Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1999, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
Fréttir
Til íslands eftir sjö daga á flótta undan stríðsátökum:
Fólkinu líður mjög illa
- segir Albert Mejdi sem er til aðstoðar löndum sínum
Island
Reykjavík
W. Lending áætluö um 19:00
Flóttamenn til
íslands
Holland
''j Maastrlcht
% Millllendlng um hádegi
ítalla I \
Ancona\ *'
Makedónía
ije
Grikkland
Kofu
Brottför 08:02
Það var þreyttur og slæptur hóp-
ur flóttafólks sem flugvél Landhelg-
isgæslunnar flutti frá Makedóníu til
Korfu á Grikklandi í gærkvöld.
Fólkið virtist þó vera heilt heilsu
þrátt fyrir sjö daga hrakninga, þar
af fimm sólarhringa undir berum
himni. Eins og gefur að skilja er
fólkið örsnautt,
eins og Hjálmar
W. Hannesson
sendiherra komst
að orði við DV í
gærkvöld, enda
hafði það flúið
heimili sín í
Kosovo og hafðist
við í flótta-
mannabúðum.
Það var á
þriðjudagsmorg-
un sem flugvél
Hjálmar W.
Hannesson.
Landhelgisgæsl-
unnar lagði af stað hlaðin hjálpar-
gögnum áleiðis til Albaníu. Breyta
þurfti þeirri áætlun vegna hernað-
araðgerða Nato og því var millilent
í Ancona á Ítalíu. Siðan var haldið
til Skopje í Makedóníu þar sem ull-
arteppi, vatn og dýnur voru látin
af hendi og 23 flóttamenn teknir
um borð. Vélin lenti síðan á Korfu
í Grikklandi í gærkvöld og var gist
þar i nótt.
„Fólkinu líður mjög illa eins og
er,“ sagði Albert Mejdi, sem fór
með vél gæslunnar til að aðstoða
landa sína á leiðinni hingað til
lands. Albert hefur búið hér á
Óvíst er um afdrif þúsunda flóttamanna frá Kosovo sem sáust síðast við landamæri Kosovo og Makedóníu í
fyrrakvöld. 21 flóttamaður er á leið til íslands þar sem öruggt skjól bíður þeirra. Símamynd Reuter
landi um nokkurt skeið og er m.a.
einn af forvígismönnum fjársöfn-
unar fyrir landflótta Kosovo-Al-
bana sem fram fór hér á landi um
páskana.
Þegar DV
náði tali af hon-
um á Korfu í
gærkvöld sagð-
ist hann hafa
rætt lítillega við
flóttafólkið á
leiðinni frá
Makedóníu yfir
á Korfu. Það
Albert Mejdi. bæri þess vissu-
lega merki að
hafa orðið fyrir miklu áfalli enda
hefði það verið rekið frá heimil-
um sínum í Kosovo. Nú væri mik-
ilvægt að það næði að hvílast og
jafna sig.
„Við ræddum við þau og þau
kváðust vilja fara til íslands,"
sagði Albert. Hann sagði að fólkið
ætti enga ættingja hér svo vitað
væri. Hann kvaðst ekkert hafa
rætt við það um hvort það hygðist
setjast hér að, slíkt væri alltof
snemmt á þessu stigi málsins.
„Þau virðast öll vera heil heilsu
en þau bera þess merki að hafa
orðið að hafast við úti. Þess vegna
er gott að þau skuli fá læknisskoð-
un þegar þau koma heim.“
Albert sagði að fólkið hefði ekki
verið svangt þegar það kom um
borð því þrjá síðari dagana i flótta-
mannabúðunum hefði það haft
nægan mat. Fyrst hefðu þau notið
hjálpar Albana frá Makedóníu. Síð-
an hefðu hjálparsveitir komið til
aðstoðar. Hann kvaðst ekki hafa
farið inn í flóttamannabúðimar en
fyrst hitt fólkið þegar það kom á
flugvöllinn í Skopje.
Vilbergur Magni Óskarsson,
einn af áhöfn gæsluvélarinnar,
sagði við DV í gærkvöld að flugið
hefði gengið vel. Biðin eftir fólkinu
hefði verið löng þar sem upp hefðu
komið vandamál með flutninga á
því úr flóttamannabúðunum og út
á flugvöll. Það hefði á endanum
komið með rútu á flugvöllinn. Allt
hefði því farið eins og best varð á
kosið. -JSS
Mikill
spenningur
- vegna komu fólksins
Mikill spenningur greip um sig
meðal fólks frá Kosovo, sem búsett
er hér á landi en á ættingja erlend-
is, þegar spurðist að von væri á
flóttafólki frá Kosovo hingað.
