Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Qupperneq 16
16 '
íenmng
MANUDAGUR 26. APRIL 1999
Huglægt rými
Nú stendur yfir sýning Kristínar Arn-
grímsdóttur í Gallerí Sævars Karls, en hún
sýnir þar málverk og skissubók. í bæklingi
sem fylgir sýningunni kemur fram að hún sé
að kanna rými myndverksins og textans og
samband þessara tveggja þátta.
„Rými“ er
flókið fyrirbæri,
en þar sem
Kristín vinnur
einungis með
tvivíðan mynd-
flöt er væntan-
lega ekki um að
ræða hið þrívíða
rými sem við
sjálf hrærumst í.
Bakgrunnur
myndanna er
einfaldur, sjón-
deildarhring er
t.d. aðeins að
finna í einu af
málverkunum,
svo ljóst er að
hún er ekki
heldur að kanna
sýndarrými fjar-
víddarteikning-
arinnar sem
menn hafa notað
í aldaraðir til að
fá þrívíddartil-
flnningu í tvivíð-
an flöt. Líkam-
lega rýmið hlýt-
ur því að felast í
plássinu um-
hverfis og á milli persónanna (sem er all-
nokkuð) og dýpt litarins í bakgrunninum.
Letur hefur form og að því leyti gilda lög-
mál hins sjónræna um það. Hins vegar er
ljóst að Kristín er fremur að velta fyrir sér
með hvaða hætti
Lifandi skissur
Vísanir þrengja á hinn bóginn textann og
um leið merkingu myndarinnar. Þegar text-
inn vísar ákveðið til efnis sem er óskylt
myndefninu myndast spenna milli texta og
alla vega fengist eitthvað við myndskreyting-
ar. Myndirnar hennar eru þokkafullar enda
er hún flinkur og léttur teiknari. Skissubók-
in þykir mér skemmtilegust, skissur hafa til-
hneigingu til að vera meira lifandi en út-
færslan. Hitt veit ég hins vegar ekki hversu
Kristín Arngrímsdóttir, af sýningu hennar í Galierí Sævars Karls.
myndar, en merking myndarinnar tak-
markast mest þegar áhorfandinn getur bund-
ið myndefnið við það sem vísað er til. Þannig
geta titlar t.d. rýrt huglægt rými verka.
Dæmi um þetta er mynd Kristínar af hár-
prúðu konunni og
textinn um bog-
manninn sem vant-
aði lokkinn í streng-
inn en var synjað.
Myndskreyting kall-
ar á nánari tengsl
innihalds texta og
innihald texta hafi
áhrif á hið huglæga
rými myndar. Flest
höfum við næga -------------
þekkingu til þess
a.m.k. að sjá hvort ________
perspektíf teikning
gengur upp eða ekki. Huglægt rými er hins
vegar afstætt fyrirbæri sem við upplifum
hvert á okkar hátt.
Mynd og texti hafa örugglega áhrif hvort á
annað, en eftir því sem tengslin verða óljós-
ari verður merkingin flóknari. Um leið eykst
huglæga rýmið, þ.e. frelsi áhorfandans til að
túlka og skilja.
Myndlist
Áslaug Thorlacius
myndar á meðan innri spenna og margræð
merking geta aukið listrænt gildi verks. Það
þýðir þó hvorki að myndskreyting geti ekki
haft listrænt gildi né að það sé ávísun á gæöi
að texti og mynd séu algerleg ótengd. Hér
gildir engin formúla.
Þetta er áhugaverð pæling og sjálfsagt
nokkuð nærtæk listakonunni því hún hefur
DV-mynd E.ÓI.
langt hún hugsar sér að ganga með pælingar
sínar, hvort hún er um leið að kanna per-
sónulegt rými listamannsins í samfélagi
myndlistarmanna, en myndirnar hennar eru
svo sláandi líkar myndum Helga Þorgils
Friðjónssonar að það veldur áhorfandanum
beinlínis óþægindum.
Hvort þeirra varð „fyrra“ til að skapa
þennan myndheim hef ég ekki hugmynd um
og auðvitað eru myndir þeirra ekki ná-
kvæmlega eins, en Helgi er listamaður með
sérstakan stíl sem hefur verið áberandi um
árabil á meðan ekki hefur farið jafnmikið
fyrir Kristínu. Samanburðurinn verður
henni því seint í hag. Ég er þess fullviss að
hún hefði getað gert margfalt áhugaverðari
sýningu með þessum sömu myndum ef hún
hefði fundið sér ögn persónulegri stíl.
