Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
13
DV
Fréttir
Lögreglan á Seyðisfirði segir olíuna sífellt streyma upp frá E1 Grillo:
Er orðinn óþolinmóður
- aö bíða eftir framkvæmdaaðilum, segir bæjarstjóri - enn unnið í tilboðum
Ólafur Sigurðsson, bæjarstjóri á
Seyðisfirði, kveðst orðinn óþolin-
móður eftir að fara að sjá fram-
kvæmdaaðila á vegum umhverfis-
ráðuneytisins koma til að freista
þess að stöðva lekann í E1 Grillo
sem liggur á botni fjarðarins og
gera ástandskönnun við flakið.
Hann segist reyndar hafa vonað að
framkvæmdir hefðu getað hafist í
síðustu viku en allt hafl komið fyr-
ir ekki. Ekki er útlit fyrir að fram-
kvæmdir hefjist fyrr en í septem-
ber. Lögreglan á Seyðisfirði sagði
við DV í gær að „olían streymi sí-
fellt upp“ frá E1 Grillo.
Einar Sveinbjörnsson, aðstoðar-
maður umhverfisráðherra, sagði
við DV að niðurstaða í tilboðsmál-
um vegna verksins gæti komið í
vikunni - þ.e hver af þremur hugs-
anlegum framkvæmdaaðilum fái
verkið og þá ekki síst hvernig
verkþáttum verði hagað. Ekki liggi
hins vegar fyrir hvort fram-
kvæmdaaðilar geti hafið störf
strax þar sem þeir eru í öðrum
verkefnum.
Ríkisstjórnin ákvað að verja 6
milljónum króna til verkefnisins,
sem í raun er einungis fyrir bráða-
birgðaframkvæmdir - að kanna
legu flaksins og ástand og stöðva
þann leka sem nú á sér stað.
Rýnt í upþdrætti. Einar Sveinbjörnsson, aöstoðarmaður utanríkisráðherra, og Davið Egilsson frá Hollustuvernd ríkisins.
Sprengjur flækja málið
Flakið liggur á 30-40 metra dýpi
í Seyðisfírði. Þetta þýðir að kafar-
ar geta einungis athafnað sig í
skamman tíma niðri í einu, verða
síðan að fara upp á yfirborðið og
geta ekki kafað aftur þann daginn,
að sögn Einars Sveinbjörnssonar.
Hann sagði að niðri við flakið séu
einnig sprengjur. Það þýðir að
framkvæmdaaðilar séu háðir
Landhelgisgæslunni þaðan sem
sprengjusérfræðingar koma.
Nefnd á vegum ráðuneytisins
sem Einar stýrir átti fund á
mánudag með tilboðshöfum. Einar
sagðist engu geta svarað til um
hvenær framkvæmdir hefjist enda
eigi enn eftir að ganga frá grunnat-
riðum hvað varðar tilhögun fram-
kvæmda í Seyðisfirði.
Ólafur bæjarstjóri sagði við DV að
talið sé að a.m.k. 1.500 tonn af olíu, og
jafnvel meira en 2.000 tonn, séu enn
þá í flaki E1 Grillo. Þetta er því mik-
ið magn og ljóst að endanlegar fram-
kvæmdir við að fjarlægja olíima og
hugsanlega flakið verða gríðarlega
kostnaðarsamar. Talið er líklegast,
að sögn Ólafs, að leita þurfi út fyrir
landsteinana með framkvæmdaaðila
í því sambandi. -Ótt
Nýr framkvæmda-
stjóri Clic-On
DV, Skagafirði:
Birgir Guðjónsson, markaðsfræð-
ingur úr Reykjavík, hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri Clic-On ís-
land á Sauðárkróki. Birgir hefur
þegar hafið störf hjá fyrirtækinu.
Hann starfaði áður sem aðstoðar-
innkaupastjóri hjá Landsvirkjun.
Clic-On ísland hf. var stofnað
snemma á þessu ári. Það sérhæfir
sig í framleiðslu á leðurtöskum fyr-
ir farsíma og var búnaður til fram-
leiðslunnar fluttur frá Svíþjóð. Ekki
hefur verið starfandi framkvæmda-
stjóri heldur hafa tveir stjórnar-
menn fyrirtækisins verið í forsvari
fyrir það þar til Birgir kom til
starfa um síðustu mánaðamót.
