alto Helsinki minnir þó að sögn á eng- an hátt á Moskvu - en Pétursborg og Helsinki eru merkilega líkar. Eða kannski ekki merkilega því þýski byggingameistarinn Carl Ludvig Engel skipulagði báðar og Kínaklúbbur Unnar: í tólfta sinn til Kína Kínaklúbbur Unnar efnir til fróðleiks- og skemmtiferðar til Kína 7. tU 28. mai. Þetta er í tólfta sinn sem Unnur Guðjóns- dóttir fer tU Kína með íslenska ferðamenn. „Ferðin i vor verður hefðbundin en ég geri þó alltaf einhverjar breytingar því sumir farþeganna eru jafnvel að fara í annað eða þriðja sinn. Þriggja vikna ferð er algjört lágmark vilji fólk ná áttum hjá þessari fjöl- mennustu þjóð heims. Við kynnumst landi og þjóð, fomum og nýjum hugsunar- hætti, skoðum glæsilegar keisara- hallir, lítum inn hjá „venjulegu" fólki og svo mætti lengi teýa. Við reynum að upplifa Kína á sem fjöl- Bejing verður að sjálf- sögðu heimsótt í Kínaferð- inni í vor. breyttastan hátt. Það má líka geta þess að maímánuður er afar ákjósanlegur tU ferða- laga i Kina þvi hitinn er mátulegur á þeim árstíma," segir Unnur Guðjónsdóttir hjá Kinaklúbbnum. Meðal viðkomustaða i Kínaferðinni má nefna Beijing, Xian, Shanghai, Suzhou, Tongli og Kínamúrinn. Auk hefðbundinna skoðunarferða verður farið á ýmsar skemmt- anir; auk þess sem hópnum gefst kostur á að reyna sig við perlu- veiðar. Farþegum gefst svo kostm- á að dvelja í Evrópu í viku eftir að Kínaferðinni lýkur. Nánari upplýs- ingar er að fá hjá Unni Guðjónsdótt- ur í Kínaklúbbnum. -aþl Frá Sveaborg séð er Helsinki eins og draumaborg í fjarska. Flóinn er ísi lagður alla vetur og einu sinni gekk stræt- isvagn á ísnum út í eyjuna. DV-myndir Gísli Kristjánsson og önnur herdeild vinnur sennilega í eldhúsinu því maturinn kemur á óvart. Hann er góður. „Skal vi prata eller bygga" Finnar eru miklir húsagerðar- menn. Síðustu ár hafa þeir' verið byggingaglaðari en nokkru sinni fyrr og hver stórbyggingin eftir aðra hefur risið í Helsinki. Óperan og nú- tímalistasafnið Kiasma eru umdeild- ustu nýbyggingarnar. Óperuna kalla menn bastarð sem bara gæti verið af- kvæmi gróðurhúss og prentsmiðju og nú er ný tónlistarhöll að rísa. Meðan aðrar þjóðir tala um að byggja, og þræta um hvemig bygg- ingarnar eigi að líta út, þá byggja Finnar og rífast eftir á. Finnsk nú- tímabyggingalist er frammúrstefnu- leg, létt og stór í sniðum. Og alltaf er komið fyrir stórum gluggum og gler- húsum til að hleypa ljósinu inn. Dýr hótel Nú gefst íslendingum kostur á að fljúga frá Keflavík um Stokkhólm til Helsinki. Það ætti að verða til að fjölga ferðum ísléndinga á fund Finna. Einnig er hægt að fara bara til Stokkhóms og taka svo ferju til Helsinki. Það ku vera skemmtilega sigling, sérstaklega að sumri til. Verðlag í Finnlandi er yfirleitt hagstætt á mælikvarða okkar íslend- inga. Matur á meðalgóðum veitinga- stað kostar innan við 1000 ísl. kr. og innan við 2000 á finni stöðum. Ölglas kostar um 30 krónur og farið með sporvögnunum kostar álíka mikið og strætómiðinn í Reykjavík. Vandinn er að Hótel í Helsinki eru dýr, mjög dýr. Það þykir vel sloppið ef nóttin í tveggja manna herbegi kostar minna en 10.000 ísL kr. Nóttin á miðlungshóteli utan göngufæris frá miðborginni kostar 8000 ísl. kr. Þetta er mikið en það er hægt að fmna mun ódýrari hótel utan borgar- innar. Inn úr kuldanum Alla vetur er Helsinki í klaka- böndum eins og heimskautaborg. Finnski flói er ísilagður og þar plægja ísbrjótar upp siglingaleiðir fyrir ferjur til annarra landa eða bara út í virkisborgina Sveaborg, 15 minútna siglingu frá höfninni. Það getur verið napurt í Helsinki en borgarbúar eru hlýir i viðmóti og nú er Helsinki sannarlega komin inn úr kuldanum og orðin ein af helstu menningarborgum Evrópu eftir langan vetur kalda stríðsins. Gísli Kristjánsson Gler- skála- menning teiknaði helstu byggingar þar fram til ársins 1840. Engel er faðir Helsinki og minningu hans er m.a. haldið á lofti á Cafe Engel, þar sem íslendingurinn Kjartan ðlafsson stóla, borð og blómavasa - auk þess að teikna Norræna húsið í Reykja- vík. Við aðalgötu Helsinki, Esplanadi, er heil verslun með mun- um úr smiðju Altos. Glæsileg hönn- un er aðals- merki Finna og þeir sem koma til Helsinki geta valið úr versl- unum sem bara selja finnska