Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999 7 Fréttir Manndráp á Grænlandi margfalt fleiri en á íslandi: Morð er fjölskyldumál - sekir fara í tveggja til þriggja ára þegnskylduvinnu og fá sumarfrí Ofbeldi á Grænlandi - árin 1991-1997 0 0 Ofbeldisglæpir Manndrap 290 296 345 333 266 311 DV, Kulusuk: Morð eru aigeng á Grænlandi og öðrum augum virðist litið á slíkan gjörning en á íslandi. Bakkus konungur kemur oftar en ekki við sögu en ekki er honum einum um að kenna. Myndin er frá Kuumiit en tengist ekki efni greinarinnar að öðru leyti. DV- Á Austur-Grænlandi eru margfalt fleiri ofbeldisglæpir og morð framin en gerist á íslandi og í öðrum vest- rænum ríkjum. Þegar DV ræddi við heimamenn og skoðaði skýrslur um refsingu þeirra er tekið hafa manns- líf vekur athygli hversu vægar refs- ingar eru. Þannig er algengast að sá sem skilgreindur væri sem ótíndur morðingi á íslandi fái aðeins 2-3 ára dóm og þá ekki bak við lás og slá heldur er hann sendur í þegnskyldu- vinnu til höfuðstaðarins, Nuuk. Það viðhorf er ráðandi að manndráp sé fyrst og fremst fjölskyldumál og tek- ur réttarkerfið á málum í samræmi við það en tekur ekki á viðkomandi sem ótíndum glæpamönnum. Samkvæmt opinberum skýrslum á Grænlandi eru ofbeldisglæpir ár- lega á bilinu 266 til 345 ef litið er til áranna 1991 til 1997. Af þeim glæpum eru manndráp af yfirlögðu ráði á bil- inu 3 til 15. Flest voru manndrápin árið 1991 en árið 1997 voru þau alls 10. Til samanburðar eru morð á ís- landi á tveggja til þriggja ára fresti. Ef miðað er við höfðatölu þyrftu ís- lendingar 15 til 75 morð á ári til að vera með sömu tiðni en reyndin er sú að upp kemur eitt morð á tveggja til þriggja ára fresti á íslandi. Hvað varðar alla ofbeldisglæpi þyrftu is- lenskir glæpamenn að fremja á bil- inu 1300 til 1700 slíka verknaði ár- lega til að vera með sömu tíðni. Barn myrt í ágúst í fyrra kom upp í Kulusuk mjög gróft morðmál þar sem fórnar- lambið var 6 ára bam. Baminu var misþyrmt kynferðislega og það myrt. Ódæðismaðurinn setti síðan líkið í plastpoka og faldi. Mikil rannsókn stóð vikum saman og var á annan tug íbúa granaðm- um hið hroðalega athæfi. Eftir ítarlega rannsókn danskra yfirvalda fannst morðinginn sem sjálfur var faðir ungs bams en þó ekki þess sem myrt var. Hann hafði áður gerst sekur um kynferðis- glæpi gagnvart börnum og var dæmdur til þriggja ára þegnskyldu- vinnu í Nuuk. Samkvæmt heimild- um DV birtist maöurinn í þessum mánuði í næsta byggðarlagi við Kulusuk, Ammasalik, í fríi frá þegn- skylduvinnunni að því er virtist. Fram hefur komið í fjölmiðlum að fjölskylda ódæðismannsins styður hann undantekningarlaust þrátt fyr- ir glæpina gagnvart börnum. Hin væga refsing mannsins vekur mikla athygli og þá ekki síst í samanburði við afgreiðslu þeirra einstaklinga á íslandi sem leggjast á börn til að þjóna brengluðum hvötum. Talið er • víst að sá íslendingur sem fremdi glæp sambærilegan þeim sem Kulusuk-maðurinn framdi fengi 18-20 ára fangelsi. Sá sem uppvís verður að kynferð- isglæpum gagnvart börnum á íslandi á sér hvergi viðreisnar von og er í háska þegar hann er fangelsaður. byssuna af ógnvaldinum og sleppti ferðamönnunum sem héldu til byggða og kærðu atburðinn. Þeir héldu síðan af landi brott og til ís- lands í mikilli geðshræringu. Mönnum ber saman um að at- burður þessi sé nánast einsdæmi og venjan sé sú að Grænlendingar séu mjög vinsamlegir ferðamönnum. Aðrir segja þetta dæmi um að refsi- löggjöfin sé meingölluð þar sem sá er sótti að ferðamönnunum hafi ver- ið þekktur glæpamaður sem heföi átt að vera í