Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1999, Page 32
Vinningstölurlaugardagirm: 31.
9
14
X.
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
1. 5af 5 1 3.555.800
2. 4 af S*«f 2 164.740
3. 4 af 5 55 10.330
4. 3 af 5 1.968 670
EgFRETTASKOTIÐ
iSÍMINNSEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
f hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
1 550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 1999
Slapp naumlega úr lífsháska á ferðalagi:
7 ára í stjórnlausum
bíl niður fjallshlíð
- skelfilegt augnablik, segir móðir drengsins
Litlu mátti muna að stórslys yrði
síðastliðinn fostudag þegar sjö ára
gamall drengur rann niður Qaíishlíð
á stjórnlausum bíl sem hann var
einn í. Tildrög slyssins voru þau að
fjölskylda drengsins, sem var á ferð-
lagi, hafði áð við svokallað Krubbs-
fjall rétt hjá Húsavík og var bilnum
lagt á veginum sem liggur eftir fjall-
inu. Drengurinn fór hins vegar aft-
f ur inn í bOinn og rak sig þá I hand-
bremsuna með þeim afleiðingum að
bíllinn rann stjórnlaust af stað.
Rann harm fram af brún fjallsins og
niður hlíðina með drenginn einan
innanborðs. Mesta mildi var að bUl-
inn, sem talinn er gjörónýtur, stöðv-
aðist á stórum steini í fjallshlíðinni
sem er mörg hundruð metra há.
Foreldrum drengsins tókst sjálfum
að bjarga drengnum út úr bílnum
og aftur upp á veg en kallað var á
lögreglu og sjúkralið til að flytja
drenginn til Húsavikar.
Að sögn Pálínu Fanneyjar Skúla-
dóttur, móður drengsins og org-
anista á Húsavík, er það nánast
kraftaverk hversu vel drengurinn
slapp.
„Það var alveg skelfilegt augna-
blik að horfa á eftir drengnum
renna af stað í bílnum og við vorum
eiginlega alveg lömuð. Hann var
bara á stuttbuxum og því illa vEirinn
gegn hnjaski. Þess vegna er ótrúlegt
og eiginlega algert kraftaverk
hversu vel hann slapp. Það þurfti
einungis að sauma tvö spor í ennið
á honum. Hann virðist hafa jafhað
sig ótrúlega fljótt því hann hefur
ekki fengið neinar martraðir og fór
fljótt út að leika sér. Það er frekar
að við foreldramir höfúm verið í
sjokki."
-GLM
Samtök atvinnulífsins:
Almenn sátt um Finn
Miklar lfkur eru nú á að Finnur
Geirsson, forstjóri Nóa-Síríusar,
verði fyrsti formaður Samtaka at-
vinnulífsins. DV greindi á fimmtu-
dag frá áhuga formannahópsins
svokallaða á Finni sem formanns-
efni. Nú segja heimildir blaðsins
að tillaga um Finn sem næsta for-
mann verði lögð fyrir hópinn í
vikunni og að þar ríki irni hann al-
menn sátt. DV ræddi við þrjá
stjórnarmenn í formannahópnum,
þá Kristján Ragnarsson, formann
LÍÚ, Ólaf Ólafsson, forstjóra Sam-
skipa, og Ólaf B. Ólafsson,
formann VSÍ. En enginn
þeirra treysti sér til að
staðfesta tiílögu um Finn.
Hin nýju samtök verða
stofnuð 15. september. Þá
renna saman VSÍ ásamt
aðildarfélögiun, Vinnu-
málasambandið og Samtök
viðskiptabanka. Aðildarfé-
lög VSÍ, sem eru mörg og
hafa mismunandi og oft andstæðra
hagsmuna að gæta, eru: Samtök
iðnaðarins, Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna,
Samtök fiskvinnslustöðva,
Landssamband íslenskra
rafverktaka, Samtök
ferðaþjónustu og nýstofn-
uð Samtök verslunar og
þjónustu, auk beinna að-
ila.
í samtal við DV vildi
Finnur Geirsson ekki gefa
upp hvort hann væri til-
búinn að taka starfið að sér.
-GLM/EIS
Finnur Geirsson.
Á Akureyri voru hátt í 140 ökumenn kæröir:
* Ein nauðgunarkæra
- en engin líkamsárás
Þó svo að hátt í hálfur annar tug-
ur þúsunda gesta hafi heimsótt jafn-
marga íbúa bæjarins urðu nánast
engin umferðarslys á Akureyri um
helgina. Hins vegar voru um
130-140 teknir fyrir of hraðan akst-
ur. „Það eru heldur engar kærur
um líkamsárásir, alla vega er eng-
inn illa farinn, þótt einhver hafi
kannski marist á vör,“ sagði Ólafur
Ásgeirsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn.
1 aJr Alvarlegasta tilfelli helgarinnar,
svo vitað sé, er þegar ung stúlka
kærði pilt fyrir nauðgun. Hún var
sögð hafa átt sér stað á tjaldstæðinu
á svæði KA. Ágreiningur var hjá
málsaðilum um hvort ungi
maðurinn svaf hjá stúlkunni með
vilja hennar eða ekki. Fjórar aðrar
stúlkur nutu aðstoðar á neyðarmót-
töku Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri. Ekki liggur fyrir hvort þær
leggja fram kærur.
„Það var auðvitað mikil ölvun í
bænum þótt minnsti hópurinn sé til
einhverra vandræða," sagði Ólafur.
Hann sagði jafnframt að í raun
vissi enginn nákvæmlega hve marg-
ir voru í bænum um helgina þótt
hægt væri að styðjast við ákveðnar
visbendingcir og tölur. Á svæði
skáta voru um 3 þúsund manns í
fjölskyldutjaldbúðum. Á svæði KA
var sviþaður fjöldi og mikið af ung-
lingum með tjaldbúðir og dansleiki.
Á svæði Þórs voru á annað þús-
und manns. Öll gistiheimili bæjar-
ins, hótelrými og orlofsíbúðir voru
fúll og sumir tjölduðu jafnvel í görð-
um ættingja og kunningja ef ekki
var pláss á heimilunum. -Ótt
Þær skemmtu sér vel á Akureyri um helgina, Hanna Rósa, Árný Rós og
Kiddý. Stemningin á Akureyri var rómuð, enda veðrið mjög gott, sérstaklega
á föstudag og laugardag, sólskin og norðlensk blíða. DV-mynd Hari
Mick Jagger:
A Hornströndum
Rollingurinn Mick Jagger sigldi
ásamt fóruneyti sínu frá ísafirði að-
faranótt mánudags og skoðaði sig
um í Vigur þá um nóttina. í gær
ferðaðist hann til Hornvíkur og
skoðaði sig um þar. Jagger mun að
öllum líkindum ferðast um Norður-
land í dag og ættu glöggir Norðlend-
ingar því að hafa augun opin. Rokk-
goðið mun trúlega fara af landinu á
morgun.
Sjá nánar á bls. 2.
-GLM
VORU ALLIR STEINI
LOSTNIR VESTRA?
Veðrið á morgun:
Hiti á bilinu
10 til 20 stig á
landinu öllu
Hæg norðaustlæg eða breytileg
átt og víða bjart veður verður
vestan til, en skýjað með köflum
austanlands. Þokubakkar verða
við sjóinn framan af degi, eink-
um norðan og austan til. Hiti
verður á bilinu 10 til 20 stig.
Veðrið í dag er á bls. 45.
iúrMtar
lliðfesliipr
'€
m
Siniðjuv M:í n r¥«I Ss Æ,
egur 5 200 Kóp. Sími: 535 1200