Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
7
Fréttir
Manndráp á Grænlandi margfalt fleiri en á íslandi:
Morð er fjölskyldumál
- sekir fara í tveggja til þriggja ára þegnskylduvinnu og fá sumarfrí
Ofbeldi á Grænlandi
- árin 1991-1997
0 0 Ofbeldisglæpir
Manndrap
290 296
345
333
266
311
DV, Kulusuk:
Morð eru aigeng á Grænlandi og öðrum augum virðist litið á slíkan gjörning en á íslandi. Bakkus konungur kemur oftar en ekki við sögu en ekki er honum
einum um að kenna. Myndin er frá Kuumiit en tengist ekki efni greinarinnar að öðru leyti. DV-
Á Austur-Grænlandi eru margfalt
fleiri ofbeldisglæpir og morð framin
en gerist á íslandi og í öðrum vest-
rænum ríkjum. Þegar DV ræddi við
heimamenn og skoðaði skýrslur um
refsingu þeirra er tekið hafa manns-
líf vekur athygli hversu vægar refs-
ingar eru. Þannig er algengast að sá
sem skilgreindur væri sem ótíndur
morðingi á íslandi fái aðeins 2-3 ára
dóm og þá ekki bak við lás og slá
heldur er hann sendur í þegnskyldu-
vinnu til höfuðstaðarins, Nuuk. Það
viðhorf er ráðandi að manndráp sé
fyrst og fremst fjölskyldumál og tek-
ur réttarkerfið á málum í samræmi
við það en tekur ekki á viðkomandi
sem ótíndum glæpamönnum.
Samkvæmt opinberum skýrslum
á Grænlandi eru ofbeldisglæpir ár-
lega á bilinu 266 til 345 ef litið er til
áranna 1991 til 1997. Af þeim glæpum
eru manndráp af yfirlögðu ráði á bil-
inu 3 til 15. Flest voru manndrápin
árið 1991 en árið 1997 voru þau alls
10. Til samanburðar eru morð á ís-
landi á tveggja til þriggja ára fresti.
Ef miðað er við höfðatölu þyrftu ís-
lendingar 15 til 75 morð á ári til að
vera með sömu tiðni en reyndin er
sú að upp kemur eitt morð á tveggja
til þriggja ára fresti á íslandi. Hvað
varðar alla ofbeldisglæpi þyrftu is-
lenskir glæpamenn að fremja á bil-
inu 1300 til 1700 slíka verknaði ár-
lega til að vera með sömu tíðni.
Barn myrt
í ágúst í fyrra kom upp í Kulusuk
mjög gróft morðmál þar sem fórnar-
lambið var 6 ára bam. Baminu var
misþyrmt kynferðislega og það myrt.
Ódæðismaðurinn setti síðan líkið í
plastpoka og faldi. Mikil rannsókn
stóð vikum saman og var á annan
tug íbúa granaðm- um hið hroðalega
athæfi. Eftir ítarlega rannsókn
danskra yfirvalda fannst morðinginn
sem sjálfur var faðir ungs bams en
þó ekki þess sem myrt var. Hann
hafði áður gerst sekur um kynferðis-
glæpi gagnvart börnum og var
dæmdur til þriggja ára þegnskyldu-
vinnu í Nuuk. Samkvæmt heimild-
um DV birtist maöurinn í þessum
mánuði í næsta byggðarlagi við
Kulusuk, Ammasalik, í fríi frá þegn-
skylduvinnunni að því er virtist.
Fram hefur komið í fjölmiðlum að
fjölskylda ódæðismannsins styður
hann undantekningarlaust þrátt fyr-
ir glæpina gagnvart börnum. Hin
væga refsing mannsins vekur mikla
athygli og þá ekki síst í samanburði
við afgreiðslu þeirra einstaklinga á
íslandi sem leggjast á börn til að
þjóna brengluðum hvötum. Talið er •
víst að sá íslendingur sem fremdi
glæp sambærilegan þeim sem
Kulusuk-maðurinn framdi fengi
18-20 ára fangelsi.
Sá sem uppvís verður að kynferð-
isglæpum gagnvart börnum á íslandi
á sér hvergi viðreisnar von og er í
háska þegar hann er fangelsaður.
byssuna af ógnvaldinum og sleppti
ferðamönnunum sem héldu til
byggða og kærðu atburðinn. Þeir
héldu síðan af landi brott og til ís-
lands í mikilli geðshræringu.
Mönnum ber saman um að at-
burður þessi sé nánast einsdæmi og
venjan sé sú að Grænlendingar séu
mjög vinsamlegir ferðamönnum.
Aðrir segja þetta dæmi um að refsi-
löggjöfin sé meingölluð þar sem sá
er sótti að ferðamönnunum hafi ver-
ið þekktur glæpamaður sem heföi
átt að vera í fangelsi.