merkjavöru af ýmsu tagi. Dómkirkjan við Senatstorgið. Hér áhrifin vel. ræður húsum. Cafe Engel er fjölsótt- ur staður við aðaltorgið sem Engel gamli skipulagði. Engel er þó fjarri þvf eini hönn- uðurinn sem komið hefur við sögu borgarinnar. Arkitektinn Alvar Alto starfaði hér og hannaði hús, Helsinki er einfold borg að ferðast i og almennings- samgöngur eru þar til fyrirmyndar. Aðalgötumar eru Manner- heimgatan og áðurnefnd Esplanadi, sem skiptist að endilöngu sjást austurlensku með trjágarði. Við vestur- enda Esplanadi er Sænska leikhúsið, þekkt kennileiti í borginni. Þar er hægt að tylla sér niður á Cafe Kafka og fá sér kaffisopa eða á mjög þokkalegu glerskálaveitinga- húsi, sem heitir þvi fáránlega nafni Happy Days. Við hinn endann er annar glerskáli, Kapelli, sem einnig býður góðar veitingar. Spölkorn þar austar er svo markaðstorgið, sem allir verða að sjá. Margir rússneskir veitingastaðir eru líka í Helsinki og þá er átt við staði sem selja rússneskan mat en ekki finnskan húmor. Galleria Hariton er t.d. rétt sunnan við Esplanadi og þar er líka Alexander Nevski að norðan. Báðir eru taldir í fremstu röð rússneskra veitinga- staða. Alþjóðlegur matur er auðvitað í boði um alla borg en líka meira spennandi fmnskur matur. I 60 ára gamalli glerhöll - Lasipalasi - við Mannerheimgötuna er stærsta veit- ingahús borgarinnar í gömlu stíl. Matsalurinn er 84 metra langur og tekur 700 manns í sæti. Heill her- flokkur af þjónum sinnir gestunum Skíðaferð á Breiða- merkurjökul Ferðafélagið Útivist efnir til f tveggja gönguskíðaferða eftir :; páskana. Fyrri ferðin verður helgina 9. til 11. april en þá verö- ur gengið frá Þingvöllum að Kerl- í ingu undir Skjaldbreið og á Hlöðuvelli. Ferðinni lýkur i heita pottinum í Úthlíð. Gist verður í skálum. Seinni ferðin er fyrir- huguð 21. apríl en þá verður í haldið á Esjufjöll sem eru fjalls- 1 ranar sem rísa úr ofanverðum | Breiðamerkurjökli. Gengið verð- # ur á skíðum upp jökulinn og gist í í skálum Jöklarannsóknarfélags- ins í þrjár nætur. Farnar verða | dagsferðir um Esjufjöllin og með- | al annars farið í Fossdal og að - Snók. Nýtt óperuhús Boston hefur löngum verið | þekkt fyrir að vera ein mesta ; menningarborg Bandaríkjanna j og nú stendur mikið til í borg- inni. Áætlað er að reisa óperu- og balletthús við höfnina sem á að f taka 2.400 manns í sæti. Menn eru þó enn að safna peningum til verksins en húsið mun kosta í t kringum 75 milljónir dollara. IHelstu menningarstofnanir Boston hafa sýnt verkefninu mik- inn áhuga: þ.á m. Boston ballett- inn og óperan. Titanic verður spilavíti í síðasta helgarblaði var greint | frá byggingu eftirlíkingar skips- , Iins Titanic í San Diego í Kali- fomíu. Nú berast fréttir um að Las Vegas-menn ætli ekki að verða eftirbátar landa sinna i Kalifomíu. ! spilaborginni á að reisa Titanic-skip í eyöimörk- inni. Titanic mun bæði þjóna sem hótel og spilavíti. í kringum Ieitt þúsund káetur verða á hótel- inu og á Qögur þúsund fermetra svæði verða veitingasalir, versl- anir auk nokkurra spilasala. Her- legheitin munu ekki kosta undir 300 milljónum dollara. Það er fyr- ir löngu orðin tíska í Las Vegas að spilavítin séu reist í kringum í þema og nægir að minnast nýj- ; ustu spilavitanna; annars vegar l eftirlíkingu af París og hins veg- • j ar af Feneyjum. Shakespeare laðar að ferðamenn B IÁhrifavald kvikmynda á túrisma getur verið mikið. Þannig hefur kvikmyndin, Shakespeare in Love, sem hlaut sjö óskarsverðlaun á dögunum, hrint af stað nokkurs kon- „ ar Shakespe- ; areæði. Shakespearel leikhúsið í 3 London hugs- 1“ ar sér altjent gott til glóðar- innar í sumar því miðapant- anir berast nú víða að. Þá er gert ráð fyrir því að fæðingarbústað- í ur skáldsins i Stratford upon Avon verði vinsæll áningarstað- !ur ferðamanna í sumar. Kvik- myndin Rómeó og Júlía; með Le- onardo DiCaprio, sem var vinsæl fyrir nokkrum áram, hafði í for með sér mikla ljölgun ferða- manna og talið er víst að Shakespeare in Love verði eng- inn eftirbátur í þeim efnum. Shakespeare er reyndar sá höf- undur sem hvað oftast hefur ver- ið kvikmyndaður eða alls 309 sinnum auk 41 kvikmyndar sem j lauslega er byggð á verkum hans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.