Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1999, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999
Útlönd
-
Tíu þúsund á
mótmælafundi
gegn Milosevic
Stjómarandstaðan í Júgóslavíu
efndi í gær til fyrsta stóra mót-
mælafundarins gegn Slobodan
Milosevic Júgóslavíuforseta eftir
loftárásir NATO á landið. Fund-
urinn var haldinn í borginni
Cacak, suövestur af Belgrad, þrátt
fyrir tilmæli lögreglunnar um að
honum yrði frestað. Bandalag um-
bótasinnaðra tlokka stóð fyrir
fundinum.
Lögreglan hafði komið fyrir
vegatálmum á leiðunum inn í
borgina. Norskir og franskir sjón-
varpsmenn, sem komu frá
Belgrad, vom stöðvaðir. Tugir er-
lendra og innlendra fréttamanna
vom þó þegar komnir til Cacak.
Fundarmenn púuðu þegar þeim
var sagt aö lögreglan hefði stöðv-
að rútur með fréttamönnum. Köll-
in urðu hins vegar að fagnaðarlát-
um þegar tilkynnt var að
júgóslavneski herinn hefði boðið
eigin bíla til flutninga á þeim sem
stöðvaðir vom utan við Kragu-
jevac sem einnig er í miðhluta
Serbíu.
Ræðumenn lögðu meiri áherslu
á fátæktina og hungrið í sjálfri
Serbíu en ástandið í Kosovo.
Sprengjunni
ætlað að drepa
blaðamanninn
Sprengjunni, sem komið var
undir bíl blaðamanns við sænska
blaðið Aftonbladet síöastliðinn
mánudag, var beint þannig að
kraftur hennar yrði sem mestur
gegn farþegum bílsins.
Blaðamaðurinn, sem skrifað hafði
um starfsemi nasista, og átta ára
sonur hans slösuðust alvarlega.
Mikill þrýstingur er nú á sænsku
lögregluna að bæla niður ofbeldi
nýnasista í Svíþjóð. í
mótmælagöngum hafa nýnasistar
fengið að vera í friði en látið til
skarar skríða gegn andstæðingum
þeirra.
Noröur-írland:
Nokkur árangur
náðist í gær
Neyðarviðræður vegna lausnar
deilunnar um myndun heimastjórn-
ar og afvopnun öfgahópa stóðu yfir í
allan gærdag. Nokkur árangur mun
hafa náðst á fundinum í gær en Dav-
id Trimble, leiðtogi Sambandssinna,
sagði enn marga hnúta óleysta ætti
samkomulag að nást fyrir miðnætti í
kvöld. Það er sá frestur sem Tony
Blair forsætisráðherra gaf deilend-
um til að ná samkomulagi. Takist
það ekki er líklegt að friðarsam-
komulagið sem var undirritað í fyrra
sé fyrir bí. Sambandssinnar neita að
mynda heimastjóm með Sinn Féin
nema IRA hefji afvopnun þegar í
stað. Fulltrúar Sinn Féin segja hins
vegar að slík skilyrði sé ekki að
finna í friðarsamkomulaginu.
Viðræðunum veröur haldið
áfram í dag og kvöld og reynt til
þrautar að ná samkomulagi sem
gæti tryggt frið á N-írlandi.
Kúrdar f Frankfurt f Þýskalandi mótmæla dauðadóminum yfir Öcalan. í þýskalandi var kveikt í kaffihúsum og
ferðaskrifstofum Tyrkja í Þýskalandi. Símamynd Reuter
Hörð mótmæli vegna dauðadómsins yfir Öcalan:
Kveikt í kaffi-
húsum Tyrkja
Flest vestræn ríki fordæmdu í
gær dauðadóminn yflr kúrdíska
PKK-leiðtoganum Abdullah Öcalan.
Talsmaður Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta, Joe Lockhart, sagði
hins vegar að Öcalan væri alþjóð-
legur hryðjuverkamaður sem ætti
skilið að verða refsað. Lockhart
neitaði að tjá sig um sjálfan dóminn
og sagði að málið væri enn fyrir
dómstólum. Önnur vestræn ríki og
alþjóðleg samtök báðu tyrknesk yf-
irvöld um að þyrma lífl Öcalans og
breyta dauðadóminum í lífstíðar-
fangelsi.
„Málaferlin hafa staðfest að Tyrk-
land er ekki réttarríki," sagði Jack
Lang, utanríkisráðherra Frakk-
lands. Lang sagði Kúrda ekki geta
annað en litið á dauðadóminn sem
ögrun. Hann bætti við að þeir ættu
að fá sjálfstjórn til þess að geta varð-
veitt menningu sína og tungu.
Rússneska utanríkisráðuneytið
bað Tyrki um að virða mannúðar-
sjónarmið. Þó svo að dauðarefsingu
hafi ekki verið aflétt í Tyrklandi
I lokavarnarræðu sinni sagði
Öcalan að ef tyrknesk yfirvöld
viðurkenndu Kúrda sem þjóðarbrot
væri PKK-flokkurinn reiðubúinn til
að falla frá kröfunni um sjálfstæði.
hefur enginn verið tekinn af lífi þar
síðan 1984, benti talsmaður rúss-
neska utanríkisráðuneytisins. Yfir-
völd í Sviss vöruðu Tyrkland við og
sögðu að aftaka Öcalans gæti leitt
til ofbeldishrinu í Evrópu.