fangelsi. Mikil drykkja Mikil bjórdrykkja einkennir sam- félagið á austurströndinni. Ferða- menn frá íslandi sem koma í dags- ferð til Kulusuk sjá gjarnan drukkna Grænlendinga fyrir utan einu verslunina á staðnum. Fráleitt er að halda því fram að meirihluti íbúanna eigi við drykkjuvandamál að glíma en víst er að sá hluti sem þannig er ástatt fyrir er áberandi. Viðmælendur DV töldu að ekki væri hægt að kenna Bakkusi alfarið um ástandið. Morð hafi alltaf verið þekkt meðal inúíta eins og sjálfsvíg sem eru algeng. Veiðimenn drápu hver annan út af konum, öfundsýki eða illu umtali og sömuleiðis drápu menn konur sínar og öfugt. Þeir sem þekkja grænlenskt samfélag benda á að ein- faldlega gildi allt önnur viðhorf gagnvart þeim atburðum sem skil- gi-eindir eru sem glæpir í vestræn- um samfélögum og benda á að ekki séu nema 100 ár síðan þjóðin var á steinaldarstigi. Niðurstaðan er sú að glæpir á Grænlandi eru margfalt fleiri en á íslandi og refsingar margfalt væg- ari. Þá virðist svo sem engin skýr- ing sé til á því hvers vegna ástand- ið er svona, þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir sérfræðinga. um að allt annað viðhorf ríkti þar til glæpa. Það er gjarnan litið á morð sem uppgjör og í langflestum tilvikum er ástæða að baki. Það er litið þannig á í flestum tilfellum að gerendurnir séu ekki í eðli sínu morðingjar. Farið hafi fram uppgjör milli vina eða innan fjölskyldunnar en ekki sé verið að drepa með köldu blóði. Þetta viðhorf rikir þrátt fyrir að fórnarlömbin séu börn. Fjöl- skyldubönd eru sterk og fátítt er að vinatengsl myndist utan fjöl- skyldna. Þannig eru vinir yfirleitt bræður, frændur, mágar. Öll sam- hjálp kemur í gegnum fjölskylduna og þegar eitthvað bjátar á hjálpast fólk að. Sama gildir þegar einhver úr fjölskyldunni drepur þá slær fjöl- skyldan gjaman um hann skjald- borg. Áfengi er í flestum tilfellum með í spilinu þegar voðaverk era fram- in. Menn eru þó sammála um að ekki sé hægt að kenna því einu um heldur ráði hefðir og viðhorf samfé- lagsins miklu. Þekkt dæmi er um mann í afskekktu þorpi sem trylltist og skaut fósturbarn sitt að eiginkon- unni ásjáandi. Hún náði að bjarga lífi sínu með þvi að kasta sér út um glugga og flýja í skjól. Þama var talið að um skiljanlegan atburð væri að ræða þar sem uppgjör hafi staðið milli hjónanna. Gerandinn var dæmdur Fréttaljós Reynir Traustason til þegnskylduvinnu en þegar hann losnaði í sumar færðist hann enn í aukana. Austurrískir ferðamenn sem komu til Kulusuk með Flugfé- lagi íslands tjölduðu skammt utan við bæinn Ammasalik. Um nóttina birtist Grænlendingur í tjaldopinu og vildi peninga eða áfengi. Ferðamennirnir sögðust hvorugt eiga og með það hvarf maðurinn. Skömmu síðar kom hann við annan mann og nú vopnaður byssu. Hann ógnaði ferðamönnunum og batt þá á höndum og fótum. Þannig hélt hann þeim skelfingu lostnum í 45 mínút- ur undir stöðugri ógn. Það var svo samverkamaður hans sem sá að sér þar sem mál stefndu í óefni. Hann tók Barnaníðingar sem fá dóma reyna umfram allt að leyna því í fangelsum fyrir hvað þeir hafi verið dæmdir. í framhaldi af ógnaratburðinum I Kulusuk sendu dönsk yfirvöld her sérfræðinga til að leita svara við ástandinu. Ekkert bendir til þess að nein svör hafi fengist í þeirri rann- sókn og morðinginn er kominn i sumarfrí frá afplánuninni. Morð í fjölskyldum Þeir sem DV ræddi við um græn- lenskt samfélag vora sammála Frá Kulusuk þar sem ógnaratburður átti sér stað í fyrra þegar 6 ára barn var misnotað kynferðislega og það myrt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.