Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1999, Page 29
mr MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999
29
Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzo-
sópran.
Bláa kirkjan
Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzo-
sópran og Bjami Þór Jónatansson
píanóleikari eru flytjendur í tón-
leikaröðinni Bláa kirkjan i kvöld,
kl. 20.30, í Seyðisfjarðarkirkju.
Flytja þau tónlist úr íslenskum og
bandarískum söngleikjum. Meðal
höfunda eru Sigfús Halldórsson,
Atli Heimir Sveinsson, Hjálmar
Ragnarsson, Kurt Weill og George
Gershwin og einnig flytja þau lög
eftir Enrique Granados.
Tónleikar
Ingveldur Ýr hóf ung ballettnám
og söngnám og fór til framhalds-
náms í Tónlistarskóla Vínarborg-
ar, þar sem hún stundaði einnig
leiklistar- og söngleikjanám. Lauk
hún síðan mastersgráðu frá Man-
hattan School of Music í New
York. Hún vakti fljótt athygli
áhorfenda fyrir frjálsa sviðsfram-
komu og sterka leikhæfíleika, sem
hafa nýst henni á margan hátt,
enda hefur hún komið fram í óp-
eruhúsum víða um Evrópu og
Bandaríkin í fjölmörgum óperu-
hlutverkum, m.a. sem Carmen,
Olga í Évgeni Ónegin og Dorabella
í Cosí fan Tutte, en það hlutverk
söng hún einning í íslensku Óper-
unni.
Bjarni Þór Jónatansson hefur
fengist mikið við undirleik, sótt
fjölda námskeiða í ljóðasöng heima
og erlendis og komið víða fram með
kórum og einsöngvurum. Bjarni
hefur einnig lokið prófi í orgelleik
frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar.
Maus leikur á útitónleikum á Ing-
ólfstorgi f dag.
Tónlist á
Ingólfstorgi
Hljómsveitimar Jagúar og Maus
spila á Tal-tónleikum Hins Hússins
og Rásar 2 í dag kl. 5 á Ingólfstorgi.
Götuleikhús Hins Hússins verður
einnig með uppákomu tengda þess-
um tónleikum og er þemað að þessu
sinni Götuleikhúsið mælir göturnar.
Almenn skyndihjálp
Á morgun hefst á vegum Reykja-
víkurdeildar RKÍ námskeið í al-
mennri skyndihjálp. Kennsludagar
eru þrír, 1., 5. og 6. júlí. Kennt er frá
19-23 í Fákafeni 11. Þátttaka er öll-
um heimil sem eru orðnir fimmán
Samkomur
ára. Meðal þess sem kennt verður á
námskeiðinu er blástursmeðferðin,
endurlífgun með hjartahnoði, hjálp
við bruna, beinbrotum og blæðing-
um úr sárum. Einnig verður fjallað
um helstu heimaslys. Að námskeið-
inu loknu fá nemendur skírteini
sem hægt er að fá metið í ýmsum
skólum.
Félag eldri borgara
Félag eldri borgara í Reykjavík
verður með línudanskennslu i Ás-
garði, Glæsibæ í kvöld kl. 18.30.
Klamedía X á Gauki á Stöng:
Pilsner fyrir kónginn
í bland við nýmeti
Gaukur á Stöng býður sem fyrr
upp á lifandi tónlist á hverju kvöldi.
Þar koma fram margar af áhuga-
verðustu hljómsveitum landsins. í
gærkvöld var Lágmenningarhátíð
sem tókst mjög vel og í kvöld er
komið að áhugaverðri hljómsveit,
Klamedíu X. Heldur sveitin tónleika
sem hefjast klukkan 23. Leiknir
verða gamlir smellir af plötunni
Pilsner fyrir kónginn í bland við
nýtt, áhugavert efni. Fyrir þá sem
Hljómsveitin Klamedía X leikur á Gauki á Stöng í kvöld.
ekki þora að mæta verða tónleik-
amir sendir út á Netinu, af slóðinni
www.simnet.is. Þeim til halds og
trausts verður hljómsveitin Bris.
