Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1999, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999
Fréttir
Ekkert nema að
negla fyrir og fara
- segir íbúi á Þingeyri og skipverji á Sléttanesi ÍS
DV, Þingeyri:
„Auðvitað bregður manni við að fá
svona fréttir. Maður er með fjölskyldu
hér og á hús á staðnum. Við erum að
vona aö skipið verði selt einhverjum
þeim aðilum að áhöfnin geti haldið
plássum sínum. En maður óttast um að
skipið fari til Akureyrar og þeir hirði
af því kvótann og selji það svo úr landi.
Ég veit ekki hvað verður ef allt fer á
versta veg, þá er litla vinnu að hafa hér
á Þingeyri," segir Sigurður Marteinn
Magnússon, skipverji á Sléttanesi ÍS.
Sem kunnugt er hefur útgerðarfyrir-
tækið Básafell ákveðið að selja frá sér
tvo frystitogara, Orra ÍS og Sléttanes ÍS
sem selt verður með aflaheimildum.
Áhöfn Sléttaness er að verulegum
hluta frá Þingeyri og hafa þessi tíðindi
heldur aukið á
svartsýni heima-
manna á framtíð
staðarins. En fyrir
eru um hundrað
manns án atvinnu
á Þingeyri eftir
lokun Rauðsíðu og
enn á eftir að bæt-
ast við atvinnu-
lausa þegar upp-
sagnir hjá Unni
ehf. taka gildi en
þar hefúr öllu
starfsfólki verið
sagt upp störfum vegna erfiðleika í
rekstri. Halldór Lárus Sigurðsson,
skipverji á Sléttanesi, tekur mjög í
sama streng og Sigurður og segir þess-
ar fréttir mikið áfall.
„Menn bregðast
vitanlega illa við.
Við vorum úti á
sjó í mánaðartúr
þegar við fréttum
af þessu eftir flöl-
miðlum. Það var
reynt að henda
gaman að þessu í
borðsalnum til að
áhöfnin missti sig
ekki niður á þung-
lyndisplan. Það
var mjög erfitt fyr-
ir suma áhafna-
meðlimi að fá þessar fréttir. Menn
göntuðust með að fara og fmna sér létta
vinnu í landi, keyra strætó eða eitt-
hvað. Menn eru búnir að tapa öllu ef
þeir tapa vinnunni og þá er engin fram-
tíð hér lengur. Þá er ekkert annað en
að negla fyrir gluggana og fara héðan.
Þetta tekur á,“ segir Halldór Lárus.
Nokkur ólga er meðal skipveija
vegna þess að áhöfhinni hafi ekki ver-
ið kynnt hvað til stæði í stað þess að
þeir hafi fengið allar upplýsingar úr
fjölmiðlum.
„Útgerðin hefur ekki talað við
nokkum mann af skipinu. Þeir voru
búnir að segja að þeir myndu láta okk-
ur vita ef breytingar yrðu á útgerðar-
mynstri fyrirtækisins. Við vitum ekk-
ert hvað stendur til eða hvert skipið
fer. Okkur fmnst líka skrýtið ef Bása-
fell getur haft meira upp úr land-
vinnslu heldur en sjófrystingunni sem
önnur fyrirtæki hafa verið að snúa sér
að,“ segir Halldór Lárus. -GS"
Halldór Lárus Slg-
urðsson, Þingeyr-
Ingur og skipverji á
Sléttanesi ÍS.
DV-myndir GS
Sigurður Marteinn
Magnússon, skip-
verji á Sléttanesi IS
og íbúi á Þingeyri.
Þingeyri:
Vítahringur
- segir Ragnar Guðmundsson sjómaður
DV, Þingeyri:
„Það er endalaust verið að þrengja
að manni, ég var með trillu í dagakerf-
inu en svo var búið að skerða svo
sóknarmöguleikana að ég gafst upp og
fékk mér trillu á aflamarki. Þannig að
það má segja að maður sé aftur kom-
inn á byrjunarreit. Ég hef landað aflan-
um hjá íshúsfélaginu á ísafirði, tonn á
móti tonni sem kallað er. En nú veit
maður ekkert hvað verður um þau við-
skipti eftir nýjustu sviptingar á fyrir-
tækjamarkaðnum héma,“ segir Ragn-
ar Guðmundsson, trillusjómaður á
Þingeyri.
Ragnar segir engan rekstrargrund-
völl fyrir bátinn nema að fiskkaupandi
leggi til kvóta á móti útgerðinni og á
Þingeyri sé ekki til neinn kvóti til þess
og því séu menn tilneyddir til að selja
aflann burt úr þorpinu.