-ÖÞ
Kópasker:
Gefla endurreist
SUS-þing í Vestmannaeyjum:
Feður fái aukinn rétt
DV, Akureyri:
„Ég fagna þessum málalokum auð-
vitað því í stað þess að rækjuvinnsla
leggist hér af verður haldið áfram að
vinna rækju. Við munum í nýja fyrir-
tækinu vinna áfram innQarðarrækju
úr Öxarfirðinum og þar fyrir utan
virðist vera gott að ná í annað hrá-
efni. Ég er því bjartsýnn á framhald-
ið,“ segir Steindór Sigurðsson, sveit-
arstjóri á Kópaskeri, en þar hefur
rækjuvinnslufyrirtækið Gefla hf. ver-
ið endurreist og komið í veg fyrir að
vinnsla á rækju legðist af á staðnum.
Fiskiðjusamlag Húsavíkur yfirtók
rekstur Geflu á sínum tíma en hugð-
ist leggja af vinnslu þar. Mikil óvissa
hefur ríkt á Kópaskeri frá því i vor
þegar fréttist að Fiskiðjusamlagið
hygðist loka rækjuvinnslunni um
tíma a.m.k. en endurreisn Geflu er
orðin staðreynd. Stærstu hluthafar
nýja fyrirtækisins eru Fiskiðjusam-
lag Húsavíkur, Hólmsteinn Helgason
hf. á Kópaskeri og Öxarfjarðarhrepp-
ur með 15 milljónir hver aðili og aðr-
ir eiga minna. Heimild er fyrir 80
milljóna króna hlutafé. Einar Svans-
son, framkvæmdastjóri Fiskiðjusam-
lags Húsavíkur, er stjórnarformaður
en aðrir í stjórn Hólmsteinn Helgason
og Steindór Sigurðsson. Hjá Geflu
munu starfa 30-40 manns yfir vetrar-
mánuðina, þegar innijarðarrækjan er
unnin, en eitthvað færra á öðrum árs-
Steindór Sigurðsson: „Bjartsýnn á
framhaldið."
DV-mynd -gk
Á þingi Sambands ungra sjálf-
stæðismanna í Vestmannaeyjum
var samþykkt að skora á stjórnvöld
að jafna rétt feðra og mæðra. Báðir
foreldrar skulu hafa félagslegt og
efnahagslegt svigrúm til að taka
fæðingarorlof. í ályktuninni segh'
að hingað til hafi réttur karla verið
verulega skertur að þessu leyti.
Hagsmunir karla og kvenna fari
saman þegar um jafnan rétt og
ábyrgð þeirra gagnvart heimili og
bömum er að' ræða. SUS leggur því
áherslu á að báðir aðilar fái sama
lagalega rétt til töku fæðingarorlofs.
„Börn eiga á sama hátt rétt á því
að njóta umgengni við báða foreldra
sína. Til að réttur beggja kynja til
töku fæðingarorlofs verði raunveru-
legur, leggur SUS til að fæðingaror-
lof verði lengt í 9 mánuði. Verði
þrír mánuðir bundnir fóður, þrir
mánuðir móður en þremur mánuð-
um geti foreldrar skipt á milli sín,“
segir í ályktuninni.
Tekjutenging
SUS leggur einnig til að greiðslur
i fæðingarorlofi verði tekjutengdar
og verði 80% af launum en sett
verði ákveðið hámark. Fyrir flesta
foreldra er það mikil tekjuskerðing
þegar annað foreldrið hrapar ijekj-
um vegna töku fæðingarorlöfs. Þar
sem laun karla em enn í dag hærri
en laun kvenna verður tekjuskerð-
ingin enn meiri ef faðirinn ætlar sér
að taka fæðingarorlof.
Tekjutengdar greiðslur þurfa því
að koma til eigi báðum foreldrum
að vera efnahagslega kleift að taka
fæðingarorlof. Hið opinbera mun
áfram greiða foreldrum, óháð kyni,
fæðingarstyrk og fæðingarorlof.
Viðbótina mætti til dæmis fjár-
magna með svipuðum hætti og líf-
eyriskerfið eða að fyrirtæki sem
borgi fæðingarorlof fái skattaíviln-
anir til móts við hluta útlagðs
kostnaðar.
/------------------^
Atvinna
Fyrirtæki sem sérhæfir sig í húsaviðgerðum óskar
að ráða verkamenn og nema í múriðn.
Viðkomandi þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Góð laun í boði fyrir rétta menn.Umsóknir sendist
augld. DV fyrir 1. sept.,
merkt. „Atvinna - 34199“.
v___________________________________________)