Annað kvöld verður svo hin vin-
sæla hljómsveit 8-villt á Go-kvöldi
en á fóstudag frumsýnir Stjörnu-
bíó eftirtektarverða kvilunynd
sem heitir Go. Fram undan á
Skemmtanir
Gauknum eru skemmtikvöld
með Botnleðju, Buttercup og
dönsku hljómsveitinni Weed.
Vágakórinn
Færeyski kórinn Vágakórinn
frá Vágum heldur tónleika í
Safnaðarheimilinu Vinaminni á
Akranesi í kvöld kl. 20. Á efnis-
skránni er bæði veraldleg og
kirkjuleg tónlist, frá Færeyjum,
íslandi og öðrum löndum.
Stjórnandi kórsins er Jónvor
Joensen.
Veðrið í dag
Bjart og hlýtt á
höfuðborgar-
svæðinu
Við Færeyjar er nærri kyrrstæð
1002 mb lægð og önnur 1005 mb sem
grynnist er um 1100 km suðvestur af
landinu. Norður og vestur af íslandi
er dálítill hæðarhryggur.
í dag verður hæg norðlæg eða
breytileg átt. Skýjað að mestu allra
austast og þokuloft við norður-
ströndina fram eftir degi og i nótt, en
annars bjart veður viðast hvar. Hiti
10 til 20 stig að deginum, hlýjast í
innsveitum sunnan- og vestanlands.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
fremur hæg breytileg átt og léttskýj-
að. Hiti 9 til 18 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 23.59
Sólarupprás á morgun: 03.04
Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.45
Árdegisflóð á morgun: 07.45
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri þokuruóningur 11
Bergsstaðir þoka í grennd 7
Bolungarvík þoka 6
Egilsstaðir 8
Kirkjubœjarkl. léttskýjað 15
Keflavíkurflv. léttskýjaó 11
Raufarhöfn skýjað 9
Reykjavík léttskýjað 11
Stórhöfói þokumóóa 9
Bergen skýjaó 13
Helsinki léttskýjaö 19
Kaupmhöfn léttskýjaó 19
Ósló súld 13
Stokkhólmur 18
Þórshöfn alskýjaö 9
Þrándheimur skýjaö 15
Algarve heiöskírt 22
Amsterdam súld 16
Barcelona léttskýjaó 20
Berlín skýjaö 19
Chicago alskýjaö 17
Dublin skýjaó 11
Halifax súld 18
Frankfurt rigning á síð.kls. 18
Hamborg hálfskýjaö 18
Jan Mayen þoka 6
London léttskýjaö 12
Lúxemborg rigning á síö.kls. 15
Mallorca heiöskírt 20
Montreal léttskýjaö 17
Narssarssuaq skýjaö 7
New York skýjað 23
Orlando alskýjaö 23
París alskýjaö 16
Róm
Vín léttskýjaö 20
Washington rigning 22
Winnipeg 12
Víða verið að
lagfæra vegi
Hálendisvegir eru nú að opnast hver af öðrum. Nú
er til að mynda orðið fært um Fjallabaksleið nyrðri,
í Lakagiga, um Kjalveg, í Kverkfjöll og Þríhyrnings-
leið, einnig er fært í Drekagil við Öskju.
Færð á vegum
Víða á vegum er verið að leggja bundið slitlag og
eru vegfarendur sérstaklega beðnir um að virða merk-
ingar um lækkaðan umferðarhraða á vinnusvæðum
vegna hættu á skemmdum á bilum og vegum.
Út vikuna verður Grafningsvegur nr. 360 lokaður
í Sigríðarkleif.
Ástand vega
4^- Skafrenningur
E3 Steinkast
E1 Háika
Q) Ófært
@ Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
03 Þungfært © Fært fjallabílum
Daniel Roberto
Litli drengurinn, sem er i fangi
systur sinnar, fæddist í Tulsa,
Oklahoma. Drengurinn, sem feng-
ið hefur nafnið Daniel Roberto
David, fæddist 20. september síö-
Barn dagsins
astliðinn. Við fæðingu var hann
3540 grömm og 50 sentímetrar.