Harður árekstur varð á brúnni á mótum Skeiðarvogs og Miklubrautar í gær-
dag. Var það þriggja bíla árekstur og var einn ökumaður fiuttur á slysadeild
með háls- og bakmeiðsl. Þegar ijósmyndara DV bar að garði var verið að
setja hálskraga á þann sem meiddist. Þarf að fara mjög varlega með þá sem
meiðast á baki og hálsi. DV-mynd S.
Ragnar Guðmundsson, trillukarl á Þingeyri, býr bát sinn til sjóferðar. DV-mynd GS
„Þetta er vítahringur og það er
sama hvert litið er, menn geta bara
ekki bjargað sér. Við verðum að fá að
róa eftir fiski, það er eini grundvöllur-
inn fyrir þessum þorpum. Þau byggð-
ust upp á sjósókn en nú er búið að taka
þessi réttindi af okkur. Þingeyri er
bara byrjunin, hnignunin verður mjög
ör núna og það á eftir að þrengja veru-
lega að ísafirði."
Sem kunnugt er hefur verið mik-
ill fólksflótti frá Vestfjörðum að
undanfomu og vandséð að breyting
verði þar á nú eftir að enn hefur
verið boðaður samdráttur í atvinnu-
lífmu til viðbótar þeim hremming-
um sem nokkur fiskvinnslufyrir-
tæki á svæðinu voru komin í.
„Það er ekki óeðlilegt þó fólk sé far-
ið að hugsa sér til hreyfmgs. Það getur
ekkert annað gerst í þessu framhaldi.
Bamafólk sem þarf að sjá fyrir íjöl-
skyldu verður að fara í burtu til að fá
atvinnu verði ekki breyting á ástand-
inu hér. Þetta er svakalegt, því það er
gott að búa á Þingeyri og staðurinn fal-
legur. En fólk neyðist til að fara. Og í
framhaldinu lækkar þjónustustigið á
staðnum. Þó ég geti skrimt með mína
trillu héma þá mun ég fara ef dregið
verður t.d. úr skólahaldi hér og farið
með bömin tO ísafjarðar í skóla. Ef það
verður gert fer ég örugglega héðan á
þeim tímapunkti," segir Ragnar. -GS
Metafli hjá Málmey á íslandsmiðum:
Verðmæti mánaðartúrs 122
DV.Sauðárkróki:
„Þetta var hreint ótrúlegt hvað
allt gekk upp hjá okkur í þessum
túr. Margir samverkandi þættir en
fyrst og fremst það að við fórum
rétt í. hlutina og erum á réttu róli
allan tímann," sagði Guðmundur
Kjalar Jónsson, skipstjóri á frysti-
skipinu Málmey SK-1, en skipið
kom til hafnar á Sauðárkróki 6.
júlí að lokinni ákaflega velheppn-
aðri veðiferð. Það var 29 daga að
veiðum og aflaði fyrir 122 milljón-
ir, sem menn ætla að séu mestu
aflaverðmæti úr mánaðartúr ís-
lensks fyrstiskips á íslandsmiðum.
Þess ber þó að geta að eftir 16 daga
var landað í Reykjavík til að létta
á og í það fór 11/2 sólarhringur frá
veiðum. Gróflega áætlað er háseta-
Viö komuna til Sauðárkróks í gær, Guðmundur Kjalar
Jónsson skipstjóri, Björn Jónsson stýrimaður og Harald-
ur Birgisson háseti. DV-mynd Þórhallur
hluturinn úr veiðiferðinni rúmar
1,2 milljónir króna.
Guðmundur
Kjalar skipstjóri
sagði að fyrst
hefði verið hald-
ið í grálúðu
vestur fyrir
land að miðlínu
milli íslands og
Grænlands.
„Við lentum
í mokveiði og
öfluðum fyrir
að meðaltali 7,2
milljónir á sól-
arhring og
kláruðum það
sem við mátt-
um veiða af
grálúðunni á 9
dögum. Þá héldum við suður fyrir í
karfann og lentum í mokfiski þar
milljónir
líka. Eftir 16 daga var landað í
Reykjavík. Þá fórum við suður fyrir
aftur og síðan suðaustur um og end-
uðum túrinn í þorski og ufsa. Við
sigldum því hringinn í kringum
landið í þessari veiðiferð," sagði
Guðmundur Kjalar.
