Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1999, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999
Fréttir
Hugmyndir landbúnaðarráðherra um lægri skatta á landsbyggðinni:
Sveitaskattur Guðna
ekki á borð ríkisstjórnar
„Ég trúi á þessa leið. Ég trúi því
að lægri skattar á landsþyggðinni
dragi fólk þangað og verði til þess
að stöðva fólksflóttann til höfuð-
borgarsvæðisins," sagði Guðni
Ágústsson landbúnaðaráðherra
um þingsályktunartillögu sem
hann flutti á síðasta þingi og fjall-
aði um jöfnun lífskjara og að-
stöðumunar á landsbyggðinni. í
tillögunni er gert ráð fyrir veru-
legum skattaívilnunum
handa þeim sem búa á
landsbyggðinni. „Ég mun
hins vegar ekki fara með
þessa tillögu inn á borð
ríkisstjórnar og gera
kröfu um að hún verði
gerð að stjórnarfrum-
varpi. Ég fer ekki með
byggðamál en mun að
sjálfsögðu halda þessum
Guðni Ágústsson.
sjónarmiðum á lofti í allri
umræðu um þau mál, bæði
innan ríkisstjórnar og á
þingi,“ sagði Guðni og ít-
rekaði þá skoðun sína og
trú að skattaafsláttur á
landsbyggðinni væri
sterkasta vopnið í barátt-
unni gegn fólksflótta til
Reykjavíkur.
Meðflutningsmenn Guðna
að fyrrgremdri þingsályktunartil-
lögu voru framsóknarmennimir
Kristinn H. Gunnarsson, ísólfur
Gylfl Pálmason og Hjálmar Ámason.
í tillögunni var meðal annars gert
ráð fyrir 150 þúsund króna persónu-
afslætti til íbúa ákveðinna land-
svæða til viðbótar þeim sem fyrir er
og að foreldar framhaldsskólanema á
landsbyggðinni fái að nýta persónu-
afslátt bama sinna. -EIR
Svalir í björtu
báli á Bárugötu
Litlu munaði að eldur kæmist í þak
íbúðarhúss við Bárugötu 7 um kvöld-
matarleyti í gær þegar verið var að
grilla úti á svölum í góða veðrinu. Stóðu
svalimar og það sem á þeim var í björtu
báli þegar slökkvilið kom á vettvang.
Þar sem slökkviliðsmenn vora snöggir á
vettvang með búnað sinn tókst að
slökkva áður en verr fór.
Talið er að gasleki sé orsök brunans.
Að sögn varðstjóra slökkviliðsins era al-
gengustu brunamir af þessu tagi vegna
gasleka. Síðan gerist það gjaman að fólk
kemst ekki í að skrúfa fyrir kútinn.
Varðstjórinn sagði mikilvægt að reyna
að staðsefja grillin sem fjærst eldmat ef
kviknar í og reyna síðan eftir mætti,
það er ef nokkur kostur er og slökkvOið
kemst ekki strax, t.d. í sumarbústaða-
landi, að skrúfa fyrir gaskútinn. -Ótt
Brotist inn í 3 hús
Brotist var inn í þrjú íbúðarhús í
Reykjavík í gær og þaðan stolið
verðmætum. Lögreglunni var til-
kynnt um innbrotin síðdegis um
það leyti þegar fólk var að koma
heim úr vinnu. Einn maður hefur
verið handtekinn vegna eins inn-
brotsins og er í haldi lögreglu.
Hjálmlaus hlaut höfuöáverka
Ungur drengur slasaðist á höfði þegar hann hjólaði þvert á bíl sem ekið var eftir Álfhólsvegi í Kópavogi í gærkvöld.
Drengurinn kastaðist í götuna. Hann var ekki með hjáim og hlaut höfuðmeiðsl. Hann missti meðvitund en rankaði
fljótlega við sér. Hann liggur á sjúkrahúsi en er ekki lífshættulega slasaður. DV-mynd S
Nýr leikskóli í Garði
DV, Suðurnesjum:
Nýr rúmlega
þrjú hundruð
fermetra leik-
skóli hefur verið
tekinn í notkun í
Garðinum. Skól-
inn rúmar 44
böm í tveimur
bekkjardeildum
og bætir úr
brýnni þörf á
leikskólaplássi.
Byggingin
hófst í nóvember
á síðasta ári en
það var Húsagerðin hf. í Reykjanes-
bæ sem var verktaki að húsinu.
Nýr, glæsilegur leikskóll hefur verið
tekinn í notkun í Garði. Fjölmenni
var við vígslu skólans sl. sunnudag.
DV-mynd Arnheiður
Við vígsluna
síðastliðinn
sunnudag flutti
m.a. séra Bjöm
Sveinn Björns-
son blessunar-
orð og Jón
Hjálmarsson,
formaður bygg-
ingamefhdar,
rakti byggingar-
söguna.
1 byggingar-
nefnd hússins
voru, auk Jóns,
Einvarður Al-
bertsson og
Maria Anna Eiríksdóttir.
-AG
Hafnfiröingur fann leið aö sumarvinningum Coca-Cola:
Lýsti með vasaljósi
í gegnum tappana
„Ég komst að þessum leyndar-
dómi fyrir slysni og algera tilviljun.