Foreldrar hans eru Ásbjörg Magn-
úsdóttir og Daniel David. Daniel
litli á tvær systur, Elísabetu Rós,
--------- þriggja ára (sem heldur
á honum) og Elvu Eik,
_________ sjö ára.
Sean Connery og Catherine Zeta-
Jones leika aðalhlutverkin í
Entrapment.
Gildrur
Aðalpersónurnar í Entrapment,
sem Saga-Bíó og Regnboginn sýn-
ir, eru listaverkaþjófurinn Robert
MacDougall (Sean Connery) og
tryggingarlöggan Virginia Baker
(Catherine Zeta-Jones). Þegar
Rembrandt-málverki er stolið tel-
ur Virgina víst að snjallasti lista-
verkaþjófur heims hafi stolið því
og biður um að fá að leggja gildru
sem hann falli örugglega í. Hún
dulbýr sig því sem þjóf með millj-
ón dollara hugmynd og leggur
snöru sína fyrir MacDougall.
Ekki er vert að fjalia
meira um söguþráð- '/////////
Kvikmyndir '(ýtiijL
inn enda er ekki allt \
sem sýnist í fyrstu og
ekki er heldur allt sem sýnist eftir
að grímumar byrja að falla.
Sean Connery og Catherine
Zeta Jones hafa bæði mikla út-
geislun í myndinni og eru hlut-
verkin eins og sköpuð fyrir þau.
Leikstjóri er Jon Amiel.
Nýjar myndir í kvikmynda-
húsum:
4
C
Bíóhöllin: Matrix
Saga-Bíó: Entrapment
Bióborgin: Lolita
Háskólabíó: Perdita Durango
Háskólabíó: Celebrity
Kringlubíó: 10 Things I Hate
About Her
Laugarásbíó: Austin Powers
Regnboginn: She's All That
Stjörnubíó: Cruel Intentions
Krossgátan
1 2 3 4 5 6 7
8
9 10 11
12 13 14
15 16
17 18
19 20
Lárétt: 1 flækja, 6 lést, 8 ringulreið,
9 veröld, 11 gegnsæ, 12 hratt, 13
kraft, 15 bundinni, 17 starfandi, 18
sneril, 19 starf, 20 bjálki. Lóðrétt: 1
kinnung, 2 þegar, 5 hafnar, 4 myrk,
5 varúð, 6 lægð, 7 hamagangurinn,
10 torveld, 12 hvetji, 14 loddara, 16
henda, 18 titill.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 hjálp, 6 vó, 8 lóga, 9 ríg, 10
áræðinn, 11 kát, 13 akka, 15 ataði, 17
rá, 19 sögina, 20 æki, 21 mpl.
Lóðrétt: 1 hláka, 2 jór, 3 ágæt, 4 lað-
aði, 6 vín, 7 ógna, 12 átök, 14 krap, ,
16 agi, 18 áll.
Gengið
Almennt gengi LÍ 30. 06. 1999 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 74,140 74,520 74,600
Pund 116,730 117,330 119,680
Kan. dollar 50,240 50,550 50,560
Dönsk kr. 10,2980 10,3550 10,5400
Norsk kr 9,4450 9,4970 9,5030
Sænsk kr. 8,7590 8,8070 8,7080
Fi. mark 12,8722 12,9496 13,1796
Fra. franki 11,6676 11,7378 11,9463
Belg. franki 1,8972 1,9086 1,9425
Sviss. franki 47,7800 48,0400 49,1600
Holl. gyllini 34,7299 34,9386 35,5593
Þýskt mark 39,1316 39,3667 40,0661
ít. líra 0,039530 0,03976 0,040480
Aust. sch. 5,5620 5,5954 5,6948
Port. escudo 0,3818 0,3840 0,3909
Spá. peseti 0,4600 0,4627 0,4710
Jap. yen 0,611900 0,61560 0,617300
írskt pund 97,179 97,763 99,499
SDR 98,970000 99,56000 100,380000
ECU 76,5300 76,9900 78,3600
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270