Mikil drykkja
Mikil bjórdrykkja einkennir sam-
félagið á austurströndinni. Ferða-
menn frá íslandi sem koma í dags-
ferð til Kulusuk sjá gjarnan
drukkna Grænlendinga fyrir utan
einu verslunina á staðnum. Fráleitt
er að halda því fram að meirihluti
íbúanna eigi við drykkjuvandamál
að glíma en víst er að sá hluti sem
þannig er ástatt fyrir er áberandi.
Viðmælendur DV töldu að ekki
væri hægt að kenna Bakkusi alfarið
um ástandið. Morð hafi alltaf verið
þekkt meðal inúíta eins og sjálfsvíg
sem eru algeng.
Veiðimenn drápu hver annan út
af konum, öfundsýki eða illu umtali
og sömuleiðis drápu menn konur
sínar og öfugt. Þeir sem þekkja
grænlenskt samfélag benda á að ein-
faldlega gildi allt önnur viðhorf
gagnvart þeim atburðum sem skil-
gi-eindir eru sem glæpir í vestræn-
um samfélögum og benda á að ekki
séu nema 100 ár síðan þjóðin var á
steinaldarstigi.
Niðurstaðan er sú að glæpir á
Grænlandi eru margfalt fleiri en á
íslandi og refsingar margfalt væg-
ari. Þá virðist svo sem engin skýr-
ing sé til á því hvers vegna ástand-
ið er svona, þrátt fyrir ítarlegar
rannsóknir sérfræðinga.
um að allt annað viðhorf ríkti þar
til glæpa. Það er gjarnan litið á
morð sem uppgjör og í langflestum
tilvikum er ástæða að baki. Það er
litið þannig á í flestum tilfellum að
gerendurnir séu ekki í eðli sínu
morðingjar. Farið hafi fram uppgjör
milli vina eða innan fjölskyldunnar
en ekki sé verið að drepa með köldu
blóði. Þetta viðhorf rikir þrátt fyrir
að fórnarlömbin séu börn. Fjöl-
skyldubönd eru sterk og fátítt er að
vinatengsl myndist utan fjöl-
skyldna. Þannig eru vinir yfirleitt
bræður, frændur, mágar. Öll sam-
hjálp
kemur í gegnum fjölskylduna og
þegar eitthvað bjátar á hjálpast fólk
að. Sama gildir þegar einhver úr
fjölskyldunni drepur þá slær fjöl-
skyldan gjaman um hann skjald-
borg.
Áfengi er í flestum tilfellum með
í spilinu þegar voðaverk era fram-
in. Menn eru þó sammála um að
ekki sé hægt að kenna því einu um
heldur ráði hefðir og viðhorf samfé-
lagsins miklu. Þekkt dæmi er um
mann í afskekktu þorpi sem trylltist
og skaut fósturbarn sitt að eiginkon-
unni ásjáandi.
Hún náði að bjarga lífi sínu með
þvi að kasta sér út um glugga og
flýja í skjól. Þama var talið að um
skiljanlegan atburð væri að ræða
þar sem uppgjör hafi staðið milli
hjónanna. Gerandinn var dæmdur
Fréttaljós
Reynir Traustason
til þegnskylduvinnu en þegar hann
losnaði í sumar færðist hann enn í
aukana. Austurrískir ferðamenn
sem komu til Kulusuk með Flugfé-
lagi íslands tjölduðu skammt utan
við bæinn Ammasalik. Um nóttina
birtist Grænlendingur í tjaldopinu
og vildi peninga eða áfengi.
Ferðamennirnir sögðust hvorugt
eiga og með það hvarf maðurinn.
Skömmu síðar kom hann við annan
mann og nú vopnaður byssu. Hann
ógnaði ferðamönnunum og batt þá á
höndum og fótum. Þannig hélt hann
þeim skelfingu lostnum í 45 mínút-
ur undir stöðugri ógn. Það
var svo samverkamaður
hans sem sá að sér þar
sem mál stefndu í
óefni. Hann
tók
Barnaníðingar sem fá dóma reyna
umfram allt að leyna því í fangelsum
fyrir hvað þeir hafi verið dæmdir. í
framhaldi af ógnaratburðinum I
Kulusuk sendu dönsk yfirvöld her
sérfræðinga til að leita svara við
ástandinu. Ekkert bendir til þess að
nein svör hafi fengist í þeirri rann-
sókn og morðinginn er kominn i
sumarfrí frá afplánuninni.
Morð í fjölskyldum
Þeir sem DV ræddi við um græn-
lenskt samfélag vora
sammála
Frá Kulusuk þar sem ógnaratburður átti sér stað í fyrra þegar 6 ára barn var misnotað kynferðislega og það myrt.