Ég var með lítið vasaljós heima við
sem ég tyllti sem snöggvast ofan á
kókflösku og þar með var ráðgátan
leyst. Geislinn fór í gegnum tapp-
ann og merkið á tappabotninum
speglaðist í yfirborði kóksins,"
sagði Sighvatur Adam Sighvatsson,
bensínafgreiðslumaður í Hafnar-
firði, um uppgötvun sína sem vakti
kurr í höfuðstöðvum Vifilfells í
Reykjavík þegar fréttist aö búið
væri að finna leið að vinningunum
i sumarleik fyrirtækisins.
„Ég hafði samband við þá hjá Kók
og þeir þökkuðu mér fyrir en sögð-
ust reyndar hafa frétt af öðru slíku
tilviki í Bandaríkjunum. Þar hefði
maður lýst í gegnum kóktappana
með infrarauðu ljósi og þannig séð
sumarvinningana," sagði Sighvatur
sem er 29 ára og neitaði því að-
spurður að hafa notfært sér þessa
þekkingu til að leita vinninga í kók-
flöskum í kjörbúðum. „Ég hefði get-
að gert það en samviska mín bauð
mér annað.“
Sumarleik Coca-Cola er aö ljúka
en vinningar verða greiddir út á
meðan birgðir af sumarflöskunum
endast í verslunum. -EIR
Vasaljós og kókfiaska - allt sem til þarf í sumarleiknum
Stuttar fréttir
Jákvæð athygli
Sr. Bolla Gústavssyni vígslu-
biskupi á Hól-
um fmnst vænt
um að jákvæð
athygli skuli
beinast að Hóla-
hátíð, kirkjuleg-
um höfuðstað
Norðurlands.
Dagur segir frá.
Siv í Færeyjum
Siv Friðleifsdóttir, umhverfis-
ráðherra og ráðherra norræns
samstarfs, er í Færeyjum. Hún
hittir Högna Hoydal, starfsbróður
sinn, í dag og fleiri færeyska
stjórnmálamenn.
Boðin íbúð
Félagsþjónusta Reykjavíkur
hefur boðið íbúa í fjölbýlishúsi að
flytja tímabundið úr eigin íbúð í
íbúð í eigu Félagsbústaða. Þetta
er gert vegna deilna íbúðareig-
andans við nágranna sinn, leigu-
taka hjá Félagsbústöðum.
Þrælabúðir
Signý Jóhannesdóttir, formað-
ur Verkalýðsfélagsins Vöku á
Siglufirði, likir starfsaðstöðu og
vinnuumhverfi starfsfólks Þor
móðs ramma-Sæbergs við þræla-
búðir fremur en fyrirtæki við
upphaf nýrrar aldar. Fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins mót-
mælir þessari lýsingu. Dagur
sagði frá.
Tíminn kemur
Vilhjálmur Ingi Ámason, fyrr-
um burtrekinn
úr framkvæmda-
stjóm Neytenda-
samtakanna,
tekur i Degi und-
ir gagnrýni
JónsMagnúson-
ar á Jóhannes
Gunnarsson for-
mann og segist hafa vitað að hans
tími myndi koma.
Ungliðar þrefa
Á stjórnarfundi SUS í fyrra-
kvöld urðu átök um fulltrúalista á
þing SUS um helgina. Deilt var
um 50 manns sem skipt hafa um
lögheimili síðustu daga. Dagur
segir málið óútkljáð.
Vilja aukaflokksþing
Umhverfisverndarsinnar innan
Framsóknarflokksins hyggjast
fara fram á aukaflokksþing vegna
sinnaskipta Sivjar Friðleifsdóttur
umhverfisráðherra um umhverf-
ismat á Fljótsdalsvirkjun. Siv
studdi tillögu um mat á flokks-
þinginu í október sl. en er á móti
því eftir að vera orðin umhverfis-
ráðherra. RÚV sagði frá.
Tilraunaverksmiðja
Bandarískt fyrirtæki ætlar að
reisa tilraunaverksmiðju á
Reykjanesi þar sem búið verður
til kísilduft úr Hekluvikri. RÚV
greindi frá.
Hópreið aldarinnar
Þann 28. ágúst næstkomandi
ætla Skagfirðingar að standa fyr-
ir hópreið og skemmtun á Vind-
heimamelum. Ákveðið hefur ver-
ið að kalla uppákomuna brennu-
reið og töðugjöld. Markmiöið hjá
aðstandendum samkomunnar er
að mynda stærstu hópreið aldar-
innar á íslandi.
Atkvæði um flugvöll
Ámi Þór Sigurðsson, aðstoðar-
maður borgar-
stjóra, segir að
borgaryfirvöld
íhugi nú að
halda atkvæða-
greiðslu meðal
borgarbúa um
hvernig þeir
vilji nýta
Vatnsmýrar-
svæðið. Hann sagði koma til
greina að Reykjavíkurflugvöllur
fari þaðan. RÚV greindi frá.
Hætta rekstrinum
Mýrdælingur ehf. hefur ákveð-
ið að hætta rekstri hjólabátanna
tveggja sem siglt hafa með ferða-
menn í skoðunarferðir að Reynis-
dröngum undanfarin tíu ár. -SÁ