Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1999, Blaðsíða 36
stölur miðvikudaginn 18.08. ’99
9 17 25 28 34
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gaett. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999
Átökin í SUS!
Niðurstaða
á þinginu
** "Fundinum verður fram haldið á
þinginu og þar fæst niðurstaða i mál-
inu,“ sagði Jóhanna María Eyjólfs-
dóttir, framkvæmdastjóri Sambands
ungra sjálfstæðismanna, við DV í
morgun.
Þing sambandsins verður haldið í
Vestmannaeyjum um næstu helgi.
Eru tveir í framboði til formanns,
Sigurður Kári Kristjánsson og Jónas
Þór Guðmundsson. Listi yfir væntan-
lega þingfulltrúa var lagður fram á
stjórnarfundinum í gærkvöld. Virtust
stuðningsmenn Jónasar Þórs hafa
flutt lögheimili allmargra fulltrúa
sinna. Snerist deilan um það hvort
þeir væru réttkjörnir á þingið. Ekki
tókst að ljúka stjómarfundinum en
«#ramhaldsstjórnarfundur verður á
þinginu um næstu helgi. Jóhanna
María kvaðst ekki vilja tjá sig um efn-
isatriði málsins. -JSS
Ráðherraheimsókn:
Ermakov
á leiðinni
Rússneski sjávarútvegsráðherr-
ann Nikolai Aleksandrocich Erma-
kov er væntanlegur til landsins í
'íateg. Mun hann dvelja hér ásamt
fóruneyti fram á sunnudag og eiga
viðræður við ráðamenn, skoða sjáv-
arútvegsfyrirtæki og kynna sér
landshagi cdmennt. -EIR
Fókus á rúntinum
í Fókusi sem fylgir DV á morgun
fræða sérfræðingar lesendur um
rúntmenningu landsins. Andrea
Brabin talar um þjónana sína átta,
sagt er frá nýjustu uppátækjum list-
arunkarans Egils Sæbjömssonar og
stungið upp á 50 aðferðum sem kon-
i Ifcir geta beitt til að losna við karlinn.
í Lífinu eftir vinnu er svo að vanda
nákvæmur leiðarvísir um menning-
ar- og listalífið.
Hvítur sandurinn í Nauthólsvík, þar sem gerð ylstrandar er langt komin, hefur mikið aðdráttarafl í góðu veðri. Glatt var á hjalla hjá þessum krökkum þegar
Ijósmyndari DV var þar á ferð í sólinni í gær. DV-mynd Teitur
Bensínhækkanirnar:
Ríkið hemji sig
segja talsmenn neytenda
Á þessu ári hafa orðið vemlegar
hækkanir á heimsmarkaðsverði á
bensíni. Vegna þess hve álögur rík-
isins era miklar á bensín verða
hækkanir á útsöluverði innanlands
mun meiri en hækkanir á inn-
kaupsverðinu. Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri Félags ísl. bif-
reiðaeigenda, sagði í morgun að það
væri í raun furðulegt að ríkisvaldið
skuli viðhafa þessa undarlegu verð-
stýringu sem í sjálfu sér er stórlega
verðbólguhvetj-
andi. „Hver
króna sem bens-
ín hækkar um á
heimsmarkaði
bætir á sig einni
og hálfri krónu
hér heima, hara
vegna skatta,“
sagði Runólfur.
„Þegar heims-
markaðsverð á
bensini breytist
er eðlilegt að út-
söluverð breytist
hér innanlands.
orðið meira
Ftunólfur Ólafs-
son, fram-
kvæmdastjóri
FÍB
Undanfarið hefur
samræmi milli verð-
breytinga á
heimsmarkaði og
á útsöluverði hér
innanlands en
áður var. En um
leið og þetta hef-
ur gerst er ríkið
stöðugt að ganga
harðar fram í því
að næla sér í fjár-
muni bifreiðaeig-
enda með auk-
inni skattheimtu.
Henni hefur síð-
Jóhannes Gunn-
arsson, formað-
ur Neytenda-
samtakanna.
ur en svo linnt og þar sjáum við
ekki aukinn skilning. Vegna þessar-
ar skattheimtu, sem óvíða er meiri
á byggðu bóli, þá er grandvöllur til
raunverulegrar samkeppni á bens-
ínmarkaði hér á landi afar takmark-
aður,“ sagði Ámi Sigfússon, for-
maður Félags ísl. bifréiðaeigenda, í
samtali við DV í morgun um nýaf-
staðnar bensínhækkanir og boðaðar
nýjar hækkanir um næstu mánaða-
mót.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, tók í' sama
streng í morgun i samtali við DV.
Hann sagði að
ríkisvaldið hlyti
að þurfa að end-
urskoða skatt-
heimtu sina og
áhrif hennar á
verðlag á bens-
íni, ekki síst í
ljósi verðbólgu-
hvetjandi áhrifa.
-SÁ
Arni Sigfússon,
formaður FÍB.
Ekkert kemur í
veg fyrir hækkun
Bjami Bjamason, fulltrúi for-
stjóra hjá Olíufélaginu, sagði í
morgun að ekkert gæti komið í
veg fyrir olíuverðshækkun í lok
mánaðarins. „Meðalheimsmark-
aðsverð í ágúst var töluvert hærra
en í júlí og við þurfum að taka á
okkur þessa hækkun. Við endur-
skoðum verð á okkar vörum um
mánaðamót en ég get ekkert sagt
um hversu mikil þessi hækkun
verður. Það verður bara að koma
í ljós,“ segir Bjami.
Margir sérfræðingar á erlend-
um mörkuðum telja að olíuverð
geti ekki hækkað endalaust og
getgátur eru uppi um að það sé að
ná hámarki. -bmg
Stjórnarfundur í Neytendasamtökunum í dag:
Búist við afsögn formanns
Stjómarfundur Neytendasamtak-
anna verður haldinn í dag og er búist
við því að hart- verði tekist á. Sam-
kvæmt heimildum DV er jatnvel búist
við því að Jóhannes Gunnarsson, for-
maður samtakanna, segi af sér á fúnd-
inum.
Alvarlegur ágreiningur hefúr verið
innan stjómarinnar sem kom upp á yf-
irborðið nýlega þegar deilur formanns
og varaformanns um afstöðuna til
meints sóðaskapar í rekstri kjúklinga-
bús á Suðurlandi komu upp á yfirborð-
ið. Þá hefúr Viihjálmur Ingi Ámason,
stjómarmaður í Neytendasamtökun-
um, sem fyrir nokkru var vikið úr
framkvæmdastjóm samtakanna, sagt
við fjölmiðla að hann vænti þess að
sinn timi sé kominn á ný innan sam-
takanna. Hann hafi verið rúinn
ærunni fyrir að hafa vakið athygli á að
samtökin notist við stolinn hughúnað í
rekstri sínum. Hann fari fram á afsök-
unarbeiðni og uppreisn æra. -SÁ
Veðrið á morgun:
Hlýjast á
Austurlandi
Á morgun, fóstudag, er búist
við suðvestlægri átt, víða 5-8
m/s og súld öðru hverju vestan-
lands. Skýjað verður með köfl-
um vestan til og hiti verður á
bilinu 12-18 stig, hlýjast á Aust-
urlandi.
Veðrið í dag er á bls. 37.
li € írboltar Múrfestingar
IM' ■Bv=>=iÍ3
clTv l'S ~§í% 25 ==■-
Smiðjuvegur 5 200 Kóp. Sími: 535 1200