Kúrdar efndu til mótmæla víðs
vegar um Evrópu i gær. Þeir hétu
því einnig að halda mótmælum sín-
um áfram. í Þýskalandi var kveikt í
tyrkneskum kaffihúsum og ferða-
skrifstofum síðastliðna nótt. Um
tvær milljónir Tyrkja búa í Þýska-
landi og um hálf milljón Kúrda.
Talsmenn PKK, Kúrdíska Verka-
mannaflokksins, hótuðu f gær
hefndaraðgerðum bæði í Tyrklandi
og V-Evrópu. Útlagaþing Kúrda,
sem er með bækistöðvar í Brussel,
sagði dóminn yfir Öcalan dauðadóm
yfir kúrdísku þjóðinni. „Þeir sem
hafa breytt Kúrdistan í blóðvöll öld-
um saman halda áfram hryðjuverk-
um sínum,“ sagði Yasar Kaya, full-
trúi útlagaþingsins. Yfirvöld í Tyrk-
landi fullyrða að þingið sé hluti af
PKK-flokknum.
Stuttar fréttir dv
Forseti í fíkniefnum
Hugo Banzer, forseti Bólivíu, er
flæktur í flkniefnahneyksli. Aðal-
maðurinn i
hneykslinu, Mar-
ino Diodato, er
kvæntur einni af
frænkum forset-
ans og lagði fram
um 1 milijarð
dollara í kosn-
ingastóð forset-
ans. Það voru fikniefhalögreglu-
menn frá Bandaríkjunum sem
komu upp um flkniefnahringinn er
smyglaði að minnsta kosti 8 tonn-
um af kókaíni til Evrópulanda.
Eldur í göngum
Eldur kom upp í veggöngum
við Drammen í Noregi í gær.
Tveir slökkviliðsmenn létust við
störf þegai’ sprenging varð í göng-
unum. Fimmtán slösuðust.
Manntjón í Japan
Að minnsta kosti 23 eru látnir
og 15 er saknað eftir úrhellisrign-
ingar í vesturhluta Japans í gær.
Ár flæddu víða yfir bakka sína og
aurskriöur féllu.
Lífverðir skotnir
Tveir lifvarða Zedillo Mexíkó-
.forseta voru skotnir til bana í
gær. Ráðist var á lífverðina fyrir
utan bústað forsetans 1 Mexíkó-
borg. Forsetinn var hins vegar
staddur í Rio de Janeiro þegar til-
ræðið átti sér stað.
Löggur til Kosovo
Madeleine Albright tilkynnti í
gær að Bandaríkin væru reiðubú-
in að senda 450
lögreglumenn
til Kosovo. Mik-
il glæpaalda ríð-
ur nú yfir hér-
aðið og mikil-
vægt að mati ut-
anríkisráðherr-
ans að koma
lögum og reglu á sem fyrst. Átján
önnur lönd hafa einnig boðiö fram
lögreglumenn og þykir líklegt að
alls muni 900 laganna verðir halda
til Kosovo á næstunni.
Stjórnvöld óvinsæl
Næstum helmingur Hong Kong-
búa er ósáttur við stjómvöld.
Margir telja mannréttindi og lýð-
ræði hafi farið aftur eftir að Kín-
verjar tóku við stjómartaumun-
um árið 1997. Þetta kemur fram í
nýrri skoðanakönnun Kínverska
háskólans í Hong Kong.
Tólf létust í skotárás
Tólf létust þegar hópur her-
manna réðst að íbúum Antantnag-
héraðs í Kasmír í gær. Um 25 þús-
und manns hafa látist í átökum í
Kasmír síðan barátta fyrir að-
skilnaði hófst fyrir 9 áram.
Kókið í lagi
Rannsókn á CocaCola sem var selt
á krá í Belgíu fyrir nokkrum vikum
er lokið. Ekkert fannst að umræddu
kóki og því óljóst af hveiju fjórir
gestir urðu veikir og þykir sannað að
ekki eru tengsl á milii þess og gall-
aða kóksins sem verksmiðjurnar
urðu aö innkalla í Belgíu og Frakk-
landi nokkru seinna.
Drap hund í æðiskasti
Kanadamaður hefur verið
dæmdm’ til 15 mánaða fangavistar
fyrir að berja lítinn hund til dauða.
Ástæðan var sú að manninum
þótti eigandi hundsins tefja umferð
þegar hann stöðvaði bifreið sína til
að hleypa önd yfir götuna.
Á fund Clintons
Kim Dae-jung, forseti S-Kóreu,
heldur á fostudag til Washington
þar sem hann
mun hitta Clint-
on forseta að
máli. Markmið
fundarins mun
að biðja Banda-
ríkin um áfram-
haldandi aðstoð
i efnahagsmál-
um. Þá mun Kim kynna stefnu
sína varðandi samskipti við N-
Kóreu.