„Það var margoft hringt í mig í
fyrrinótt til að athuga hvort ég
vissi hveijir væru að koma,“ sagði
Flora Mejdi viö DV. Albert eigin-
maður hennar fór út með gæsluvél-
inni til að aðstoða við komu flótta-
fólksins hingað og það spurðist
fljótlega út meðal landa þeirra
hjóna. „Það var meira að segja
hringt í mig frá Bandaríkjunum og
Þýskalandi, íslenskir menn sem
eiga albanskar konur. Þær langaði
svo til að vita hvort mögulegt væri
að ættingjar þeirra væru á leiö til
íslands. Albert var með lista með
nöfnmn ættingja fólks sem búsett
er hér sem eru enn á ófriðarsvæð-
inu og fólkið var svo spennt að vita
hvort það gæti átt von á einhveij-
um þeirra hingað. Ég var alveg
undrandi á því hvernig þeir sem
hringdu frá Bandaríkjunum og
Þýskalandi höfðu uppi á símanúm-
erinu okkar. En fólk var greinilega
að vonast til að frétta af ættingjum
sínum." -JSS
í gær var veriö að hífa frá borði í Reykjavíkurhöfn hluta ferju sem verður flutt til
Árskógsstrandar. Stálsmiðjan sér um endanlegan frágang á ferjunni. DV-mynd S
ísaQörður:
Bónusverslun
opnuð í maí
DK ísafiröi:
Ákveðið hefur verið að verslana-
keðjan Bónus opni verslun á ísafírði
um miðjan maí. Að sögn Heiðars Sig-
urðssonar, eiganda verslunarhúsnæð-
isins Ljónsins á Ísafírði, er verið að
finpússa samninginn við Bónus um
leigu á húsnæði. Enn á eftir að skrifa
undir. Fyrirhugað er að Bónus geti
hafið rekstur á ísafirði upp úr miðjum
maí.
Undanfarin misseri hefur verslunin
Eló rekið matvöruverslim í húsnæði
Ljónsins en hætti þeim rekstri um
páskana. Áfram eru þó reknar tvær
verslanir hjá fyrirtækinu á ísafirði og í
Hnífsdal. Heiðar segir að Jóhannes í
Bónusi hafi komið vestur fyrir
nokkrum vikum og litist vel á aðstæður.
Gert er ráð fyrir svipuðum rekstri
á Bónusversluninni á ísafirði og í
Reykjavík, þó sagði Heiðar að eitthvað
yrði stílað meira inn á sérvörur en
gert er i sumum Bónusverslununum á
höfuðborgarsvæðinu. HKr.
Stuttar fréttir r>v
Steiner vill bætur
í gær
aðalmeðferð
fyrir héraðs-
dómi í máli
Franklíns
Steiner gegn
íslenska rík-
inu. Eins og
DV hefur
greint frá krefst Steiner einnar
milljónar króna skaöabóta, þar
sem hann telur ólöglega hafa ver-
ið staðið að handtöku á sér fyrir
utan heimili dóttur sinnar í októ-
ber 1997. Lögmaður ríkisins segir
það réttarhneyksli fái Steiner svo
mikið sem eina krónu. Dagur
greindi frá.
Bíll og utanlandsferðir
Nú stendur yfir leikur á Vísi.is í
tilefni af eins árs afmæli veflarins.
Ein spurning birtist á dag í leikn-
um og verður fyrsti sigurvegarinn
dreginn út á morgun, en þá verður
Lundúnaferð fyrir tvo í pottinum.
Fleiri utanlandsferðir verða dregn-
ar út en aðalvinningurinn, Da-
ewoo Thunderbird sportbíll, verð-
ur dreginn út 20. apríl.
Fáir þurfa heimahjúkrun
Samkvæmt bráðabirgðaniður-
stöðum könnunar Gallups á hög-
um og líðan aldraðra, hafa þrir
fjórðu hlutar eldri borgara ekki
fjárhagsáhyggjur. Þá telja 98 pró-
sent þeirra sig ekki þurfa á
heimahjúkrun að halda. RÚV
sagði frá.
Námsskrá fyrir leikskólana
Björn
Bjamason
menntamála-
ráðherra
kynnti í gær
námsskrá fyrir
leikskólana
sem taka mun
gildi næsta
haust. Námsskrá hefur ekki verið
til á leikskólastigi hér á landi
áður.
Ekki brot á lögbanni
Fulltrúi við Sýslumannsembætt-
ið í Reykjavík komst í gær að þeirri
niðurstöðu að notkun SPRON á
vöraheitinu „veltukreditkort
SPRON“ sé ekki brot á lögbanni á
notkun Sparisjóðsins á vöruheitinu
Veltukort. Niðurstaðan er svar við
kröfu lögmanns VISA-íslands um að
lögbanni frá 31. mars yrði haldið
uppi.
Nýtt hafrannsóknarskip
Nýtt hafrannsóknarskip íyrir
íslendinga verður sjósett í skipa-
smíðastöðinni ASMAR í Chile
miðvikudaginn 14. apríl. Búast
má við að skipið verði afhent full-
búið í september. RÚV sagði frá.
15 prósenta hækkun
Viðræður um sérkjarasamninga
eru formlega hafnar milli mjólkur-
fræðinga og yfirmanna þeirra í
Mjólkursamlagi KEA. Bragi Egils-
son, trúnaðarmaður mjólkurfræð-
inga, segir ljóst að ■ mjólkurfræð-
ingar muni ekki una óbreyttum
kjörum. Dagur sagði frá.
Veitingar
Lögð hefur
verið fram
hugmynd í
skipulags- og
umferðarnefnd
Reykjavikur
um að starf-
rækja veitinga-
stað í Hljóm-
skálagarðinum austan við Bjark-
argötu. Guðrún Ágústsdóttir seg-
ir að hugmyndin verði rædd frek-
ar innan borgarkerfisins á næst-
unni og í framhaldi af því verði
hún kynnt almenningi.
Ný vegabréf
Ný vegabréf verða tekin í notk-
un 1. júní nk. Þau eru hönnuð af
Kristínu Þorkelsdóttur lista-
manni. Nýju vegabréfm verða
tölvulesanleg og með vatnsmerki,
auk ýmissa annarra öryggistriða,
sem gerir það að verkum að erfið-
ara verður að falsa þau. Breyting-
amar eru m.a. gerðar að kröfu
Bandaríkjamanna. Morgunblaðið
greindi frá. -BÓE/hb
í garðinn