Perlur Finns og Grahams
Finnur Bjarnason
baríton hefur verið
iðinn við tónleika-
hald að undanfömu
og rödd hans farinn
að láta kunnuglega í
eymm. Á föstudags-
kvöldið hélt hann
ljóðatónleika í Saln-
um ásamt píanistan-
um Graham John-
son. Finnur hefur
greinilega gert vel
að þeirri rödd sem
honum hefur verið
gefin og hljómuðu
nokkrar perlur
Schuberts, sem tón-
ieikarnir hófust á,
hver annarri betri
og yndislegri. Hæst
bar þó Der Jungling
und der Tod, Im
Friihling, sem
hreint og beint glitr-
aði í meðförum
þeirra, og Der
Ungluckliche sem
var sérlega smekk-
lega gert. Graham
Johnson er frábær undirleikari sem greini-
lega kann sitt fag. Var verulega gaman að
fylgjast með honum gefa sinn persónulega lit
á verkin og laða fram það besta úr söngvar-
anum. Sterkt samband var á milli þeirra,
sem kom skýrt fram í heilsteyptri túlkun
þeirra á lögum Schuberts og ekki síður í lög-
unum eftir Hugo Wolf við texta Eduards
Mörike.
Stundum örlaði þó.örlítið á ýktum sam-
Graham Johnson og Finnur Bjarnason.
DV-mynd Hari
Tónlist
Arndís Björk Ásgeirsdóttir
hljóðaendingum og svolitlu kraftleysi á
neðra raddsviði, t.d. í Der Kreuzzug, en það
kom ekki að sök. In der Fruhe var kyrrlátt
og fallegt og Fufireise glaðlegt og hresst
og Auf ein altes Bild var einkar fallegt i
meðforum þeirra. Leikur Johnsons var
sérlega eftirtektarverður í Begenung og
Abschied sem var nokkuð spaugilegt í hönd
um þeirra.
Innsæi og tilfinningar
Eftir hlé var komið að ljóðaflokki afmælis-
barns ársins, Francis Poulencs, Tel jour, telle
nuit, sem hann samdi á árunum 1936-37.
Textaframburður Finns var í lögum
Schuberts og Wolf til mikillar fyrirmyndar,
skýr og góður, og svo var einnig í þessum
skemmtilega ljóðaflokki.
Súrrealískum ljóðúm Paul Elouards var
vel komið til skila, svo ekki sé talað um mús-
íkina sem hann túlkaði af miklu innsæi og
mikilii tilfmningu, þannig að maður hreint
og beint gleymdi stað og stund. Sérstaklega
var Une herbe pauvre áheyrilegt og vel flutt,
mikil og glæsileg tilþrif í Figure de force bru-
lante et farouche og Nous avons fait la nuit
var einnig einkar fallegt.
Fyrir mína parta verð ég að segja að mér
fannst íslensku lögin ekki beint passa inn í
þessa efnisskrá, þó öll hefðu þau verið ákaf-
lega vel flutt og ágætis skemmtun. Þau voru:
Gígjan eftir Sigfús Einarsson, Kvöldsöngur
eftir Markús Kristjánsson, Sáuó þiö hana
systur mína eftir Emil Thoroddsen, Vísan
sem skrifuö var á visiö rósblaö eftir Árna B.
Gíslason og Síóasti dansinn eftir Karl Ó.
Runólfsson (sem mætti hvíla örlítið).
En skemmtunin var ekki síst falin í því að
sjá og heyra píanistann fara liprum fingrum
í gegnum gamla kunningja í tónlistinni og
Finn glansa í því samstarfi - þannig að í
Samantekt um hjátrú
Það var vel til fundið af Vöku-Helgafelii að gefa
út uppsláttarbók (kerlingabók?) um hjátrú okkar
íslendinga en
sennilega eru fáar
þjóðir eins ofur-
seldar þeirri trú,
samanber umræð-
ur um álfasteina og
álagabletti sem
blossa upp með
reglulegu miilibili.
