Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Qupperneq 43
EÞ"V LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999
51
%ridge
Italir Evrópumeist-
arar enn einu sinni
ítalir eru á góðri leið með að end-
urheimta þá yfirburðastöðu sem
þeir höfðu í bridgeheiminum á
sjötta og sjöunda áratugnum en þeir
bættu við sig þriðja Evrópumeist-
aratitlinum í röð á Möltu.
Evrópumeistararnir eru Att-
anasio, Failla, Duboin, de Falco,
Bocchi og Ferrari. Fyrirliði er
Moska, gamalþekktur Evrópumeist-
ari. Svo miklir voru yfirburðir ítal-
anna að þeir höfðu þegar tryggt sér
Evrópumeistaratitilinn þegar einni
umferð var ólokið. í öðru sæti voru
Svíar, þriðja Noregur, fjórða
Búlgaría, fimmta sæti Frakkland og
síðastir til þess að tryggja sér sæti í
næstu heimsmeistarakeppni, voru
Pólverjar.
ísland má muna sinn fifil fegri en
sveitin endaði í 21. sæti með 547 stig
og hafði reyndar verið viðloðandi
það allan tímann.
í kvennaflokki sigruðu Englend-
ingar með hálfu vinningsstigi eftir
harða keppni við Austurríkismenn.
í þriðja sæti voru Frakkar, fjórða
Hollendingar, i því fimmta Þjóðverj-
ar og lestina, af þeim sem náðu í
næstu heimsmeistarakeppni, ráku
Danir. íslenska sveitin endaði í 17.
sæti með 279 stig.
Einnig var keppt í flokki (h)eldri
spilara og þar sigraði frönsk sveit
með marga fyrrverandi Evrópu-
meistara innanborðs.
Frammistaða spilara var reiknuð
út eftir Butler-útreikningi en það er
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
hægt þegar sömu spil eru spiluð á
öllum borðum. Efstir voru Evrópu-
meistararnir Bocchi og Duboin með
0,74 impa að meðaltali í 620 spilum.
í íslensku sveitinni trónaði Þröstur
Ingimarsson á toppnum með 0,38
impa í 520 spilum. Næstur var
Magnús Magnússon með 0,35 i 540
spilum, síðan kom Ásmundur Páls-
son með - 0,08 í 500 spilum, þá Jak-
ob Kristinsson með - 0,10 í 540 spil-
um og lestina ráku 'bræðurnir frá
Akureyri, Sigurbjörn og Anton með
- 0,50 í 400 spilum. Ragnar Her-
mannsson fyrirliði virðist því hafa
brugðið á það ráð að „splitta"
pörum til þess að laga árangur-
inn.
í kvennaflokki var einnig reikn-
aður út Butler-árangur og þar voru
efstar Esther og Ljósbrá með - 0,03 í
360 spilum, aðrar Hjördís og Ragn-
heiður með - 0,29 í 300 spilum og
þriðju Anna og Guðrún með - 0,43 í
300 spilum.
íslenska sveitin í opna flokknum
átti góða spretti á milli vondra tapa
og við skulum skoða eitt skemmti-
legt spil frá viðureigninni við erkifj-
endurna, Pólverja.
s/o * - V 3
4 A10876542
4 Á10963 * KG87 4 K8742
N
* KG65 V A 4» D1094
4 G3 4 K
* 43 S * D92
4 DG5
4» Á872
4 D9
* Á1065
í opna salnum sátu n-s Þröstur og
Magnús. Þar gengu sagnir á þessa
leið :
Suður Vestur Norður Austur
1 * 14 2 4 2 4
2 grönd pass 3 4 dobl
pass pass 6 * Allir pass.
Austur spilaði út spaðaás, sem
Magnús trompaði í blindum. Spilið
er mjög viðkvæmt og þolir alls ekki
vonda legu í lágu litunum.
Til greina kemur að spila strax
laufgosanum og láta hann fara ef
ekki er lagt á. En síðan á eftir að ná
tígulslögunum. Magnús leysti málið
snilldarlega. Hann spilaði litlum
tígli í öðrum slag. Austur drap á
kóng og gat lítið gert. Best virðist að
spila spaðakóng og stytta blindan í
trompi. Það dugir hins vegar lítið,
því þá er aðeins ein leið til þess að
ná trompdrottningunni. Hann
reyndi því hjarta, en Magnús var
með stöðuna á hreinu. Hann drap á
ásinn, spilaði laufi á kóng og svín-
aði síðan gosanum. Unnið spil og 11
impa gróði.
Á allflestum borðum voru spilað-
ir fimm tiglar og meðal annars voru
Ásmundur og Jakob í vörn gegn
fimm tíglum á hinu borðinu. Það
gefur augaleið að spilið gaf vel í
Butler-útreikningi.
ítölsku Evrópumeistararnir ásamt aðstoðarfólki.
Heppinn áskrifandi fær SONY
heimabíó frá Japis sem er:
og auk þess:
agita
raj-
14" sambyggt sjónvarp og vídeó, ferðageislaspilara fyrir öll börn
og unglinga á heimilinu sem eru yngri en 18 ára.
Dregið 20. ágúst
Vikulega verður dreginn
út áskrifandi sem fær
kr. 30.000 í vöruúttekt að
eigin vali í Útilífi.
Heildarverðmæti vinninga er
700.000 kr.
UTILIF
JAPISe