Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
33
£
(Ö
N
Sh
(Ö
Eh
£
>
w
co
cn
(ð
£
£
co
co
' pH
o
T3
£
:0
co
,<D
u
5
inn, Tarzan!
kvöldið - segöu þá
að flýja! .
Myndasögur
ff Eg er aö búa til ^
vængi. ég er öruggur
um aö maöur getur
flogið niöur af
þakinu_____>
V
f'Eg þori aö veöja
|upp á fimmtiu kall |
laö þú brýtur á þér
Uappirnar, Mummi.
T
|2
Þú hefur tapaö fimmtiu
kallinum, Venni vinur. Því
’að þaö ert þú sem án aö
reyna þetta fyrstur.
Nú skalt þú gleyma öllu sem ég
kenndi þér um spjótkast, Púki.
/
Veiðivon
Björg Pálsdóttir með maríulaxinn
sinn nokkrum mínútum eftir löndun
hans en hann var 6 pund og veidd-
ist á maðk.
Guðmundur Pálsson með fjögurra
punda lax en alls veiddust 3 laxar í
veiðitúrnum.
Laxveiðin:
Hvað er að
„klikka“?
„Við voram að fá lax en ekki mik-
ið og þetta voru ekki lúsugir laxar
en einn og einn var það. Göng-
umar vora alls ekki öflugar eins og
maður átti von á. Þetta ætti að vera
góður veiðitími," sagði Rögnvaldur
Guðmundsson sem var við veiðar í
Blöndu í vikunni. Veiðin hefur
samt verið í lagi í Blöndu en það
sama verður ekki sagt um Svartá.
Þar gengur veiðiskapurinn rólega,
svo ekki sé meira sagt.
Laxveiðimenn og spáspekingar
hafa miklar áhyggjur af laxveiðinni
í sumar en eina svæðið sem kemur
ágætlega út er Borgarfjörðurinn.
Þar eru fengsælustu veiðiárnar
þetta sumar eins og staðan er núna,
Þverá, Norðurá og Grímsá.
Þá koma Blanda, Rangárnar,
Laxá í Kjós og Langá á Mýrum sem
halda í við þær.
Laxagöngumar vora góðar til að
byrja með á flestum stöðum á land-
inu en síðan hefur þetta dalað. Það
vantar bara lax í margar veiðiár og
göngumar hafa oft verið öflugi'i.
Tvær frægustu veiðiár
landsins slappar
Veiðin er ekki neitt til að hrópa
húrra yfir í Laxá í Aðaldal og Laxá
á Ásum. Laxá í Aðaldal, þessi
drottning veiðiánna, er ekki svipur
hjá sjón.
Veiðimenn fá lítið sem ekkert dag
eftir dag og laxagöngur í ána eru
litlar. Aðeins einn 22 punda lax hef-
ur veiðst í ánni sem var fræg fyrir
stórlaxa. Laxá í Aðaldal hefur að-
eins gefið 350 laxa á móti næstum
900 fyrir ári og bændur héldu neyð-
arfund. Það verður eitthvað að gera
og sú staðreynd að sandburðurinn
er að gera laxinum í Laxá lífið leitt
er staðreynd, hlutur sem hefði átt
að vera ljós fyrir löngu.
Laxá á Ásum, þessi langdýrasta
veiðiá landsins, hefur aðeins gefið
230 laxa á móti um 850 fyrir ári á
þessum tíma. Það er hreint ekki í
lagi þegar erlendur veiðimaður
kemur og veiðir í fjóra daga og fær
6 laxa. Og fyrir þetta borgar hann
með öllu sextán hundruð þúsund
sem þýðir aö laxinn kostar um 280
þúsund.
Þetta getur ekki orðið verra
næsta sumar
Það var mikil bjartsýni til að
byrja með þegar veiðiskapurinn
hófst.
Lax var kominn í margar veiðiár
og sums staðar mikið. Náttúruöflin
hafa lika spilað inn í þetta í sumar,
eins og fyrir austan. Veiðimaðurinn
sem var að koma af fyrsta og öðru
svæðinu í Stóra-Laxá í Hreppum sá
ekki sporð, enda voru aöeins komn-
ir 3 laxar og síðasti laxinn veiddist
29. júní. Þetta era hlutir sem auðvit-
að enginn getur séð fyrir, enda ekki
skemmtilegt að vera búinn að
kaupa veiðileyfi á svæðinu. Við
fréttum af einum sem keypti veiði-
leyfi í vetur í Stóru-Laxá í Hreppum
fyrir 250 þúsund. Hann nagar bara
veiðileyfm þessa dagana.
Já, það hefur eitthvað meira en
lítið „klikkað" þetta sumarið eins
og hefur reyndar oft gerst áður. Lax-
Veiðivon
Gunnar Bender
veiðin er lotterí sem stundum geng-
ur upp, stundum ekki.
Við fréttum af veiðimönnum sem
höfðu keypt sér í veiðileyfi í Stóru-
Laxá og þar fengu þeir auðvitað
ekki neitt, síðan fóru þeir í Laxá á
Ásum og fengu engan, þá lá leiðin í
Laxá i Aðaldal og þar fengu þeir
ekki neitt. Þrír stórir veiðitúrar og
enginn lax - gat þetta verið verra? ;
Ég held varla og þó, þeir sátu síð-
asta morguninn við Æðarfossa og
horfðu út á hafíð. Þá sagði annar,
örugglega til að hughreysta hinn,
hann var jú langt niðri, blessaður.
„Heyrðu, Stebbi, það er einn ljós
punktur í þessum veiðiskap, hann
getur ekki orðið verri næsta sumar,
við ætlum jú aftur í sömu laxveiði-
árnar.“
ÞÍN FRÍSTUND
-OKKAR FAG
%4INTER
W SPORT
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020
• www.intersport.is