Afli upp úr sjó úr túrnum er um
850 tonn, sem gerir um 500 tonna af-
urðir. Þar af voru rúm 300 tonn af
grálúðu, sem er verðmætasta teg-
undin og gerir 65 milljónir í afla-
verðmæti. Næstmest var af karfan-
um, þá af þorski og minnst af ufsan-
um. Það er aflasamsetningin sem
skapar aflaverðmætin, ekki magnið,
enda er veiðin í túrnum einungis
rúmlega meðaltúr á árinu. Alls er
skipið búið að veiða um 4000 tonn í
5 veiðiferðum frá áramótum. Verð-
mæti 454 milljónir. -ÞÁ
Stuttar fréttir r>v
Líknardeild lokað
Líknardeild Landspítalans í Kópa-
vogi, sem opnuð var með viðhöfn í
apríl sl., verður lokuð í mánuð í
sumar og sjúklingarnir sendir á aðr-
ar deildir á meðan. Ekki hefur tekist
að fá fólk til sumarafleysinga. Vís-
ir.is sagði frá.
Góðærismerki
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
sagði í samtali
við fréttastofu
Stövar 2 að
ástæðulaust væri
að hafa áhyggjur
af vaxandi skuld-
um heimilanna,
þær væru skýrt góðærismerki. Van-
skil þeirra væru á hinn bóginn
áhyggjuefni, en spamaður mætti
vissulega vera meiri.
Faxamjöl á skilorði
Samtök ferðaþjónustunnar hafa
gert alvarlegar athugasemdir vegna
ólyktar frá fiskimjölsverksmiðju
Faxamjöls í Örfirisey 25. og 26. júní.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
sfjóri hefur sent Faxamjöh hf. áminn-
ingu vegna ítrekaðra brota á mengun-
arvamareglugerðum og hótað að
svipta verksmiðjuna starfsleyfi.
Stjórnendur fiskimjölsverksmiðjunn-
ar harma mengunina.
Þrefað í Hafnarfirði
Deilur em í bæjarstjóm Hafnar-
flarðar um funm ára rammafjárhags-
áætlun bæjarsjóðs sem samþykkt var
í gær, meðal annars um hugmyndir
um að fela einkaaðilum kennslu í
skólum og leikskólum. Minnihluti
Alþýðuflokks og Fjarðarlista hafnar
áætluninni alfarið og ætlar að leita
allra ráða í samvinnu við bæjarbúa
að hrinda henni. RÚV sagði frá.
Nýr bæjarstjóri
Bæjarsfjóm Stykkishólms hefm
samhljóða samþykkt að ráða Óla Jón
Gunnarsson, oddvita sjáifstæðis-
manna í Borgarbyggð, sem bæjar-
stjóra. Hann tekur við starfinu í
ágúst að sögn RÚV.
Samið við Norðmenn
Samstarfs-
samningm við
Norðmenn um
veiðieftirlit hefm
verið kynntm í
ríkisstjóminni.
Ámi M.
Mathiesen sjávar-
útvegsráðherra
segir við RÚV að samningminn sé
mikilvægm ef tortryggni skapast.
Vál Kilmer til íslands
Tökm á bandarísku kvikmynd-
inni Mars hefjast hér á landi í næsta
mánuði. Meðal leikara í myndinni
era Val Kilmer og Carrie-Anne
Moss. Stöð 2 sagði frá.
Vesturfarasafn í Gimli
Ákveðið hefm verið að koma á fót
vesturfarasetri í Gimli í Kanada.
Fyrsta skóflustungan var tekin á
laugardag. Morgunblaðið sagði frá.
Náttúruspjöll
Borgarverkfræðingm og Borgar-
skipulag Reykjavíkm telja hug-
myndir um flugvöll i Skeijafirði eða
Engey óraunhæfar. Mikil náttúm-
spjöll fylgdu slikum framkvæmdum.
Hugmyndir um funrn þúsund manna
byggð á fyUingum við Örfirisey og
2000 manna byggð á fyUingu við
Skerjafjörð við Ingólfsgarð séu hins
vegar áhugaverðir kostir.
Halldór í Seðlabankann
HaUdór Guð-
bjamason, fyrr-
verandi banka-
stjóri Landsbank-
ans, verðm ráð-
inn nýr seðla-
bankasfjóri og
verðm gengið frá
ráðningu hans í
næsta mánuði, samkvæmt fréttum
Stöðvar 2. Hann sest í stól Stein-
gríms Hermannssonar sem verið
hefúr iaus í rúmt ár, frá því að Stein-
grímm hætti.
Ræktuðu hass
Héraðsdómm Reykjaness hefúr
dæmt þijá meim á fertugsaldri tU 2-3
mánaða fangelsisvistar fyrir að
rækta kannabisplöntm. -SÁ