Símon Jón Jó-
hannsson (á mynd)
tók saman bókina,
sem sett er saman í stafrófsröð eftir um það bii
fjögur hundruð stikkorðum. Umsjónarmaður fletti
bókinni af handahófi og rakst þá á eftirfarandi
samantekt um gamla hjátrú sem tengist börnum:
„Börn hætta að vaxa séu klipptar á þeim neglur
eða hár fyrsta árið, / sé þeim hleypt út um glugga
og ekki tekin inn um hann aftur, / sé snældu snú-
ið niður í höfuð þeirra,/ klippi þau mat sinn með
skærum,/ sé þeim gefm endasneið með smjöri að
borða,/ séu þau dregin í gegnum vefstól,/ borði
þau krít,/ borði þau kertavax." Hjátrúin er býsna
fljót að hreiðra um sig, samanber það orð sem fór
af örbylgjuofnum þegar þeir komu fyrst á markað.
„Trúöu margir því að þeir yrðu blindir af því að
horfa á glerið á ofhinum. Svo er lika sagt að séu
örbylgjuofnar hafðir í mittishæð verði heimilis-
menn náttúrulausir". Bókin er hafsjór af dásam-
legum fróðleik af þessu tagi.
Hringrás bókanna
Viku bókarinnar lýkur í
dag með Bókahringrásinni
sem fer fram bæði í Bókvali
á Akureyri og Bókabúðum
Máis og menningar að
Laugavegi 18 og Síðumúla
7-9. Þar verður tekið á
móti notuðum bókum og
þær síðan seldar í kilóa-
vís til styrktar góðu málefni.
Maturinn hennar mömmu, sýningu Bústaða-
safns á matreiðslubókum og mataruppskriftum,
lýkur einnig í dag.
Að lokum skulu þeir sem fengið hafa bókina
Þrisvar þrjár sögur minntir á að para saman sög-
urnar í bókinni og höfunda þeirra. Nöfn þeirra
sem gera það réttilega verða sett í verðlaunapott
þar sem vinningurinn er flugfarseðlar fyrir tvo tii
Parísar í boði Flugleiða. Getraunaseðlana þarf að
senda inn fyrir 15. maí.
dísa skvísa
Á Sumargleði bama og bóka, íslandsdeildar
IBBY, sem haldin var í Norræna
húsinu á sumardaginn fyrsta
vom veittar árlegar viðurkenn-
ingar' félagsins fyrir menning-
arstarf í þágu bama og ung-
linga. Komu þessar viðurkenn-
ingar í hlut þeirra Guðrúnar
Helgadóttur, Helgu Amalds
og Aðaisteins Ásbergs Sig-
urðssonar og Önnu Pálinu
Ámadóttur. Og er þeim hér
með ámað heilla.
Þá var og kynnt nýtt
veggspjald sem félagið gef-
ur út í tilefni dagsins. Á
því em bemskuljóð átta
þekktra íslenskra ljóðskálda og myndir af höf-
undunum ungum. Og þá er spurt: Hvaða skáld-
kona orti eftirfarandi ljóð sex ára gömul: „Ég sé
skí/hoppí því/lóan singur dirrindý/út um borg og
bi/Ásta kallar dí dí di/af því að ég er köliuð
dísa/hún er skvísa." (Skáldkonan sem sést á
meöfylgjandi mynd heitir Vigdís Grímsdóttir)
Ritgerðasamkeppni
um íslenska menn-
ingu
Tímarit Máls og menningar
fagnai’ sextugsafmæli sinu i ár
og efnir af því tilefni til rit-
gerðasamkeppni þar sem efoið
er „íslensk merming í aldarlok“. Lengd
ritgerðanna skai vera sem næst 10 bls. í venjulegu
,-tölvuútprenti. Skilafrestur er til 1. september og
verða úrslit kynnt mánuði síðar. Höfundar em
beðnir að senda ritsmíðar sinar til TMM undir
dulnefni og skal nafn höfundar fylgja í lokuðu um-
slagi. Verða þrjár bestu greinarnar birtar í tíma-
ritinu fyrir árslok. Vegleg bókaverðlaun verða
veitt fyrir þessar greinar, auk þess sem höfundur
þeirrar bestu hlýtur peningaverðlaun að upphæð
50.000 krónur.
Umsjón
Aðalsteinn Ingólfsson